Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						MANUDAGUR 30. JANUAR 1995

MORGUNPOSTURINN ERLENT

11

Tsjetsjnía

Dúdajev hótar stríði í

rússneskum boraum

Dúdajey, leiðtogi Tsjetsjena, hótarað sprengja borgir

íRússlandi efRússarláti ekki afheríerð sinni í

Tsjetsjníu. Rússarsvara honum affyrirtitningu og

kalla hann bófa sem fyrr. Þeirhalda áfram að

sprengja íGrozníþrátt fyrirað meira að segja Þjóð-

verjar séu að missa þolinmæði með Jeltsín forseta.

Stríðið í Tsjetsjníu gæti staðið í

fimmtíu ár ef Rússar reyna ekki að

finna friðsamlega lausn. Þetta sagði

Dzhokar Dúdajev, leiðtogi Tsjetsj-

ena, í viðtali við þýska blaðið Die

Welt sem birtist í dag. Dúdajev

sagði ennfremur að hann teldi að

Rússar stefndu að því að reka

Tsjetsjena burt úr heimahögum sín-

um og setja í staðinn aðflutta Rússa.

Dúdajev sagðist hafa undir höndum

skjöl sem sönnuðu hugmyndir

Rússa um brottflutning.

Jósef Stalín lét á sínum tíma

flytja Tsjetsjena og nágrannaþjóð-

ina Inguseta austur á sléttur Kaz-

hakstans. Þar voru þjóðirnar

geymdar í þrettán ár og var mann-

fall gríðarlegt.

Dúdajev sagði að um 25 þúsund

óbreyttir borgarar hefðu fallið á

þeim átta vikum sem stríðið í

Tsjetsjníu hefur staðið, en Rússar

hefðu misst 12-13 þúsund hermenn.

Þessar tölur eru óstaðfestar og segja

erlendir sjónarvottar að þær virðist

mjög í hærri kantinum.

Dúdajev hvatti ennfremur til þess

í viðtalinu að öll verslun við Rúss-

land yrði stöðvuð og að þeim yrðu

ekki lánaðir peningar, enda færi

„hver kópeki sem Rússland fengi

beint í herinn," sagði hann.

Dúdajev, sem er fyrrum flugher-

foringi og karatemeistari, varaði

Rússa við því á laugardag að Tsjetsj-

enar kynnu að grípa til grimmilegra

hefhdarðagerða vegna innrásarinn-

ar í landið. /nrer/ax-fréttastofan

skýrði frá því að Dúdajev hafi sagt

að Iiðsmenn hans muni gera árásir á

rússneskar borgir ef herferð Rússa í

Obreyttur borgari er lagður á börur í einu úthverfi Grozní eftir að hafa

orðið fyrir sprengjuárás Rússa.

landinu hætti ekki innan mánaðar.

„Það er ekkert vandamál að brenna

borgir. Til þess þarf ekki skriðdreka

eða flugvélar. Og þá munu engir

skriðdrekar bjarga Moskvu," sagði

Dúdajev. Rússar vita að þetta eru

ekki orðin tóm, enda þykir með

ólíkindum hversu Tsjetsjenar hafa

haldið uppi frækilegum vörnum í

höfuðborg sinni, Grozní.

Rússar   hafa   svarað   hótunum

Dúdajevs af mestu fyrirlitningu og

segja að afstaða hans sé í besta falli

óskiljanleg. I yfirlýsingu rússnesku

stjórnvaldarinnar segir að líklega

hafi Dúdajev endanlega misst

tengslin við raunveruleikann. Það

sé heldur ekki að marka orð hans,

enda hafi „bófaforinginn í Grozní"

áður gefið út svipaðar yfirlýsingar.

Rússar halda áfram uppteknum

hætti og halda áfram að sprengja

miðborg Grozní og er sagt að þær

springi á þrjátíu sekúndna fresti.

aðan liggur stöðugur straumur

flóttamanna og Rússar hafa ekki lát-

ið það aftra sér þótt sendinefnd frá

RÖSE, Ráðstefnunni um öryggi og

samvinnu í Evrópu, sé stödd í

Grozní að kanna aðstæður.

Boris Jeltsín er ekki hátt skrif-

aður þessa dagana, hvorki í Rúss-

landi né annars staðar. I skoðana-

könnun sem NTV, sjálfstæð sjón-

varpsstöð, birti í gær kemur fram að

72 af hundraði rússnesku þjóðar-

innar treysta Jeltsín ekki. Skoðana-

könnunin var gerð 20. janúar og var

úrtakið 1300 manns. Að auki sögð-

ust 13 prósent hafa blendnar tilfinn-

ingar til forsetans.

Rússar hafa hin síðari ár átt sér

góðan  bakhjarl,  viðskiptavin  og

lánadrottinn  í  Þjóðverjum.  Þeir

virðast þó líka vera að missa þolin-

mæði með Jeltsín forseta og um

helgina sendi Klaus Kinkel utan-

ríkisráðherra   Jeltsín

alvarlega    viðvörun.

Hann sagði að forset-

inn væri kominn út á

hálan ís.  Hætt væri

við að hann missti til-

trú sína sem lýðræðis-

sinni.

Mikið

mann-

mn hélt áfram að rigna í Norð-

ur-Evrópu í dag. Vatnsflaumurinn

hefur farið rénandi í dag en hann

gæti semsagt aukist á nýjan leik ef

gerir úrhellisrigningar á nýjan leik,

en veðurfræðingar segja talsverðar

líkur á því. Þetta eru mestu flóð á

þessum slóðum í sextíu ár og hafa

árnar Rín, Maas, Mosel og Meuse

allar verið bólgnar af vatnsfiaumi.

