Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 17. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						" 4?m

RMMTUDAGUR 2. MAI1396 -

1. Forsetaframbjóðendur sem

þykjast vera hafnir yflr okkur

hina plebbana.                    y

2. Forsetaframbjóðendur sem

þykjast vera á svipuðu alþýöu-

plani og restin af þjóöinni.

^             3. Forsetaframbjóðendor sem

"*"               stæra sig af fjölskyldu- og

flokkstengslum sínum.

4. Forsetaframbjóðendur sem

stæra sig af því að vera ætt-

lausir og óflokksbundnir.

5. Forsetaframbjóðendur sem

birta endalausa lista af óþekkt-

um stuöningsmönnum I blöð-

unum.

6. Forsetaframbjóðendur sem

birta enga lista og fara afar

iaumulega með stuðnings-

menn sína.

7.  Forsetaframbjóðendur sem

halda innihaldslausar ræður

einn daginn og reka malefna-

*»«—               lega baráttu hinn daginn.

8. Forsetaframbjóðendur sem

ætluðu í framboð, hættu viö,

ætluðu aftur, en hættu svo

endanlega við.

9. Forsetaframbjóðendur sem

enn hafa ekki fundið í sér

manndóm til að hætta endan-

lega við.

10. Forsetaframbjóðendur yfir-

höfuð.

Mu£_ Skemmdu eplin hennar Evu

hjátrú

Kathlyn Gay nefnist

bráösnjall ríthöfundur sem

nýverið sendi frá sér

bókina Keep the Buttered

Side Up á vegum Robson

Books-forlagsins. Þarna

hefur frú Gay safnað

saman á einn stað

aragrúa af hjátrúarmolum,

vafasomum húsráðum og

ruglumbulli í slíkum dúr.

HP lítur á þrettán stykki...

Aðeins lygarar

skera ójafnar

brauðsneiðar

1. Það boðar ógæfu í framtíðinni

ef brauð iendir eftir fall með

„smjörhiiðina" niöur

2. Að henda brauðmylsnu úr

botni brauðristarinnar getur

endurvakið forna hungurbölvun

3.  Ef þú skerð brauð í ðjafnar

sneiðar þá ertu lygari

4. Aö geyma brauðskorpu undir

koddanum þýðir að þig mun

dreyma brauð — nokkuö sem

boðar hamingju

5. Að fá lánað salt og pipar hjá

vini getur eyðiiagt samband

ykkar

6. Að henda bananahýði kæn

leysislega frá sér getur þýtt

kvalafullan dauðdaga þinn

7.  Ef þú borðar kál meðan þú sit-

ur að áfengisdrykkju veröurðu

ekki drukkinn

8. Að borða kartöfluhýði eykur

hárvöxt á bringunni tii mikilla

muna

9. Það merkir ógæfu aö rétta

annarri manneskju salt við

matarboröið

10.  Þú getur stöðvað kvef meö

þvi að setja lauk á hálsinn

11. Þú getur læknað háisbólgu

með því að setja saltað svína-

kjöt við hálsinn og halda þvf

þar.meö óhreinum sokki

12. Ef þú geymir óniöurskorinn

brauðhleif é hvolfi geturðu

valdið dauða einhvers sem er

nákominn þér

13. Aö borða hjartað úr áii gefur

þér hæfileika til að segja fyrir

um atburði framtíöarinnar

Nú er kominn tími á að ég fái

að rausa aðeins. Flæða,

eins og það kallast á bók-

menntamáli. Allir þurfa jú á út-

rás að halda (byrgi maður

reiðina innra með sér kann

maður að fá sótthita, að því er

sagt er). Máske er ástæðan fyr-

ir útrásarþörf minni að þessu

sinni sú að ég fór ekkert í lík-

amsrækt í vikunni sem leið,

heldur drakk þess í stað örfáa

bjóra á öldurhúsum bæjarins

og hélt matarboð (sem er nú

yfirleitt góð útrás).

