Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995

MORGUNPOSTURINN ERLENT

13

Stalín gengur aftur

Andi Stalíns svffur að nýju yfír vötnunum ÍPDS, flokknum sem var reistur á rústum SED, flokksins sem réði ríkjum í

Þýska alþýðulýðveldinu. Leiðtogarflokksins vilja hreinsa hann afóllu merkjum stalínisma en harðlínumenn undir

forystu ungrarkonu sækja á, ekkisíst meðalalmennra flokksmanna.

Sara Wagenknecht er fædd

næstum tveimur áratugum eftir að

Jósef Stalín gaf upp öndina. Þegar

hún var nítján ára hrundi Berlínar-

múrinn og þar með Þýska alþýðu-

lýðveldið. Allt benti til þess að

kommúnisma í Þýskalandi yrði

ekki framar að finna nema í sögu-

bókum. Sara Wagenknecht er á

öðru máli. Hún er ekki nema tutt-

ugu og fimm ára og samt er þessi

unga kona, sem þykir hafa heldur

harða andlitsdraetti og kalt augna-

ráð, farin að geta sér orð fyrir að

vera helsti talsmaður stalínista í

Þýskalandi. Og í miklum metum

hjá henni er ekki síður Walter Ulb-

richt, mikill harðlínukommi sem

lengi var helstur leiðtogi Þýska al-

þýðulýðveldisins.

Wagenknecht stundar heim-

spekinám við Humboldt-háskól-

ann þar sem áður var Austur-Berl-

ín. Hún trúir því að pólitísk og

hugmyndafræðileg          hnignun

kommúnismans hafi byrjað með

dauða Stalíns. Henni er sérstaklega

í nöp við Willy Brandt, fyrrum

kanslara Vestur-Þýskalands, og

trúir því að ostpolitik hans, sem

byggði á því að leita sátta við Aust-

ur-Þýskaland og önnur kommún-

istaríki handan járntjalds, hafi ekki

verið annað en ráðabrugg kalda-

stríðsmanna til að koma sósíalism-

anum á kné.

Einhverjir myndu kannski álíta

að þetta séu ekki annað en

bernskubrek í Wagnenknecht. En

þá er ekki hjá því að líta að hún er

ein helsti foringi hóps harðlínu-

kommúnista innan Sósíalíska lýð-

ræðisflokksins (PDS), en hann er

beinn arftaki Sósíalíska einingar-

flokksins, gamla valdaflokksins í

Austur- Þýskalandi. Þessi hópur

telur ríflega 4000 meðlimi og þykja

þeir hvort tveggja harðsnúnir og

háværir.

Að verða

húsum hæfur

Um þessa helgi heldur Sósíalíski

lýðræðisfiokkurinn fiokksþing sitt í

austurhluta Berlínar. Þetta er í

fyrsta sinn sem fiokksmenn koma

saman síðan í þýsku þingkosning-

unum í haust. Þar varð flokknum

vel ágengt, reyndar fór fylgið fram

úr björtustu vonum fiokksmanna;

flokkurinn hélt innreið sína á þing-

ið í Bonn, hann tryggði sér þrjátíu

þingsæti og það var blendin hrifn-

ing þegar kom í ljós að það féll í

hlut eins flokksmanna, hins aldur-

hnigna rithöfundar Stefan Heym,

að setja þjóðþing Þjóðverja.

Flokksforystan, en þar eru þeir

mest áberandi Lothar Bisky

flokksformaður og orðhákurinn

Gregor Gysi, þingmaður og for-

veri hans, hafði vonast til að flokks-

þingið snerist upp í sigurhátíð

vegna sigursins í október. Nú bend-

ir allt til þess að þeim verði ekki að

ósk sinni. 1 veginum standa Wagn-

enknecht og skoðanasystkin henn-

ar.

Flokksforystan vill fyrir alla

muni kenna sig við lýðræði. Hún

vill verða húsum hæf, ef svo má að

orði komast, og er markmiðið að

gera flokkinn svo nútímalegan við-

skiptis að hinn voldugi fiokkur

sósíaldemókrata fallist á að hann sé

hæfur til að sitja í samsteypustjórn

með honum. Sósíaldemókratar

hafa ekki verið við völd í Þýska-

landi í hátt á annan áratug, en eins

og sakir standa er víst að þeir telja

það ekki til vinnandi að komast til

valda með stuðningi Sósíalíska lýð-

ræðisflokksins. Til þess er fortíð

hans alltof vafasöm.

