Sinfóníuhljómsveit íslands 2. Fjölskyldutónleikar i Háskólabíói sunnudaginn 11. febrúar 1973 kl. 15. Stjórnandi: Páll P. Pálsson Kynnir: Atli Heimir Sveinsson Framsögumaður: Borgar Garðarsson. Efnisskrá Beethoven: Kontradansar Beethoven: Sinfónia nr. 8, 2. þáttur Haufrecht: Sagan um Ferdinand Kodaly: Hary Janos Copland: Ballett tónlist úr Billy the Kid Ath. Miðar aö öllum tónleikunumCS) gildaað sjálfsögðu áfram. Miðar aö þessum tónleikum verða seldir i Bókabúð Lárus- ar Biöndal, Skólavörðustlg og Bdkaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar, Austurstræti. Næstu fjölskyldutónleikar verða 25. marz. Heilsuræktin HEBA Auðbrekku 53 Konur, athugið! Getum bætt við nokkrum konum i megrunarleikfimi, sem hófst 5. febrúar. Allir föstudagar opnir fyrir konur i nudd og sauna. Pantið tima fyrirfram. Simi 42360 og41989. Starf við áætlanagerð Fjórðungssamband Norðlendinga óskar eftir að ráða starfsmann (fulltrúa), sem starfi einkum að áætlunargerð og töl- fræðilegumverkefnumÆskilegt er að um- sækjandi hafi viðskiptafræðimenntun eða hliðstæða menntun i áætlunarstörfum, ell- egar starfsreynslu. Laun miðast við launaflokkakerfi opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri Fjórðungssambands- ins i sima 21614, Akureyri. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 1972 og skulu umsóknir sendar skrifstofu Fjórð- ungssambands Norðlendinga, Glerárgötu 24, Akureyri. Pósthólf 354. FJÓRÐUNGSSAMBAND NORÐLENDINGA Kynningarfundur um frumvörp til laga um grunnskóla og skólakerfi verður haldinn i Selfossbiói fimmtudaginn8. febrúar, kl. 15.00. Fram- sögumaður verður Birgir Thorlacius. Menntamálaráðuneytið. Bifvélavirkjar Vélsmiðir Óskum að ráða bifvélavirkja og vélsmiði að verkstæði okkar á Sauðárkróki. Upplýsingar gefur Brynjar Pálsson, simi 95-5200. BIFREIÐA- OG VÉLAVERKSTÆÐI KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐ'NGA, Sauðárkróki, simi 95-5200. Afgreiðslan á aðstoðinni við Eyjamenn Þingmannanefndin, sem kjörin var á Alþingi fyrra mánudag til þess að fjalla um ráðstafanir vegna jarðgossins I Vestmanna- eyjum var skipuð eftirtöldum mönnum: Eysteini Jónssyni, Jó- hanni Hafstein, Lúðvik Jóseps- syni, Gylfa 1». Glslasyni, Hanni- val Valdimarssyni, Ingóifi Jóns- syni og Halldóri E. Sigurðssyni. Eysteinn Jónsson var formaður nefndarinnar og mælti hann I gær fyrir frumvarpi þvi sem nefndar- mennirnir iiöfou orðið sammála um. 1 ræðu sinni sagði Eysteinn Jónsson m.a., að það væri brýn nauðsyn að þingmenn allra flokka stæðu fast með þvi kjarkmikla og duglega fólki, sem byggði Vest- mannaeyjar. Kjarni málsins væri að búa svo um hlutína, að Eyja- menn gætu byggt staðinn sinn upp sjálfir og fengju til bess aðstoð allrar þjóðarinnar. Lýsti Eysteinn ánægju sinni á þvi, hversu vel hefði tekizt til, að þing- flokkar allir hefðu orðið sammála um aöbcrðir til þess að svo mætti verða. Þá flutti Eysteinn einnig þakkir til þeirra erlendu aðila, sem boöið hefðu aðstoð ekki hvaö sizt til þjóða Norðurlanda. Það er gott að vita, að við íslendingar stöndum ekki einir, sagði þingmaðurinn. Lýsti hann svo efni frumvarpsins og aðdraganda og sagðist vonast til, að að gæti fengið greiðan gang i gegn um þingið. Að ræðu Eysteins lokinni tóku til máls formenn þingflokka Sjálfstæðisflokksins, Alþýðu- bandalagsins, Alþýðuflokksins og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Lýstu þeir I stuttu máli fylgi flokka sinna viö frumvarpið. Einnig tók Bjarni Guðnason til máls og flutti hann breytingartil- lögu við frumvarpið, en dró hana til baka að beiðni Eysteins Jóns- sonar. Ræðan, sem Gylfi