MÁNUDAGUR 30. JANÚAR 1995 MORGUNPOSTURINN SPORT 27 NBA-pistillinn NBA-körfuboltinn Skotbakverðir í siriðsljósinu Nýjarreglurgera þetta leiktímabilað ógleymanlegum vetriíhugum skotbakvarða. Það hefur vakið athygli margra sem fylgst hafa með NBA- deildinni hversu margir skotbakverðir, eða tvistar, eins og þeir eru oft kallaðir, hafa látið til sín taka í vetur. Níu skotbakverðir leiða nú lið sín í stigaskorun þegar deildarkeppnin er rétt hálfnuð. Nokkrar ástæður hafa verið nefndar til sögunnar fyrir þessari gósentíð skotmanna. Fyrst og fremst má þakka nýju þriggja stiga línunni sem er styttri en sú gamla. Margir skotbakverðir, sem áttu í engum vandræðum með skotin sín þegar gamla línan var við lýði, hlæja nú þegar þeir drita þriggja stiga skotunum ofan í körfuna. Þetta dæmi er þó ekki algilt eins og hefur sannast í nokkrum tilvikum (B.J. Armstrong og" John Starks). Einnig hafa dómarar tekið harðar á snertingum varnarmanna á sóknarmönnum (hand-checking) sem gefur skotbakvörðum meira svigrúm en áður. Auk þess er rétt að nefna að reglum um ólöglega vörn hefur verið breytt en ekki verður farið út í þá sálma hér þar sem enginn skilur eitt né neitt í þeim reglum. En skoðum hvaða skotbakverðir hafa sprungið út" í vetur. Innan sviga er meðalstigaskor hvers leik- manns í leik: - Jimmy Jackson, Dallas Ma- vericks (26.4): Nýr þjálfari og nýr leikstjórnandi eru tvær ástæður fyr- ir frábærum tilþrifum Jackson í vetur. Hann er fjórði stigahæsti leikmaður deildarinnar og verður líklega valinn í fimm manna úrvals- lið NBA sem valið er í lok tímabils- ins. - Mitch Richmond, Sacramento Kings (22.7): Fáir ráða við þennan 98 kílóa kraftaköggul sem er aðal- ástæðan fyrir óvæntum en kær- komnum uppgangi Sacramento í vetur. Richmond gerir allt vel hvort sem það er að skora, spila vörn eða taka fráköst. -Jeff Hornacek, Utah Jazz (17.8): Hefur aldrei leikið eins vel og einmitt í vetur. Með stórkostlega skotnýtingu, þriggja stiga nýtingu og vítanýtingu. Það fer ekki mikið fyrir þessum 31 árs gamla vinnu- hesti enda sigrar hann ekki and- stæðing sinn í einum hvelli heldur jarðar hann hægt og hljótt. -Clyde The Glide" Drexler, Portland Trail Blazers: Eftir tvö slæm tímabil, sem einkenndust helst af meiðslum, er Drexler kom- inn í sitt gamla form og með hon- um fylgja hátroðslusýningar og þriggja stiga skot. -Reggie Miller, Indiana Pacers: Stundum hefur því verið fleygt fram að Miller myndi leiða NBA í fjögurra stiga nýtingu ef sú fjögurra stiga lína væri til. Automatískur" í opnum færum sem og af vítalín- unni. Helstu áhyggjur forsvars- manna Indiana er að hann skjóti ekki nóg. -Glen Rice, Miami Heat: Rice er gott dæmi um leikmann sem notið hefur sín mun betur með nýrri þriggja stiga línu. Hefur hitt úr 51% skota sinna í vetur sem er frábært sé miðað við þann fjölda langskota sem hann tekur. -Joe Dumars, Detroit Pistons: Máttur Elli kerlingar vinnur lítið á þessum fjölhæfa leikmanni sem er á 10. árinu í NBA. Líkt og margir skotbakverðir byggir Dumars ekki leik sinn á stöðugleika heldur tekur hann skorpur. Og þegar hann er sjóðandi heitur þá er fjandinn laus. Aðrir skotbakverðir sem hafa ástæðu til að vera kátir þessa dag- ana: Dan Majerle (18.1), Nick And- erson (16.7), Isaiah Rider (21.0), Latrell Sprewell (22.5) og John Starks (14.3) sem er allur að koma tíl.