Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						íMÁNUDAGUR 30. JANÚAR'fSOS

MORGUNPOSTURINN SPORT

_29_

Frábær úrslitaleikur

Grinchríkingar

meistararí

fyrstasinn

Guðmundur Bragason og Anna María Sveinsdóttir fyrirliðar sigur-

liðanna í bikarkeppni karla og kvenna. Bæði áttu þau mjög góðan leik

á laugardaginn eins og oft áður. Anna María var kosin körfuknattleiks-

maður ársins og Guðmundur var valinn besti leikmaður íslandsmóts-

ins i fyrra. Guðmundur hefur leikið með meistaraflokki Grindavíkur í

tólf ár og var þetta því langþráður titill.

Stemmningin fyrir úrslitaleikinn

í bikarkeppni meistaraflokks karla

var ólýsanleg. Leikmennimir voru

kynntir fyrir 2500 öskrandi áhorf-

endum með ljósasýningu og NBA-

tilþrifum. Grindvíkingar mættu til

leiks í fyrsta sinn en Njarðvíkingar

léku til úrslita í tíunda skiptið.

Leikurinn sjálfur var bráðfjörugúr

og hörkuspennandi. Hann bauð

upp á allt sem góður körfubolta-

leikur getur mögulega boðið upp á.

Mörg falleg þriggja stiga skot, góða

vörn á köflum, vel útfærð hraða-

upphlaup og hasar.

Fyrir leikinn hölluðust flestir að

því að Njarðvíkingar myndu

hampa bikarnum í leikslok enda

hafa þeir leikið allra best það sem af

er tímabilsins. Það skipti þó engu

máli á laugardaginn. Bæði lið

komu með frábæru hugarfari til

leiksins, full sjálfstrausts og vel

undirbúin. En eins og alltaf stóð

aðeins annað liðið uppí sem sigur-

vegari og áttu Grindvíkingar það

fyllilega skilið.

Grindvíkingar skoruðu fyrstu

sex stig leiksins og létu Njarðvík-

inga ekki fá neitt ráðrúm til að at-

hafna sig í sókninni. Hreyfanleik-

inn í vörninni var frábær og kom-

ust Grindvíkingar í 12-2 áður en Is-

landsmeistararnir komust í gang.

Þá var haldin þriggja stiga skotsýn-

ing. Guðjón Skúlason hitti úr

nokkrum stórkostlegum skotum og

Teitur Örlygsson sýndi líka hvað

Grindavik-Njarðvik

105-93(47-41)

IpHgaíikarr Gnndavik; Franc Booker

§8, Gaójort Skúlsson 24, Guðmundur

"Bragason .15, J-felgi JÖnas Guófínnsson

ííT.ttlökkvlMárJðnsson 10, Marel Om

i!Guðlaugssott$, PéUirQuðmundsson 7,

Bergur Hinrífeson 2. Nját'ðvík: !Flondey

'" son 31, Teitur örtygsson 20, Vaiur

18, Rúnar iAmasor)."

agpamson 5, Jórjaánes :

on 4, Kristinn Etnarsson 4,

þör'irtgason S/ísak Tómasson 2.

Onnur tölfrasois Grindávfk: sSkot inn

teigs 26/35 (74%), skot utan teígs 5/tg

(31 %), 3-ja stiga skotl 1/28 (39%, Guð-

,jðn 4/9, Booker 4/11), vítaskot ie'~

(75%. Heigi 9/10), 36 frakost (10

'köst), 21 sioðs&ndingar (Booker 8),

istotnlr (Booker 4), 16 tapaðir. Níarð

Skot innan tetgs 29/47 (62%, Robins

'14/19),-skot utan tetgs 3/10 (30%), 3

iga skot 5/14 (36%), vitaskot 14/20

i (Vatur 9), 21 sto"

7), 10 stotntr,;   ¦

leiksins:    Franc   Booker,

hann gat. Grindvíkingar voru eitil-

harðir í sóknarfráköstum og var

hungrið allsráðandi hjá þeim. Pét-

ur Guðmundsson íék mjög vel

þrátt fyrir að skora ekki mikið. Pét-

ur telur það ekki eftir sér að fleygja

sér inn í teiginn og berjast um frá-

köstin við stóru karlana. Njarðvík-

ingar náðu að saxa vemlega á for-

skot Grindvíkinga og var áberandi

hve Rúnar Árnason hafði jákvæð

áhrif a félaga sínu þegar hann var

inni á. Baráttan var allt önnur og

betri.

Staðan í hálfleik var 47-41

Grindavík í vil og leikurinn svo að

segja í járnum.