Það er annars fátt sem særir

„blygðunarkennd" mína, nema

ef vera skyldi illa firrtir ein-

staklingar. Þannig læddist sú

frétt langt inn fyrir skel mína

fyrir fáeinum árum þegar

greint var frá því er drengur

drukknaði í tjörn um hábjartan

dag í skemmtigarði í Hollandi

— og það fyrir framan fólks-

mergð. Megnið af fólkinu í

garðinum ku hafa horft upp á

drenginn berjast fyrir lífi sínu,

en ekkert af því — ekki ein ein-

asta hræða — rétti drengnum

hjálparhönd (ég er viss um að

ef hundur hefði verið á svæð-

inu þá hefði hann synt á eftir

barninu). Atburður þessi sýnir

vel hversu skemmd eplin

hennar Evu eru orðin.

Ég man hvað mér varð flök-

urt þegar ég rýndi í þessa frétt

og hef oftsinnis síðan hugsað

um hvað heimurinn sé illa firrt-

ur (sbr. félagsfræði I). Gýs með

það sama alltaf upp hjá mér

mikil reiði.

Það er reyndar hvorki gömul

saga né ný að mig flökri við

firrtu fólki sem lætur sig sam-

ferðafólk sitt litlu varða. Mér

hefur til dæmis alltaf ofboðið

fái ég of stóran skammt af illu

umtali um fólk. Ég er sosum

enginn engill sjálf, en reyni

samt eftir megni að bera hönd

fyrir höfuð þess ellegar ég

forða mér á brott hið snarasta.

Eins og ég hef reyndar ein-

hvers staðar áður gusað út úr

mér er ég ekki með þessu að

segja að mannskepnunni sé

óeðlilegt að tala um náungann.

Þvert á móti er það eitt af því

sem gefur lífinu gildi. Það er

hins vegar list að feta einstigið

á milli þess að geta leyft sér að

tala um galla jafnt sem kosti

rydd

:Uðrún

Mstjánsdóttir

fólks. Til þess þarf slatta af gáf-

um og öðrum góðum eiginleik-

um. Slúðursögur, hrakfallasög-

ur, skemmtisögur, giftingasög-

ur, barneignasögur, veiðisög-

ur... góðar og góðlátlegar sög-

ur með góðum húmor eru

ómissandi krydd í tilveruna.

Máli hins vegar einhver alla þá

í svörtu sem hann svo mikið

sem minnist á segir það oftar

en ekki meira um greindarvísi-

tölu og hugarástand þess sem

talar en þess sem um er talað.

Eins og allt er nú skemmti-

legt í hófi, þá á ég (og sem bet-

ur fer margir aðrir) afar erfitt

með að umgangast illa snobb-

aðar afætur, einkum séu þær

fæddar með silfurskeið í kjafti,

og enn verri eru þær hafi þær

aldrei þurft að dýfa hendi í kalt

vatn. Ef svo illa vill til að slíkar

manneskjur eigi eitthvað undir

sér er þeim oft skipað á við-

hlæjendapallinn. Jú nó; „Mon-

ey makes the world go

'round".

Maður getur alltént huggað

sig við að slíkir einstaklingar

^n^

rista sjaldnast djúpt. Vissulega

er samt forvitnilegt að hafa

kynnst þessum skemmdu epl-

um og að sjálfsögðu má hafa af

þeim gaman, sé innrætið í

ágætu meðallagi. Eitt verður

þó að viðurkennast: Aldrei

myndi ég leggja fjöregg mitt í

hendur slíkra einstaklinga.

Maður hugsar hins vegar til

þess með hryllingi þegar

skemmdu eplin eru illa gefin í

ofanálag. Svoleiðis fólk er stór-

hættulegt, einkum eigi það

eitthvað undir sér.

Mikið var þetta annars góð

útrás... Nú má gera ráð fyrir að

ég verði í góðum fíling það sem

eftir lifir maímánaðar.

Gleðilegt sumar!


Endalaus ábót. ..

Kaffivagninn

Kaffivagninn er með elstu kaffi-

húsum borgarinnar. Staöurinn

er reyndar oröinn svo gamall í hett-

unni, að rekstur hans hófst á tímum

þegar einungis allra sigldustu íslend-

ingar vissu yfirhöfuö að til væru fyrir-

bæri sem nefndust „kaffihús". Það

þarf vart að tíunda hvað er boöiö

uppá þarna fyrir magann, því annað

eins kaffihlaðborð tyrirfinnst tæplega

í borginni og þótt víðar væri leitaö.

