Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						MORGUNPOSTURINN FRÉTTIR

MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995 /|

Fyrsta landsfundi Þjóðvaka lauk í gær og eins og við var búist hlaut Jóhanna Sigurðardóttir rússneska

kosningu. Flokkurinn boðar ýmsar pólitískar sprengjur á borð við auðlindagjald, íiskmarkaði og að

útlendingar megi eiga hlut í íslenskri fiskvinnslu. Þær féllu í skuggann af því að tæpur tugur manna

gekk út vegna þess að þeir komu ekki breytingatillögu að á aðalfundinurn_

Jóhannafékk

rússneska kosningu

og boðar siðvæðingu

Það var almennt gott hljóðið í

forvígismönnum fiokksins eftir

landsfundinn þrátt fyrir að tekist

hafi verið hart á um einstaka mála-

flokka — einkum sjávarútvegs-

stefnu fiokksins. Jóhanna Sigurð-

ardóttir hlaut 105 atkvæði sem for-

maður Þjóðvaka af 108 atkvæðum.

Það nálgast 97 prósent. Jóhanna er

fyrst kvenna til að verða kosin for-

maður stjórnmálafiokks og er þá

Kvennalistinn talinn með en þær

hafa þann háttinn á að vera ekki

með formann. Svanfríður Jónas-

dóttir, hlaut afgerandi kosningu

sem varaformaður, eða 90 atkvæði.

Fimmtán skiluðu auðu og einn var

ógildur. Ágúst Einarsson prófess-

or, hlaut 85 atkvæði sem ritari

fiokksins. Engin mótframboð voru

og telst þetta því rússnesk kosning.

Sigurður Pétursson sem ekki var

í framboði fékk 4 atkvæði í ritara-

sætið.

Þjóðvaki boðar

aukna siðvæðingu

1 stjórnmálaályktun Þjóðvaka

koma fram almenn atriði og þar

segir meðal annars „Þjóðvaki legg-

ur áherslu á að viðhöfð verði heið-

arleg og ábyrg vinnubrögð í stjórn-

málum, opinberri stjórnsýslu og at-

vinnulífi." Þessi siðbót sem Þjóð-

vaki hefur boðað hefur þegar vakið

nokkra athygli enda liggur hún til

grundvallar hjá flokknum. Þjóð-

vaki ætlar að leggja áherslu á eftir-

talda málafiokka: Sókn í atvinnu-

málum og bætt atvinnuöryggi,

ábyrg efnahagsstefna, afkomuör-

yggi fjölskyldunnar og traust vel-

ferðarkerfi, mannréttindi og jöfnun

lífskjara, menntun og menning,

breytt skipan skatta- og lífeyris-

mála, umhverfisnefnd og þátttaka í

samfélagi þjóðanna á jafnréttis-

grundvelli.

I tillögu um siðvæðingu segir

meðal annars að það sé langt síðan

fór að bera á trúnaðarbresti milli

þjóðarinnar go opinberra embætt-

ismanna og stjórnsýsluhafa. „Þessi

trúnaðarbrestur hefur aukist með

árunum og snertir meinta misbeit-

ingu valds í ýmsum embættisfærsl-

um. Á það einkum við um embætt-

isveitingar, meðferð opinberra fjár-

muna, svo og stjórnmálaleg afskipti

í sjóða- og bankakerfinu." Þjóðvaki

hyggst bregðast við þessu meðal

annars með því að setja þingmönn-

um sínum og öðrum fuiltrúum

siðareglur sem verða birtar opin-

berlega. Einnig leggja þeir áherslu á

að hlunninda- og dagpeninga-

greiðslur hins opinbera og öðrum

stofnunum í almenningseigu verði

afnumin í núverandi mynd. Jafn-

rétti í tekjuskiptingu var mjög til

umræðu og í tillögu sem kom frá

vinnuhópi um siðvæðingu og

mannréttindamál kom það fram að

brýnt væri að stemma stigu við sí-

aukinni misnotkun á verktakafyrir-

komulaginu í þeirri mynd að

launafólki sé skyldað til að gerast

verktakar og þar með svipt ýmsum

þeim réttindum sem áunnist hafa

með áratuga verkalýðs- og laun-

þegabaráttu svo eitthvað sé nefnt.

Mikil átök um

sjávarútvegsmál

Það er ekki síst í sjávarútvegs-

málum sem Þjóðvakinn skapar sér

sérstöðu. Þjóðvaki vill heimila er-

lendum aðilum að fjárfesta í 20

prósentum í einstökum sjávarút-

vegsfyrirtækjum. Þetta þýðir meðal

annars að það verði ljóslega kveðið

á um þjóðareign fiskistofna í lögum

með auðlindargjaldi. Einnig er tal-

að um að afli fari um innlenda fisk-

markaði. Þetta teljast nýmæli í ís-

lenskri pólitík en það var við af-

greiðslu sjávarútvegsmálanna sem

flokkur manna gekk út af fundi

með talsverðum fyrirgangi og

ræddu hátt um sín mál frammi í

anddyri Hótels Sögu. Aðalfundur-

inn afgreiddi álit sem komu frá

undirnefndum en þeim breytingar-

tillögum var vísað til stjórnar sem

ekki vannst tími til að greiða at-

kvæði um. Nokkrir aðilar höfðu

reynt að koma tillögum um byggð-

arkvóta í gegnum þingið og reidd-

ust gríðarlega við það að breytinga-

tillögurnar skyldu ekki teknar til at-

kvæða og gengu út sem áður sagði.

