Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						10

MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR

MANUDAGUR 30. JANUAR 1995

Grafgotur

endur1994

Lang stærstu bjórframleiðendurnir eru

Ölgeröin Egill Skallagrímsson og Víking

brugg á Akureyri með þriðjungshlutdeild í

framleiðslunni hvor. Þriðjungurinn skipt-

ist milli innflytjendanna og er Beck's þar

með stærsta hlutdeild, eða um níu af

hundraði. Ölgerðin bætir mest við sig frá

fyrra ári eða um 6 prósentustig og Beck's

um 3 prósent. Samdrátturinn er hins veg-

ar mestur hjá Heineken og Holsten.

Bjórtegundir

1994

(      Aðrir	

-^SÍ	|k Löwenbráu /

\ Beck s/    |	mk             1"

vHp'        li	§|§§s,                 ¦/ Si

*l|||||ÍMy'               J||	Wms.        / ^

TTuborgJj	W \

	HBB"*'        í

Egils Gull ber höfuð og herðar yfir aðrar

bjórtegundir hvað sölu varðar með fjórð-

ungsmarkaðshlutdeild. Löwenbráu er

næst mest seldi bjórinn með 16 prósent

hlutdeild og Viking með 12,3 prósent. Þá

komaTuborg, Beck's, Holsten, Heineken

og Pripps.

Bjórsala

Bjórsala jókst um nærri 25 prósent á milli

áranna 1993 og 1994. Á fyrra árinu seldi

ÁTVR 5,9 milljónir lítra en í fyrra var salan

nærri 7,3 milljónir litra.

Ágúst Einarsson var harðánægður eftir landsþing Þjóðvaka þrátt fyrir

talsverðan ágreining í sjávarútvegsmálum þar sem hann var meðal annarra sakaður

um valdníðslu og nokkur hluti fundargesta gekk út. Hann segir flokkinn hafa

skýlausa sérstöðu:

„Hvorki óðagotsstefha

Alþýðuflokks né afturhalds-

hyggja Sjátfstæðisflokks"

Blaðamaður fann forystumenn

Þjóðvaka úrvinda í Skrúði á Hótel

Sögu í gærkvöldi skömmu eftir að

landsfundinum lauk en ströng

fundarhöld hafa staðið nú um helg-

ina. Það tókst að draga Ágúst Ein-

arsson úr hópnum í viðtal.

Stœrsta spurningin hlýtur að vera:

1 hverju er sérstaða Þjóðvaka fólgin?

„Við höfum sérstöðu í sjávarút-

vegsmálunum, við höfum sérstöðu

í tillögugerð okkar í skattamálum,

hvernig á að taka á þeim og hvernig

eigi að létta skattbyrðina hjá fólki

með lágar og miðlungstekjur. Við

höfum algjöra sérstöðu í nákvæm-

um tillögum varðandi siðvæðingar-

mál að þau mál verði tekin mjög

föstum tökum og setjum það ofar-

lega á okkar stefnuskrá. Við erum

með margs konar hugmyndir varð-

andi nýsköpun í atvinnumálum og

efnahagsstefnu sem gengur upp,

ekki neina verðbólgustefnu, heldur

fyrst og fremst stöðugleikastefnu og

bætta framleiðni í íslenskum fyrir-

tækjum sem mun leiða til aukins

hagvaxtar og aukins kaupmátts

fólks. Þessi stefna okkar gengur

upp. 1 öðrum málaflokkum höfum

við einnig gert ráð fyrir greiðsluað-

lögun fyrir þá sem hafa lent í þvílík-

um greiðsluörðugleikum að ekkert

blasir við annað en gjaldþrot. Við

tökum á því með nákvæmri tillögu-

gerð og nákvæmari en hjá öðrum

stjórnmálaflokkum."

Það setti talsverðan svip á þing-

hald í gær að stór hópur gekk út af

fundi vegna þess að ákveðnir þættir

í sjávarútvegsmálum voru ekki

teknir til atkvæða. Ágúst Einarsson

var meðal annars sakaður um vald-

níðslu.

