Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 17. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						^C^fr

^Él

FIMIVmJDAGUR 2. MAÍ1996

^lútverkaleikir

Nokkuð flókið

Nafn: Middle Earth

The Wizards eöa

METW

Tegund: Satnkorta-

spii

Útgefandi: Iron

Crown Enterprizes

Útgáfuár: Fyrst gefiö út seint á

síöasta ári en þar sem sú útgáfa

hreinlega hvarf úr verslunum á

mjög stuttum tíma var spiliö end-

urútgefiö stuttu seinna.

Útsölustaðin Fáfnir, Hverfisgötu

103, og Míþril, Bankastræti 4.

Fjöldi spilara: Spilarar geta veriö

frá tveimur og upp úr, en líklega

hentar ekki vel aö fleiri en fimm

spili í einu vegna ákveðinna tak-

markana á spilunum.

Fjöldi spila: Spiliö er gefiö út í

setti sem inniheldur 483 spil og

er selt í 76 spila pökkum meö

reglubðk og fimmtán spila auka-

pökkum.

Spilatími: Breytilegur. Fyrstu spil-

in geta tekið mjög langan tíma en

þegar fólk kemst í gang ætti hver

leikur með tvemur spiluaim að

taka um 45-60 mínútur.

Um spilið: Spilið gerist í veröld

JRR Tolkiens, þar sem álfar, tröll,

orkar og fleiri kynjaverur eru til.

Þetta er einmitt heimurinn úr sög-

um Tolkiens „The Hobbit", „The

Lord of The Rings" o.fl. og er spil-

iö að stórum hluta byggt á at-

burðum, persónum, stööum og

hlutum úr bókinni. Spilið er I gróf-

um dráttum barátta „The Free Pe-

oples" gegn hinum illa Sauroni.

Hver spilari táknar einn galdra-

mann af fimm sem guðirnir

senda til að berjast á móti Saur-

oni (þess vegna er óþægilegt að

fleiri en fimm spili í einu). Galdra-

mennimir eru Gandalf, Radagast,

Pallando, Alatar og Saruman,

sem hver um sig hefur ákveðna

hæfileika. Spilið er nokkurs konar

keppni milli þeirra sem gengur út

á að sýna fram á hvers ráðum sé

best að fylgja til að kveða Sauron

niður. Þeir safna svokölluðum

„marshalling points" með því að

sigrast á ýmsum illum vættum

Saurons, safna fylgjendum þér til

stuönings og ná ýmsum hlutum.

Það er gert með því að ferðast

um heiminn og á þessum ferðum

getur maöur, eins og áður sagði,

rekist á illar vættir, fylgjendur eða

fundið hluti og er mikilvægt að

nota það sér til framdráttar.

I'Yumleiki: Spilið byggist á göml-

um, nokkuð vel þekktum sögum

og eins og áður sagöi vísa ýmis

spil beint í þær. En spilið sjálft

sker sig samt úr og líkist ekki

neinu öðru safnkortaspili.

Útlitshönnun: Spilin eru vel

hönnuö og prýdd flottum mynd-

skreytingum.

Kostin Spilið er skemmtilegt og

auk þess ættu aödáendur Tolki-

ens að kunna vel við sig að spila

METW, þar sem spilið líkist, eins

og áður sagði, bókum hans tölu-

vert. Mikil hreyfing er á hlutunum

og margt að gerast þannig að lítil

hætta er á að manni leiðist.

Gallar Spilið er töluvert flókið

og frekar erfitt að læra það, sér-

staklega þar sem reglubókin er

þó nokkuö ruglingsleg og flókin,

en það skánar þð þegar maður

fer*aö spila.

Heildareinknnn: -k-k-k Spilið

sjálft er þónokkuð gott og vel út-

fært. Reglubókin og hversu flókiö

spilið er skemma aðeins fyrir en

hér er samt á feröinni ágætis

spil.

Indriði Stefénsson

Fjórtán manns, sem allir eru meö

einum eða öðrum hætti tengdir litla

íslenska tölvurisanum Oz, brugðu

sér með sýndarveruleika- og músíkleik

Bong í farteskinu til San Fransiskó á

sunnudag til að vera með á stærstu

Internetsýningu sem haldin hefur verið í

heiminum. Guðrún Kristjánsdóttir heyrð\

af þessu tilefni í sellóleikaranum Eyþóri

Arnalds sem hefur verið að fikta við fermi.

