Helgarpósturinn - 15.12.1994, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 15.12.1994, Blaðsíða 10
10 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 1994 Islendingar hafa á síðustu þrjátíu árum ættleidd þrjúhundruð erlend börn. Stærsti hópurinn, eða yfir áttatíu börn, komu frá Sri Lanka fyrir áratug. Hátt í hundrað og tuttugu kjörbörn hafa síðan verið ætt- leidd frá Indónesíu og Indlandi. Á síðustu árum hafa æ fleiri farið á eigin vegum til Kólumbíu í ættleið- ingarhugleiðingum eftir að hafa gefist upp á biðröðinni hjá íslenskri ættleiðingu. Leiðin liggur til Kólumbíu Mjög hefur færst í aukana að ís- lendingar fari eigin leiðir í að ætt- leiða börn frá öðrum löndum. Eins og kom fram í fréttum MORGUN- PÓSTSINS nýverið er Össur Skarphéðinsson umhverfisráð- herra ásamt eiginkonu sinni, Ár- nýju Erlu Sveinbjörnsdóttur, um þessar mundir í Kólumbíu þar sem þau ættleiddu nýverið stúlkubarn á eigin vegum. I kjöifar fréttarinnar um ráð- herrahjónin kom á daginn að þau eru ekki einu íslensku hjónin sem leitað hafa á náðir Kólumbísku fé- lagsmálastofnunarinnar. Á annan tug íslenskra hjóna hafa á undan- förnum árum brotið sér eigin leið til Kólumbíu í gegnum kunningja- tengsl og sum leitað þangað oftar en einu sinni. Stofnun sem haft hefur milligöngu um ættleiðingar frá Kólumbíu er staðsett í höfuð- borginni Bogotá og rná segja að hún sé hattur allra minni ættleið- ingastofnana í landinu; bæði ríkis- stofnana og einkastofnana. Tölu- vert er um að Vesturlandabúar hafi ættleitt börn frá Kólumbíu á und- anförnum árum og eru elstu kól- umbísku börnin á Islandi komin hátt á tvítugsaldur. Eftir því sem næst verður komist eru íýrstu ættleiðingar kólumbískra barna til íslands raktar til íslensks námsmanns í Bandaríkjunum sem í gegnum kólumbískan kunningja sinn komst í samband við þessa stofnun fýrir nærri tveimur áratug- um. Síðan hefur eitt leitt af öðru og þótt ekki hafí það farið hátt hafa ís- lendingar unnið sér traust stofnun- arinnar. íslensk ættleiðing seinvirk og dýr Þótt haft sé á orði að hjón fari ut- an á eigin vegum og ættleiði börn er ekki þar með sagt að þetta sama fólk fái ekki samþykki íslenskra yf- irvalda. Ekki er venjan að dóms- málaráðuneytið úttali sig um ein- stök mál en engu að síður vildi full- trúi þess, Áslaug Þórarinsdóttir, sem sér um ættleiðingamál ráðu- neytisins, gera undantekningu nú og koma því á framfæri að ættleið- ingamál umhverfisráðherra og eig- inkonu hans séu algerlega í venju- bundnum farvegi, þrátt fýrir að þau hafi leitað til Kólumbíu á eigin spýtur. Það sem átt er við þegar hjón ættleiða á eigin vegum er að þau hafi kosið að leita ekki til Islenskrar ættleiðingar sem að lang stærstum hluta hefur haft milligöngu um ættleiðingar á íslandi til þessa. Ástæðan er sú að mörgum þykir fé- lagið í senn seinvirkt vegna langra biðlista, en 30 manns eru iðulega á biðlista hjá íslenskri ættleiðingu og tekur hver ættleiðing allt að hálft þriðja ár, auk þess sem margir telja milliliðakostnað of háan. Að sögn Guðrúnar Sveinsdóttur, starfs- manns Islenskrar ættleiðingar, kostar um það bil hálfa milljón króna að ættleiða barn til Islands í gegnum íslenska ættleiðingu. I þeim kostnaði er innifalin pappírs- vinna, greiðsla til ættleiðingastöðva erlendis og ferðakostnaðar. Á með- an benda aðilar, sem leitað hafa milliliðalaust til Kólumbíu á, að engan kostnað þurfi þar að reiða af hendi til þarlendrar stofnunar; ein- ungis þurfi að greiða fyrir pappírs- vinnu, ef til vill túlk erlendis, lög- fræðikostnað