Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						22

MORGUNPOSTURINN MENNING

MANUDAGUR 30. JANUAR 1995

Gyrðir á þýsku, Guðbergur á frönsku. Thor á dönsku, Knstín Omars á finnsku og Sión á sænsku

Horfur eru á því

aöáriö 1995

verði við-

burðaríkt í

útgáfu ís-

lenskra bók-

menntaverka

erlendis af

hálfu Máls og

menningar og For-

ins. Hafa fyr-

irtækin þegar

gert fjölda út-

gáfusamn-

inga fyrir

hönd höf-

unda sinna,

aðallega við norræn, frönsk og

þýsk útgáfufyrirtæki. Um þessar

mundir er verið að gefa út smá-

sagnasafnið Bréfbátarigninguna og

skáldsöguna Svefnhjólið eftir Gyrði

Elíasson í Þýskalandi, auk þess

sem einnig er verið að gefa út

Svefnhjólið í Danmörku, en sú bók

hefur þegar verið gefin út í Svíþjóð

og Noregi. Einnig hafa tekist samn-

ingar við stærsta útgáfufélag Frakk-

lands um útgáfu á skáldsögu Guð-

bergs Bergssonar, Svaninum, en

hún hefur áður komið út í þremur

löndum. Á þessu ári verður svo

skáldsaga Guðbergs, Sú kvalda ást

sem hugarfylgsnin geyma, gefin út í

Svíþjóð. Gulleyjan, skáldsaga Ein-

ars Kárasonar kemur út í hinni

virtu ritröð „Die andere Bibliothek" í

sumar. Þá er skáldsagan Heimskra

manna ráð, eftir sama höfund,

væntanleg út í mars í Svíþjóð og

síðar á þessu ári í Danmörku

og Noregi. Þá hafa Finnar hug

á að gefa út þá sögu ásamt

Kvikasilfri, en þeir hafa áður

gefið út Eyjabækur Einars.

nóvember síðastliðnum var

Náttvíg Thors Vilhjálms-

sonar gefin út í Danmörku

þar sem hún hlaut af-

bragðsdóma. Verið er nú að

þýða bókina yfir á frönsku.

Grámosinn glóir eftir Thor, sem ný-

lega kom út í Svíþjóð, er væntanleg

á ensku. Að síðustu má geta þess

að verið er að þýða Ijóðasafn eftir

Stefán Hörð Grímsson yfir á

dönsku og þýskt forlag hefur lýst

áhuga á að gefa út Ijóðasafn

Snorra Hjartarsonar. í byrjun árs

kom út safnið Einu sinni sögur eft-

ir Kristínu Ómarsdóttur í

Finnlandi, Augu þín sáu mig,

skáldsaga Sjóns er væntan-

leg út í Svíþjóð, en í fyrra

:kom út eftir hann Ijóðasafn

á ensku, og í sömu ritröð

var gefið út safn kvæða eftir

Lir)du Vilhjálmsdóttur.

KOLBRÚN bERGÞÓRSDÓTTIR

Ófölsuð mynt

SlGURÐUR NORDAL

fornar menntir

Almenna bókafélagið 1994

• ••••

Gamli Nordalinn var töfrapenni.

Og þar skilur á milli hans og fjöld-

ans sem fyllt hefur bókmennta- og

íslenskudeild Háskólans. Þekking

er vissulega mikils virði en ef menn

kunna ekki að setja hana í orð og

búa henni heillandi búning þá er

jafnvel betur heima setið en af stað

farið.

Sigurður Nordal skrifaði ætíð

eins og sá sem valdið hafði og

kunni vart annað því hæfileikar

hans voru afburða góðir. Jafnframt

bókmenntaáhuga og þekkingu bjó

hann yfir innsæi, greind og skarpri

hugsun sem þeyttu honum í

fremstu röð íslenskra fræðimanna

og gæddu skrif hans tímalausum

blæ. Skrif hans úreldast ekki því þó

menn geti vissulega verið á annarri

skoðun en séníið þá mun fæstum

nokkru sinni takast að finna hugs-

un sinni jafn skáldlegan en um leið

sannfærandi farveg.