Út á hvað gekk þessi ágreiningur?

„Eins og í öllum stjórnmála-

hreyfingum er tekist á um ýmis mál

og þar bar sjávarútvegsmálin hæst.

Það var hins vegar rætt mjög ítar-

lega í undirnefnd og þar var tekist á

í atkvæðagreiðslu og samþykkt til-

laga sem síðar var samþykkt sem

stefna Þjóðvaka. Öðrum tillögum

var vísað til stjórnar eins og reyndar

öllum breytingartillögum sem

komu fram síðari dag landsfundar-

ins. Ágreiningurinn gekk út á það

að sumir vildu leggja til breytingar

á fiskveiðistjórnarkerfinu með út-

færðum hætti sem aðrir töldu að

ekki væri hægt að gera nógu h'óst og

nógu nákvæmt á þessum stutta

fundi. Þeir töldu rétt að þau mál

yrðu nánar skoðuð innan stjórnar.

Það varð niðurstaða hópsins og síð-

an kom þessi tillaga aftur upp. Hins

vegar var naumt í atkvæðagreiðslu

og það er tilfinningahiti í mönnum

varðandi þessi mál og sumir tóku

það óstinnt upp. Það breytir því

ekki að þarna var afgreidd mjög

skýr sjávarútvegsstefna með grund-

vallarbreytingum á fiskveiðistjórn-

unarkerfinu og viðvíkjandi ráðstöf-

un þess. Að allur afli landaður hér-

lendis fari á fiskmarkaði og að út-

lendingar megi eiga allt að 20 pró-

sent í íslenskum sjávarútvegsfyrir-

tækjum að gefnurn tilteknum skil-

yrðum. Þetta síðarnefnda eru ný-

mæli og enginn stjórnmálaflokkur

með í sinni stefnu. Hins vegar vildu

sumir aðra útfærslu á tilteknum at-

riðum og það verður þá áfram til

umræðu innan stjórnar Þjóðvaka."

Hvað um utanríkismálin?

„Við teljum að það þurfi að laga

EES-samninginn að breyttum að-

stæðum, við viljum að það séu

kannaðir ítarlega kostir og gallar á

aðild að ESB og við bendum líka á

það að flest ríki í Evrópu hafa valið

sér ESB sem starfsvettvang og það

verði ríkjaráðstefna ESB á næsta ári

og við verðum að fylgjast mjög vel

með þeirri þróun og taka afstöðu

með tilliti til breyttra aðstæðna.

Þarna er ekki lokað á neitt og held-

ur ekki tekin fljótfærnisleg afstaða

heldur má segja að þarna sé lagt

upp með jákvæða utanríkisstefnu

varðandi umheiminum. Þarna er

hvorki þessi óðagotsstefna Alþýðu-

flokks né afturhaldshyggja Sjálf-

stæðisflokks."

Landbúnaðarmálin hljóta að

skipta miklu máli í þessu samhengi

og eftir umræður var sem stefnan

hafi hnikast nœr miðju ogflokkurinn

átt erfitt með að gera upp við sig

hvort hann vildi vera þéttbýlis- eða ¦

dreifbýlisflokkur?

fimmtudaginn 2.febrúar, kl. 20.00

Hljómsveitarstjóri:    Osmo Vanska

Einleikari:    Elmar Oliveira

Efnisskrá

Osmo Vanskd

©

Ludvig van Beethoven:    Fiðlukonsert

Igor Stravinskíj:    Vorblót

Elmar Oliveira

Agúst Einarsson var kjörinn ritari Þjóðvaka á iandsþingi í gær. Hann fagnaði i

Sigurðardóttur og Svanfríði Jónasdóttur. „Útlendingar megi eiga allt að 20 prósent i

vegsfyrirtækjum að uppfylltum tilteknum skilyrðum."