Þarna er bókstaflega allt; frá pönnu-

kökum og flatbrauöi uppí raffíneruð-

ustu hnallþórur — og bakkelsið er

blessunariega laust við verksmiðju-

keím og fremur stílað inná meðal-

Jóna sem helst kjósa heimabakaö.

Dýrtíöin ríkir hinsvegar í kaffihlað-

boröinu einsog annarsstaðar á

þessu guösvolaöa skeri. Þegar

gestaumferö er í minna lagi utan

álagspunkta má stöku sinnum finna

aö kaffinu sem framleitt er í stór-

virkri tveggja könnu maskínu: þaö

verður fyrir vikiö fullsoðið og þunnild-

islegt fyrir smekk undirritaös. Enda-

laus ábótin er þó risastór plús. Af-

greiðslufólkiö er allajafna kurteist og

þægilegt til umgengni og til í létt

spjall er færi gefst. Afgreiöslutími

Kaffivagnsins er til mikillar fyrirmynd-

ar, enda opnað um þrjú eftir mið-

nætti fyrir leigubílstjórana og al-

menningí hleypt inn klukkutima sfö-

ar. Lokaö er klukkan 23:30. Eða

þannig var fyrirkomulaginu háttað

síðast þegar kaffihúsarýnir þessarar

viku gáöi. Bjór er á matseðlinum.

Kaffivagninn er að öllum líkindum al-

þýölegasta kaffihús borgarinnar og

því er við hæfi að fjalla um hann hér

1. maf. Við útidymar standa tveir

spilakassar á vegum Háskólans eða

einhverra góögerðarstofnana og þeir

stöövast aldrei. Þar standa frá

morgni til miðnættis einhverjir tveir

meö vasana fulla af fimmtíuköllum.

Hávaðinn af kössunum getur verið til

nokkurs ama og má benda eigend-

um Kaffivagnsins á að mögulegt er

aö kippa hátölurum þeirra úr sam-

bandi. Hópur fastagesta skiptist

þannig, að fyrstir allra mæta sem-

sagt leigubílstjóramir, fljótlega uppúr

því borgarstarfsmenn skrýddir sfnum

appelsínugulu einkennisfötum og

þegar himinn er tekinn aö roðna af

sólu — um klukkan sex — rölta

lopapeysuklæddir trillukarlarnir inn I

bússum sfnum og styðja hönd undir

veðurbaröa kinn þar sem þeir líta

hugsandi til veöurs. Fastakúnnarnir

eru ekki of heimarfkir eöa hranalegir

við aðkomumenn þannig aö svefn-

leysingjar, þunglyndisleg skáld og

jafnvel þynnkulegir djammarar geta

slæðst þarna inn athugasemda-

laust, svo framarlega sem þeir eru

ekki of hávaöasamir eða áberandi

glysgjarnir í klæðaburöi. Snjáöar

gallabuxur, ullarklæði ýmiskonar,

úlpur, strigaskór eða gúmmískæöi

og köflóttar skyrtur eru heppilegasti

klæönaðurinn. Þriggja daga skegg

ogvinnuhokiö herðalagerjafnframt

ákjósanlegt. Það er ekki hægt aö

láta sér leiöast þarna: eftir dag-

blaðalestur er hægt að stúdera fjöl-

breytt gestavaliö, horfa útí bláinn,

hripa eitthvað misgáfulegt niður á

blað eða tala viö viðmælandann. Allt

virkar. Staðsetning Kaffivagnsins

gæti varla verið betri þar sem hann

stendur við höfnina með útsýni yfir

rólyndislega vaggandi sæför af ýms-

um stærðargráðum — og sundin ef

vel er að gáð. Ástafundir eru einstak-

lega heppilegir á Kaffivagninum,

hvort heldur er um að ræöa „opin-

ber" pör eöa fólk sem býr viö aðrar

kringumstæður því á Kaffivagninum

hittir maður aldrei neinn sem maöur

þekkir. Og þar fær fólk friö til að ská-

skjóta saman nefjum yfir kaffi eða

kakói og ræða blikur á lofti eöa bjart-

ar framtíðarhorfur. Innanhússafki-

tektúr Kaffivagnsihs er sér á parti og

dregur staðinn eiginlega niður um

hálfa stjörnu. Mötuneytisbragurinn

— viöarlíkisklædd borðin og leöurlík-

isklæddir stólarnir — er a köflum

fullmikill og gervilegt sjávarskrautið

pirrandi. Minnir helst á kaffistofu í

einhverju frystihúsinu. En það var

kannski upphaflega meiningin...