I byrjun síðari hálfleiks leit út

fyrir að Njarðvíkingar ætluðu að

stela sigrinum. Valur Ingimundar-

son skoraði tvær þriggja stiga kör-

fur með stuttu millibili. Grindvík-

ingar byrjuðu síðari hálfleikinn

með svæðisvöm nema hvað Guð-

mundur límdi sig á Rondey sem

fyrr.

Þegar fjórar mínútur voru liðnar

af seinni hálfleik kom Teitur Ör-

lygsson Njarðvíkingum yfir, 56-55,

en það var í eina skiptið sem Njarð-

víkingar voru yfir. Þeir náðu að

jafna 60-60 en þá skoraði Grinda-

vík tólf stig gegn þremur. Það var

Franc Booker, maður leiksins,

sem fór þá hamförum. Munurinn

var lengi vel fimm stig en svo sigldu

Grindvíkingar aftur fram úr. Eftir

að Booker hafði komist í gang var

Teitur settur til höfuðs honum.

Teitur gætti Guðjóns Skúlasonar

stærstan hluta leiksins og gerði það

mjög vel. Það er alveg ótrúlegt hvað

Teiti tekst að halda mönnum niðri,

þeir sjá ekki sólarskimu og fá varla

boltann. Guðjón Skúlason nýtti sér

frelsið og skoraði nokkur stig þang-

að til Teitur var aftur settur á hann.

Undir lok leiksins spiluðu

Grindvíkingar mjög skynsamlega.

Sóknir þeirra undir lokin voru

langar og hnitmiðaðar og þar að

auki náðu þeir fjölda sóknarfrák-

asta og má segja að með því að leyfa

þeim það hafi Njarðvíkingar kastað

frá sér síðustu voninni.

Franc Booker lék best allra á

laugardaginn. Skoraði hverja mikil-

vægu körfuna á fætur annarri.

Guðjón Skúlason var einnig drjúg-

ur og sama má segja um Guðmund

Bragason. Annars var það liðsheild-

in sem skóp þennan sigur eins og

svo oft áður hjá Grindvíkingum.

1 liði Njarðvíkur var Ronday Ro-

Bikarmeistararnir úr Grindavík

eiga seint eftir að gleyma laugar-

deginum. Þetta var fyrsti meist-

aratitill Grindvíkinga í meistara-

flokki karla og hafa sumir beðið

lengi eftir honum.

binson mjög góður að vanda. Hann

er alveg ótrúlega sterkur og nýtir

krafta sína mjög vel í baráttunni

undir körfunum. Teitur átti góða

spretti í sókninni og lék eins og áð-

ur sagði alveg stórkostlega vörn.

Hann lenti í villuvandræðum og

hvíldi því lengur en efni stóðu til.

Valur Ingimundarson lék einnig

prýðilega. Það má kannski segja að

Njarðvíkingar hafi látið skapið fara

illa með sig því þeir eyddu tölu-

verðu púðri í dómarana og hvern

annan í stað þess að einbeita sér að

leiknum. Leikmenn liðsins fengu

eina tæknivillu og þrjár óíþrótta-

mannslegar villur (það sem áður

kallaðist ásetningsvilla).

Grindvíkingar stigu trylltan

dans að leik loknum eins og tíðkast

þegar stórir sigrar hafa unnist.

Njarðvíkingar voru hins vegar sárir

og augljóslega bíða þeir færis á að

sanna sig á ný. Njarðvíkingar

þekkja varla tap og eru ekki á þeim

buxunum að fara að læra þá list.

Því eins og „Magic" Johnson"

sagði eitt sinn: „Þegar maður lærir

að tapa þá er kominn tími til að

hætta."                            -ÞK-eþa

Hingað og ekki lengra! Nökkvi Már Jónsson (nr 15) ætlar greinilega

ekki að hleypa Ástþóri Ingasyni, fyrirliða Njarðvíkur, framhjá sér.

Grindvíkingar léku afbragðsgóða vörn á laugardaginn og lögðu með

henni grunninn að sigri sínum.

Kvennaleikurinn

Erla Reynisdóttir, IBK: „Við spiluöum

okkar leik. Líkt og þær komum við tví-

efldar til leiks í byrjun síðari hálfleiks. Nú

hugsum við um íslandsmótið."

Helga Þorvaldsdóttir, KR: „Það er eins

og við höfum ekki fattað að leikurinn væri

í dag. Vörnin klikkaði hjá okkur enda

fengu þær að skjóta 3-ja stiga skotum

óáreittar."

