Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995

MORGUNPOSTURINN FRÉTTIR

200 milljónir króna-

Til útgáfumála samkvæmt ákvörðun þingflokka

Styrkur til blaðaútgáfu samkvæmt tillögum stjórnskipaðrar nefndar

Sérfræðileg aðstoð við þingflokka

'91

'92

Árið 1993 var liðurinn „Til útgáfumála samkvæmt ákvðrðun þingflokka" sameinaður styrknum til blaðaútgáfu.

1994 er miðað við verð Morgunblaðsins, en virðisaukaskattur kom til 1. júlí 1993 og þá hækkaði blaðið upp í 1400 krónur, sem það stóð í lengst af.    g

Hinn 1. nóvemþer hækkaði verðið hins vegar upp í 1500 krónur og er miðað við það verð þó að til dæmis DV kosti 1550 krónur í áskrift.    ¦'"

Fjárveitingar ríkissjóðs til blaðaútgáfu og stjórnmálaflokkanna

Framkvæmdasfjórar

flokkanna fá srfellt meiri

peninga til útdeilingar

Viðleitni sem mátti greina hjá

núverandi ríkisstjórn í upphafi

kjörtímabils til að lækka greiðslur í

sérstaka styrki til blaðaútgáfu og

stjórnmálaflokka virðist vera fyrir

bí. Upphæðirnar eru aftur á upp-

leið og það sem meira er — meiri-

hluta þessara peninga er úthlutað af

nefnd (stjómskipuð nefnd) sem í

sitja framkvæmdastjórar stjórn-

málaflokkanna, þeir Kjartan

Gunnarsson, framkvæmdastjóri

Sjálfstæðisflokksins, Sigurður

Tómas Björgvinsson, fram-

kvæmdastjóri Alþýðuflokksins, Eg-

ill Heiðar Gíslason, framkvæmda-

stjóri Framsóknarflokksins, Kristín

Halldórsdóttir, starfsmaður þing-

flokks Kvennalista, og Einar Karl

Haraldsson, framkvæmdastjóri

Alþýðubandalagsins. Þessi nefnd

gerir tillögu um skiptingu tæplega

íoo milljóna króna á milli þing-

flokkanna. Til samanburðar hafði

þessi nefnd aðeins 55 milljónir

handa á milli fyrir tveimur árum.

Búnir að skipta

peningunum

Nefndin kom saman nú 10. janú-

ar  og  skipti  peningunum  sam-

kvæmt fyrirfram ákveðinni reglu.

12,3 milljónum var deilt jafnt út til

þingflokkanna  en  85,7  milljónir

fóru   til   þeirra   eftir   atkvæðum

flokkanna eins og þau féllu vorið

1991. Skiptingin varð því svona:

Sjálfstæðisflokkur 37 milljónir

Framsókn 19,4 milljónir

Alþýðuflokkur 16,3 milljónir

Alþýðubandalag 15,3 milljónir

Kvennalistinn 9,8 milljónir

Áður fyrr var skiptingin meira

litlu flokkunum í hag en reglunni

var breytt fyrir nokkrum árum síð-

an þannig að flokkar með mikið at-

kvæðavægi á milli sín fá meira.

Erfitt að sjá hvernig

peningarnir deilastút

Sú aðferð að láta þingflokkunum

peningana í té gerir það að verkum

að erfítt er að sjá hvaða blöð fá

þannig opinbert fé til rekstursins.

Af dagblöðunum er það aðeins Al-

þýðublaðið sem nýtur beinna fram-

laga en auk þess fá Vikublaðið og

Vera greiðslur. Peningarnir eru

notaðir til að stemma af efnahags-

reikning fyrirtækjanna og skekkir

þannig samkeppnisstöðu þeirra

gagnvart öðrum blöðum og tíma-

ritum. Þess bera að geta að MORG-

UNPÓSTURINN fær engar slíkar

greiðslur.

í tíð Ólafs Ragnars Grímsson-

ar fjármálaráðherra voru blaða-

Utdeilingarnefnd flokkanna. Kjartan Gunnarsson, Sigurður Tómas Björgvinsson, Egill Heiðar Gíslason, Kristín

Halldórsdóttir og Einar Kari Haraldsson.

kaup ríkisins aukin gífurlega eða úr

250 eintökum af hverju blaði upp í

750 eintök. Blaðakaupin eru sam-

kvæmt sérstökum heimildarlið hjá

fjármálaráðuneytinu. Þannig má

segja að í tíð Ólafs Ragnars, nánar-

títekið í desember 1989, hafi verið

byrjað að beita þessu sem beinum

styrkjum til blaðanna. Reis fram-

lagið úr 14,9 milljónum 1989 í 55

milljónir 1990. Var áskriftarfjöldinn

svo mikill að þáverandi upplýsinga-

fulltrúi fjármálaráðherra þurfti að

hringja út til ríkisstofnana og bjóða

þeim áskriftir!

