Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						28

MORGUNPOSTURINN SPORT

^WANWOAGUR 30. JANUAR 1995

Hvað fínnst

framkomu-rj

Erlkur Jónsson, yfírtippari

„ Þetta er afar sorglegt og

óafsakanlegt hvernig þessi

frábæri knattspyrnumaður

missir sífellt stjórn á skapi

sínu. En umfjöllun enskra

fjölmiðla hefur verið dálítið

hysterísk í þessu máli og til

samanburðar hefur körfu-

boltamaðurinn Scottie Pippen verið að

skandalísera vestra og fékk aðeins eins

leiks bann. Siðan rotaði Mark Bosnich

Þjóðverjann Júrgc-n Klinsmann án

þess að um það vaeri raett. Cantona hefur

átt í miklum persónulegum vandamálum

en umfjöllunin má ekki vera ósanngjörn.

Það verður samt að hafa ýmis atriði i

huga þegar þetta mál er skoðað. Sam-

kvæmt nýlegum lögum mega áhorfendur

ekki hegða sér alveg eins og þeir vilja og

þessi maður hefur greinilega látið einhver

Ijót orð fjúka. Ég er ekki að afsaka eitt

eða neitt en minni á að þetta er jú bara

maður og maður getur ekki tekið hverju

sem er."

Gylfí Orrason,

mllllrikjadómarl

„Það er ekki annað hægt

að segja annað en að

þetta séu makleg mála-

gjöld. Menn geta ekki og

eiga ekki að komast uþp

með hvað sem er og þegar

augu alls heimsins eru á þeim

verða þeir að haga sér eftir því. Þetta er

ekki í fyrsta sinn sem hann lendir í svona

slæmum málum og í raun má segja að

hann hafi sloþpið þetur en aðrir í gegnum

tíðina.

Þegar menn eru komnir svona langt

verða þeir að þola einhver komment frá

áhorfendum á pöllunum. Þeir eiga auð-

vitað bara að leiða þetta hjá sér og hugsa

um það sem máli skiptir.

Ég held að niðurstaðan úr þessu máli

verði það að Cantona verði dæmdur í

ævilangt bann úr enskri knattspyrnu. Þá

fer hann til Spánar eða Italiu og brillerar

þar og þess á milli gerir hann einhverja

skandala. Hann er margoft búinn að sýna

það að hann lærir ekki neitt."

Sigurður Jónsson,

knattspyrnukappi

„Sú spurning sem maður

veltir náttúrlega fyrst og

fremst fyrir sér er sú hvort

að maðurinn sé yfirleitt í

réttri íþrótt. Hann ætti

kannskl bara að taka svarta

beltið í karate og athuga hvort

hlutirnir fara þá að ganga betur.

Þetta er náttúrlega hegðun sem er alveg

út í hött. Hann hefur sagt oft áður að

hann eigi í vandræðum með eigin skaps-

muni en fyrr má nú vera. Hann virðist ekki

læra af öllum sínum brottvísunum og

yerður líklega eilífðarvandamál.

Ég hef sjálfur spilað á móti honum einu

sinni og þá var hann ekki til neinna vand-

ræða. Hann gerði þá meðal annars

glæsilegt mark og sýndi og sannaði hví-

líkur snillingur hann er. En hæfileikar

hans týnast í þessum leiðindum öllum,

því miður."

Viddl á Olaumbar

„Við hér á heimavelli Manc-

hester United erum alveg

niðurbrotnir vegna þessa.

I fyrsta lagi vegna þess að

við höfum misst frábæran

knattspyrnumann og í öðru

lagi vegna þess sem hefur

gerst, framkomu hans og því óorði sem

það setur á klúbbinn. Þetta var afar

óíþróttamannsleg framkoma hjá honum

og, eins og Bretinn hefur þent á, hefur

þetta svo mikið fordæmisgildi. Það er

gífurlegur fjöldi þarna og unglinga sem

tekur sér þennan mann til fyrirmyndar í

einu og öllu og þegar að þetta hendir

verður öllu áð kosta til ef ekki á illa að

fara."B

HM-niðurtalningin: Vinstra horn

Báðir alhliða

leikmenn

segja Ería og Geir um

Nú styttist óðum í hina lang-

þráðu heimsmeistarakeppni í

handknattleik hér á landi og nú er

97 dagar til fyrsta leiks. MORGUN-

PÓSTURINN heldur áfram niður-

talningu sinni fyrir mótið og eftir

smá hlé tökum við nú aftur til við

að nefna menn í einstakar stöður

landsliðsins.

