Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995

MORGUNPOSTURINN SPORT

27

NBA-pistillinn

NBA-körfuboltinn

Skotbakverðir

í siriðsljósinu

Nýjarreglurgera þetta leiktímabilað ógleymanlegum vetriíhugum skotbakvarða.

Það hefur vakið athygli margra

sem fylgst hafa með NBA- deildinni

hversu margir skotbakverðir, eða

tvistar, eins og þeir eru oft kallaðir,

hafa látið til sín taka í vetur. Níu

skotbakverðir leiða nú lið sín í

stigaskorun þegar deildarkeppnin

er rétt hálfnuð.

Nokkrar ástæður hafa verið

nefndar til sögunnar fyrir þessari

gósentíð skotmanna. Fyrst og

fremst má þakka nýju þriggja stiga

línunni sem er styttri en sú gamla.

Margir skotbakverðir, sem áttu í

engum vandræðum með skotin sín

þegar gamla línan var við lýði,

hlæja nú þegar þeir drita þriggja

stiga skotunum ofan í körfuna.

Þetta dæmi er þó ekki algilt eins og

hefur sannast í nokkrum tilvikum

(B.J. Armstrong og" John

Starks). Einnig hafa dómarar tekið

harðar á snertingum varnarmanna

á sóknarmönnum (hand-checking)

sem gefur skotbakvörðum meira

svigrúm en áður. Auk þess er rétt

að nefna að reglum um ólöglega

vörn hefur verið breytt en ekki

verður farið út í þá sálma hér þar

sem enginn skilur eitt né neitt í

þeim reglum.

En skoðum hvaða skotbakverðir

hafa „sprungið út" í vetur. Innan

sviga er meðalstigaskor hvers leik-

manns í leik:

-  Jimmy Jackson, Dallas Ma-

vericks (26.4): Nýr þjálfari og nýr

leikstjórnandi eru tvær ástæður fyr-

ir frábærum tilþrifum Jackson í

vetur. Hann er fjórði stigahæsti

leikmaður deildarinnar og verður

líklega valinn í fimm manna úrvals-

lið NBA sem valið er í lok tímabils-

ins.

- Mitch Richmond, Sacramento

Kings (22.7): Fáir ráða við þennan

98 kílóa kraftaköggul sem er aðal-

ástæðan fyrir óvæntum en kær-

komnum uppgangi Sacramento í

vetur. Richmond gerir allt vel hvort

sem það er að skora, spila vörn eða

taka fráköst.

-Jeff Hornacek, Utah Jazz

(17.8): Hefur aldrei leikið eins vel

og einmitt í vetur. Með stórkostlega

skotnýtingu, þriggja stiga nýtingu

og vítanýtingu. Það fer ekki mikið

fyrir þessum 31 árs gamla vinnu-

hesti enda sigrar hann ekki and-

stæðing sinn í einum hvelli heldur

jarðar hann hægt og hljótt.

-Clyde  „The  Glide"  Drexler,

Portland Trail Blazers: Eftir tvö

slæm tímabil, sem einkenndust

helst af meiðslum, er Drexler kom-

inn í sitt gamla form og með hon-

um fylgja hátroðslusýningar og

þriggja stiga skot.

-Reggie Miller, Indiana Pacers:

Stundum hefur því verið fleygt

fram að Miller myndi leiða NBA í

fjögurra stiga nýtingu ef sú fjögurra

stiga lína væri til. „Automatískur" í

opnum færum sem og af vítalín-

unni. Helstu áhyggjur forsvars-

manna Indiana er að hann skjóti

ekki nóg.

-Glen Rice, Miami Heat: Rice er

gott dæmi um leikmann sem notið

hefur sín mun betur með nýrri

þriggja stiga línu. Hefur hitt úr 51%

skota sinna í vetur sem er frábært sé

miðað við þann fjölda langskota

sem hann tekur.

-Joe Dumars, Detroit Pistons:

Máttur Elli kerlingar vinnur lítið á

þessum fjölhæfa leikmanni sem er á

10. árinu í NBA. Líkt og margir

skotbakverðir byggir Dumars ekki

leik sinn á stöðugleika heldur tekur

hann skorpur. Og þegar hann er

sjóðandi heitur þá er fjandinn laus.

Aðrir skotbakverðir sem hafa

ástæðu til að vera kátir þessa dag-

ana: Dan Majerle (18.1), Nick And-

erson (16.7), Isaiah Rider (21.0),

Latrell Sprewell (22.5) og John

Starks (14.3) sem er allur að koma

tíl.ÍI

John Starks hefur enn ekki áttað

sig á kostum nýju þriggja stiga

línunnar en það sama er ekki

hægt að segja um Reggie Miller

sem er á minni myndinni.

Hakeem Olajuwon kemst ekki á

lista yfir tíu launahæstu leikmenn

NBA-deildarinnar.

