Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						MANUDAGUR 30. JANUAR 1995

MORGUNPOSTURINN SPORT

31

Enska úrvalsdeildin

Shearermeð

þrennu fyrir

Blackbum

Lið     Black-:V"

burn Rovers er

nú komið með

fjögurra   stiga

forskot          á

Manchester

United í ensku

úrvalsdeildinni

eftir 4:1 sigur á

Ipswich á laug-

ardag. Alan

Shearer gerði

þrennu í leikn-

um en auk þess skoruðu þeir Tim

Sherwood og John Wark.

Blackburn tryggði þar með

stöðu sína veralega og hlýtur liðið

nú að teljast líklegt til að skáka

veldi United, sérstaklega þegar

haft er f huga að liðíð á leik til

góðaJl

Enska bikarkeppnin

Leikirnir

Burnley - tiverpool                     0.-0

Coventry - Norwich                     0:0

Leeds - Oldham                          3:2

White 8., Palmer 45., Masinga 57. -

Halle 57., Palmer (sm) 59.

Luton - Southampton

Bigglns 81. - Shipperiey 53.

Man. City - Aston Villa

Walsh 7.

Man. Utd. - Wrexham

Irwin 17. og 73., Giggs 26., McClair

67., Humes (sm) 80. - Durkan 10.,

Cross 89,

Millwall - Chelsea                        0:

Nowcastle - Swansea                 3:

Kitson 41., 46. og 72.

Nott. Forest - C. Palace 1:2

Bohinen 32. - Armstrong 5.,

Dowie53.

Portsmouth - Leicester

Roberts 44.

QPR - West Ham

Impey20.

Watford - Swindon

Hessenthaler 45.

Bristol City - Everton

Jackson 78.

Sunderland - Tottenham

Gray 74. - Klinsmann 51. og 86,

Sheringam 57., Melwllle 64.

Tranmere - Wimbledon

Leonhardsen 31., Earte 51.

Italska 1. deildin

1:1

1:0

5:2

0:1

1.-0

1:0

0:1

1:4

0:2

Fimmta umferð

bikarkeppninnar

Stórieikur

Leedsog

Unrted

l' gœr var dregtð í fimmtu umf erð blk-

arkeppninnar:

Manchester Unitod - teeds United

Newcastle United - Manchester City

Wirnbledon - Uverpool/Bumtey

Luton/Southampton - Tottenham

Queons  Park  Rangers  -  Chels-

oa/Millwall

Everton - Norwich/Coventry

Leicester - Sheff. WedTWolves

Áhorfandi stungínn tíl bana

Juve vann og erenn efst.

Leik Genóa og AC Milan í ítölsku

knattspyrnunni í gærdag var hætt í

hálfleik vegna morðsins á Vinc-

enzo Spagnolo, áhanganda Gen-

óa. Spagnoli var stunginn til bana í

óeirðum áhangenda liðanna og

slösuðust sjö að auki.

Staðan var markalaus í hálfleik

og bárust tíðindin af pöllunum áð-

ur en til seinni hálfleiksins kom.

„Það kom ekki til greina að halda

leiknum áfram," sagði forráðamað-

ur heimamanna. „Þegar íþróttin er

komin út í þetta er mikilla aðgerða

þörf."

Juventus sigraði Brescia með

tveimur mörkum gegn einu og

kom sigurmarkið rétt undir lok

leiksins með vítaspyrnu Gianluca

Vialli. Með sigrinum treystir Ju-

ventus enn stöðu sína á toppi

ítölsku deildarinnar og er liðið nú

með þriggja stiga forystu á Parma

sem er í öðru sæti.

Parma reið ekki feitum hesti frá

heimsókn sinni til Cremonese. Að-

eins eitt stig var afrakstur þeirrar

ferðar og missti liðið því af gullnu

tækifæri til að minnka muninn á

toppliðið sem tapaði illa um síð-

ustu helgi.

Bari bar óvænt sigurorð af Lazio

á útivelli, Inter sigraði Tórínó á

heimavelli, Sampdoria rústaði

Padova og Roma sigraði Foggia og

breytti Abel Balbo til og skoraði

sigurmarkið.

Staðan í ítölsku deildinni er nú

þannig að Juventus er í efsta sæti

með 39 stig, Parma er næst efst með

36 stig og Lazio og Roma koma

næst með 31 stig. Reggiana og

Brescia eru enn sem fyrr á botni

deildarinnar.B

Dramatískar lokamínútur er FH og Valur gerðu jafnteíli í frábærum

handboltaleik í Kaplakrika

Markverðimir

# aðaihlutverki

„Við getum svo sannarlega verið

þakklátir fyrir annað stigið í þess-

um leik. Seinni hálfleikurinn var

ekki eins vel leikinn af okkar hálfu

og sá fyrri, við vorum þrem mörk-

um undir þegar skammt var til

leiksloka og því getur maður ekki

annað en verið ánægður með jafnt-

efli," sagði Guðmundur Hrafn-

kelsson, markvörður Valsmanna,

eftir leikinn við FH. Hann átti stór-

leik í markinu og átti, ásamt Degi

Sigurðssyni, hvað stærstan þátt í

að Valur náði jafntefli á lokamínút-

unum. Hann varði vítakast frá

Guðjóni Árnasyni í stöðunni 19:18

fyrir FH, og Dagur náði að jafna

metin í næstu sókn á eftir. „Það var

alveg nauðsynlegt að verja vítið,

það kom ekkert annað til greina og

vissulega var það sætt," sagði Guð-

mundur enn fremur.

