Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						12

MORGUNPÓSTURINN ERLENT

MANUDAGUR 30. JANUAR 1995

Drottningí

Elísabet I

Flugslys sem hérumbil varð fyrir

þrjátíu og fimm árum var ein aðal-

fréttin í Bretlandi um helgina. Það

var blaðið The Observer sem skýrði

frá því að 1960 hefðu tvær herþotur

frá þýska flughernum verið aðeins

fimmtán metrum frá því að lenda í

árekstri við flugvél Élísabetar II

drottningar. Þetta kemur fram í

leyniskýrslu sem nú birtist í fyrsta

sinn. Atburðurinn mun hafa átt sér

stað í vestur-þýskri lofthelgi, en

breska stjórnin ákvað að þegja yfir

málinu enda reiddi hún sig á stuðn-

ing Þjóðverja til að fá aðild að Efna-

hagsbandalaginu, eins og það hét

þá.B

Redford veitir

verðlaun

Bíómyndin The Brothers McMul-

len hlaut aðalverðlaunin á Sund-

ance-kvikmyndahátíðinni, en hana

heldur kvikmyndastjarnan Robert

Redford til að efla óháða kvik-

myndagerð. Leikstjóri myndarinn-

ar er Edward Burns og kvað hún

fialla um þrjá bræður sem búa sam-

an. í flokki heimildarmynda fékk

verðlaun myndin Crumb sem segir

frá ævi skopmyndateiknarans R.

Crumb, en hann er einna þekktast-

ur fyrir teiknimyndirnar um köttin

Fritz og umslagið á Cheap Thrills-

plötu Janis Joplin ¦

Blairfertil

Hollywood

Alls staðar sækir Tony Blair,

leiðtogi breska Verkamannaflokks-

ins, fram. Nú vill hann stofna

flokksdeild meðal burtfluttra leik-

ara sem hafa orðið stjörnur í Holly-

wood, kannski ekki síst í von um að

þetta fólk muni borga eitthvað í

flokkssjóð. Meðal þeirra sem Blair

ber víurnar í eru Dudley Moore,

Tracey Ullman, Natasha Ri-

chardson og Joanne Whalley-

Kílmer ¦

Enqar myndir

Engai

af Dei

ng

Helstu dagblöð í Kína birtu í gær

frétt frá Xinhua- fréttastofunni þar

sem sagði að flokksleiðtogar í Kína

hefðu heimsótt Deng Xiaoping til

að óska honum farsældar og langra

lífdaga. Það þykir hins vegar eftir-

tektarvert að engar myndir birtust

af leiðtoganum og ekki var sagt

neitt af heilsu hans. Hermt er að

Deng hafi tvívegis verið lagður á

spítala síðustu mánuðina vegna

hjartveiki. Miklar vangaveltur eru

um yfirvofandi dauða hans og birt-

ist óvissan meðal annars á verð-

bréfamarkaði í Hong Kong þar sem

ríkir mikil ringulreið.H

Frakkland

Létt undir með si

Stjómmálamenn á hægrivæng og miðju franskra stjómmála flykkjast

Eftir situr Chirac, leiðtogi flokks gaullista, með sárt ennið.

Franskir stjórnmálamenn á

hægrivæng flykkjast nú til stuðn-

ings við forsetaframboð Edouard

Balladur forsætisráðherra. Talið er

nær öruggt að hann muni hafa sig-

ur í kosningunum í maí og því telja

pólitíkusar vissara að styðja hann í

tæka tíð svo þeir fái notið sigursins.

Má segja að þarna sannist fleyg um-

mæli Charles de Gaulle sem ein-

hvern tíma sagði: „Þeir eru alltaf

reiðubúnir að flýta sér að létta und-

ir með sigrinum."