Almenna bókafélagið hefur

unnið hinn þarfa starfa að koma

heildarverkum Nordals til þjóðar-

innar. Að þessu sinni er þriggja

binda verkið helgað skrifum fræði-

mannsins um fornar bókmenntir

og menningu Islendinga. Gamla

brýnið er í essinu sínu í þessum

bindum, líkt og hinum fyrri. Það

eru engin moðhausaskrif sem þekja

pappírinn.

Samkvæmt stíl og hefð fræði-

manna eyðir Nordalinn nokkru

rými í að hrekja og andmæla stað-

hæfingum kolleganna og ýta nýjum

sjónarmiðum (sem þá voru) úr vör.

Nordal kunni kúnstina að sannfæra

en hún byggist, eins og glöggir

menn vita, ekki á því einu að hafa

rétt fyrir sér, heldur miklu fremur á

hinu að smita lesandann af sann-

færingarkrafti höfundar.

Þeir sem eyða þreki í að elta Nor-

dal uppi til að hanka hann á ódýrri

fræðimennsku munu seint geta

sveiflað sér í spor hans því þeir hafa

ekki vald á töfratónunum sem

hann lék sér að því að tralla í skrif-

um sínum.

Þessi rómantíski áhrifavaldur

kemur víða við í skrifum sínum.

Bregður sér í hlutverk sagnfræðings

og heimspekings um leið og hann

gerir meira en skyldu sína sem bók-

menntafræðingur. Hann er aldri

fastur í því þunglamalega, hátíðlega

og ógn leiðinlega hlutverki sem við

tengjum of oft við fræðimennsku.

Þarna er maður sem hafði ákafa

skemmtun af starfa sínum og text-

inn ber það glöggt með sér. Þar er

ógrynni skemmtilegra setninga.

Eins og þegar Nordal lýsir logandi

ást tilfinningamanna til fræðanna

og segir að ást þeirra sé „ekki ein-

ungis blind, heldur líka skyggn."

Annað dæmi: „{slendingar vita

of mikið um sögu sína í hlutfalli við

það, sem þeir skilja." Einnig: „Allir

vita, að börnum getur lánazt mun

betur að ala foreldra sína upp en

foreldrunum börnin." Og þessi

sem oft má vitna til, ekki hvað síst

þegar talið berst að bókmenntamati

og gagnrýni: ,,[það] er til lítils að

vinna að hljóta viðurkenningu

þeirra, sem kunna ekki að greina

falsaða mynt frá ófalsaðri."

Þeir sem kunna að greina þar á

milli munu kasta yfir gullið sem

þessi bók geymir.

Þriðji flokkurinn i heildarútgáfu

á verkum Sigurðar Nordals

geymir glæsileg skrif eins merk-

asta fræðimanns okkar. Ómiss-

andi i safn þeirra sem unna

fornbókmenntum okkar.

„Robert de Niro er gjörsamlega fáránlegur og

setur nýtt met í ofleik í hverri mynd sem hann

leikur í. Hann skemmir allt sem Branagh hef-

ur ekki náð að skemma afeigin rammleik."

Frankenstein

er algjör brandari

Mary Shelley's Frankenstein

StjörnubIó

*

Mary Shelley snýst eins og

rjómaþeytari í gröfinni. Margt hefur

hún mátt þola af hendi kvikmynda-

leikstjóra, en þar sem hún liggur á

sex feta dýpi veit hún að aldrei hefur

hún verið jafn hart leikin og þegar

Kenneth Branagh tók sig til og

gerði mynd eftir sögunni hennar um

Frankenstein. Mary Shelley lét sér í

léttu rúmi liggja þegar Mel Brooks

gerði grínmynd um Frankenstein.

Hún var dálítið fyndin. Frankenstein

eftir Branagh er hins vegar algjör

brandari. Það kæmi alls ekki á óvart

þótt hún væri talin fylla flokk verstu

bíómynda allra tíma þegar fram líða

stundir. Hún er, satt að segja,

óvenjulega vond.

Okkur er tilkynnt að þarna hafi

tveir miklir listamenn vélað um,

Kenneth Branagh og Robert de

Niro, og aukinheldur í bakgrunnin-

um sjálfur Francis Ford Coppola.