Þ. Gislason flutti, var á þessa lund: Herra forseti! Reynsla hefur sýnt, að þegar þjóðarsómi býður, þá á Island eina sál. Þegar jörð sundraðist á Heimaey og eldur úr iðrum jarð- ar stofnaði lifi og eignum i ein- hverju athafnasamasta samfé- lagi á Islandi i hættu, þá samein- aðist þjóðin öll i bæn um það, að mannslif mættu bjargast og tjón verða sem minnst, og i stuðningi við það starf, sem unnið var til þess aö slikt mætti takast. Það gengur kraftaverki næst, að eng- inn mannskaði skuli hafa orðið vegna hinna ægilegu hamfara, sem átt hafa sér stað, og hversu miklum verðmætum hefur tekizt að bjarga. Fyrst og fremst er hér Vestmannaeyingum fyrir að þakka, en þjóðin öll hefur staðið að baki þeirra, með þeim og mun gera. Nu i dag er það einhuga Al- þingi sem stofna mun sjóð til þess að gera kleift að stiga fyrstu stóru sporin til þess að vinna gegn af leiðingum þeirra óskapa, sem yfir dynja. Af einlægni og alhug hefur verið leitazt við að leggja til, að f jár i þennan sjóð verði afl- að á þann hátt, að allir leggi eitt- hvað af mörkum og að byrðinni sé dreift sem jafnast ekki vegna metings um það, hvort framlag eins kunni að vera eitthvað meira eða minna en annars, heldur vegna hins, að það er siðferðis- skylda, það er samvizkuatriði, að allir, bæði einstaklingar, fyrir- tæki og opinberir aðilar, taki þátt i þvi að bæta orðið tjón og greiða fyrir nýrri uppbyggingu i kjölfar pess. Við vitum, að innlendir og er- lendir aðilar, bæði einstaklingar, stofnanir og rikisstjórnir, hafa lagt og ætla að leggja fram mikið fé vegna ógæfu okkar. Allir Is- lendingar þakka þann vinarhug, sem að baki býr. En þá getum við með beztri samvizku þegiö og þakkað, þegar við höfum sýnt i verki, að sjálfir tökum við strax á herðar okkar nauðsynlegar byrð- ar, og erum sammála um það. Agreiningur um þjóðmál er eðlilegur i lýðræðisriki. En þær stundir geta komið, þeir at- burðir geta orðið, að enginn ágreiningur á við. Nú er slikt að gerast i islenzkri þjóðsögu. Megi guð gefa, að íslendingum takist SAMHENT ÞING SAMHENT ÞJOÐ að standa áfram saman um allt það, er lýtur að vandamálum i kjölfar eldsumbrotanna i Vest- mannaeyjum. Frumvarpið um neyöarráðstaf- anir vegna atburðanna i Vest- mannaeyjum, sem Alþingi af- greiddi sem lög i gær, hljóðar svo: l.gr í lögum þessum er mælt fyrir jm sameiginlegt átak Islenzku jjóðarinnar til þess að veita /est- nannaeyingum stuðning /egna ;ldgossins á Heimaey og dr iga úr þeim búsifjum, sem jarðe darnir valda þeim og þjóðinni i .íeild. 2.gr. Stofna skal Viðlagasjóð vegna náttúrhamfaranna i Vestmanna- eyjum. 3.gr. Hlutverk Viðlagasjóðs er: 1. Aö tryggja hag Vestmannaey- inga og stuðla að vernd og endurreisn byggðar þeirra. 2. Að greiða kostnað vegna björgunarstaff's, fí'utninga og roskunar á hogum vegna eldsumbrotanna i Vestmanna- eyjum. 3. Að bæta tekjumissi og eigna- tjón af völdum eldgossins á Heimaey. 4. Að draga úr áhrifum náttúru- hamfara ( Vestmannaeyjum á afkomu og atvinnulif Vest- mannaeyinga og þjóðar- heildarinnar og gera hvers konar fjárhagsráðstafanir i þessu skyni. 4.gr. 1 Viðlagasjóð renna allar tekjur samkvæmt lögum þessum. Heimilt er Viðlagasjóði að taka bráðabirgðalán i þvi skyni að standa undir nauðsynlegum greiðslum, þar til tekjur berast sjóðnum. Til Viðlagasjóðs skulu og renna óafturkræf framlög sem berast kunna frá innlendum og erlend- um aðilum og eigi er beint til Rauða kross tslands, Hjálpar- stofnunar þjóðkirkjunnar, bæjar- stjórnar Vestmannaeyja eða annarra tilgreindra aðila. Sama máli gegnir um aðstoð, sem boðin kann að vera fram i öðru formi. 