i s ^sr FIMIVmJDAGUR 2. MAI1996 frá höfuðstöðvum HP á Kópaskeri Topp 10 listimi yfir þá íslendinga búsetta erlendis (aðra en Wathne-systur) sem Pétur Kr. Haistein gæti hugsan- lega nálgast til að fá hjá fjár- stuðning fyrir hið efnilega forsetaframboð sitt. 1. Kristján Jóhannsson á ítalíu á sand af seðlum, en þaö er ákveðinn galli ab tengda- mamma hans er krati. Prakkarinn Kristján væri þó vís meö aö láta eitthvaö af hendi rakna. 2. Ólafur Jóhann Ólafsson í New York er margmilljóneri og sem eftirlætishöfundi borgarastéttarinnar er hon- um skylt aö dæla seðlum í frambjóöanda hennar eftir að Óli Ragg hættir við. 3. Jakob Frímann Magnússon í London átti ekki bót fyrir rassinn á sér þegar síðast fréttist, en hann er samt vel tengdur og gæti reynst heppilegur maður í fjáröflun- arsamkomur erlendis. 4. Halla Linker í Los Angeles er marggift og í ágætum áln- um eftir velstæða eiginmenn sem hún yfirgaf á ögur- stundu. Hún gæti elnnig skrapað saman aurum í ís- lendingafélaginu í LA. 5. Sigurjón Sighvatsson kvik- myndamógúll veður víst seðla uppí hné eftir að hafa selt sinn hlut í Propaganda Films og þyrstir í að komast til virðingar og áhrifa á ís- landi. 6. Guðrún Bjarnadóttir, fegurð- ardrottning og fyrirsæta, býr í Genf og forrík veit hún ekk- ert hvað skuli gera við alla milljarðana sem hún erfði eftir eiginmann sinn grilljón- erann. 7. Erró, myndlistarmaður í Par- ís, hefur veggfóðrað hálfan heiminn með Ijósritunar- og teiknimyndaiist sinni og fengið fyrir það ófáar krón- urnar. Erró og Pétur Kr.: flott par. 8. Björk er ef til vill ríkasti nú- lifandi íslendlngurinn, en málið er bara að það þarf að vinna dálítið í henni þar sem hún er líklegri til að falla fyrir mussutýpunum. 9. María Guðmundsdóttir, feg- uröardrottning og fyrirsæta, hefur efnast vel á athöfnum sínum og atvinnu sem Ijós- myndari. Hún þekkir líka allt ríka fólkið í Parísarborg. 10. Birkir Baldvinsson, flug- vélasali í Lúxemborg, auðg- aðist á ótrúlega snjöllu braski með flugvélar og flug- vélaparta og gæti skipulagt íslendinganýlenduna tlpp- ttípp. 12-viðtalið Langþráður draumur feöganna Arnórs og Eiðs Smára Guðjohnsen um aö leika saman meö íslenska landsliöinu rættist aö hluta í landsleik gegn Eistlandi um daginn. Arnóri var þá skipt út af fyrir son sinn. Eiríkur Bergmann Einarsson sló á þráöinn til Svíþjóöar og í HP- samtali segist Arnór vonasttil að þeir leiki saman næst... Draumar rætast Arnór Guðjohnsen gerðist ungur at- vinnumaður í knatt- spyrnu í Belgíu. Á átj- ánda ári fæddist honum sonurinn Eiður Smári, sem nú er sautján ára. Snemma varð Ijóst að hann yrði ekki síðri knattspyrnumaður en faðirinn. Það hefur því verið langþráður draumur hjá Arnóri að spila alvöru knatt- spyrnuleik helst landsleik með synin- um. Fyrir skömmu varð sá draumur að hluta að veruleika þegar föðurn- um var skipt út af fyrir soninn í landsleik gegn Eistlandi. Það mun vera heimsmet í knatt- spyrnusögunni að feðg- ar leiki saman í lands- leik. Segðu mér fyrst Arnór: Hvernig tilfinning var það þegar sonur þinn tók við hlutverki þínu í leiknum? Það var mjög skemmtileg og sérstök tilfinning að hafa verið rrieð honum í þessum leik. Þetta var í fyrsta skipti sem við vorum valdir saman í landsliðshópinn og bjuggumst alls ekki við því að byrja báðir inná. Þannig að þetta var byrj- unin. Það hefur verið langþráð- ur draumur hjá mér að spila með honum. Þetta er nú dálítið skrýtið því ég sagði þetta fyrst fyrir tíu árum í sjónvarpsvið- tali í Belgíu þegar hann var sjö ára. Þessi draumur hefur svo magnast með hverju ár- inu." Nú er