Alþýðublaðið - 04.03.1972, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 04.03.1972, Blaðsíða 9
Níi á nýliönum Þorra hleypti golfsambandiö af stokkunum happdrætti til eflingar almennri starfsemi golfhreyfingarinnar i landinu og til aö koma á fót utanfararsjóöi til þáttöku i landskeppnum. Hafa allir félagar golfklúbba á islandi fengið slatta af miðum senda i pósti og er vonast til, að sem flestir fleggi hönd á plóginn i þetta sinn. öll skipulagning og framkvæmd á happdrættinu er miðuð v.ið úrvinnslu i rafreikni og má gera ráö fyrir, að allt gangi nú að óskum. Markaöur fyrir happdrætti sem þetta er að visu þröngur, þar eð verðlaun eru einkum golftæki og golfT feröir til Skotlands nú I vor. Eigi aö síður er hér um verðmæta vinninga að ræða, jafnvel þótt hinir heppnu hefðu aldrei heyrt golf né séð. Fjár- hagur GS.t. hefur ávallt verið GOLFSAMBÁNDID ÞARF SINN PENINS þröngur og virðist hafa verið myllusteinn um háls allra golf- sambandsstjórna frá upphafi vega. Fyrir 2-3 árum byrjaöi samt aðeins aö rofa til og með gjörbreyttri stjórn, er tók til starfa á árinu sem leið vöknuðu vonir um öflugt starf á árinu 1972. Sú stefna er sem betur fer rikjandi, að beina athyglinni fyrst og fremst að samvinnu við golfsamböndin á hinum Norður- löndunum og Evrópusam- bandið, enda ódýrara og árangursrikara á allan hátt. Flestir kylfingar eru einhuga um að cfla sambandið við nágrannalöndin og fara vafa- laust fram margs konar milli- landakeppnir á næstu árum. Sem dæmi má nefna aö nú þegar þarf að hefja undirbúning að þátttöku islenzka landsliös- ins i Evrópukeppni 4 manna liða, scm lialdin verður á irlandi 1973. Ennfremur er mikið nauðsynjamál að stuöla að heimsóknum erlendra golf- manna hingað þar eð búast má við betri frammistöðu okkar manna á heimavelli og til að kynna golf almennt á islandi. E.G. Met á met ofan Tvö islandsmet, drengjamet, sveinamct og piltamet voru sett á innanfélagsmóti ÍR, sem nýlega var haldið I Laugardalshöllinni, en keppt var i 6 greinum karla og kvenna. Agúst Asgeirsson iR setti nýtt met i 1500 m. hlaupi innanhúss á 4.19,4 min. i sömu grein setti Július Hjörleifsson UMSB drengjamet 4.41,5 min. Magnús Geir Einarsson ÍR sveinamet 4.58,3 og Sigurður Haraldsson ÍR piltamct á 5.46,2 min. Björk Eiriksdóttir ÍR setti nýtt met i 1500 m. hlaupi kvenna á 5.44,0 min. Guömundur Jóhannsson ÍR náði sinum bezta árangri i stangastökki, stökk 4.29 m., en 5 A AF- REKA SKRÁ FIMM islenzkir frjáls- iþróttamenn eru á afrekaskrá Noröurlanda áriö 1971 yfir þá 25 beztu i hverri grein. Bjarni Stefánsson KR er þeirra fremstúr, hann er 12. i 400 m. hlaupi á 47,5 sek., en auk þess er hann i 20—25 sæti i 200 m. hlaupi meö 21,7 sek. Guðmundur Hermannsson KR er i 15. sæti i kúluvarpi með 18,02 m., en Erlendur Valdimarsson ÍR er 17. i kringlukasti mcð 56,54 m. Karl Stcfánsson UMSK er 18. i þri- stökki meö 15,54 m. og að lok- um er þaö Valbjörn Þorláks- son, sem er i 23. sæti i 110 m. grindarhlaupi með timann 14,7 sek. Valbjörn Þorláksson A. varð annar, stökk 4,14 m. Guðmundur Hermannsson sigraði i kúluvarpi, 16.78 m. en llreinn Halldórsson HSS varð annar með 15.45 m. í kúluvarpi sveina sigraði Sigurbjörn Lárus- son með 13.74 m. og i kúluvarpi kvenna Sigriður Sveinsdóttir IR 7.21 m. j--------------:------------* 4 Það mun ekki verða hörgull á 7 minjagripum fyrir þá sem sæk- t ja Olympiuleikana i Munchen á I komandi suinri. Yfir 700 mis í munandi tegundir hafa þegar- J séð dagsins ljós og kennir þar ) margra grasa. Hið opinbera merki leikanna má sjá á eld- spýtustokkum, skartgripum, bindum og fötum, eins og dam- an hér á myndinni skartar, svo nokkuð sé nefnt. Yfir 250 fyrirtæki hafa óskað leyfis framkvæmdanefndar leikanna til að nota merkiö á framleiðslu sina. Margt á seyði í íþróttalíf- inu um þessa helgi Vikingsmótinu lýkur á sunnudag Það vcröur margt um að vera hjá iþróttafólki um helgina og ótrúlegt er annað, en að iþrótta- unnendur finni eitthvað við sitt hæfi. Við skulum lita á það helzta: HANDKNATTLEIKUR: Vikingsmótinu lýkur um helgina. i dag leika i Laugardalshöllinni Vikingur og Hamburg SV og siðan Úrval HSÍ og Gottwaldo. A sunnudag hefst keppni aftur kl. 16 og leika þá Vikingur — úrval HSÍ og erlendu liöin Gottwaldo og Hamburg SV. FRJALSAR ÍÞRÓTTIR: Meistaramót islands i frjálsum iþróttum innanhúss verður haldið i Laugardalshöllinni og Baldurs haga og hefst kl. 13 i dag og sunnudag. Keppendur eru milli 60-70 frá 13 félögum og héraös- samböndum. Keppt er I greinum karla og kvenna. KÖRFUBOLTI: Keppt verður i 1, deild i dag og sunnudag i Laugar- dalshöllinni. i dag leika ValurlISK og ÍR-Þór. A sunnud. leika ÍS-Þór, Armann-HSK og KR-Valur. Leikirnir hefjast kl. 19.30 bæöi kvöldin. BADMINTON: Firmakeppni TBR heldur áfram i dag kl. 16.50 i Alftamýrarskólanum. Atta fyrir- tæki eru eftir i keppninni. KNATTSPYRNA: Fyrsti leikurinn i Meistarakeppni KSi verður leikinn i dag i Vcstmanna- eyjum og mætast þar kl. 15 islandsmeistararnir frá Keflavik og Vestmannaeyingar. Þorsteinn fer á EM í frjálsum Þorsteinn Þorsteinsson KR mun keppa á Evrópumeistara- mótinu i frjálsum iþróttum inn anhúss, sem fram fer I Grenoble i Frakklandi dagana 1J. og 12. marz n.k. Stjórn FRi ákvað að senda Þorstein til þessa móts, en hann stundar nú nám i Bandarikjunum og hefur náð ágætum árangri i mótum vestra i 400 og 800 m. hlaupum, en I þeim greinum mun hann keppa í á Evrópumeistara- mótinu. Þá var ætiunin, að Bjarni Stefánsson spretthlaupari i KR keppti þar einnig, en hann gat ekki komið þvi við að fara vegna prófa í Menntaskólanumi við Ilamrahlið, þar sem hann stundar nám. Með Þorsteini fer sem farar- stjóri, Svavar Markússon gjald- keri FRÍ. Laugardagur 4. marz 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.