Fyrir liggur að helstu handbolta-

sérfræðingar landsins hafa tilnefnt

eftirtalda leikmenn í stöður liðsins.

Guðmundur Hrafnkelsson, Val

og Bergsveinn Bergsveinsson,

Aftureldingu eru markverðir liðs-

ins og var algjör samstaða um þá. I

stöðu línumanns var einnig ljóst

strax að þeir Geir Sveinsson, Val

og Gústaf Bjarnason, Haukum

yrðu fyrir valinu. Miðjumenn urðu

þeir Dagur Sigurðsson, Val og

Patrekur Jóhannesson, KA. Patti

náði reyndar þeim frábæra árangri

þá Konráð Olavsson og Gunnar Beinteinsson.

að vera einnig tilnefndur í stöðu

hægri skyttu ásamt Héðni Gilssyni

atvinnumanni í þýskalandi. Hægra

megin urðu síðan töframennimir

Sigurður Valur Sveinsson, Vík-

ingi, og Ólafur Stefánsson, Val,

fyrir valinu.

Vinstra hornið

Eins og sést af framansögðu er

um geysisterkan hóp að ræða og nú

á aðeins eftir að tilnefna menn í

stöður vinstra og hægri horns. Það

verður gert í þessu blaði og því

næsta og nú eru það „sérfræðing-

arnir" Erla Rafnsdóttir og Geir

Hallsteinsson sem úttala sig um

málið. Bæði eru margreynd og

landsþekkt úr boltanum og bæði

hafa umtalsverða reynslu af þjálf-

un.

Geir og Erla eru sammála um að

hornamennirnir Konráð   Olavs-

son  og Gunnar   Beinteinsson

muni koma til með að skipa þessa

stöðu í heímaliðinu á HM. Konráð

er nú leikmaður Stjörnunnar eftir

að hafa leikið í þýskalandi og með

Haukum og KR og Gunnar er og

hefur alltaf verið eldheitur FH-ing-

ur.

Erla segir ekki vera hægt að gera

upp á milli þeirra félaga því báðir

geti talist alhliða leikmenn. „Helsti

munurinn á þeim," segir hún, „er

sá að Konni er hornamaður sem

getur stokkið upp fyrir vörnina og

skorað og Gunni er hornamaður

sem getur farið inn á línu og leyst

erfiða hluti þar."

Erla segir að val byrjunarliðs-

manns í vinstra horninu muni því

alfarið fara eftir andstæðingnum

hverju sinni. „Þeir eru mjög góð

blanda og vega hvor annan upp.

Það sem annar getur ekki, getur

hinn, og öfugt, og þannig er gott að

skipta þeim inn og út. Þessi staða

ætti að vera mjög mikilvæg fyrir

landsliðið og nú þegar skyttumar

eru farnar að kunna vel að opna

fyrir hornin, eins og Siggi Sveins og

Patti gera, er von á góðu.

Konráð er mjög góður varnar-

maður og mætti í raun kallast meiri

hornamaður en Gunni. Það kemur

sér mjög vel fyrir hann að vera

gamall miðjumaður og því er hann

vanur því að geta skotið fyrir utan

líka. Þó verður að segjast að hann

gæti unnið meira fyrir liðið en

hann gerir.

Hvað Gunna varðar er ljóst að

galli hans sem hornamanns er sá að

hann getur ekki stokkið upp fyrir

vörnina og skorað yfir hana. Hann

vegur það hins vegar kannski upp

með því að geta skotist yfir á línuna

og það er ekki svo lítill kostur.

