Alþýðublaðið - 24.01.1973, Blaðsíða 2
Buðu milljonir i
tilvonandi mynd
Fréttin um eldgosiö i Vestmannaeyjum var ekki lengi að þjóta eftir
öldum ljósvakans út um allan heim — og heimspressan tók heldur en
ekki kipp. Þess voru jafnvel dæmi, aö erlendar fréttastofur i öðrum
heimsálfum vektu upp islenzka fréttamenn af værum blundi og segðu
þeim frá tiöindunum. Þannig gerðist þaö, að skömmu eftir, að gosið
hófst var hringt frá sjónvarpsstöð einni til sjónvarpsmanna, þeim sögð
tlðindin.Um leiö var spurt, hvort það væri rétt, að ósvaldur Knudsen
væri búinn að fljúga yfir gosstöðvarnar og taka kvikmynd. Ef svo væri
vildi fréttastofan borga milljónir króna fyrir hana.
Það var lika fréttamaður erlendrar sjónvarpsstöövar, sem flutti ein-
um blaðamanni Alþýðublaðsins fréttina eftir upphringingu frá New
York stundarkorni áður en honum barst fréttin eftir innlendum
heimildum.
Fjarriti blaðsins var að sjálfsegðu i gangi, og um svipað leyti og
blaðamenn og ljósmyndarar tóku aö tinast á ritstjórnina flutti hann
þeim fréttina.
SÉÐ FYRIR
LAUSAFÉ
1 dag verða liklega sett upp tvö bankaútibú fyrir Vestmannaeyinga,
nýkomna til Reykjavikur. Er um aö ræða útibú frá Sparisjóöi Vest-
mannaeyja og Útvegsbankanum i Vestmr.nnaeyjum,
1 útibúum þessum veröur Eyjamönnam veitt margvisleg fyrir-
greiðsla, m.a. i sambandi við peningalán, en margir Eyjamenn komu
auralitlir til meginlandsins.
,Hafði áhrif á vinsamlega
sambúð USA og Evrópu'
Þjóðhöfðingjar úr öllum heims-
hlutum létu i ljós virðingu sina á
Lyndon B. Johnson, fyrrum
Bandarikjaforseta, sem lézt af
hjartaslagi á mánudagskvöld, 64
ára að aldri.
Nixon Bandarikjaforseti sagði
m.a., aö Johnson hafi gert
drauma Bandarikjamanna að
veruleika i sinu eigin lifi. Hann
sagði einnig, að Johnson hafi trú-
að á Bandarikin og gert sér ljóst,
hvaða þýðingu þau hafa fyrir
landsmenn og heiminn allan.
Ngyuen Van Thieu, forseti
Suður-Vietnam sagði i simskeyti,
að Johnsons verði um alla
framtið minnzt i Vietnam sem
mikilhæfs stjórnanda, sem
óhræddur hafi ráðizt i að snúa
Konulaus
bær í
fyrsta
sinn
Nú eru Vestmannaeyjar
algerlega konulaus bær, að þvi
er lögregluþjónn i Eyjum sagði i
viötali við blaðið i gær, en annað
eins ástand mun að öllum lik-
indum aldrei hafa verið fyrr i
Eyjum siðan þær byggðust.
Eftir að siðustu bátarnir og
flugvélin voru farin siödegis i
gær, taldi lögregluþjónninn aö
engin væri nú eftir i eynni, nema
þeir sem brýn nauðsyn væri að
héldu áfram störfum þar.
Nefndi hann lögreglumenn,
gæzlumenn með verksmiðjum,
björgunarmenn, starfsmenn
Flugfélags tslands og fl. ásamt
jarðfr. og fréttamönnum, sem
væru að sinna sinum atvinnu-
greinum.
t gærmorgun voru nokkur
brögö af þvi að fólkværi tregt til
að yfirgefa eyjarnar i flýti.
Lögregluþjónninn sagði að þar
hafi sem betur fer verið um lit-
inn hópa að ræða, og hafi lög-
reglan gengið hart eftir að fólkið
færi til lands i dag, með góðum
árangri.