Þessu var síðan breytt aftur í tíð

Friðriks Sophussonar fjármála-

ráðherra. Fyrst var skorið aftur nið-

ur í 250 eintök, síðan í 150 eintök

árið 1993 og 100 eintök 1994 og

heldur það sér í ár. Á sama tíma og

þetta er gert hefur opinberum fyrir-

tækjum verið gefinn kostur á að

velja sjálf þær áskriftir sem þau vilja

og telja sig þurfa. Sama á við um Al-

þingi en áskriftir Alþingis og al-

þingismanna eru nú greiddar af

þinginu sjálfu. Þess má geta að

þingið greiðir blaðaáskriftir alþing-

ismanna. Hvergi er því hægt að

ganga að því á einum stað í dag hve

margar blaðaáskriftir hið opinbera

kaupir. Þess má reyndar geta að á

sínum tíma komst sá háttur á að

fjármálaráðuneytið greiddi 200

áskriftir að tímaritinu Veru og var

ekki dregið úr því þegar Friðrik

Sophusson hóf niðurskurð sinn á

áskriftum. Þessar miklu áskriftir að

Veru komust á í fjármálaráðherra-

tíð Alberts heitins Guðmunds-

„Ágætis viðbót"

En stendur útgáfa Alþýðublaðsins

ogfellur meðþessum blaðastyrkjum?

„Nei, hún gerir það ekki en þetta

er vissulega ágætis viðbót. Alþýðu-

blaðið hefur verið rekið á núlli

undanfarin ár en það er samdráttur

hér eins og hjá öðrum fjölmiðlum,"

sagði Sigurður Tómas Björgvins-

son, framkvæmdastjóri Alþýðu-

blaðsins og Alþýðuflokksins. Hann

benti auk þess á að þessi upphæð

væri meira og minna notuð í kosn-

ingabaráttuna og greiða niður

skuldir þess á milli.

Þess má geta að flokkarnir styrkja

einnig útgáfustarfsemi í kjördæm-

unum og hefur framlag Framsókn-

arflokksins þannig meira runnið til

Dags á Akureyri en Ttmans eftir að

þeir misstu af rekstri hans.

Framan af voru framlög til sér-

fræðilegrar aðstoðar við þingflokka

í nokkru jafnvægi en voru hækkuð

verulega árið 1994 sem hluti af sam-

komulagi Sjálfstæðisflokksins og

annarra flokka. Sjálfstæðismenn

fengu í gegn að framlög til stjórn-

málaflokka yrðu gerð frádráttarbær

frá skatti. Var þar gert ráð fyrir að

fyrirtæki gætu varið allt að 0,5 pró-

sent af tekjum sínum til slíkra

framlaga. Gegn því var framlag til

sérfræðiaðstoðar hækkað.

-SMJ

Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings

Ríkið borgi sama fyrir vín og aðrir

.Yfirskoðunarmenn        leggja

áherslu á að verð á vörum ÁTVR

til ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja

verði það sama og gildir á almenn-

um markaði," segir í skýrslu yfir-

skoðunarmanna ríkisreiknings en

það eru þeir Pálmi Jónsson,

Svavar Gestsson og Sveinn G.

Hálfdánarson.

1 skýrslunni segir að með núver-

andi fyrirkomulagi sé varla hægt að

gera sér grein fyrir raunverulegum

risnukostnaði. Þá eflist kostnaðar-

vitund þeirra sem fyrir risnu standi

ef þjóðfélagið sæti í þessum efhum

við sama borð og rétt verðlagning

myndi skila sér aftur til ríkissjóðs í

hækkuðum tekjum ÁTVR. Einnig

myndi samkeppni annarra veislu-

fanga njóta góðs af.                 -pj

Davíð Oddsson forsætisráðherra og Astrfður Thorarensen, eigin-

kona hans, skála í ódýru ríkisáfengi.

í návíi

Geir H. Haarde, þingflokksformaður sjálfstæð-

ismanna, er fyrsti flutningsmaður frumvarps til

breytingar á stjórnarskrá íslands

Ekki viss um að

annað tœkifœri

gefist í bráo

undanförnu hafa

margar    athuga-

fúkyrðum, stóryrðum og

órökstuddum sleggjudóm-

um.

Að

birst

semdir varðandi mann-

réttindakafla stjórnar-

skrárfrumvarpsins.

Margar þessara kvartana

eru harðorðaðar og um

leið hafa menn kvartað

yfir því að það sé fljóta-

skrift á frumvarpinu. Á

sama tíma segja menn að

ofætlað hafi verið að af-

greiða það í vor og gefa

sér ekki lengri tíma í að

semja það en raun var á.

Hvað finnst þér um

þessa gagnrýni?

„Það er ekki hægt að

saka menn um fljóta-

skrift í þessu. Þarna er

um tvenns konar gagn-

rýni að ræða; annars veg-

argagnrýniútaftímaleysi „SÚ greilt VOTþeSS eðlÍS Og

sem ég tel að sé ekki rétt-          ¦*    1,1             .',        *             *  ,

mæt þar sem það íá aiitaf með sltkum storyrðum að eg

stðr17Þ ilni aíþaðlU tel ekki ástæðu til að ansa

að afgreiða þetta mál á fannfc GreÍtlÍn VCir full ttf

þessu þingi. Frumvarpið

kom  fram  í desember,

það var mælt fyrir því og

síðan tók nefndin, sem

kosin var sérstaklega, við

því í þinginu. Hún tók

upp á því nýmæli að aug- ^^^^

lýsa sérstaklega eftir athugasemd-

um, sem ekki hefur verið gert áður,

þannig að þeir sem áhuga hafa á

geti komið sínum sjónarmiðum að.