Máski fyllast einhverjir lotningu

þegar þeir heyra þessi nöfn, en það

fer ekki mikið fyrir listfenginu sem

þeir eru sagðir vera ávísun á. Því er

eins farið með myndina og skrímslið

sem Frankenstein læknir setur sam-

an úr skynlausum líkamspörtum: úr

einum kirkjugarðinum kemur heili,

úr öðrum hendi, úr þeim þriðja rass-

kinn og úr einhverju pestarbælinu

löpp. Þetta er saumað saman í flýti

og útkoman er að sjálfsögðu ekki

fögur. Bíómyndin tollir ekkert betur

saman; líklega hefur hún átt að hafa

einhverja áferð rómantíska tímans,

en í reyndinni er hún gersneydd öll-

um stíl og öllum þokka. Leikarar

þvælast emjandi og veinandi íyrir

hver öðrum, oftast nær í botnlausri

sjálfsvorkunn, kvikmyndavélin eltir

þá á eilífu hringsóli — eins og það sé

eitthvað markmið í sjálfu sér að láta

kvikmyndavél ekki staðnæmast eitt

andartak. Núorðið getur maður yfir-

leitt gengið að því vísu í svona

myndum að leiktjöldin séu nánast

snilld, svo eru góðir hönnuðir á

hverju strái; af þeim sökum er ekki

laust við að það komi manni á óvart

hvílíka viðvaninga Branagh hefur

ráðið í leikmyndadeildina.

Nú má vel vera að Branagh þess-

um sé ágætlega lagið að færa upp

Shakespeare á alþýðlegan hátt.

Tvær Shaksepeare-myndir hans,

Hinrik IV og Ys og þys út af engu,

voru að sönnu yfir meðallagi. Samt

finnst mér að hann hljóti fremur að

eiga frægð sína að þakka einhverjum

fyrri afrekum úr leikhúsi en í kvik-

myndasal. I hvert sinn sem Branagh

hefur ekki Shakespeare og alla þá

hefð sér til að hengja sig í lendir hann

í vandræðum. Myndimar DeadAga-

in og Peter's Friends vekja upp kvala-

fullar minningar í huga gagnrýn-

enda. Og hérna er það að hann tapar

endanlega áttum og sýnir að auk

þess að vera hæfileikalaus leikstjóri

er hann óvenju vondur leikari. Með

tilgerðarlegri leikhúsrödd gengur

hann um sífrandi, viðkvæðið er: „Oh

my God, what have I done."

Hann er svo leiðinlegur að maður

getur ekki beðið eftir því að hann fái

fyrir ferðina.

Til að kóróna allt er svo Robert de

Niro   í   hlutverki   óskapningsins:

Hann er gjörsamlega fáránlegur og

setur nýtt met í ofieik í hverri mynd

sem hann leikur í. De Niro skemmir

allt sem Branagh hefur ekki náð að

skemma af eigin rammleik. Líklega

er margt hæft í því sem hefur verið

sagt um de Niro að hann leiki aldrei

vel nema undir stjórn vinar síns

Martin Scorsese. De Niro má þó

eiga það að maður skellir upp úr í

hvert skipti sem hann birtist í gervi

skrímslisins.

Frankenstein er algjör brandari.

Mary Shelley snýst i gröfinni,

Kenneth Branagh er hæfileika-

laus og Robert de Niro gjörsam-

lega fáránlegur.

IS\

Hvað er

ímyndunarafl?

Málverk, samsýning

llstasafn kópavogs,

28. JAN.-12. FEB.

Listasafh Kópavogs er nú óðum

að festa sig í sessi sem einn allra besti

sýningarstaður fyrir myndlist í land-

inu. Bæði er að safnið er vel staðsett

og þægilegt aðkomu, auk þess sem

stærð sýningarsalanna virðist heppi-

leg fyrir flestar tegundir myndlistar.

Það fer því vel um verk þeirra sex

málara sem nú sýna í þessum sölum

og ætti umgjörðin ekki að trufla

áhorfendur við skoðun verkanna.