Sigurður Ingimundarson, þjálfari ÍBK:

„Það var fyrst og fremst það að okkur

tókst að gera þeim erfitt fyrir í öllum

sóknaraðgerðum. Allt gekk upp, það er

ekki oft sem lið hitta á svona leiki, sér-

staklega hér í Höllinni. Þess vegna er

ekki gaman að leika gegn svona liði. Það

er voða gaman að vinna alltaf hérna, mér

finnst bara verst að fá ekki að vinna hinn

bikarinn líka."

Karialeikurinn

Franc Booker, Grinda-

vík: „Ég mun sennilega

ekki ranka við mér fyrr en

seinna í kvöld. Við vorum

ekkert hræddir þegar þeir

nálguðust okkur og ég

ákvað að sjá til þess að

við myndum ekki tapa

leiknum. Guðjón sagði við

mig: „Franc, láttu boltann ganga og

sjáðu til þess að þeir nái okkur ekki." Við

munum leggja hart að okkur til að vinna

líka fslandsmótið í vor."

Valur Ingimundarson. þjálfari og leik-

maður Njarðvíkur: „Það var byrjunin sem

klikkaði hjá okkur. Menn höfðu ekki hug-

mynd um að leikurinn væri byrjaður."

Friðrik Rúnarsson: „Það kom þeim

smá á óvart að við breyrtum yfir í svæðis-

vörn í byrjun seinni hálfleiks. Við höfum

unnið vel síðan á sunnudaginn síðasta

þegar við töpuðum fyrir þeim í deildar-

keppninni svo ég var alveg pottþéttur á

þvi að við myndum hafa þetta. Komum

vel undirbúnir til leiks - þetta átti ekki að

fara frá okkur."

Guðjón          Skúlason,

Grindavík: „Við ætluðum

að keyra vel á þá til að fá

opin skot og það gekk al-

veg 100 prósent. Ég og

Booker þurftum að hafa

mikið fyrir okkar skotum

því Teitur spilaði mjög

góða vörn á okkur."

Ástþór Ingason, fyrirliði Njarðvíkur: „-

Þetta var hrikalega sárt - það er alltaf

leiðinlegt að tapa titli. Allt fór úrskeiðis."

Guðmundur Bragason, fyrirliði Grinda-

víkur: „Það hafði enginn trú á að við

myndum vinna þetta. Við byrjuðum á

krafti og þeir komust þar með aldrei inn í

þetta."

Sigmar Þröstur Ósk-

arsson, markvörður KA í

handbolta: „Það var gam-

an að þessu, sáttur við

þessi úrslit. Njarðvíkingar

hefðu mátt vera grimmari í

síðari hálfleik. Mér fannst

Helgi góður og sömuleiðis

Booker."

John Rhodes, leikmaður

og þjálfari ÍR í körfubolta:

„Þetta var mjög spenn-

andi leikur. Góðar varnir,

góður sóknarleikur, allt

sem góður körfubolti

snýst um. Það er ekki

annað hægt en að gefa

Grindvíkingum kredit, þeir

voru virkilega hungraðir I sigur. Booker

stjórnaði sínu liði alveg snilldarlega og

það var glæsilegt herbragð hjá Friðriki

Rúnarssyni að skipta yfir í svæðisvörn í

byrjun síðari hálfleiks."

Kristján Pálsson, tilvon-

andi          alþingismaður:

„Leikurinn var hraður og

skemmtilegur og tel ég

sigur Grindvikinga vera

sanngjarnan. Þessi leikur

er mjög góð auglýsing fyr-

ir körfuboltann og bæjar-

félögin enda er Mekka

körfuboltans á Suðumesjum."

Ellert B. Schram, forseti

(Si og ritstjóri DV: „Leikur-

inn var mjög skemmtileg-

ur og vel leikinn. Það er

meirihártar að svona lítið

bæjarfélag geti státað að

jafnöflugu (þróttalífi og

raun er. Umgjörðin I kring-

um leikinn varfrábær."B

Yfirburðir Keflavíkurstúlkna

KR 61-42

Unnu bikarinn þriðja árið íröð

Á undanförnum árum hefur

Keflavík státað af yfirburðarliði í

meistaraflokki kvenna og engin

breyting virðist vera í augsýn. Þær

hafa unnið bikarinn þrjú ár í röð og

Islandsmeistaratítilinn sex sinnum

á síðustu sjö árum.

Stúlkurnar úr Keflavík sýndu

það strax í byrjun að þær eru ekki

orðnar saddar á meistaratitlum.