Til að þessi viðhorf breytist vill

Lothar Bisky og flokksforystan fyrir

alla muni slá endanlega striki yfir

hina stalínisku arfleifð.

Raunar var það strax í des-

ember 1989, mánuði eftir

fall Berlínarmúrsins, að

gamli flokkurinn, SED,

samþykkti að „stalínisma í

skipulagi, flokksstarfi og

pólitík skyldi endanlega

varpað á öskuhauga sög-

unnar". Það hefur þó ekki

gengið eftir og harðlínu-

kommar eru þó ekki á því

að gefa sig. „Orðið stalín-

ismi er notað til þess eins

að koma óorði á vissa pól-

itíska afstöðu," er haft eftir

Sara Wagenknecht.

Gegn þessu afdráttar-

lausa fólki virðast þeir Bi-

sky og Gysi heldur ber-

skjaldaðir. Þeir hafa hótað

því að þeir muni ekki gefa

kost á sér aftur til forystu-

starfa ef flokksþingið af-

neiti ekki stalínismanum.

Á flokksfundi í fyrri viku

hrópaði Bisky, nánast í ör-

vinglan: „Ég hef ekki lyst á

þessu lengur." Þeir vilja

einnig að þingið sýni í verki ást sína

á lýðræðinu með því að endurkjósa

Wagenknecht ekki til forystustarfa.

Með þessum hótunum vonast

þeir til að flokksmenn nái áttum og

skilji að það jafngildi sjálfsmorði

flokksins ef Bisky og Gysy leiði

hann ekki áfram.

Mestir núlifandí

kommúnista

Það er þó öldungis ekki víst.

Þýskur stjórnmálafræðingur, Jörn

Schiittrumpf hefur nýverið gert

viðamikla rannsókn á Sósíalíska

lýðræðisflokknum. Hann heimsótti

flokksdeildir víða um Austur-

Þýskaland og fann fátt sem benti til

þess að arfleifð stalínismans væri að

hverfa. Þvert á móti komst hann að

þeirri niðurstöðu að viðhorf al-

mennra flokksmanna í grasrótinni

Loiötogar Sósíalíska lýðræðisflokksins minnast Karls Liebknecht og Rosu Luxemburg fyrr í mánuðinum. Frá

vinstri: Grogor Gysi, Lothar Bisky, Hans Modrow.

dauða  tveggja  helstu

Sara Wagenknecht, 25 ára og helsti loiðtogi stalínista

f Þýskalandi. „Með köld augu," segir Lothar Bisky, for-

maður PDS.

væru að breytast á ný. Þar væri út-

breidd sú skoðun að nú þyrfti aftur

að efna til gamaldags stéttabaráttu

með öllum slagorðaflaumnum sem

henni fylgir — og það aðeins fimm

árum eftir að SED bað Austur-

Þjóðverja afsökunar á öllum mis-

tökunum sem höfðu verið framin í

nafni kommúnismans.

Allt í einu er það talsmáti á nýjan

leik að sósíaldemókratar séu stétta-

svikarar og þá ekki síður Mikhail

Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovét-

ríkjanna. „Andi Stalíns svífur að

nýju yfir vötnunum," viðurkenndi

sjálfur Reiner Oschmann, ritstjóri

flokksmálgagnsins Neues Deut-

schland í forystugrein.

Flokksmenn eru aftur farnir að

taka upp gamla siði. 1 Austur-

Þýskalandi var það lengi siður að

fara í fjöldagöngur til að minnast

goðsagnapersóna þýska

kommúnismans, Rosa

Luxemburg og Karl

Liebknecht,         sem

drepin voru af hvítlið-

um 1919. Þessi hátíðar-

höld fóru enn einu

sinni fram fyrir tveim-

ur vikum og þá var

óvenju vel mætt; næst-

um 50 þúsund félagar

söfnuðust saman í Fri-

edrichsfelde- kirkju-

garðinum í Berlín, ekki

ýkja færri en á gullald-

artíma Erich Honec-

ker. Sama dag var leiði

Walter Ulbricht blóm-

um prýtt. Sara Wag-

enknecht getur því sagt

sigri hrósandi og með

sanni: „Ég stend ekki

ein."