„Við ætlum

að taka hina

tölvurisana

í nefið"

Pjórtán manna hópur á veg-

um hugbúnaðarfyrirtækis-

ins Oz, sem var síðast þegar

fréttist metið á 1,6 milljarða

króna, lagði á sunnudag upp í

ævintýraferð til Bandaríkjanna,

nánar tiltekið til San Fransiskó,

til að taka þátt í stærstu Inter-

netsýningu sem haldin hefur

verið í heiminum til þessa. Með

öðrum orðum lítur út fyrir að

Internetæði hafi ekki bara grip-

ið um sig á íslandi með sögu-

legum afleiðingum seint á síð-

asta ári heldur víðast hvar í

heiminum... „Þetta verður mik-

ið fjör," fullyrti Eyþór Arnalds

sellisti, meðlimur hljómsveitar-

innar Bong og einn fjórtán-

menninganna sem lögðu upp í

förina á sunnudag.

Hugbúnaðarfyrirtækið lét

hanna fyrir sig í Los Angeles

tveggja hæða stálbás sem nú er

verið að flytja með stórum

trukk til San Fransiskó, en að

auki taka Oz-félagar með sér

„tonn" af eigin tölvum og græj-

um, enda sýningin fyrst og

fremst hátæknilegs eðlis. Ey-

þór segir mikið lagt í stálbásinn

og hann sé afar flottur. „Við

stefnum enda að meiri sjóbiss-

ness en önnur fyrirtæki í kring-

um okkur. Við hyggjumst til

dæmis taka hina tölvurisana —

Silicon Graphics og aðra —

sem í kringum okkur verða í

Silicon Valley í nefið."

Það ætti að vera hægur

vandi fyrir Oz-ara því eftir því

sem HP kemst næst eru fslend-

ingar að minnsta kosti í hópi

fremstu   Evrópuþjóða   á   há-

tæknisviðinu.

Hvað œtlið þið svo að sýna

í Kísildalnum?

„Oz-menn ætla að frumsýna

fyrstu útgáfu sína af Internet-

tækni sem þeir kalla Oz Virtual.

Kjarninn í henni var rétt tilbú-

inn fyrir helgi. Við í Bong höf-

um hins vegar verið að vinna

að músíkleik ásamt Oz sem við

ætlum að kynnna að hluta til á

sýningunni. í samvinnu við Oz

merkilega við fermi er að það

er eina hljóðfærið í mannkyns-

sögunni sem ekki þarfnast

snertingar. Fermi er í raun bara

loftnet sem byggist á því að því

fjær sem maður er með hend-

urnar frá öðru loftnetinu því

hærra heyrist í því og því fjær

sem maður er með hendumar

frá hinu því dýpri verður tónn-

inn. Fermi er með öðrum orð-

um táknrænt  fyrir þetta þrí-

að vinna með GusGus-mönn-

um, DJ Grétari og Bigga, að

Grúvi sé lof og dýrð var á sama

tíma einmitt verið að vinna að

heimildamynd með þeim Kjol

& Anderson undir sama nafni.

Þar sem myndin fékk Menning-

arsjóðsstyrk fyrir nokkru erum

við ennþá að. í San Fransiskó

ælta Kjol & Anderson meðal

annars að taka upp þrívíddar-

tónleikana og svo ætlum við

stefnum við líka að því að

standa að brjáluðum perfor-

mans. Meiningin er sú að

grabba söngkonu Bong, Mó-

eiði, og setja hreyfingarnar á

henni inn í þrívíddarheim á Int-

ernetinu. í kringum það verða

svo ýmiskonar brellur eins og

hljóðfæri sem kallast fermi."

Hvaða hljóðfœri er nú

það?

„Fermi er einn fyrsti hljóð-

gervillinn sem fundinn var upp,

nánar tiltekið árið 1918. Það

víddarumhverfi sem tölvur nú-

tímans byggjast svo mikið á,

því það er í raun þrívítt hljóð-

færi. Svo leik ég líka á selló,

sem einnig verður módúlerað í

þrívídd. Það verður þar af Ieið-

andi þrívítt selló sem spilar á

sjálft sig."