Þær voru mjög ákveðnar og náðu

strax góðri forystu. Það hjálpaði

ekki málstað KR-inga að Guðbjörg

Norðfjörð fékk þrjár villur á fyrstu

fimm mínútum leiksins. Guðbjörg

var mjög ákveðin og grimmdin var

mun meiri hjá KR-stelpum þegar

hennar naut við. Keflvíkingar spil-

uðu sterka vörn og náðu oft að

plata KR-inga í gildrur við hliðar-

línuna. Erla Reynisdóttir, sem átti

stórleik, spilaði afbragðsvörn á

Helgu Þorvaldsdóttur, besta leik-

mann KR. Þessi frábæri varnarleik-

ur Keflvíkinga orsakaði það að KR-

ingar náðu sér aldrei á strik í sókn-

inni og sóknaraðgerðirnar ein-

kenndust af fáti. Vöm KR-inga var

á tíðum alveg skelfilega kæruleysis-

leg og virtust KR-stúlkur ekki vita

nógu vel af andstæðingum sínum

þegar þær læddust undir körfuna

og fengu auðveld sniðskot. Erla

Þorsteinsdóttir raðaði niður þriggja

stiga körfum  í fyrri hálfleik og

Anna   María   Sveinsdóttir var

einnig iðin við kolann af millilöng-

um færum. KR-ingar virtust vera

að ná sér, rétt eftir miðjan hálfleik-

inn, á strik og settu í gang svæðis-

pressu í nokkrar mínútur. Það virt-

ist gefast vel en þær héldu ekki

áfram í þeirri vörn í síðari hálfleik.

1 hálfleik var staðan 32-20 Kefla-

vík í vil svo enn gat allt gerst. Bæði

lið komu inn í seinni hálfleik stað-

ráðin í því að tryggja sér sigur en

Keflavíkurstúlkur fengu óskabyrj-

un og breyttu stöðunni í 45-22 á

fimm mínútum. Anna María

Sveinsdóttir fór algjörlega á kostum

og sýndi ótrúlega hittni. Hún er al-

veg örugglega ein besta skytta

landsins og skiptir þá ekki hvort

talað er um karla eða konur. Eftir

þetta afhroð í byrjun hálfleiksins

skoraði Helga Þorvaldsdóttir

þriggja stiga körfu og var það byrj-

unin mjög góðum leikkafla KR-

inga sem skoruðu þá tólf stig í röð.

Keflavíkurstúlkur létu ekki bugast

og svöruðu með að skora sjö stig í

röð og leikurinn var þá svo að segja

búinn.

Fögnuður Keflvíkinga var að

vonum mikill í leikslok og gremja

KR-inga að sama skapi mikil. KR-

ingar hafa lengi beðið eftir titli en

alltaf þurft að lúta í lægra haldi fyr-

ir Keflvíkingum þegar ögurstund

rennur upp.

Keflvíkingar eru sannarlega vel

að sigrinum komnir. Stelpurnar

spiluðu alveg stórkostlegan leik og

það er óhætt að segja að ekkert lið á

landinu ráði við þær í þessum ham.

Það var leiðinlegt að sjá hversu illa

var mætt á þennan stærsta leik árs-

ins í kvennakörfunni. Áhorfendur

hafa greinilega ekki enn gert sér

grein fyrir því að stelpumar sem við

eigum í dag eru frábærir körfu-

boltamenn sem fyllilega er vert að

fylgjast vel með.

-ÞK-eþa

Keflavík

Stigahæstar: tóK: Anna

"Sveinsdóttir 22, Eria Reynisdóttir ÍSi?

jBjðlg Hafstemsdottir 11, Anna Maria

Siguroarclóttir 6, Erlá Þorsteinsdóttir

4. KR: Helga í>orvaiasdóttir 19, Maria:

dsdótfirv 12, öuðbjörg Norp-;:

" nna Gunharsdoftir 2, Sara

., Jeorgia Oloa.Kristianse

• ' -%: f8fc;Skot '

ít), skot utan

Ha.stiga skot

3/4). vítaskot

i), 36 fráköst (Erla Þ. 12,

sdöttir 9), 4 vahn skot, 12 ta

altar, 16 villur. KR: Skot innan t

(29%), skot utan teigs 5/15

.), 3-ia stiga skot 3/13

askot 9/13 (69%). 40 frákost 1

5 varin skot (

Öír (Helga 9), ¦

$mjH|.'Me1gr Br<

ender.*

horfendur: Um 200 i byrjun,

yefllBk. I

leiksins:  Erla  Reynlsdóttir,

tJ£

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32