Laun

miðhetja

Flestir eru þeirrar skoðunar að

Hakeem Olajuwon sé besti mið-

herjinn í NBA. En á hvaða lista ætli

hann sé ekki meðal tíu efstu

manna? Hversu fáranlega sem það

kann að hljóma kemst hann ekki á

lista yfir tíu launahæstu miðherja

deildarinnar. Reyndar nær hann

varla að vera hálfdrættingur séu

laun hans borin saman við laun

efsta mannsins. Sá kappi heitir

David Robinson og hefur hvorki

meira né minna en 510 milljónir

króna í árslaun frá félaginu sínu.

Olajuwon, aftur á móti, fær 217

milljónir króna í laun frá Houston

Rockets.B

Shaquille O'Neal er einn þeirra

kappa sem hafa rappað inn á ný-

útkomna geislaplötu.

NBA-leik-

menná

geisladiski

Nýlega kom út í Bandaríkjunum

geisladiskurinn „B-Balls Best Kept

Secret". Það sérstaka við þennan

disk er það að flytjendur á honum

eru tíu leikmenn úr NBA. Þetta eru

þeir Dana Barros, Philadelphia

76ers, Malik Sealy, L.A. Clippers,

Shaquille O'Neal, Orlando Magic,

Cedric Ceballos, L.A. Lakers, Bri-

an Shaw, Orlando Magic, Chris

Mills, Cleveland Cavs, Jason

Kidd, Dallas Mavs, J.R. (Isaiah)

Rider, Minnesota Timberwolves,

Dennis Scott, Orlando Magic og

Gary Payton, Seattle Supersonics.

Það skemmtilega við þennan hóp

er það að þetta eru allt úrvalsleik-

menn, þrír eða fjórir þeirra munu

leika í Stjörnuleiknum í Phoenix í

febrúar.É

Knattspyrnuforystan ætlar að ganga enn lengra í breytingum á knattspyrnunni

Þtjú leikhlé íhveijum leik

Dagar hins hefðbundna 90 mín-

útna leiks eru taldir ef marka má

nýjar fréttir úr herbúðum Alþjóða

knattspyrnusambandsins. I nýjasta

fréttabréfi sambandsins er grein

eftir einn stjórnarmanna EUFA,

Gerhard Aigner, þar sem fram

koma byltingarkenndar tillögur

sem fela í sér breytingar á reglum

þessarar vinsælustu íþróttagreinar

heimsins, til dæmis þeirri að fjölga

leikhléum í hverjum leik úr einu í

þrjú.

Forráðamenn knattspyrnunnar í

heiminum eru sífellt að velta fyrir

sér leiðum til að gera þessa vinsælu

íþrótt enn vinsælli á alþjóðavísu. í

þessu sambandi hafa þeir einna

helst litið til þeirra landa heims sem

enn eiga eftir að meðtaka töfra

hennar, og eins og venjulega koma

Bandaríkin alltaf efst í hugann.

Þar í landi voru menn afar

ánægðir með heimsmeistarakeppn-

ina sem fram fór síðasta sumar.

Leikirnir þóttu vera spennandi og

skemmtilegir og sérstaklega voru

heimamenn ánægðir með frammi-

stöðu sinna manna sem stóðu sig

vonum framar í keppninni. Þó

skyggði eitt á; eigendur sjónvarps-

stöðva voru á móti sjónvarpsefninu

sem slíku og báru fyrir sig einni

ástæðu: fótbolti væri eina íþróttin

sem mætti ekki setja auglýsingahlé

inn í og þess vegna væri í raun lítið

á henni að græða.

Þetta gæti verið að breytast. Sam-

kvæmt grein Aigners er ekki útilok-

að að ein stærsta þjóðin innan FIFA

sendi inn formlega umsókn til sam-

bandsins um að leyfa þrjú leikhlé í

hverjum leik þar í landi, venjulegan

hálfleik og að auki tvö einnar til

tveggja mínútu löng hlé hvort í sín-

um hálfleiknum. Hver þessi þjóð er

vildi Aigner ekki gefa upp á þessari

stundu en hann sagði samt að hún

væri langt í frá sú eina sem hugsaði

sér til hreyfings í þessum efnum.

Og fjölgun leikhléa er ekki eina

breytingin sem stendur fyrir dyr-

um. Hugmyndir eru uppi um að

taka upp tímabundnar brottvísanir

eins og menn þekkja úr handbolta

og íshokkí og eins hafa menn sagt

sjálfsagt að stöðva tímann þegar

bolti er ekki í leik og fá fram raun-

verulegan leiktíma.

Bjartsýnustu menn innan knatt-

spyrnuforystunnar segja að þær

breytingar sem þegar hafi verið

gerðar sýni það að ekki sé vonlaust

að breyta reglum í þessari gömlu

íþrótt. Þessar breytingar séu enn

stærri skref í átt að betri bolta og

þeirra sé ekki langt að bíða.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32