Sú spurning sem fyrst vaknar við

skoðun verkanna er einfaldlega:

Hvað er ímyndunarafl? - og reyndar

ekki að furða því á vettvangi mynd-

listarinnar og þá málverksins sér-

staklega hefur ímyndunarafl Vestur-

landabúa fundið hvað eðlilegastan

farveg á umliðnum öldum. Og það

er einmitt á sviði ímyndunaraflsins

sem bæði er að finna styrk og veik-

leika þessarar sýningar. Mér sýnist

flestir listamennirnir vera enn við

það heygarðshorn að sýna fram á at-

gervi sitt með sífrjórri og síungri

ímyndun. Það er í brunni ímyndun-

arinnar sem nær allt afl þessara lista-

manna virðist fólgið. En ímyndunin

verður einnig að búri; menn lokast

inn í sjálfum sér við uppsprettur

ímyndunaraflsins og á endanum fer

eins fyrir (lista)mönnunum eins og

lata Geira á Lækjarbakka, þeir hætta

að nenna að drekka úr sjálfum sér:

aflstöðin bilar. Á sýningu sexmenn-

inganna í Kópavogi endurspeglast

þessi vandi. Takið eftir nöfnum

verkanna: „í hlekkjum hugans"

(Gunnar Örn), „Endurtekin hugs-

un" (Jón Axel), „Heimur málar-

ans" (Sigurður Örlygsson), „Mál-

arinn í vinnustofu og módel með

hugmyndir"   (Daði   Guðbjörns-

Hvaðerí

% »

v>|UI1V(

O*     Rikissiónvaipid   Stðð2

Manudagur

15.00

17.00

17.05

17.50

18.00

18.25

19.00

19.15

20.00

20.30

20.40

Alþingi

Fréttaskeyti

Leiðarljós (74)

Táknmálsfréttir

Þytur f laufi (19:65)

Hafgúan (10:13)

Flauel

Dagsljós

Fréttir

Veður

Þorpið (10:12)

(Landsbyen) Danskur framhalds-

myndaflokkur um gleði og sorgir,

leyndarmál og drauma fólks í

dönskum smábæ.

21.05   Taggart: Verkfæri

réttvísinnar (1:3)

(Taggart: Instrument of Justice)

Skosk sakamálamynd í þremur

þáttum um Taggart lögreglufull-

trúa í Glasgow. Seinni þættirnir

tveir verða sýndir á þriðjudags- og

fimmtudagskvöld.

22.00   Blómasýningin í Chelsea

Hallgrímur Helgason þýðir heim-

ildamynd um árlega breska

blómasýningu. Á ensku er þetta

must-see.

23.00  Ellefufréttir og Evrópubolti

23.30   Dagskrárlok

Þriðjudagur

13.30   Alþingi

Skemmtiþáttur í beinni útsendingu.

16.45   Viðskiptahornið

Fréttaskeyti

Leiðarljós (75)

Táknmálsfréttir

Moldbúamýri (9:13)

SPK

Einhver allra skemmtilegast sjón-

varpsþátturinn í dag. (rauninni er

stórfurðulegt að ekki sé löngu bú-

ið að flytja þennan þátt til útlanda,

það getur ekki klikkað.

19.00   Eldhúsið

Dagsljós

Fréttir

Veður

Lagarefjar (3:6)

Taggart: Verkfæri

réttvísinnar (2:3)

Einhverjir ofmetnustu sjónvarps-

þættir seinni tíma.

21.50   Austur-Grænland

Masterpís frá Dr. Sigrúnu Stef.

22.35 SÖfnin á Akureyri (4:4)

23.00   Ellefufréttir og dagskrárlok

17.00

17.05

17.50

18.00

18.30

19.15

20.00

20.30

20.35

21.00

MlÐVIKUDAGUR

13.30   Alþingi

17.00   Fréttaskeyti

17.05   Leiðarljós (76)

17.50   Táknmálsfréttir

18.00   Myndasafnið

18.30   Völundur (43:65)

19.00   Einn-x-tveir

19.15    Dagsljós

19.50   Vfkingalottó

20.00    Fréttir

20.30   Veður

20.40   f sannleika sagt

Hinn frábæri og opinskái þáttur

litla og stóru.

21.40   Nýjasta tækni og vísindi

Allt sem ykkur langaði ekki og

þurfluð ekki að vita í boði Sigurðar

H. Richters.

22.05    Bráðavaktin (4:24)

23.00   Ellefufréttir

23.15   Einn-x-tveir

23.30   Dagskrárlok


MÁNUDAGUR

17.05   Nágrannar

17.30   Vesalingarnir

17.50   Ævintýraheimur

NINTENDO

18.15   Táningarnir í Hæðagarði

18.45   Sjónvarpsmarkaðurinn

19.19    19:19

20.15    Eirikur

20.35   Matreiðslumeistarinn

Siggi kallinn Hall klikkar ekki frekar

en fyrri daginn.