Þar fóru meðal annars Njáll Harð-

Frá Þjóðvakafundinum í gær. Þorlákur Oddsson leigubílstjóri úr Hafnarfirði er fyrir miðju.

arson, Kristján Pétursson, Kári

Jónasson og Guðbjörn Jónsson

en heimildarmenn MORGUN-

PÓSTSINS innan Þjóðvaka segja að

þeir hafi verið búnir að reyna að

nauðga þessum tillögum í gegnum

þingið, tillögum sem gengju ekki

upp og fiskmarkaðir leystu að stór-

um hluta þau vandamál sem

byggðakvótinn ætti að leysa. Á

þessum skoðunum var hnykkt með

því að segja Guðbjörn vera kallaðan

flokkaskeifir og ftindarsprengir og

hafi komið víða við.

Önnur mál

Þeir sem MORGUNPÓSTURINN

heyrði í á landsfundinum sögðu

það nokkuð ljóst að með þessu fyr-

irkomulagi, að öllum væri frjáls að-

gangur, væri aldrei hægt að koma í

veg fyrir að „kverúlantar" mættu til

leiks, eiris og einn orðaði það, en

það væri mest um vert að megnið af

fólkinu hefði unnið mjög gott starf

á fundinum. Þó svo að siðbótin og

sjávarútvegsmálin hafi verið efst á

baugi voru eðlilega ýmis mál önnur

afgreidd á landsþinginu og sett í

stefnu flokksins. Varðandi efna-

hags- og atvinnumál þá vill Þjóð-

vaki skuldbreyta lánum einstak-

linga sem hafa búið við samdrátt í

tekjum og miklar skuldir. Þjóðvaki

vill að hagræðing hjá opinberum

stofnunum komi meðal annars

fram í bættum launakjörum starfs-

mannanna svo dæmi séu nefnd. Þá

kom meðal annars fram sá vilji að

bankastjórar verði ekki ráðnir

vegna hagsmuna einstakra stjórn-

málaflokka. Um atvinnumál segir

að áætlað sé að það þurfi að skapa

20 ný störf og farsælasta leiðin til að

minnka atvinnuleysi sé að viðhalda

lágri verðbólgu, auka hagvöxt og

viðskipti við útlönd. Þar sé öflugt

menntakerfi lykilatriði. Nokkrar

umræður urðu um landbúnaðar-

mál og þar kom fram gagnrýni þess

efnis að flokkurinn þyrfti að gera

upp við sig hvort hann vildi leggja

áherslu á hagsmuni neytenda í þétt-

býliskjörnum eða vera flokkur alls

landsins og gæta hagsmuna bænda.

Farið var bil beggja og Þjóðvaki

sker sig ekki ýkja mikið frá öðrum

flokkum. Það kom fram að það

verði að laga landbúnaðarfram-

leiðslu að markaðsaðstæðum og

þörfum neytenda og lögð áhersla á

að hagsmunir þeirra þyrftu ekki að

vera öndverðir. Þjóðvaki vill harðar

aðgerðir gegn skattsvikum og áætl-

ar að ríki og sveitarfélög verði af 11

milljörðum sökum skattsvika og

setti fram all nákvæmar tillögur

hvernig beri að bregðast við þeim.

Hér er einungis lítið brot af því sem

tekið var til afgreiðslu á landsftmd-

inum og nú eftir að stefnuskrá og

markmið hafa verið lögð fram

verður næsta verkefni flokksins að

raða á lista.

JBG

Fjögur hross drápust eftir að ekið var á þau í Arnarneshreppi

„Er sannfærdur um að ökumaðurinn hafi

verið á langt yfir 100 kflómetra hraða"

segir eigandi hmssanna.

„Ég er sannfærður um að öku-

maðurinn hefur verið á langt yfir

100 kílómetra hraða, ekki á 40 tii 50

kílómetrum eins og hann hélt sjálf-

ur fram. Ég fór sjálfur og prófaði

mig áfram og stoppaði á 50 kíló-

metra hraða á sama stað við svipað-

ar aðstæður. Ef hann hefur ekki séð

hrossin á þeim hraða í tæka tíð

hlýtur hann að vera blindur. Ég er

reyndar feginn að hafa verið þarna

sjálfur á þessari stundu því ég er

viss um að hann hefði drepið allt

kvikt sem fyrir honum var," segir

Einar Þórðarson bóndi sem ásamt

bróður sínum Þórði Þórðarsyni er

eigandi fjögurra hrossa sem dráp-

ust er ekið var á þau við bæinn

Hvamm í Arnameshreppi í gær-

morgun. Þrjú önnur hross þeirra

bræðra slösuðust, þar af dvelst eitt

enn á dýraspítala á Akureyri. Hin

tvö eru ágætlega á sig komin.