Það er það sem er að berast inn til

okkar núna, umsagnir og athuga-

semdir og við munum vinna úr því

á næstunni með það fyrir augum að

ljúka málinu eins og ráðgert var

núna í febrúar. Ég tel því að sú

gagnrýni standist ekki og leyfi mér

að kalla það vitleysu. Síðan er hinn

efnislegi þáttur; þar sem komið

hafa fram efnislegar athugasemdir

sem er annað mál. Þar geta menn

haft mismunandi skoðanir eftir at-

vikum. Ég tel að sumt af þeirri

gagnrýni sé á misskilningi byggt og

öðru er ég bara ekki sammála."

Hvað segir þú til dæmis um

skrif mikilsmetins lögmanns eins

og Ragnars Aðalsteinssonar

hæstaréttarlögmanns sem í ára-

raðir hefur komið að málum

tengdum mannréttindum?

„Eiríkur Tómasson er einnig

mikilsmetinn lögmaður og prófess-

or og hann hefur líka skrifað grein

um málið. Þeir eru bara ósammála

enda eru uppi mismunandi sjónar-

mið."

En efnislega um þau rök sem

Ragnar dregur fram?

„Ég get ekki tekið undir þau og

ég er honum ósammála um margt.

Við höfum enda rætt það á opin-

berum vettvangi. Hann hefur bara

aðrar skoðanir og það er gott og

blessað."

Ef ég leyfi mér að vitna í annan

Iögfræðing, Margréti Viðar, þá

segir hún í fyrirsögn greinar sinn-

ar að frumvarpið sé ónýtt?

„Sú grein var þess eðlis og með

slíkum stóryrðum að ég tel ekki

ástæðu til að ansa henni. Greinin

var full af fúkyrðum, stóryrðum og

órökstuddum sleggjudómum."

Margrét víkur að því að það

skorti heildarsýn við frumvarpið

og Ragnar kemur líka inn á þetta?

„Ég er bara ekki sammála, það er

ósköp einfalt mál. Það vantaði ein-

faldlega öll rök í þessa grein. Slíkar

greinar dæma sig sjálfar — þær eru

ekki málefnalegt innlegg í umræð-

una."

Hvað segir þú um athugasemdir

ASÍ?

„Þar eru efhislegar athugasemdir

sem varða 12. grein frumvarpsins

þar sem er fjallað um svokallað

„neikvætt félagafrelsi". Ég tel að at-

hugasemdir ASÍ séu að verulegu

leyti á misskilningi byggðar vegna

þess að þeir virðast óttast það að

þar sé verið að grafa undan því fyr-

irkomulagi sem tíðkast hefur varð-

andi forgangsréttarákvæði í kjara-

samningum, sem snúa að því að fé-

lagsmenn tiltekinna stéttarfélaga

hafi forgang til vinnu á sínu félaga-

svæði. Það er bara ekki rétt, það er

ekki verið að hrófla við þessu. Þetta

er ástæðulaus ótti, tel ég vera. Það

er ekkert að þessu vikið. Akvæði

um þetta í frjálsum kjarasamning-

um milli aðila vinnumarkaðarins

geta staðið áfram."

Nú hafa fallið tveir dómar

tengdir Islandi hjá Mannréttinda-

dómstól Evrópu. Annars vegar

„Leigubílstjóradómurinn" og

hins vegar „Þorgeirsmálið". Það

virðist vera tekið fullt tillit til

leigubilstjóramálsins en ekki Þor-

geirsdómsins?

„Þetta hef ég aldrei heyrt áður."

Hvað ætlið þið ykkur með

breytingum á tjáningarfrelsis-

ákvæðunum?

„Þau eru gerð miklu nútímalegri.

í stjórnarskránni nú er ekki talað

um fjáningarfrelsi — það er bara

talað um prentfrelsið."

Jú, nútímalegri, en myndir þú

segja að þarna hefði orðið einhver

grunnbreyting?

„Já, með þessum breytingum er

einmitt verið að taka upp ákvæði

sem nútíminn kallar á."

Standið þið við það að klára

málið á þessu þlngi?

„Það er áfram okkar markmið.

Þegar frumvarpið var lagt fram af

formönnum allra þingflokka var

það gert með því markmiði að

klára málið innan þess tímafrests

sem allir vissu að var fyrir hendi.

Það verður bara að koma í ljós

hvort það tekst eða ekki. Það sem

mig hins vegar grunar er að ef það

lag sem skapaðist núna vegna 50

ára afmælis lýðveldisins er ekki nýtt

þá efast ég um að annað tækifæri

gefist í bráð."

-SMJ

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32