Leikurinn var hraður og

skemmtilegur frá upphafi og

greinilegt að bæði lið ætluðu sér

sigur. Valur skoraði fyrstu tvö

mörkin en FH náði að jafna og

FH-Valur 19:19

Mörk FH: Guðjón 8/2, Gunnar 3,

Hans 2/1, Knútur 2, Sigurður 2,

Stefán1,Hálfdán1.

Varin   skot:   Magnús  Árnason

18/1.

Mörk Vals: Dagur 8, Jón 5/2, Sig-

f ús 2, Frosti 2, Geir 1, Júlíus 1.

Varin   skot:  Guðmundur Hrafn-

kelsson 15/3.

Brottvísanir: FH í fjórar mínútur

og Valur f sex mfnútur.

Dómarar; Gunnar Viðarsson og

Sigurgeir Sveinsson. Dæmdu.erf-

iðan leik all vel en voru stundum of'

fljótír á sér.

Menn   leiksins:   Markveröirnir,

Magnús Árnason og Guðmundur

Hrafnkelsson.

komast yfir, og síðan var jafnt á öll-

um tölum í fyrri hálfleik. Valur

komst í 9:11 en FH-ingar skoruðu

tvö síðustu mörk hálfleiksins og

staðan í hálfleik því 11:11.

FH-ingar komu ákveðnir til

seinni hálfleiks og náðu forystu sem

þeir héldu allt þar til um mínúta

var eftir af leiknum. Þegar rúmar

fjórar mínútur voru eftir höfðu þeir

náð þriggja marka forystu, 19:16, og

allt stefndi í öruggan sigur þeirra.

En þá lokuðu Valsmenn vörninni,

Guðmundur varði allt sem á mark-

ið kom, þar á meðal vítakastið frá

Guðjóni, einni og hálfri mínútu

fyrir leikslok, og Dagur skoraði

þrjú síðustu mörk leiksins. Mikill

darraðadans var stiginn í lokin og

vildu FH-ingar tvisvar sinnum fá

dæmt víti er brotið var á Knúti

Sigurðssyni og Sigurði Sveins-

syni en dómararnir voru ekki á

sama máli. En hvað fannst Guð-

mundi Karissyni, þjálfara FH?

„Við áttum að fá víti þarna í lokin,

sérstaklega þegar brotið var á

Knúti. Við lékum ekki nógu langar

sóknir undir lok leiksins og menn

voru að skjota alltof fljótt í staðinn

fyrir að hanga á boltanum. Vissu-

lega er þetta súrt og maður er

svekktur yfir að hafa misst unninn

leik niður í jafhtefli. Samt er nú

alltaf gott að ná jöfnu gegn Val."

Markverðir liðanna, Magnús

Árnason og Guðmundur Hrafn-

kelsson, voru bestu menn leiksins.

Magnús varði alls átján skot en

Guðmundur fimmtán, þar af þrjú

vítaköst. Lang markahæstur FH-

inga var fyrirliðinn Guðjón Árna-

son, með átta mörk, en Gunnar

Beinteinsson skoraði þrjú. Dagur

Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir

Val en Jón Kristjánsson skoraði

fimm mörk. I heildina var leikur-

inn hin besta skemmtun og bauð

Fyrirliðarnir kljást hér í vítateig FH-inga. Geir Sveinsson fiskar eitt af

mörgum vítaköstum Valsmanna í leiknum en Guðjón Árnason er sak-

leysið uppmálað. Af svipnum að dæma virðist Geir ekki líka meðferðin

neitt sérstaklega vel.

upp á allt sem góður handbolta-

leikur getur boðið upp á: Sterkar

varnir, frábæra markvörslu, vel út-

færð   hraðaupphlaup,   og   góða

dómgæslu. Áhorfendur fengu því

mikið fyrir aurana í Krikanum í

gærkvöldi.

-RM

Handbolti

Víkingar

komnirí

annað sætið

UMFA - Stjaman 25:23

Stjarnan leiddi í hálfleik með

fjórum mörkum, 10:14, og áttu

menn því von á öruggum sigri

þeirra. Leikmenn Aftureldingar

voru ekki á sama máli og uppskáru

dýrmætan sigur. Bergsveinn

Bergsveinsson er nýkominn úr

uppskurði og gat því ekki leikið

með. I hans stað stóð Ásmundur

Einarsson og varði mjög vel í

seinni hálfleik. Jason Ólafsson

skoraði sjö mörk fyrir Aftureldingu

og Róbert Sighvatsson sex, en

markahæstur Stjörnumanna var

Magnús sigurðsson með sjö

mörk.