talið líklegt að þið spilið saman í landsleiknum gegn Makedóníu hinn 1. júní. Það stefnir þannig í að draumurinn rtist að fullu... Það væri náttúrlega toppur- inn. En ég vona þó að menn fari ekki að gera okkur neinn greiða með þessu. Ef við byrj- um báðir leikinn þá verður það vonandi vegna þess að þjálfar- inn telur það best í stöðunni." Sérðu sjálfan þig í Eiði Smára þegar þú horfir á hann spila? Það hafa mjög margir sagt að þeir sjái mig mjög glögglega í honum. Ég hafði nú sjálfur ekki tekið mikið eftir því, en þegar ég var að horfa á hann um daginn á Eurosport spila með PSV Eindhoven, þá sá ég í raun fyrst hvað mér fannst hann líkjast mér mikið í hlaupum og öðrum töktum." Þú fórst eins og sonur þinn snemma út í atvinnu- mennskuna og þekkir þenn- an bransa. Eiður Smári spil- ar með einu besta félagsliði í Evrópu. Ertu ekkert hrdd- ur um að hann fari ofgeyst afstað? Það geta margir farið flatt á þessu, en ég er ekki hræddur £ Eiðiir Smári Guðjohnsen: Hann er bæði betur undirbúinn og veit miklu betur út í hvað hann er að fara en ég á sínum tíma. Ég vona að hann verði tífalt betri en ég enda hefur hann alla burði til þess," segir Arnór um son sinn. um strákinn. Ég held að hann sé með hausinn í lagi varðandi þetta. Hann setur markið svo hátt að þetta er bara byrjunin hjá honum. Það þarf þó að taka rétt á svona hlutum. Það er svo margt sem getur sett strik í reikninginn meiðsli og annað slíkt." Hefur aðbúnað- urinn ekki breyst mikið frá því þú steigst þín fyrstu skref í atvinnu- mennskunni? Þetta hefur breyst heilmikið. Eiður Smári er í raun kominn miklu framar en ég var á hans aldri. Ég æfði til dæmis ekki nema tvisvar til þrisvar í viku, var að koma upp úr þriðja flokki og hafði alltaf spilað á möl. Svo var ég í hálft ár með meistara- flokki áður en ég fór út, þannig að þetta yar meira stökk fyrir mig. Ég var al- gerlega óreyndur og vissi ekk- ert út í hvað ég var að fara renndi blint út í hinn harða heim. Eiður Smári hefur hins vegar fylgst mikið með mér og ólst upp með mér í boltanum. Hann er bæði betur undirbú- inn og veit miklu betur út í hvað hann er að fara en ég á Arnór Guðjohnsen: Það hefur verið langþráður draumur hjá mér að spila með lionum. Þetta er nú dálítið skrýtið því ég sagði þetta fyrst fyrir tíu árum í sjónvarpsviðtali í Belgíu þegar hann var sjö ára." sínum tíma. Ég vona að hann verði tífalt betri en ég enda hefur hann alla burði til þess." Heldurðu að það hafi gert hann að betri knattspyrnu- manni að vera svona í kring- um þig í atvinnumennskunni á meginlandi Evrópu? Já, ég held það. Maður sá í raun strax í hvað stefndi hjá honum. Hann varð fljótt mjög góður knattspyrnumaður. Það var líka svo skemmtilegt hvernig hann tók á þessu. Hann lá til dæmis ungur yfir myndböndum af öllum leikjum í Belgíu og spáði mikið. Hann krufði nær hvert einasta atriði til mergjar og ræddi síðan lengi um hvað hefði mátt betur fara í leik mínum og liðsins, þannig að hann hefur haft mjög gott af þessum tíma þarna úti." íslenska þingmannalandsliðið í fótbolta... StefánHrafnlínasjö." Já. Er þetta Stebbi Ha'lín?" Mmmm... Ég heyrði að þú værir á HP svo ég ákvað að stinga að þér brilljant hug- mynd um efni?" Hver er þetta með leyfi? Þekkirðu mig ekki, maður? Þetta er Villi Bald sem spilaði með þér fótbolta í den." Já, komdu sæll. Hvað hefurðu verið að gera af þér uppá síð- kastið? Eg er allavega á Sam- herjatogara í Smugunni núna. Þess vegna er sambandið svona slæmt." Og hugmyndin? Sko, þetta byggist á því að riýi forsetinn ákveður að velja ell- efu manna lið til að keppa