5. gr. Stjórn Viðlagasjóðs skipa sjö menn, sem kosnir skulu til eins árs með hlutfallskosningu af sameinuðu Alþingi ásamt jafn- mörgum til vara. Forsætisráð- herra skipar formann og varafor- mann. Stjórn sjóðsins getur ráðið hon- um sérstakan framkvæmdastjóra ásamt þvi starfsliði, sem nauð- synlegt er. Stjórn sjóðsins skal i öllu starfi sinu hafa náið samráð við bæjar- stjórn Vestmannaeyja og aðra opinbera aöila, sem um málefni Vestmannaeyinga fjalla. Stjórn Viðlagasjóðs skal, eftir þvi sem unnt er og við getur átt, setja fastar reglur um bætur þær, styrki og lán, sem veitt eru úr sjóðnum, og skulu reglurnar birtar almenningi. 6. gr. Skylt er öllum opinberum aðil- um að veita stjórn Viðlagasjóðs hvers konar aðstoð og upplýs- ingar, sem nauðsynlegar eru vegna starfsemi hans. 7.gr. Seðlabanki Islands varðveitir Viðlagasjóð og annast bókhald hans. Um endurskoðun reikningá sjóðsins fer eftir ákvæðum laga um endurskoðun rikisreiknings og reikninga rikisstofnana. 8.gr. Fjár til Viðlagasjóðs skal afla með sérstöku gjaldi, sem hér segir: 1. A timabilinu 1. marz 1973 til 28. febrúar 1974 skal leggja 2% við- lagagjald á söluskattsstofna allra sömu aðila og lög nr. 10/1960 um söluskatt, taka til, og gilda ákvæði þeirra og reglugerða settra samkvæmt þeim að fullu um álagningu og innheimtu þessa gjalds, svo og um aðra framkvæmd. Hækkun sú á útsöluverði vöru og þjón- ustu, sem hlýzt af 2% viðlaga- gjaldi á söluskattsstofn, skv. þessum tölulið skal ekki valda hækkun á kaupgreiðsluvisitölu. Kauplagsnefnd skal meta hverju sinni, hve miklu þessi hækkun nemur. 2. A gjaldárinu 1973 skal leggja 30% viðlagagjald á álagðan eignarskatt skv. 26. gr. laga nr. 68/1971 um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 12. gr. laga nr. 7/1972, um breyting á þeim lög- um, og skulu sömu reglur gilda um álagningu og innheimtu þessa gjalds og eignarskatts. 3. A gjaldárinu 1973 skal leggja viðlagagjald i hverju sveitarfé- lagi á gjaldstofn aðstöðugjalds, sbr. V. kafla laga nr. 8/1972, sem nemur 35% þess undraðs- hluta, sem þar var á lagður sem aðstöðugjald á árinu 1971. Um álagningu og innheimtu þessa gjalds skulu gilda sömu reglur og gilda um aðstöðu- gjöld og skulu sveitarstjórnir skila gjaldinu til Viðlagasjóðs á gjalddögum, sem félagsmála- ráðuneytið ákveður. 4. Á gjaldárinu 1973 skal Ieggja 1% viðlagagjald á útsvars- skyldar tekjur, sbr. 23. gr. laga nr. 8/1972. Um álagningu og innheimtu þessa gjalds skulu gilda sömu reglur og gilda um útsvör, og skulu sveitarstjórnir skila gjaldinu til Viðlagasjóðs á gjalddögum, sem félags- málaráðuneytið ákveður. 5. A gjaldárinu 1973 skal leggja 10% viðlagagjald á álagt lands- útsvar, sbr. III. kafla laga nr. 8/1972, þeirra landsútsvars- skyldu aðila, sem bera ekki að- stöðugjald. Um álagningu og innheimtu þessa gjalds skulu gilda sömu reglur og um lands- útsvör. Rikissjóður skal leggja til Við- lagasjóðs 160 milljónir króna, og er rikisstjórninni heimilt að draga úr útgjöldum rikisins sem þessari fjárhæð nemur. Heimilt er stjórn Atvinnu- leysistryggingarsjóð að leggja til Viðlagasjóðs 160 miljónum króna óafturkræft framlag. 9.gr. Forsætisráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, og skal þar m.a. kveða nánar á um mat eigna og greiðslu bóta fyrir eignatjón. Þá er heimilt að veita með reglugerð þessari Viðlaga- sjóði forkaupsrétt að fasteignum i Vestmannaeyjum. 10. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. o SKIPAUTGCRB RIKISINS M.S. HEKLA fer austur um land i hringferð, þriðjudaginn 13. febrúar. Vörumót- taka i dag og til hádegis á morgun. Fimmtudagur 8. febrúar 1973