•••1/2

•shli

tið

¦ .netið í dag er gjör-

samlega helgað

teiknimyndasögum

og dyggum hópi

teiknimyndafríka:

„Factsheet 5" nefnist

heimasfða er inni-

heldur gríðarmagn af

upplýsingum um

teiknimyndablöð sem

gefin eru út í litlu

upplagi og erfitt er á

allan hátt að nálgast.

Á http://www.well.

com/conf/f5/

f5index2.html geta

menn verslað, „býtt-

að" — og tjáð sig

um málefnið...

¦ „Grant Morrison

Voodoo Love Fetish"

er heimasíða herra

Morrisons sem skap-

aði Doom Patrol og

The fnvisibles og

þennan brjálæðing er J^|

hægt að heimsækja

með því að smella

sér inná

http://www.

rt66.com/ bobek/-

gmvlf/gmvfl.html

— brilljant...

¦ „Mike Allred Fan

Page" er heimasíða

aðdáendaklúbbs Allr-

eds þessa, en hann

er skapari Madman

og þegar inná

http://www.geocities.com/PA-

ris/2346/ er komíð er vissara að

stíga til jarðar með gát — í alvör-

unni...

| ¦ „WraithSpace Com-

ics Index" kallast

heimasfða sem inni-

heldur ógnarmikinn

helling af upplýsingum

um teiknimyndahöf-

unda, -útgáfufyrirtæki,

-blöð, -verslanir, -hand-

rit, -höfundarrétt og svo

framvegis. Það er leik-

ur einn að gleyma sér

inná http://www.

redweb.com/

wraithspace/ — fylg-

ist því með tímanum...

¦ „Comic Shop News"

er eins og nafnið gefur

til kynna heimasíða Int-

emet-útgáfu sam-

nefnds fagtímarits og á

http://www.

actwin.com/csn/

geta menn gætt sér á

forsýningu á því sem

pappfrsútgáfan kemur

til með að innihalda

næst — nammi-

namm...

¦  „Bone" er heima-

síða höfundar sam-

nefnds sköpunarverks

um Bone-frændurna.

Snillingurinn heitirJeff

Smith og á heiðurinn af

þvf að bera kyndil

meistara Carls Bark

(skapara Andrésar and-

ar) inní 21. öldina.

Neglið inn slóðina

http://www.phlab.missouri.

edu/~c617145/bone/ ogþið

skiljið hvað ég meina —

og þó, varla...             hp@ceirtrum.is

^vífarar ^_ isnÆvg

JB Hannibalsson & RJ Samuelson

Svekktur jesandi HPriringdi í okkur í síoustu viku og kvartaði sáran yfir því að

Jón Baldvin I lamiibalssoii, leið'togr sinn og'Ijósker andlegrar jafhaðar-

mannavisku, væri fastur Sskrifandi að Niöurieíö á blaðsfðu 11. hetta taldi les-

andinn fullkomlega óásættanlegt Sstand og'illa farið meö góðan dreng. HP

bendir sem fyrr á aö Uppleið/Niðurleíð er sett samantil gamans og mælirfrem-

ur sveiflur þjóðarsálarinnar en skoöanir ritstjómar — þótt þaö farí nú reyndar

gjarnan saman. Til aö lesandinn svekkti fái þð eitthvað fyrir sinn snúð þá fund-

um við skemmtilegan tvlfara JBHI blaðið þessa vlkuna: engan annan Robert J.

Samuelson, einhvem virtasta stjómmálaskýranda Bandaríkjanna. Sá heldur trti

vikulegum og tiltölulega brilljant stjórnmélapistll I stórblaðinu Newsweek og er

þar að auki einn af ritstjórum blaðsins. Skeggið er eins, hárgreiðsfan svipuö, efri

vörin punn ð báöum en sú neöri safarík og refsleg glettni skín úr augunum. Báð-

ir þurfa að nota gleraugu, eru snyrtitega.ttl fara. og staöfastir bravissimo-besser-

wlsserar... •—¦¦--*                          "           '   •                "    '         "     '       ¦

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32