Taldi hann liklegt að nú væru
aðeins um 100 manns i eynni, en
þar var tæplega sexþúsund
manna byggð i fyrradag. —
LANDHELGISBRJOTAR NOT-
FÆRÐU SÉR NEYÐARÁSTAND
„EINSTÆÐUR
ATBURÐUR
í ÍSLANDS-
SÖGUNNI"
„Það þarf ekki að fjölyrða um
það, hverjum stoðum er kippt
undan efnahagsgrundvelli þjóð-
arbúsins, ef Vestmannaeyjar og
atvinnulif þar leggst i auðn. Er
vandséð nú, með hverjum ráð-
um úr yrði bætt.”
Þannig komst Ólafur Jóhann-
esson, forsætisráðherra m.a. að
orði i ávarpi vegna hinna válegu
tiðinda frá Vestmannaeyjum i
sjónvarpi og útvarpi i gær-
kvöldi.
Benti forsætisráðherra á, að
flutningur 5.000 Vestmannaey-
inga til meginlandsins sam-
svaraði þvi, að 5 milljónir
Bandarikjamanna þyrfti að
flytja til með hliðstæðum hætti.
Ólafur Jóhannesson sagði
m.a. i ávarpi sfnu: „Það er
áreiðanlega ekki ofmælt, að öll
þjóðin sé harmi og skelfingu
lostin vegna hinna óskaplegu
náttúruhamfara í Vestmanna-
eyjum sfðastliöna nótt. Mun sá
válegi atburður einstæður i
Islandssögunni, allt frá byggð
hófst i landinu.
Einhver blómlegasta byggð
hérlendis, verstöðin mikla Vest-
mannaeyjar, hefur um sinn að
kalla lagzt i eyöi sakir eldgoss i
Heimaey, fólk flest flutt burt úr
átthögum sfnum á einu dægri.”
Forsætisráðherra benti á, að
Vestmannaeyjar hafa verið
stærsta og öflugasta verstöð
landsins. Þar muni t.d. árið 1971
hafa verið landað 17% af öllum
þeim afla, sem landað var inn-
anlands. Þar hafi nú verið gert
ráð fyrir aðstöðu til móttöku
25%-30% af væntanlegum loðnu-
afla, sem svo miklar vonir hafi
verið bundnar við.
Forsætisráðherra þakkaði i
ávarpi sinu öllum þeim mörgu,
sem lagthafa fram lið sitt til að-
stoðar Vestmannaeyingum, og
sérstakar þakkir flutti hann
Vestmannaeyingum sjálfum
fyrir æðruleysi þeirra.
„Við vonum auðvitað öll”,
sagði forsætisráðherra, ,, að
þessum skelfilegu náttúru
hamförum linni sem fyrst og
þær hvorki eyöileggi byggðina
né höfnina i Vestmannaeyjum.
En hvað sém um það er, þá er
ljóst, að gera verður allar ráð-
stafanir, sem unnt er, til að
tryggja stöðu Vestmannaeyinga
og bæta þeim tjón þeirra. Það er
skylda samfélagsins.”
í niðurlagi ávarpsins þakkaði
forsætisráðherra þær kveðjur
og framboðna aðstoð, sem bor-
izt hefur frá öðrum þjóðum.
„Við metum þann góða hug,
sem i þeim felst,” sagði Ólafur
Jóhannesson. —
Landhelgisbrjótar héldu sinu
striki i gær þrátt fyrir þær
hörmungar, sem dundu á Vest-
mannaeyingum, og lyktaði viður-
eign varðskips við einn þeirra
þannig, að klippt var á báða tog
virana. Það var brezti togarinn
Ross Alter H 279 sem klippt var á
og var hann aö veiðum 10.5
sjómilur innan við 50 milna
mörkin á Glettinganesgrunni,
þegar þetta gerðist.
Annar brezkur togari, Northern
Sky, ætlaði að koma Ross Alter til
hjálpar með þvi að setja neta-
dræsu i skrúfu varðskipsins, en
það kom fyrir ekki. Þeir Alter-
menn ætluðu lika að klekkja á
varðskipinu og höfðu sér til
varnar kaöal, sem dregur á eftir
skipinu. Tilgangurinn var greini-
LEIT
HÆTT
Leit aö bandarisku orustuflug-
vélinni sem féll i Faxaflóa á
mánudagskvöld, hefur nú verið
hætt. Tilkynnti varnarliðið
bandariska þetta i gær.
Flugvélin var að koma i aðflugi
að Keflavikurflugvelli er óhappið
átti sér stað. Féll vélin i sjóinn.
Eftir viðtæka leit fannst brak vél-
arinnar og hjálmur flugmannsins,
en hann er nú talinn af.