móti breska þinginu í fótbolta. Gæti orðið ógeðslega sniðugt." Hmmm... Ertu búinn að þunkta einhverjar hugmyndir hjá þér? Heldur betur, mað- ur." Síðan kom runan: Guðmundur Árni Stefáns- son verður milli stanganna. Snjall í nauðvörn. Er furðuleg- ur einsog aðrir markmenn og hefur lent í nettum hneykslis- málum. Skógarferðir útfyrir teig algengar. Lélegur í að lesa leikinn og fær á sig margar vítaspyrnur. Halldór Ásgrímsson er vita- skuld aftari hafsent og klettur í vörninni. Heldur seinn á sér, en bætir það upp með yfirveg- un og reynslu. Allar sóknir andstæðinganna stranda á honum og þegar boltinn nálg- ast er hann umsvifalaust hreinsaður fram. Svavar Gestsson er fremri hafsent og fastur spilari, en sést oft ekki fyrir og selur sig maður á móti manni. Áður en hann gekk í KFUM hélt hann að fótbolti væri íþrótt djöfulsins. Svavar þykir kjaftfor og grófur leikmaður. Er oft í leikbanni. Björn Bjarnason er hægri bakvörður. Nokkuð þungur á sér, en feikna traustur og bráð- efnilegur. Spilar stundum á miðjunni. Skorar nokkur mörk á tímabiii. Fylgist manna best með tækninýjungum og er að hanna nýja fótboltaskó og legghlífar. Friðrik Sophusson er vinstri bakvörður. Hann er framsæk- inn og tekur virkan þátt í að- gerðum inná miðjunni, en að- eins þegar þjálfarinn eða fyrir- liðinn leyfir það. Gjarnan kennt um allt það sem aflaga fer í leikjum. Með eindæmum sein- heppinn. Þorsteinn Pálsson er hægri tengiliður og þykir hálfragur í sóknarhlutverkinu. Skemmti- legur spilari, en skorar lítið og hefur lengi verið á sölulista. Keppir til einskis um athyglina á miðjunni við miðtengiliðinn, gömlu stöðuna sína. Páll Pétursson er vinstri tengiliður. Er elstur í liðinu, skorar aldrei en grísar á mikil- vægar sendingar. Gerði mörg og dýrkeypt heimskuleg glappaskot á yngri árum, en hefur róast með árunum. Er að spila sína síðustu leiki á ferlin- um. Davíð Oddsson er miðtengil- iður og sá sem stjórnar spilinu. -Hann. er- jafnframt fyrirliði og déiíir og drottnar; þykir hroka-. fuilur einfari og líf hans snýst um fótbolta. Hann getur unnið leiki uppá eigin spýtur, en á þó til að fara í fýlu og skíta út rest- ina af liðinu. Er sannfærður um eigið ágæti. Ólafur Ragnar Grímsson er hægri kantmaður. Hefur mikla yfirferð, en spilar fyrst og fremst fyrir sjálfan sig og er ófeiminn að viðurkenna það. Gefur boltann ógjarnan. Kem- ur aldrei í vörnina. Hefur skor- að fá en mikilvæg mörk á ferl- inum og flakkað mikið milli liða. Reyndi fyrir sér erlendis, enán árangurs. Össur Skarphéðinsson er vinstri kantmaður. Hann byrj- aði seint í boltanum en tók hratt út þroska. Á oft góðar sendingar fyrir markið og lunkinn í návígi. Fengið margar áminningar á stuttum ferli fyrir ósvífni og grófan leik. Er óábyrgur að hætti framlínu- manna óg skýtur á markið úr vonlausum færum. Skorar oft. Jón Baldvin Hannibalsson er senter af guðsnáð. Hann segist alltaf vera að spila fyrir liðið, en ef ,þú:'sen.dir á hann sérðu böltanri> áldrei aftur. Ólafur Ragnar Grímsson er hægri kantmaður. Hefur miklayfirferð, en spilar fyrst og fremst fyr- ir sjálfan sig og er ófeim- innaðviðurkennaþað. Gefur boltann ógjarnan. Kemuraldreiívörnina. Hefur skorað fá en mikil- vægmörkáferlinum." Sannkölluð markamaskína. Er orðinn hægari með árunum. Brenndur eftir öll klaufalegu sjálfsmörkin. Verið lengi í landsliðinu en verður aldrei treyst fyrir fyrirliðahlutverk- inu. Pabbi hans var í landslið- inu á sínum tíma." En hvað með þingkonurnar, fá þær ekki tækifæri á að spreyta sig? Ertu eitthvað ruglaður mað- ur, stelþur kunna ekki fót- bólta." ;