21.10   Vegir ástarinnar

22.00    Ellen (12:13)

22.25   Hitchcock

Alfred Hitchcock verður leikstjóri

febrúarmánaðar á Stöð 2 og í til-

efni af því verður þessi heimildar-

mynd sýnd. Sjáið snilling að störf-

um.

23.15   Barnsrán

(In a Stranger's Hand) Ófræg sjón-

varpsmynd með Robert Urich sem

einhvern timann þótti efnilegur

leikari.

00.45 Dagskrárlok

Þriðjudagur

17.05   Nágrannar

17.30    PéturPan

17.50   Ævintýri Villa og Tedda

18.15   Ráðagóðir krakkar

18.45   Sjónvarpsmarkaðurinn

19.19   19:19

20.15   Sjónarmið

20.40    VISASPORT

21.10   Handlaginn heimilisfaðir

Sá allra vinsælasti í Ameríku.

21.35    ENG(2:18)

22.25   New York löggur

Frábærir þættir og loksins fáum við

að sjá hvernig löggumar vinna.

23.15   Eiginkona, móðir, morðingi

(Wife, Mother, Murderer) Undirförul

og morðóð kona reynir að koma

manni sinum og dóttur fyrir kattar-

nef með því að eitra fyrir þeim

smátt og smátt. Vá, en gaman.

00.45   Dagskrárlok

MlÐVIKUDAGUR

17.05   Nágrannar

17.30   Sesam opnist þú

18.00   Skrifað f skýin

18.15   VISASPORT

18.45   Sjónvarpsmarkaðurinn

19.19    19:19

19.50   Víkingalottó

20.15   Eirfkur

20.35    Melrose Place (27:32)

21.25    Stjóri

22.10   Lffið er list

Lokaþáttur í syrpu Bjarna Hafþórs

um skoðanir og atferli nokkurra

norðlenskra kverúlanta.

22.35   Freddie Starr

Breski grínistinn segir skopsögur

af sjálfum sér og öðrum fyndnum

mönnum.

23.05   Hrói höttur

(Robin Hood) (aðalhlutverkum eru

Patrick Bergin, Uma Thurman og

Edward Fox.

00.45   Dagskrárlok

son). Innilokunarkennd. Kannski

er það einmitt í síðastnefnda verk-

inu eftir Daða þar sem lesa má milli

línanna hverju þessir málarar virð-

ast vera lokaðir frá: hugmyndum og

heimi módelsins /áhorfandans eða

öllu heldur félagslegum uppsprett-

um myndmálsins og um leið nauð-

synlegum aflvökum ímyndunarafls-

ins. Þessir málarar eru ekki mark-

visst að spyrja spurninga sem varða

uppruna ímyndanna, né hvaðan

þær fá raunverulegt afl sitt. (þó segja

megi að Eyjólfur Einarsson, Sig-

urður Örlygsson og Jón Óskar

daðri töluvert við vandann).

Þessi sýning varpar því engu ljósi

á hvert innra afl ímyndanna í okkar

samtíð eða sögu er eða getur verið.

Þessi niðurstaða mín breytir þó

auðvitað ekki þeirri staðreynd að

sýn þessara sex listamanna býr enn

yfir nægjanlegu afli til að þeir hafi

enn lyst á að drekka af sjálfum sér,

og er þá bara að vona að þorstinn

endist.

/ heildina séð getum við sagt að

þessi sýning sé all gott yfirlit yfir

það besta sem islenskt málverk

hefur upp á að bjóða i dag, út-

færsla þeirra og vinnubrögð eru

af háum gæðaflokki og sum

verkin i þeim hæsta, svo sem

verk Sigurðar Öriygssonar

„ Vatnið sagði" og myndröð Jóns

Óskars. En ég hef óþægilegan

grun um að ef til vill séu þessir

málarar ekki að spyrja réttu

spuminganna, að minnsta kosti

þegar til lengdar lætur - og

þeirra spuminga verða þeir svo

aftur að spyrja sjálfa sig og segja

áhorfendum svarið, þegar svo

ber undir, með verkum sínum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32