Hermt er að sextán manns hafi lát-

ist af völdum vatns og vinda í

Frakklandi og sex í Belgíu en einnig

hefur orðið manntjón í Þýskalandi,

Hollandi og Luxemburg. Þúsundir

manna hafa þurft að flýja heimili

sín og eru hvort tveggja hermenn

og hjálparsveitarmenn við björgun-

arstörf. Þaö auðveldar ekki starfið,

og gerir íbúum líka gramt í geði, að

túristar hafa flykkst á svæðið og

þykir spennandi að sjá borgir mar- |

andi í hálfu kafi. Á myndinni sést

hvernig hollenskur piltur í bænum

Venlo lætur flóðin ekki aftra sér frá

því að komast leiðar sinnar á

reiðhjóli. ¦

Palestínumönnum sagt að

taka fram jámhanskann

Israelsmenn ákváðu í gær að

opna ekki Vesturbakkann og

Gazasvæðið næstu vikuna, en Pal-

estínumönnum hefur ekki verið

hleypt af svæðinu og inn í Israel

síðan sjálfsmorðsárás kostaði 21

Israelsmann lífið fyrir stuttu. Þetta

var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í

Israel í gær. Segir í tilkynningu

fundarins að tekið verði mið af því

hvernig PLO og sjálfstjórn Palest-

ínumanna gangi að framfylgja

ákvæðum friðarsáttmálans þegar

íhugað verði að opna á ný sam-

göngur við svæðið.

Yitzhak Rabin, forsætisráð-

herra Israels, mun hafa sagt á

fundinum  að  friðarviðræðurnar

við PLO væru á krossgötum. Mikil

ógn stafaði af hryðjuverkum. Eftir

fundinn var haft eftir Yossi Said

umhverfismálaráðherra, en hann á

sæti í samninganefndinni sem

ræðir við PLO, að leiðtogar Palest-

ínumanna verði að sýna í verki

vilja sinn til að kveða niður hryðju-

verkamenn, þeir verði að taka fram

„járnhanskann". Geri þeir það

muni Israelsmenn taka sveigjan-

legri afstöðu og jafhvel kalla herlið

sitt til baka frá sjálfstjórnarsvæðinu

og leyfa kosningar þar innan nokk-

urra mánaða.

I tilkynningu fundarins sagði

ennframur að ákveðið hefði verið

að fela ráðherrum fjármála og lög-

reglumála að kanna leiðir til að

skilja að ísraelsmenn og Palestínu-

menn. Aðspurður sagði Yaakov

Tsur landbúnaðarráðherra að

þetta gæti á endanum leitt til þess

að draumur PLO um sjálfstætt ríki

Palestínumanna rættist. „Persónu-

lega tel ég okkur ekki stafa mesta

hættu af því," sagði Tsur.

Lögregla í Israel tilkynnti að hún

hyggðist framvegis nota lögreglu-

hunda við landamærin milli Israels

og Vesturbakkans. Israelsmenn

hafa hingað til verið tregir til að

nota hunda, enda þykja þeir minna

á hundana sem nasistar notuðu til

að gæta gyðinga í útrýmingarbúð-

um í seinni heimsstyrjöld. ¦

Páfinn

ogdúfan

Hvít dúfa settist á

höfuð Jóhannesar

Páls II páfa þar sem

hann stóð í glugga

sínum og ávarpaði

mannfjölda á Péturs-

torginu í Róm um

helgina. Börn höfðu

sleppt dúfunni út um

gluggann og flaug

hún í hring en sneri

svo aftur og settist á

höfuð páfa. Þar sat

hún stundarkorn uns

hann bandaði fuglin-

um burtu. Manngrúi

fylgdist með og hafði

gaman af.H

Deittum

AuschwHz

Það hefur langt í frá ríkt friður

um minningarathöfnina vegna þess

að 50 ár eru liðin frá því rússneskir

hermenn frelsuðu fanga í Au-

schwitz-útrýmingarbúðunum.

Rússar eru afar móðgaðir yfir því

að sendimaður Jeltsíns forseta

fékk ekki að ávarpa samkomuna í

Auschwitz á föstudag.

Það gerðu hins vegar fulltrúar

Póllands og Israels. Pólska stjómin

hefur lýst því yfir að enginn hafi

ætlað áð rriöðga Rússa. ¦

Blóðbað í

Egyptalandi

Um 80 hafa verið drepnir í átök-

um milli múslimskra ofsatrúar-

manna og hers og lögreglu í Eg-

yptalandi það sem liðið er af mán-

uðinum. Þetta er blóðugasti mán-

uður í landinu síðan 1992. Á föstu-

dag og laugardag létu 30 manns líf-

ið.

Ofsatrúarmenn hafa verið mjög

uppivöðslusamir í Egyptalandi síð-

ustu þrjú árin og hét Hosni Mu-

barak forseti því í síðustu viku að

ganga milli bols og höfðuðs á

þeim. ¦

Hvers vegna not-

ar þú Rautt Ebal

Ginseng?

Herdís             Einarsdóttir,

hrossabóndi og tamn-

ingama&ur: Þaö gefur

mér kraft og lífsgle&i vi&

leik og störf.

Kristinn Hugason, hrossa-

ræktarrá&unautur B.Í.: í

mínu starfi reynir á at-

hygli, snerpu og andlegt

jafnvægi undir fullu álagi.

Þess vegna nota ég og

mæli meö Rau&u E&al

Ginsengi.

Sigurður Marínusson,

tamningamaöur: Það gef-

ur mér þa& sem upp á

vantar.

Rautt E&al Ginseng

skerpir athygli og

eykur þol.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32