26 MORGUNPOSTURINN MANNLIF FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 farið á sýningar meö Hannesr Sigurður Einarsson frá Selfossi opnar málverkasýningu íbáðum sýn- ingarsólum Norræna hússins á laug- ardag. Hann þykir um margt svipa til Gunnars Arnar sem aðstoðar hann við uppsetningu sýningarinnar. Þá greina einnig margir naívisma ínátt- úrusýn hans. Inga Lísa Middelton. Sigurður Örn Brynjólfsson og fleirí opna hreyfi- myndalistasýningu i Hafnarborg um helgina. Jón Axel opnar myndlistarsýningu á Sólon fslandus um helgina. Aðrar symngar Stofngjöfín er sýnis i Listasafni Islands. Átta myndlistarmenn í Nýlistasafninu. Sigurbjörn Jónsson ný olíumálverk í Gallerí Borg. Edda Jónsdóttir grafíklistakona sýnir gallerí Sævars Karls. Giovanni Leonbianohi ttalskur Islandsvinur sýnir í Listhúsi Ófeigs. Magnús Hjörleifsson sýnir Ijósmyndir í Hafnarborg. Kristin Gunnlaugsdóttir sýnir íkonalist í Hallgrímskirkju. Rúna sýnir myndir unnar á japanskan pappír í Gallerí Úmbru. Erla Þórarinsdóttir og Andrew Mark McKenzie sýna hljóðmyndir í Gerðubergi. Erró á Kjarvalsstöðum og í Listasafni Ak- ureyrar. Steini Magnússon sýnir á Café 17. Birgir Snæbjörn Birgisson sýnir i Listhúsinu Þingi, Akureyri Árni Sigurðsson i Listasafni Akureyrar. Elísabet Jökulsdóttir sýnir á Mokka. Samsýning fjógurra listakvenna í Gallerí Art-hún. Mynd Oliver Stones, Natural Born Killers, sem sýnd hefur verið um nokkurt skeið (Austur- bæjarbíói hefur fengið misjafna dóma. Ofbeldið er ótrúlega mik- ið, myrt er alveg útfeitt og blóð uppi um alla veggi. í Dimma- lætting, sem er helsta dagblað þeirra Færeyinga, varþvíslegið upp á forsfðu fyrir nokkru að myndin væru bðnnuð alfarið í eyjunum og það þykja undur og stórtfðindi þvf það er fáheyrt að Færeyingar beiti ritskoðun með svo afgerandi hætti. Spurning hvort þetta er þeirra innlegg í umræðuna um allt ofbeldið sem sjá má á skjánum og hvfta tjald- Veistu Golsa, eins og mér fannst hann Baldur Hermanns fara yfir strikið í Hlekkjum hugarfarsins og Gúndi skítalækur bóndi tók geðvonskuna út á okkur með algjörum þjösnaskap og óeðli, þá er ekki frítt við að ég sakni hans. Eg meina, öií athygli er betri en engin athygli og ég bara meika ekki svona fálæti. Það má margt slæmt segja um Gúnda en það er bara alveg að fara með mig þetta að hann þykist ekki sjá okkur þegar hann er að gefa á garðann. Alveg er þetta makalaust með þig, Snoppa. Það var ekki svo lítið sem þú jarmaðir þegar Gúndi var hér öll- um stundum. Meðan sómakærar og heiðvirðar rollur eru því fegnastar að fá að vera í friði og ekki í sviðs- Ijósinu, þá lætur þú eins og flaðrandi tík. Athyglissýkin á eftir að drepa þig. Ég bíð bara eftir því að þú segist helst vilja vera svín en ekki rolla, sem heldur því fram að jólin séu betri en páskamir. cc Jólakort frá Smekkleysu sm/hf Týpískt íslenskt Jólin eru við næsta horn og útgáfufyrirtækið Smekkleysa sm/hf er með á nótunum, venju samkvæmt, því það hefur nú sent frá sér jólakort sem eru... ja, hvað á maður að segja? Bragi Ólafsson hefur umsjón með jólakortunum ásamt Ólafi Engil- berts dg segir að það jólahald sem birtist á kortunum sé svona nokkurn veginn eins og þeir sjái jólin á íslandi fyrir sér: Kannski er þetta ekki svona á öllum heimilum en þetta er vissulega hlið sem verður að koma fram. Þetta er svona týpískt íslenskt; mat- ur, drykkur, gleði og pakkar." Robert Guillemette tók ljósmyndirnar en fyrirsæturnar eru Jón Gnarr, Óttarr Proppé, Magga Stína og Björn Blöndal. Jón Óskar annaðist hönnun. Portrett Gunnar Hersveinn, heimspekingur, um myndina af sjálfum sér: Myndin sýnir hvað það er erfítt að botna í heiminum. Hún sýnir stöðu þessa manns gagnvart sannleikanum. Heimurinn er fyrir utan og maðurinn hefur komið sér fyrir úti í horni til að lesa um hann. Myrkrið hylur sannleik- ann