Gunnar Beinteinsson

Alhliða leikmaður

Getur farið inn á línu

Reynslumikill

Leysir vel upp

Reynir stundum í vonlausum færum

Nýtir færin ekki nógu vel

Vantar meiri grimmd

Konráð Olavsson

Alhliða leikmaður

Góður varnarmaður

Mikill stökkkraftur

Mætti vinna meira fyrir liðið

Hnoðast of mikið sjálfur

Agalaus

Erla Rafnsdóttir: „Þessi staða

ætti að vera mjög mikilvæg fyrir

landsliðið og nú þegar skytturnar

eru farnar að kunna vel að opna

fyrir hornin, eins og Siggi Sveins

og Patti gera, er von á góðu."

Geir Hallsteinsson: „Ef horna-

mennirnir hjálpa skyttunum fá

þeir það strax til baka."

Hann er orðinn afar reynslumikill

leikmaður og það á eftir að skipta

máli."

Geir segir að þótt þessir leik-

menn séi tilnefndir í stöðuna séu

aðrir ekki langt undan. „Páll Þór-

ólfsson og Sigurpáll Árni Aðal-

steinsson standa ekki langt að

baki og er gott til þess að vita," seg-

ir Geir.

„Helsti kostur Gunnars sem leik-

manns er sá að hann getur stokkið

inn á línuna og leyst hlutina þar.

Hann stimplar mjög vel og dregur

til sín menn þannig að losnar um

aðra. Gunni klárar leikkerfin mjög

vel og reynslan gefur honum afar

góða yfirsýn. Hans stærstu gallar

eru hins vegar þeir að að á stundum

skortir hann þá grimmd sem nauð-

synleg er í stöðunni, maður á móti

manni, og einnig hættir honum til

að fara inn úr algjörlega vonlausum

færum.

Konni gerir það reyndar líka.

Hann skortir aga til að meta þetta

og stundum ber kappið skynsem-

ina ofurliði hjá honum. Hann nýtir

þó sín færi vel þegar hann kemst í

gegn og mikill stökkkraffur hans er

afar mikilvægur. Hann getur líka

stimplað vel ef hann vill. Hann á

það til að gefa boltann of seint til

skyttnanna og hnoðast of mikið."

Geir segir að þáttur hornamanna

í leikjum fari eftir leikkerfi þjálfar-

ans hverju sinni og líka eftir þeirra

eigin frammistöðu. „Ef horna-

mennirnir hjálpa skyttunum fá þeir

það strax til baka."

Bæði Erla og Geir eru bjartsýn

fyrir hönd liðsins og segjast vera

farin að hlakka mikið til. Erla segir

að sjöunda sæti eða ofar sé viðun-

andi og Geir segir að sæti 3-6 ætti

að teljast góður árangur. Allt fyrir

ofan það er bónus, segja þau.

Bih

Alex Ferguson um Cantona

Seststundum

í dómarasætið

Já en

Hetja Andartaksins að þessu sinni er ítalski snillingurinn Franco Bar-

esi. Hann getur vitnað um það að það er allt annað en gaman að

brenna af í vítaspyrnukeppni. Sérstaklega ef um er að ræða úrslitaleik

heimsmeistarakeppninnar.

Skotinn Alex Fergu-

son, framkvæmdastjóri

enska knattspymufélags-

ins Manchester United,

sagði í viðtali við Sunday

Times í gær að verstu

upphlaup Frakkans Eric

Cantona væru algjört

bráðræði og laus við

nokkra ígrundun.

Ferguson segir að allt

atferli Cantona sé laust

við þá grimmd sem hann

hefur sýnt nokkrum sinn-

um á knattspymuvellin-

um. „Á æfingum er hann

hið mesta ljúfmenni og

hann uppfyllir skyldur

sínar sem atvinnumaður

til fullnustu."

Ferguson segir þetta

vera gríðarlegt áfall fyrir

liðið og bætir því við að

Cantona myndi aldrei

gera svona með réttu ráði.

„í þau skipti sem þetta

gerist finnst honum hann

misrétti beittur. Þá sest

hann í stól dómarans og

afgreiðir málin sem er

auðvitað algjör vit-

leysa."H

Warekm

gaman

„Það er alltaf gaman að taka

þátt í keppni, hvaða nafni sem

hún nefnist."

Sveinþór Þórarinsson er

formaður handknattleiks-

deildar ÍH. Liðið gerði heldur

stuttan stans í 1. deildinni

þetta árið og hefur þegar

tryggt sér sæti í 2. deild að

árí.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32