Mér skilst svo að öll dýrðin

verði fest á filmu?

„Já, félagarnir úr Kjol & And-

erson munu fylgja okkur utan,

sem er upphaflega komið til af

því að þegar við í Bong vorum

bara að hafa gaman af þessu."

Veistu hvað þarna verða

margir samankomnir?

„Nei, en ég veit að það verða

margir. Þeir Baldur Stefánsson

og hinir kvikmyndagerðar-

mennirnir sem bókuðu farið

aðeins á eftir okkur fengu ekki

svo mikið sem flugfar frá LA til

San Fransiskó. Þeir urðu þess í

stað að leigja sér húsbíl sem

þeir verða svo að sofa í á

staðnum."

Hvað   stendur   sýningin

lengi?

„Hún er bara næstum því

eins stutt og forsetakosning-

arnar. Þetta er heljarinnar und-

irbúningur en svo bara örtsutt

sýning, eða þrír dagar. Dæmi

um hve mikill undirbúningur-

inn hefur verið er að Oz er

ábyggilega eina fyrirtækið í

bænum þar sem sofið er á dýn-

um við hliðina á skrifborðun-

um. Við erum til dæmis með

öryggiskerfi sem hefur ekki

verið sett í gang í heiia tvo

mánuði. Alltaf eru einhverjir að

vinna. Megnið af tímanum hef-

ur farið í undirbúning fyrir sýn-

inguna, enda er ætlun okkar að

reisa okkur bautastein þarna

úti."

Eruð þið bjartsýnir?

„Ég er rosalega bjartsýnn á

að þessi hátæknisýning eigi eft-

ir að skila miklu fyrir fyrirtækið

og verði fyrsta skrefið í að

koma okkur á alheimskortið.

Það er enda rosalega vel að

þessu staðið af hálfu OZ."

Hvenœr komið þið til

baka?

„Það er misjafnt, en flest okk-

ar skila sér á milli 7. og 10. maí.

Þessi ferð verður vafalaust

skrautleg og því er fínt að geta

skjalfest hana með þessari

heimldamynd. Það er nefnilega

alveg sama hvað framtíðin

kann að bera í skauti sér; slái

fyrirtækið í gegn og verði risa-

stórt í framtíðinni þá verður

þessi heimild eihstök. Komi aft-

ur á móti eitthvað lítið út úr

þessari ferð verður heimildin

engu að síður einstök."

Pregnir HP herma að tveir af

hæfileikaríkustu tónlistar-

mönnum þjóðarinnar af yngri kyn-

slóöinni séu á leið utan til náms

næsta haust og það sem meira

er í sama skóla. Þetta eru Björn

Jörundur Friðbjömsson, fyrrum

nýdanskur, og Gunnar Bjarni,

aöallagahöfundur og vítamín-

sprauta Jet Black Joe. Eins og

flestum ætti að vera kunnugt ligg-

ur starfsemi Jet Black nú niðri

eftir að söngvarinn Páll Rósin-

krans frelsaðist og gekk í Kross-

inn, en í framhaldi af því hyggst

Páll snúa sér að gerð gospel-

plötu. Skólinn sem þeir félagar

sóttu um í er hinn víðfrægi

McCartney-skóli í Bretlandi og

mun ekki vera auðsótt að fá þar

inni. Þeir stefna þó ekki að því

sama því Björn hefur í hyggju að

nema leiklist og Gunnar Bjarni

tónlist...

Eins og áður hefur verið greint

frá voru miðar í sæti á Bowie-

tónleikana í Laugardalshöll 20.

júní bókstaflega rifnir út á fyrsta

hálftímanum, en nú eru rúmlega

hundrað miðar eftir í salinn.

Reyndar er það oft svo erlendis

að miðar á tónleika stórstirna á

borð við Bowie eru rifnir út á fá-

einum dögum. Þaö sem menn

gera sér hins vegar í hugarlund

með landann er að íslendingar

séu svo óvanir því að fá hingað til

lands tónlistarmenn af kalíberi

Bowies að þeir gái ekki að sér.

Búast má því við aö margir Bo-

wie-aðdáendur nagi sig í handar-

bökin þegar nær dregur hápunkt-

inum og þeir hafa ekki tryggt sér

miða...

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32