og ferðakostnað. En hjón hafa kost á að leita ýmist til ríkisstofnana í Kólumbíu eða einkastofnana. Fyrrnefndu stofn- anirnar taka ekki eyri fyrir viðvikið. Bent er á að kostnaðurinn sé því langt því frá hálf milljón. En þó má geta þess að ferðakostnaður í kring- um ættleiðingar í Kólumbíu hefur hækkað töluvert eftir að því var komið á að nýbakaðir foreldrar þyrftu að dvelja þar um fimm vikna skeið í stað tveggja vikna áður. UjjjjfyUa þarf ýmis Líkt og á hinum Norðurlöndun- um eru strangar kröfur gerðar til tilvonandi foreldra kjörbarna hér á landi sem og til erlendra ættleiðing- arstofnana. „Þótt það sé að færast í aukana að hjón ættleiði börn milli- liðalaust frá öðrum löndum eigum við enn ágætt samstarf við íslenska ættleiðingu. Við hjá Félagsmála- stofnun gerum engan greinarmun á því hvort fólk fari eigin leiðir eða nýti sér íslenska ættleiðingu sem millilið,“ sagði Hrönn Björnsdótt- ir, starfsmaður Félagsmálastofnun- ar, en sú stofnun er umsagnaraðili í ættleiðingarmálum hérlendis. Sótt er hins vegar um ættleiðingar til dómsmálaráðuneytisins sem gefur svo endanlegt leyfi eftir að Félags- málastofnun hefur kannað allar að- stæður. Þrjú skilyrði þarf að uppfylla til þess að eygja möguleika á því að ættleiða barn. Snúa þau skilyrði að aldri umsækjenda, sambúðartíma og vottorði þess efnis að viðkom- andi hjón geti ekki átt börn, enn- fremur að heilsufari almennt. Væntanlegir foreldrar verða að að vera búnir að ná 25 ára aldri og hafa verið giftir í minnst eitt ár og með þrjú sambúðarár að baki. Hjón sem sækja um að ættleiða kjörbarn mega heldur ekki vera eldri en 45 ára. Einhleypingar koma ekki til greina. Að jafnaði mega hjón ekki ættleiða nema eitt barn í einu, auk þess sem sett eru þau skilyrði að það barn verði að vera yngsta barn- ið á heimilinu. Þó hafa verið gerðar einstaka undanþágur frá fyrra at- riðinu. Komið hefur fýrir að hjón- um hafi verið veitt leyfi til þess að ættleiða tvö börn í einu, einkum ef um systkini er að ræða. 1 kjölfar beiðni frá dómsmála- ráðuneytinu eru kannaðar aðstæð- ur tilvonandi foreldra. Er það gert með nokkrum viðtölum og heim- sóknum á heimili. Eftir að barnið er komið til landsins er foreldrum gefinn að lágmarki þriggja mánaða reynslutími og fylgist þá Félags- málastofnun áfram með gangi mála. Og ef ástæða þykir til eru læknar einnig látnir fylgjast með gangi mála. Samkvæmt upplýsing- um frá Félagsmálastofnun eru eng- in dæmi þess að börnum hafi verið skilað til baka. Hrönn segir vinnu Félagsmála- stofnunar jafnframt fólgna í því að gera fólki grein fyrir hvað það er að fara út í. „Ef hjón ættleiða til dæmis litað barn leggjum við sérstaka áherslu á að að þau séu búin að velta því fýrir sér hvernig á að taka á þeim málum, til dæmis gagnvart fjölskyldu. En það sem við gerum einnig er að aðstoða fólk við að gera sér grein fyrir því hvort það er að taka rétta ákvörðun eða ekki, áður en kemur að sjálfri ættleiðing- unni.“ Ættleiðingarspreng- ing á síðasta áratug Samkvæmt upplýsingum frá ís- lenskri ættleiðingu hafa alls þrjú hundruð börn verið ættleidd til Is- lands á síðastliðnum þrjátíu árum og eru því elstu erlendu kjörbörnin á íslandi að nálgast þrítugt. Fyrsti hópurinn sem íslendingar ætt- leiddu kom ffá Kóreu, en þaðan komu um það það bil tuttugu börn á vegum félags sem hét Island/Kór- ea og eru þau flest komin yfir tví- tugt. Ættleiðingasprenging varð svo á fyrri hluta níunda áratugarins er ættleidd voru yfir áttatíu börn frá

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.