Ekki er ennþá ljóst hvað olli
óhappinu.
lega einnig að koma skrúfu varð
skipsins i flækju, en það mistókst.
Þá sagði Hafsteinn Hafsteins-
son, blaðafulltrúi Landhelgis-
gæzlunnar, er Alþýðublaðið hafði
samband við hann i gær, að drátt-
arbáturinn Statesman væri
kominn á miðin út af Austfjörð-
um, en hann vissi ekki til þess, að
hann hefði verið þarna nærstadd-
ur.
Að minnstakósti eitt varðskip-
anna var statt við Vestmanna-
eyjar i gær, til taks, ef hjálpar
Framhald á bls. 4
þróun mála i Vietnam við, frels-
inu i hag á hinum erfiðu timum
sjötta áratugsins.
Willy Brandt, kanslari Vestur-
Þýzkalands, hyllti Johnson sér-
staklega sem framvörð mann-
réttinda, og stjórnmálamann,
sem hafi haft úrslita áhrif á vin-
samlega sambúð Evrópu og
Bandarikjanna.
Aðalritari Atlanshafsbanda-
lagsins, Joseph Luns, sagöi áö
Johnsons veröi minnzt fyrir
ákveðna stjórn á landi sinu og
fyrir að styrkja stöðu Norður-
Atlantshafsveldanna.
Lát Johnsons var litillega
minnzt i Moskvuútvarpinu, en
þar var sagt, að Johnson hafi
teygt arma sina yfir hálfan hnött-
inn með milljónir hermanna i
greip sinni, sem hann lét þjarma
að vietnömsku þjóðinni.
Nábýlið
við Surt
sagði
til sín
„Ég tel að reynsla okkar
Vestmannaeyinga af Surtseyjar
gosinu, hafi átt hvað stærstan
þátt I hversu fólk var almennt
rólegt og yfirvegað i morgun, er
það var sem óðast að flýja eyj-
una,” sagði Gunnar Halldórsson
vélstjóri á Mb Halkion i gær, er
fréttamaður blaðsins fór með
bátnum til Vestmannaeyja i gær.
Ef fóik hefði ekki verið vant
ámóta hamförum svo til við
bæjardyrnar, sagði hann, er
aldrei að vita hvernig hefði farið.
Halkion var einn þeirra Vest-
mannaeyjabáta, er flutti fólk frá
Vestmannaeyjum til Þorláks-
hafnar i gærmorgun, og komu um
260 farþegar meðhonumauk þess
sem hann hafði annan bát i togi
alla leiðina.
Skipstjórinn á Halkion, Stefán
Framhald á bls. 4
Ur blómlegri byggð
í yfirgefinn bæ á
hálfum sólarhring
Það var um að litast eins og i
sannkölluðum draugabæ i Vest-
mannaeyjum i gærdag, er
fréttamaður blaðsins fór þar um,
og bar umhverfið vissulega ekki
þess merki að hafa verið blóm-
legasta atvinnupláss landsins
fyrir aðeins sólarhring.
Götur, garðar og húsþök voru
svört af ösku, sem liktist einna
helzt þykku ryklagi vegna langr-
ar fjarveru manna. Bærinn var
dimmur, og niðri við höfnina
stóðu tugir, ef ekki hundruð yfir-
gefinna bila, að sjáífsögðu að
mestu huldir öskulagi.
Vart sást lifandi vera á ferli
nema rétt niðri við höfnina, þar
sem þó nokkrir af þeim bátum,
sem fluttu fólk til Þorlákshafnar i
gærmorgun, snéru aftur til Eyja
til að sækj. brýnustu nauðynjar
fjölskyldna og vinafólks skip-
verja. Framhald á bls. 4
EINKASONUR ONASSIS LATINN
Alexandros Onassis, einkasonur griska skipa-
kóngsins Aristoteles Onassis, lézt siödegis I gær af
völdum meiösla, sem hann hlaut i flugslysi á
mánudaginn.
Hann var ásamt tveimur öðrumm i einka-
flugvél, þegar óhappið varð, og voru þeir nýfarnir
á loft . Onassis yngri hlaut höfuðkúpubrot og fleiri
alvarleg meiðsl, og talsmaður sjúkrahúsins þar
sem hann var lagður inn sagði,að hann hefði
aldrei komizt til meðvitundar.
Farþegarnir tveir slösuöust einnig alvarlega.
o
Miðvikudagur 24, janúar 1973