Glöggt merki þessa er fundur

frammámanna í RPR, flokki gaul-

lista, sem haldinn var í gær til

stuðnings við Balladur. Charles

Pasqua innanríkisráðherrra sem

skipulagði fundinn hafði búist við

því að hann sæktu svona 400-500

flokksmenn. Þegar allt kom til alls

reyndust fundarmenn vera um 900

talsins. Pasqua sjálfur lýsti yfir

stuðningi við Balladur fyrir nokkr-

um vikum og er talið að hann hafi

augastað á embætti forsætisráð-

herra.

Á meðan þessu stendur hnígur

stöðugt frægðarsól flokksleiðtogans

Jacques Chirac, borgarstjóra í

París. Það var meðal annars fyrir

hans tilstilli að Balladur varð for-

kjurvegara

tilstuonings við Balladurforsætisráðhenv.

Ungir stuðningsmenn Balladur óska honum til hamingju þegar hann

hóf kosningabaráttuna.

sætisráðherra og hugðist Chirac þá

einbeita sér að forsetaframboði. Én

öllum að óvörum tókst Balladur að

afla sér fádæma vinsælda á skömm-

um tíma, svo mikilla að hann virð-

ist nú óstöðvandi. Vart eru önnur

dæmi til þess í Frakklandi að

stjórnmálamanni hafi tekist að fara

úr hinu aðþrengda og erfiða emb-

ætti forsætisráðherra og beint í for-

setaembættið, úr Matignon-höll og

yfir í Elysée-höll.

Chirac er þó sá eini sem gæti

veitt Balladur einhverja smákeppni

í kosningunum. Þá kæmi upp sú

staða að flokksbræður tækjust á í

síðari umferð kosninganna. Sú

hugmynd vekur ekki öllum hægri-

mönnum kátínu og í gær hvatti

Bernard Debre, ráðherra og einn

helsti stuðningsmaður Balladur,

Chirac til að draga sig í hlé og forða

þannig frekari klofningi í flokkn-

um.

I fyrradag lýsti miðju-hægri-

flokkur Repúblikana yfir eindregn-

um stuðningi við Balladur og fékk

hann hvorki meira né minna en 93

prósent atkvæða á þingi flokksins í

Lyon. Charles Million, stjórn-

málamaður sem hafði vonað að

byggja forsetaframboð sitt á

flokknum fékk hverfandi stuðning

og allir virtust hafa gleymt Valéry

Giscard d'Estaing fyrrum forseta,

en fyrir aðeins ári virtist hann lík-

legur til að verða frambjóðandi

miðju og hægrimanna sem ekki til-

heyra arfleifð gaullista. Nú bendir

flest til þess að þessi öfl muni ekki

hafa neinn frambjóðanda nema

Million ákveði þrátt fyrir allt að

leggja út í vonlausa baráttu. Þykir

sú staða allóvenjuleg.

Einn helsti foringi repúblikana,

Francois Léotard varnarmálaráð-

herra, hefur augastað á forsætisráð-

herraembættinu. Hann er hins veg-

ar bendlaður við hneykslismál eins

og fleiri leiðtogar flokksins og

kannski ekki vænlegur kostur.

Flokki sósíalista hefur enn ekki

tekist að koma sér saman um for-

setaframbjóðanda, enda víst að sá

mun ekki ríða feitum hesti frá bar-

áttunni hver sem hann verður.

Jack Lang, hinn umtalaði fyrrum

menningarmálaráðherra, ætlar ekki

í framboð og nú beinast augu

manna helst að Lionel Jospin

fyrrum menntamálaráðherra og

Henri Emmanuelli flokksfor-

manni.

Þrátt fyrir þennan vandræðagang

virðist Francois Mitterrand for-

seta frekar skemmt yfir óförum

Chirac sem er gamall höfuðand-

stæðingur hans. Mitterrand beitti

frægri kaldhæðni sinni á fundi sósí-

alista nýskeð þegar hann sagði um

Chirac:

„Hann er eins og maður sem hef-

ur vaknað upp með andfælum við

þrumugný og veit ekki hvort hann

er nýbúinn að fara í skyrtuna eða

buxurnar."