Hún á sér líka ákafa

bandamenn.         Einn

þeirra er sagnfræðing-

urinn Kurt Grossweil-

er. Ásamt henni var

honum fagnað nýlega á þingi

„Marx-Engels-stofnunarinnar" í

Wuppertal og þau sögð í hópi „-

mestu núlifandi kommúnista". 1

ritum sínum túlkar Grossweiler

sýndarréttarhöldin miklu í Moskvu

sem svar við „árásarstefnu fasista

og heimsvaldasinna gegn Sovétríkj-

unum".

Grasrótin

gerir uppreisn

Helsta slagorð harðlínumanna er

að flokkurinn megi alls ekki breyt-

ast í nýjan sósíaldemókrataflokk.

Undir það tekur reyndar líka einn

helsti höfðinginn í fiokknum, Hans

Modrow, öldungurinn sem réði

fyrir Austur-Þýskalandi síðastur

manna, eftir að múrinn var fallinn.

Modrow lýsir reyndar ekki yfir

stuðningi við Wagnenknecht,  en

hann vill finna einhvern milliveg

milli kommúnisma og jafnaðar-

stefhu.

Lothar Bisky flokksforingi er

hins vegar ákafur aðdáandi Willy

Brandt, helsta leiðtoga þýskra jafh-

aðarmanna eftir stríð. I nóvember

síðastliðnum lagði hann ásamt

Gregor Gysi fram plagg með tíu

greinum þar sem arfieifð SED var

sagt stríð á hendur, hún sögð and-

lýðræðisleg, því lýst yfir að hug-

myndakerfi sem tæki mið af stétta-

baráttu væri fullt af einföldunum

og vanahugsun, og ennfremur að

sósíalismi byggði fyrst og fremst á

ákveðnu gildismati, en ekki á hug-

myndakerfi.

Flokksmenn gengu af göflunum

og bréfum rigndi yfir flokksforyst-

una. í kosningabaráttunni höfðu

þeir Bisky og Gysi greinilega gleymt

hversu margir horfa með eftirsjá

eftir liðinni tíð. Eftir mikið málþóf

urðu þeir'að gefa eftir. Punktunum

tíu var fækkað niður í fimm grund-

vallaratriði. Þar stendur reyndar að

stalínískar skoðanir séu ekki sam-

ræmanlegar því að vera félagi í

PDS. Hins vegar er líka farið lof-

samlegum orðum um „viðleitni

hundruða þúsunda meðlima SED,

borgara í Þýska alþýðulýðveldinu,

til að byggja réttlátara og mann-

legra samfélag".

Það er því fremur ólíklegt að á

flokksþinginu nú um helgina nái

tvíeykið Bisky og Gysy að kveða

harðlínukomma í kútinn. í síðustu

viku gekk úr flokknum Karin

Dörre, þingkona sem hvað harðast

hefur gengið fram gegn harðlínu-

mönnum. Hún sagðist ekki hafa

uppskorið neitt nema „persónulegt

níð, hatur og hótanir" með gagn-

rýni sinni. Hún sagði að nýi flokk-

urinn væri farinn að taka upp

gamla siði og bætti við að það væri

gamli krankleiki vinstrimanna: „Að

halda sig vilja vel og gleypa þess

vegna allan skít sem er í boði." -eh

Atrúnaðargoð fátækra Indverja.

Viðkvæm út-

lagadrottning

Utlagadrottningin er vinsælasta

kvikmynd sem komið hefur frá

Indlandi í seinni tíð. Hún segir

sanna sögu Phoolan Devi, sveita-

stúlku sem var seld í hjónaband á

barnsaldri, nauðgað af manni sín-

um og síðan af hópi glæpamanna,

en gerðist síðan foringi ræningja-

flokks og átrúnaðargoð fátækra

Indverja. Myndin hefur verið

bönnuð á Indlandi, en þrátt fyrir

það hafa Indverjar tilnefnt hana í

keppnina um Öskarsverðlaunin.