Mennirnir tveir sem óku bílnum

sluppu hins vegar án meiðsla.

Sem kunngut er, er mönnum

skylt að halda skepnum sínum inn-

an girðinga, en fönn var það mikil í

Arnarneshreppi í gærmorgun að

girðingar voru á kafi í snjó.

Segir bóndinn tvær meranna

sem drápust hafa verið af góðum

ættum og því mjög verðmætar.

„Þetta er nokkur hundruð þúsund

króna tjón sem við urðum fyrir.

Við eigum eftir að athuga hvar við

stöndum tryggingalega en vitum

hvað hrossin voru þung og hvað

þarf mikinn hraða til þess að henda

þeim þessa vegalengd, því verður

ekkert mál að reikna þetta út. Við

látum reyna á þetta fyrir dómstól-

um ef þess þarf," segir bóndinn.

En berið þið ekki ábyrgð á eigin

skepnum?

„Jú, og það ber ég ekkert af mér,

en það er ekki hægt að ætlast til

þess að hægt sé halda hrossunum í

skefjum við þessar aðstæður."

Einar segir að um tíu mínútum

áður en slysið varð hafi hrossin ver-

ið rekin niður í tún, í 400 til 500

hundruð metra fjarlægð frá vegin-

um. í millitíðinni voru heimamenn

að ferðbúast til þess að taka hrossin

inn í hús. „Þetta var svo stuttur tími

að ég trúði ekki mönnunum þegar

þeir komu hingað og sögðust hafa

ekið á hrossin," segir Einar.

Lögregluvarðstjórinn á Akureyri

telur hins vegar að ökumaður bif-

reiðarinnar hafi ekið á löglegum

hraða, en hámarkshraði á veginum

eru 90 kílómetrar á klukkustund.

Hann sagði að ekki væri búið að

vinna að málinu með það sem

bóndinn heldur fram fyrir augum.

„Það verður sjálfsagt tekin frekari

skýrsla af málinu. Á hinn bóginn er

alltaf varhugavert að fullyrða um

eitthvað, hafi eigendurnir ekki ver-

ið viðstaddir. Ef menn eru ekki

vissir með hraða eiga þeir ekkert að

vera að slá honum fram, án þess að

ég sé að gera lítið úr þessu. En þetta

er ósannað mál enn sem komið er,"

segir lögregluvarðstjórinn á Akur-

eyri.

-GK

15konur

ísfjórn

Alls 36 voru kjörnir í stjórn

Þjóðvaka auk þeirra Jóhönnu,

Svanfríðar og Ágiists sem eru

kjörin til eins árs. Helmingurinn

er kosinn tii tveggja ára og helm-

ingurinn til eins árs. Af þessum 36

eru Reykvfkingar fiölmennastir,

alls 14, og Hafnfirðingar næstir

með þrjá.

Alfreð Guðmundsson, Hafnarfirði

Arnór Pétursson, Reykjavík

Eiin Magnúsdótiir, Stokkseyri

Guðmundur Unnar Agnarsson, Blönduósi

Guðmundur Ólafsson, Álftanesi

GuðrúnÁrnadóttlr, Reykjavík

Helmir Ríkarðsson, Reykjavík

Helga Kristinsdóttir, Húsavík

Hótmfríður Bjamadóttir, Hvammstanga

Jón Benónýsson, S.-Wngeyjarsýslu

Jón Ssemundur Sigurjónsson, Hafnarfirðf

Katrín Theodórsdóttir, Reykjavik

Kristján Pétursson, Garðarbæ

Caufey Jónsdóttir, Isafirði

Lára V. Júlíusdóttir, Reykjavík

Marfas Sveinsson, Reykjavik

MörðurÁrnason, Reykjavik

Ólina Þorvarðardóttír, Reykjavfk

Óskar Guömundsson, Reykjavlk

Páll Halldórsson, Reykjavlk

Ragnheiður Jónasdóttir, Hvolsvelli

RunóKurÁgústsson, Borgarfirði

Slgriður Rósa Kristinsdóttir, Eskifirðl

SigriðurSigurðardóttir, Kópavogi

Sigurður Pétursson, Reykjavik

Sigurlín Sveinbjamardóttir, Hvalfjarðar-

strönd

Snorri Styrkársson, Neskaupstað

Sólveig Ólafsdórtir, Reykjavík

Sveinn Hálfdanarson, Borgames

Svelnn Allan Morthens, Skagafirði

Sæmundur Pálsson, Akureyri

Vilhjáimur Ingi Ámason, Akureyri

Porsteinn Hjartarson, Árnessýsiu

Þór Vfklngsson, Reykjavík

Þorbjörg Gísladóttir, Hafnarfirði

Pórunn Sveinbjörnsdóttir, Reykjavik

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32