Perú og Ekvador

Barist

um

stóran

fhim-

Samkvæmt heimildum í varnar-

málaráðuneyti Ekvador efndu her-

sveitir frá Perú til stórsóknar á

landamærum rikjanna í gær, um

270 kílómetra frá Quito, höfuð-

borg Ekvador. Eru Perúmenn

sagðir beita stórskotaliði, flugher

og þyrlum þarna í frumskógimlm.

Samkvæmt fréttinni hafa að

minnsta kosti þrjátíu hermenn

fallið síðan átdkin hófust á

fimmtudag, en Perúmenn hafa

ekki gefið út neínar fréttir um

mannfall. Ekvadormenn stærðu

sig af því í gær að hafa varist sókn

Perúmanna og tekist að skjóta nið-

ur eina af fimm herþyrlum sem

tóku þátt f árásinni.

Leiðtogar Qögurra Suður-Amer-

Perúskir hermenn marsera í landamærabænum Tumbes.

íkuríkja, Venesúela, Bóliviu, Pan-

ama og Kólumbíu hvöttu deiiuað-

ila í gær til að leysa málið með firið-

sömum hætti. Cesar Gaviria, að-

alritari samtaka Amerikuríkja, hef-

ur reynt að fá leiðtoga landanna til

að stöðva átökin, en hann hefur

ekki haft erindi sem erfiði.

Perú og Ekvador hafa átt í lang-

vinnum erjum. Þær má rekja allt

aftur til 1942 þegar Perú lagði und-

ir sig hálft Ekvador, land sem er

þakið þéttum frumskógi, eftir

landamærastríð og var það staðfest

í friðarsamningi. Ekvador hafhaði

samningnum 1960 og síðan hafa

átök milli landanna brotist út nær

ár hvert á afmæli samningsíns sem

er 29. jartúar. Sjaldan hefur þó leg-

ið við stríði eins og nú.

Alberto Fujiinori, forseti Perú,

sagði á laugardag að hann harmaði

átökin, en hins vegar væru Perú-

menn í fullum rétti að verja land

sitt. Deiluna þyrfti að leysa, en það

væri aðeins hægt fyrir tilstuðlan

fjögurra ríkja sem voru vottar að

samningnum umdeilda, Banda-

ríkjanna, Brasilíu, Argentínu og

Chile.

nýjabók

Rithöfundurinn           Salman

Rushdie sagði í viðtali við tímarit-

ið Newsweek sem birtist í gær að

hann hefði engar fyrirætlanir um

að hætta að skrifa þrátt fyrir að í sex

ár hafi vofað yfir sér dauðadómur

íranstjórnar. Rushdie segir að það

hafi verið erfitt að venjast því að lifa

í felum og fyrstu tvö árin hafi sér

verið fyrirmunað að skrifa. Síðan

tók hann að skrifa á nýjan leik og er

að ljúka nýrri skáldsögu sem hefur

fengið nafnið The Moor's Last Sigh.

Heróínsmygl-

arar líflátnir

Heimildir herma að yfirvöld í

Guizhou-héraði hafi tekið af lífi 23

heróínsmyglara 24. janúar síðast-

liðinn. Smyglararnir voru teknir af

Iífi í fimm borgum í héraðinu, en

þeir höfðu smyglað efninu frá

Burma þar sem er mikil miðstöð

fíkniefharæktar.

Pasqua varar við ofsatrú

FIS hvetur til meiri manndrápa.