gær með Jóhönnu

íslenskum sjávarút-

„Nei, tillagan sem var unnin í

undirbúningshóp í málefnavinnu

fyrir þingið var samþykkt nær

óbreytt. Hún tekur til beggja í

þessu. Það á að leggja sérstaka

áherslu á varðandi breytingu

GATT-samningsins að þar sé tekið

á jöfnunargjöldunum á sanngjarn-

an hátt fyrir bændur og neytendur,

enda fara hagsmunir þeirra saman

til lengri tíma. Þarna er byggð brú

milli neytenda og bænda. Sumir

myndu segja að við hefðum átt að

taka afdráttarlausari afstöðu með

þéttbýlisneytendum og einhverjir

með bændastéttinni  en þarna er

farið bil beggja og lögð áhersla á að

þarna sé um sameiginlega hags-

muni að ræða. Þarna voru tillögur

sem gengu lengra í hvora áttina og

þeim var vísað til stjórnarinnar og

við verðum með þau mál áfram í

umræðunni."

Það er þá ekki hcegt að segja að

ykkar stefna brjóti í bága við stefnu

annarraflokka?

„Nei, sérstaða okkar í landbún-

aðarmálum er kannski falin í þess-

ari miklu áherslu á samstillta stefnu

og aðrir flokkar hafa það kannski

ekki með jafn ótvíræðum hætti sem

við erum með."

Ágúst segir að ekki sé búið að

raða niður á lista ennþá og nægur

tími sé til stefnu. Allur tími hafi far-

ið í að undirbúa landsfundinn og

nú fari menn að vinda sér í það að

kanna þau mál. Það eru komnar

hreyfingar alls staðar úti á landi og

starf langt komið í öðrum kjör-

dæmum. Hann vildi ekkert segja

um það hvort hann sjálfur myndi

leiða listann í Reykjaneskjördæmi.

„Það eru aðallega fjölmiðlarnir

sem hafa gaman af því að velta upp

nöfnum en við höldum ró okkar."

-JBG

Miðasala á'skrifstofutírna og yið innganginn við upphaf tónleika. Greiðslukortaþjónusta.

h,

Samtök þeirra sem hafa orðið fyrir læknamistökum stotnuð

Ætfum að láta

verkin tala

Amheiður Vala Magnúsdóttir varkjörin formaður samtakanna.

I síðustu viku fór fram á Hótel Lind fjöimennur     menn á sínum snærum.

stofnfundur samtaka fólks sem á það sameiginlegt

að hafa orðið fyrir læknamistökum. Arnheiður

Vala Magnúsdóttir var kjörin formaður samtak-

anna sem hafa hlotið nafnið Lffsvog. Að sögn Ara-

heiðar voru stofhfélagar Lífsvogar vel á annað

hundrað og segir hún að mikill hugur hafi verið í

fólki. Samtökin hafa fengið aðstöðu hjá Neytenda-

samtökunum að Skúlagötu 26 og hyggjast þegar

hefja kröftuga starfsemi.

„Skrifstofan verður opin fólki sem vill leita beint

til okkar en einnig verður hægt að hafa samaband í

símatíma. Víð ætlum að halda annan fund fljótiega

þar sem verður farið yfir þær kröfur sem við förum

fram á. Við ætlum strax að láta verkin tala," segir

Arnheiður og bendir á að samtokin muni hafa lög-

Meðal þess sem Lífsvog setur á oddinn er að

komið verði á laggirnar nokkurs konar ábyrgðar-

tryggingarsjóði sem fórnarlömb læknamistaka geti

leitað til um bætur. Amheiður segir að auk þess að

gæta hagsmuna þeirra sem hafa orðið fyrir iækna-

mistökum sé hlutverk samtakanna ekki síður að

veita félagsmönnum sínum stuðning og ráðgjöf í

þessum erfiðu málum.

„Fólk kom með mjög jákvæðu hugarfari á fund-

inn og allir voru yfir sig hamingjusamir með að

búið væri að stofha samtökin svo nú væri hægt að

fara að vinna að þessum málum. Umræðan um

þessa hluti átti að vera komin upp á yfirborðið fyr-

ir löngu."

-jk

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32