ÍI John Starks hefur enn ekki áttað sig á kostum nýju þriggja stiga línunnar en það sama er ekki hægt að segja um Reggie Miller sem er á minni myndinni. Hakeem Olajuwon kemst ekki á lista yfir tíu launahæstu leikmenn NBA-deildarinnar. Laun miðhetja Flestir eru þeirrar skoðunar að Hakeem Olajuwon sé besti mið- herjinn í NBA. En á hvaða lista ætli hann sé ekki meðal tíu efstu manna? Hversu fáranlega sem það kann að hljóma kemst hann ekki á lista yfir tíu launahæstu miðherja deildarinnar. Reyndar nær hann varla að vera hálfdrættingur séu laun hans borin saman við laun efsta mannsins. Sá kappi heitir David Robinson og hefur hvorki meira né minna en 510 milljónir króna í árslaun frá félaginu sínu. Olajuwon, aftur á móti, fær 217 milljónir króna í laun frá Houston Rockets.B Shaquille O'Neal er einn þeirra kappa sem hafa rappað inn á ný- útkomna geislaplötu. NBA-leik- menná geisladiski Nýlega kom út í Bandaríkjunum geisladiskurinn B-Balls Best Kept Secret". Það sérstaka við þennan disk er það að flytjendur á honum eru tíu leikmenn úr NBA. Þetta eru þeir Dana Barros, Philadelphia 76ers, Malik Sealy, L.A. Clippers, Shaquille O'Neal, Orlando Magic, Cedric Ceballos, L.A. Lakers, Bri- an Shaw, Orlando Magic, Chris Mills, Cleveland Cavs, Jason Kidd, Dallas Mavs, J.R. (Isaiah) Rider, Minnesota Timberwolves, Dennis Scott, Orlando Magic og Gary Payton, Seattle Supersonics. Það skemmtilega við þennan hóp er það að þetta eru allt úrvalsleik- menn, þrír eða fjórir þeirra munu leika í Stjörnuleiknum í Phoenix í febrúar.É Knattspyrnuforystan ætlar að ganga enn lengra í breytingum á knattspyrnunni Þtjú leikhlé íhveijum leik Dagar hins hefðbundna 90 mín- útna leiks eru taldir ef marka má nýjar fréttir úr herbúðum Alþjóða knattspyrnusambandsins. I nýjasta fréttabréfi sambandsins er grein eftir einn stjórnarmanna EUFA, Gerhard Aigner, þar sem fram koma byltingarkenndar tillögur sem fela í sér breytingar á reglum þessarar vinsælustu íþróttagreinar heimsins, til dæmis þeirri að fjölga leikhléum í hverjum leik úr einu í þrjú. Forráðamenn knattspyrnunnar í heiminum eru sífellt að velta fyrir sér leiðum til að gera þessa vinsælu íþrótt enn vinsælli á alþjóðavísu. í þessu sambandi hafa þeir einna helst litið til þeirra landa heims sem enn eiga eftir að meðtaka töfra hennar, og eins og venjulega koma Bandaríkin alltaf efst í hugann. Þar í landi voru menn afar ánægðir með heimsmeistarakeppn- ina sem fram fór síðasta sumar. Leikirnir þóttu vera spennandi og skemmtilegir og sérstaklega voru heimamenn ánægðir með frammi- stöðu sinna manna sem stóðu sig vonum framar í keppninni. Þó skyggði eitt á; eigendur sjónvarps- stöðva voru á móti sjónvarpsefninu sem slíku og báru fyrir sig einni ástæðu: fótbolti væri eina íþróttin sem mætti ekki setja auglýsingahlé inn í og þess vegna væri í raun lítið á henni að græða. Þetta gæti verið að breytast. Sam- kvæmt grein Aigners er ekki útilok- að að ein stærsta þjóðin innan FIFA sendi inn formlega umsókn til sam- bandsins um að leyfa þrjú leikhlé í hverjum leik þar í landi, venjulegan hálfleik og að auki tvö einnar til tveggja mínútu löng hlé hvort í sín- um hálfleiknum. Hver þessi þjóð er vildi Aigner ekki gefa upp á þessari stundu en hann sagði samt að hún væri langt í frá sú eina sem hugsaði sér til hreyfings í þessum efnum. Og fjölgun leikhléa er ekki eina breytingin sem stendur fyrir dyr- um. Hugmyndir eru uppi um að taka upp tímabundnar brottvísanir eins og menn þekkja úr handbolta og íshokkí og eins hafa menn sagt sjálfsagt að stöðva tímann þegar bolti er ekki í leik og fá fram raun- verulegan leiktíma. Bjartsýnustu menn innan knatt- spyrnuforystunnar segja að þær breytingar sem þegar hafi verið gerðar sýni það að ekki sé vonlaust að breyta reglum í þessari gömlu íþrótt. Þessar breytingar séu enn stærri skref í átt að betri bolta og þeirra sé ekki langt að bíða.