Charles Pasqua, varnarmála-     óróa í hófsömum múslimaríkjum

ráðherra Frakklands, er stjórn-

málamanna andsnúnastur því að

gera einhverjar málamiðlanir við

íslamska ofsatrúarmenn. Hann

áréttaði þessa afstöðu sína í sjón-

varpsviðtali í dag og sagði meðal

annars að það væri auðvelt að trúa

því að eitthvað gott væri til í öll-

um. „En," sagði Pasqua: „Ég trúi

ekki eitt augnablik að þessir menn

missi sjónar af því takmaki sínu að

setja á laggirnar stjórnir sem byggi

á íslamskri bókstafstrú."

„Þeir vilja beita trúarlögmálum

múslima á frumstæðasta hátt og

færa samfélag múslima aftur í það

horf sem var á áttundu öld," sagði

Pasqua. „Við sjáum hvernig ofsa-

trúarmenn eru að reyna að skapa

og við eigum eftir að sjá meira af

slíkum starfsaðferðum," sagði

innanríkisráðherrann Ioks.

Pasqua hefur gengið hart fram

gegn ofsatrúarmönnum í Frakk-

landi og hefur látið handtaka þá

og vísa mörgum úr landi. I land-

inu búa um fimm milh'ónir manna

sem eiga uppruna í löndum ís-

lams.

Á sama tíma hvöttu leiðtogar

FIS liðsmenn sína til að ganga

ótrauðlega fram í manndrápum í

febrúar, en þá gengur í garð ram-

adan, sem er hinn heilagi mánuð-

ur múslima. Á sama tíma á síðasta

ári þrefaldaðist tala manndrápa frá

því sem venjulega er og má búast

við því að morðæðið verði ekki

Charles Pasqua.

minna þetta árið. Samkvæmt vest-

rænum sendifulltrúum í Alsír eru

nú um 600 til 800 manns myrtir í

hverjum mánuði í landinu, en tal-

ið er að um 30 þúsund manns hafi

verið drepnir síðustu þrjú árin.B

Norðurlandaráð

Carlson vill skera

Á fundi forsætisráðherra Norð-

urlandanna sem haldinn var í

Kaupmannahöfh í gær áréttuðu

leiðtogarnir að Norðurlandaráð

myndi lifa áfram þrátt fyrir þátt-

töku Svía og Finna í Evrópusam-

bandinu. Ekki er þó víst að hugur

fylgi máli því lngv.it Carlson,

forsætisráðherra Svíþjóðar, lagði

til að framlög Svía til ráðsins yrðu

skorin niður um 150 milh'ónir

sænskra króna, en það myndi þýða

að heildarframlög til ráðsins

minnkuðu um 20 af hundraði.

Þrátt fyrir þetta lagði Carlson

áhersiu á að Svíar væru jafn dyggir

meðlimir í Norðurlandaráði og

fyrr. Hins vegar væri niðurskurður

nauðsynlegur til að sporna gegn

fiárlagahalla í Svíþjóð. „Samvinnu

er ekki hægt að meta í peningum,"

sagði Carlson. „Hinn pólitíski vilji

skiptir meira máli."

Forsætisráðherrar hinna Norð-

urlandaþjóðanna fiögurra eru

mjög andsnúnir þessum fyrirætl-

unum Carlsons og sérstaklega

lagðist Gro Harlem Brundtland,

forsætisráðherra Noregs, hart

gegn þeim. Gengið verður frá fjár-

hagsáætlun Norðurlandaráðs á

þingi þess sem fer fram í Reykjavík

í febrúar.

Ingvar Carlson, Paul Nyrup-

Rasmussen, forsætisráðherra

Dana, og Esko Aho, forsætisráð-

herra Finna, lögðu áherslu á að

lönd þeirra yrðu eins konar brú

Ingvar Carlson.

milli Noregs og íslands og Evr-

ópusambandsins og myndi sam-

eiginleg afstaða Norðurlandanna

verða ákveðin á reglulegiim fund-

um leiðtoga þeirra. „Rödd Norð-

urlanda á enn eftir að styrkjast

innan Evrópusambandsins," sagði

Nyrup-Rasmussen.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32