Sjálf er Devi hins vegar miður sín

yfir myndinni og hótar að fyrirfara

sér ef hún verði sýnd á Indlandi.H

auglýsir Pepsi

Cindy Crawford, draumastúlka

flestra bandarískra karlmanna, er

ekki á því að leggja upp laupana

þótt hún sé nýskilin við mann sinn

Richard Gere. Hún hefur skrifað

undir gríðarmikinn auglýsinga-

samning við gosdrykkjaíyrirtækið

Pepsi og fetar þar meðal annars í

fótspor Michael Jackson. Fyrstu

auglýsingarnar verða frumsýndar í

þrjátíu þjóðlöndum í næstu viku

— ekki vitum við hvort Islendingar

eru í hópi þeirra heppnu.B

Michel Petrucciani

Smávaxinn

píanósnillingur

„Því miður er fólkið alltaf að tala

um hvað ég er lítill, það gleymir því

næstum að ég spila líka." Þetta seg-

ir Michel Petrucciani, franskur

djasspíanisti sem á miklum vin-

sældum að fagna og hefur leikið

inn á geisladiska sem seljast í stór-

um upplögum. Petrucciani er 33

ára og hefur leikið á píanó síðan

hann var fjögurra ára. Fyrsta kons-

ertinn hélt hann þegar hann var 13

ára. Það er kannski ekki furða að

menn tali um stærð hans: Petrucci-

ani er dvergur, ekki nema rúmur

metri á hæð.H

Rokkminjasafn

Stærsti plötu-

spilari heims

1 september opnar í Cleveland í

Ohio fyrsta rokkminjasafn sem

eitthvað kveður að í heiminum.

Það er enginn aukvisi sem hefur

teiknað safnið, heldur er það einn

af frægustu arkitektum samtíðar-

innar sem var fenginn til starfans,

sjálfur I.M. Pei, sá hinn sami og

teiknaði pýramíðann fyrir utan

Louvre-safnið í París.

Pei hafði strax mjög ákveðnar

hugmyndir um hvernig safnið

skyldi líta út. Hann spurði sig

hvað   hefði   eiginlega   orðið   úr

rokkinu án plötuspilarans? Hann

svaraði þeirri spurningu með því

að teikna safnið í mynd tröllauk-

ins plötuspilara, þar sem safnið

sjálft, 51 metra hátt og í líki mikils

grammófónarms teygir sig yfir

torg sem er í laginu eins og plata.

Yfir torginu er svo tjald úr gleri og

rímar það við pýramíðann við

Louvre.

Það mun kosta eitthvað um sex

milh'arða íslenskra króna að

byggja safnið, en þar verða varð-

veittir ýmsir  gripir  sem   rokk-

Það er sjálfur Pei sem teiknar

rokkminjasafnið.

áhugamenn um allan heim fysir

eflaust að sjá. Til að mynda má

nefna útskriftarskírteini Buddy

Holly úr gagnfræðaskóla eða jakk-

ann sem John Lennon var í á um-

slagi Sgt. Peppers-plötunnar.H

Höfuðandstæðingar

Tveir kúrekar

Það er máski fleira sameiginlegt

með Bill Clinton Bandaríkjaforseta

og höfuðandstæðingi hans, Newt

Gingrich, en margir gætu haldið.

Clinton þykir reyndar heldur veik-

lundaður og Gingrich nokkuð af-

dráttarlaust hörkutól, en í bernsku

áttu þeir sameiginlegan draum —

að verða kúrekar.

1 dagblaðinu The New York Tim-

es er lagt út af þessum bernsku-

myndum af drengjunum sem sjö

ára sitja á smáhesti í kúrekabún-

ingí. Blaðið bendir á að báðir hafi

þeir verið aldir upp af sterkum

mæðrum á heimilum þar sem karl-

inn var horfinn á brott. Síðast gift-

ust mæður þeirra beggja og þeir

Clinton

fluttu snemma að heiman, kannski

einmitt vegna þess.

Sá sem grannskoðar myndirnar

Gingrich

kemst þó ekki hjá því að sjá ákveð-

inn mun. Gingrich er nefnilega

með byssu en ekki Clinton.B

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32