en þó hefur runnið upp fyrir honum 25 kerta ljós. Hann er efins um bók- ina og hefur sett upp gleraugu til að skerpa sýnina á textann. Það dugar ekki. Þetta er pípa! Og reykurinn liðast inní hugann. Bækurnar á borðinu minna á að sannleikurinn er ekki í bókum. Sannleikurinn er á milli mannsins og þeirra. Með jaðarsjóninni sér hann skuggann á veggn- um, sem eykur enn á efa hans, því skugginn minnir hann óþægilega á hellismannasögu Platóns: Hann getur ekki lært neitt um lífið með skynfærunum aðeins með augum sálarinnar! Þess vegna er hann með hálflukt augu. Schopenhauer, á hinn bóginn, líður vel á bókarkápunni. Hann reisti sína speki á rústum Platóns og Kants. Maðurinn er að lesa um hatur hans á konum, en Schopenhauer var líka þekktur fyrir bölsýni sína og að telja að heimurinn sé hugmynd og vilji. Heimurinn er hugmyndin hans og ljósmyndin er hugmynd Jim Smart og maðurinn er fastur þar á milli. Mike Pollock sendir frá sér bók þar sem kennir ýmissa grasa. Uppgjör við dekkri hliðar fortíðarinnar I Hljómalind, Máli og menningu og Plötubúðinni má finna litla ný- útkomna bók á ensku. Hún heitir The Martial Art of Pagan Diaries" og er eftir Mike Pollock, þann sama og var í Utangarðsmönnum. I bókinni er hinum ýmsu bók- menntagreinum blandað saman; smásögur, ljóð, samtöl, bréf, draumar og jafnvel vestræn hæka. Sumt af efni bókarinnar hefur birst í tímaritum í Skotlandi, Englandi og Bandaríkjunum. Mike Pollock er mikill flakkafi en er búsettur á Íslandi, fékk reyndar ríkisborgara- rétt í janúar. Ég er búinn að finna staðinn minn eins og indiánarnir segja," segir Mike. En er hann httur að hljómsveit- ast? Ég hætti aldrei að spila en hins vegar hef ég ekki spilað opinberlega í tvö ár. Hljómsveitarbransinn hef- ur alltaf verið dirty" og er ekki í sínu besta standi núna þó að það sé nóg af góðri tónlist í gangi. En ég elska tónlist út af lífinu og er alltaf að spila en það liggur við að ég hati bransann. Enda ef ég væri ekki svona viðkvæmur þá væri ég stór, ríkur, heimskur og fullur á Hilton- hóteli í New York." Þetta er fyrsta bók Mike og hann stefnir að því að halda áfram að skrifa, segir að skriftirnar séu bjarg- vættur sinn, og bókin er ákveðið uppgjör við dekkri hliðar fortíðar- innar, hlátur í myrkrinu. Bókin er ákveðin lausn og það er eins og þungu fargi af mér létt." Þú kýst að skrifa á ensku? Já, enn er maður að reyna að ná valdi á enskunni þannig að ég er ekkert að fikta við að ná tökum á ís- lenskunni. Það verður ekki fyrr en um sjötugt eða þar um bil. Annars segja Kínverjarnir að skáld eigi helst ekki að gefa út fyrr en við fimmtugsaldur, þá hafi þeir náð nægum þroska. Ég hef lifað ýmis- legt enda hef ég haft það fyrir mottó að upplifa sem mest í sam- ræmi við orðtakið: A writer must leave no stone unturned." Þegar ég var ungur gerði ég talsvert af því að skrifa en það var ætíð tilgerðarlegt því ég hafði ekki reynsluna að baki." Afhverju öllþessi stílbrigði í sömu bókinni? Ég er að henda handsprengju í ljóðaformið þar sem allar aðferðir eru látnar vaða. Fyrir mig er það nauðsyn og í raun meiri heild en ef ég hefði haldið mig við eitt stíl- brigði. Allar reglur í list eru til að brjóta þær. Aðalatriðið er að koma hugmyndinni til lesandans og binda sig ekki við reglur eða föst form án þess að ég sé að gefa skít í hefðina. Öll form hafa vægi þó að það sé ekki rétt að festa sig í þeim." Hvað ertu að skrifa um? Ég er trúaður en er jafnframt á móti öllum trúarbrögðum. Ég leit- ast við að sneiða hjá öllum fordóm- um og gildismat er net sem maður ætti að varast. Að varðveita barnið í sjálfum sér og líta heiminn ómeng- uðum augum. Það er markmiðið." -JBG THE OLD POP STAR The old pop star looked into the mirror. The wig looked wonderf- ul. It made him look like a dear old sweet hip grandmother.