ÍH-Haukar 17:32

IH hélt í við Hauka framan af og

leiddi meðal annars, 6:5, en þá tóku

Haukar við sér og höfðu sex marka

forystu í hálfleik, 10:16. Seinni hálf-

leikur var Haukum auðveldur. Ar-

on Kristjánsson skoraði sjö mörk

fyrir Hauka en Sigurjón Sigurðs-

son var með sex mörk.

Víkingur - HK 36:28

Eins og tölurnar gefa til kynna

var þetta mikill markaleikur og

varnir liðanna ekki upp á marga

fiska. I fyrri hálfleik var nokkuð

jafnræði með liðunum en í hálfleik

leiddu Víkingar, 19:17. Sigurður

Sveinsson var að vanda marka-

hæstur í liði Víkings með ellefu

mörk í öllum regnbogans litum og

virðist vera í feykna formi þessa

dagana.

KR - KA 23:22

Óvæntustu úrslit umferðarinnar.

KA-menn höfðu forystu lengst af

og staðan í hálfleik var 11:13. Vestur-

bæingar komu sterkir til seinni

hálfleiks og náðu að kreista fram

sigur í blálokin. Sigurpáll Árni

Aðalsteinsson var markahæstur

þeirra með fimm mörk en fyrir

Norðanmenn skoruðu Valdimar

Grímsson átta mörk og Patrekur

Jóhannesson sex.

Selfoss - ÍR 22:27

ÍR-ingar höfðu forystu nánast

allan leikinn og leiddu í leikhléi,

9:14. 1 seinni hálfleik héldu þeir

uppteknum hættu og var sigur

þeirra aldrei í hættu. Bratislav

Dimitri var markahæstur iR-inga

með sex mörk en Björgvin Rún-

arsson skoraði fimm mörk fyrir

Selfoss.

Staðan

Valur

Víkingur

Stjaman

Afturelding

FH

KA

(R

Haukar

Selfoss

KR

HK

ÍH

18   439:

18   501;

19   509:

19   490:

18   441:

18   455:

19   446:

17   451.

18   392:

18   406;

19   415;

19   360:

363    30

:464    29

461    28

432    24

406    24

423    20

468    19

438    17

452    13

436    12

489      3

515      1

Enska bikarkeppnin: fjórða umferð

Talið líklegt að

Uniled verji títilinn

en Tottenham, Liverpool og Newcastle gera einnig tilkall.

Þjóðverjinn Jiirgen Klinsmann

gerði tvö mörk í bikarsigri Tot-

tenham gegn Sunderland í gær-

dag. Hér er hann í þann veginn

að gera annað marka sinna.

Lið Manchester United er talið

líklegast til að standa uppi sem

enskur bikarmeistari samkvæmt

nýjum tölum enskra veðbanka í

gær. Tölurnar voru birtar eftir leiki

fjórðu umferðarinnar um helgina

en þar burstaði lið United velska

liðið Wrexham með fimm mörkum

gegn tveimur.

Reyndar komst stórliðið snemma

undir í leiknum eftir mark frá Kier-

on Durkan en eftir jöfnunarmark

írska varnarjaxlsins Denis Irwin var

aldrei spurning hvernig færi.

Newcastle er einnig talið líklegt

til afreka í bikarkeppninni að þessu

sinni og táningurinn Paul Kitson

gerðí þrennu í sigri liðsins á Swans-

ea. Liðið þykir leika mjög vel í bik-

arviðureignum sínum og öðruvísi

en í deildinni þar sem mótlætið

hefur verið áberandi síðustu vik-

urnar.

Tvö   mörk   frá   Þjóðverjanum

Jiirgen Klinsmann og önnur tvö

frá samherjum hans tryggðu Tot-

tenham-liðinu einnig sæti í fimmtu

umferð keppninnar eftir sigur gegn

Sunderland. Sama má segja um lið

Everton og Leicester en hið síðar-

nefnda er komið í fimmtu umferð-

ina í fyrsta sinn í tíu ár.

Liverpool tókst ekki að sigra 1.

deildarlið Burnley í sjónvarpsleik

gærdagsins og urðu úrslitin marka-

laus. Sama má segja um leik Coven-

try og Norwich og fara leikmenn

liðanna ekki í sögubækurnar fyrir

skemmtilega framgöngu í þessum

leikjum, sérstaklega þótti hinum

efnilega Steve McManaman hjá

Liverpool vera mislagðir fætur.

Leeds lék afar vel í byrjun gegn

Oldham og komst í 3:0. Þar með

héldii flestir að úrslit þessa leiks

væru ráðin en tvö mörk frá neðri

deildarliðinu á skömmum tíma

settu allt í hnút. ¦

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32