¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦«¦¦¦¦¦¦¦¦ KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 Borden Jarðfraeðingur ekki sammála samgönguróðherra DYRHOLAEY ER EINI MOGULEIKINN /¦ « LIFHOFN A Það er algerlega útilokað afi byggja höfn IÞjérsárósi, til þess er, aurframburðurinn og efnis- flutningarnir meöfram strönd- inni alltof miklir. Reyndar er «11 suöurströndin meira efta minna á hreyfingu og hefur sjávaraldan alls ekki við afi hreinsa lónin við ósa fljótanna, sem þar koma til sjávar", sagöi Haukur Tómasson, jarðfræð- ingur, i samtali vift Alþýðublað- iö i gær. Eini staðurinn auk Þorláks- hafnar, sem kemur til greina sem hafnarstæöi á suðurströnd- inni, er Dyrhólaey. Þar er kannski svolitio jafnvægi á ströndinni. Berghöfðar eru þar beggja vegna, sem valda þvl, að aurburður á þvi svæði berst eitt- hvað lengra út á djúpið en ann- ars staðar", sagði Haukur enn- fremur. Haukur er sá Islenzkra jarð- fræðinga, sem sennilega hefur mest rannsakað aurframburð Þjórsár. Segir hann, að fljótið berifram 36 miiljónir tonna af auri árlega og vegna þessara gifurlegu efnisflutninga sé ger- samlega út ibláinn a' hugsa um að gera höfn I lóninu, þar sem Þjórsá kemur til sjávar. Náttúruhamfarirnar I Vest- mannaeyjum hafa að nýju vakið upp umræður um mikilvægi þess, að lifhöfn verði reist ein- hvers staðar á hinni 360 kiló- metra hafnlausu suðurströnd utan frá Þórlákshöfn austur til Hornafjarðar, en hvort sem Vestmannaeyjahöfn lokast vegna eldgossins þar eða ekki, verður vart Iengur komizt hjá þvi að bæta úr hafnleysinu á þessu stóra svæði. Alþýðublaðið hafði eftir Hannibal Valdmarssyni I fyrra- dag, að Iikur væru á þvi, að ' teknar verði til athugunar að nýju áætlanir um gerð hafnar 1 Þjórsárósi. Sagði ráðherrann, að hann teldi eðlilegra, að höfn yrði gerð viö Þjórsárós en I Dyr- hólaey, en eins og fram kemur að framan styðst þessi skoðun ráðherrans ekki við álit visinda- manna, sem gerzt til þekkja. ?Simenon nStór- að hætta þjófnaður Franski rithöfundurinn Georg- es Simenon sagði i viðtali við svissneskt blað i gær, að hann hafi ákveðið að hætta ritstörf- um. Simenon verður sjötugur á mánudaginn, og þegar hann nú hættir að skrifa hafa komið út eftir hann um 280 bækur, þar af einar 80 um lögreglumanninn fræga, Maigret. Simenon er einn af mest lesnu rithöfundum aldarinnar, og Mai- gret er orðinn heimskunn persóna, á borð við Sherlock Holmes og Poirot hennar Agatha Christie. Simenon hyggst setjast að i Lousiana I Bandarikjunum þar sem hann á stórt ibúðarhús, og dveljast þar það sem eftir er æv- innar. Astæðan fyrir þvi, að hann hættir nú að skrifa, er að eigin sögn sú, að undanfarin ár hefur hann liðið af svima yfir höfði, sem hefur ágerzt með árunum og gert honum erfitt um vinnu. Stórþjófnaður var framinn fyrrinótt, I verzlun Gunnars As- geirssonar að Laugavegi 33, er stolið var þaðan hljómflutnings- tækjum fyrirum 130þúsund krón- ur. Stolið var sambyggðu útvarpi og plötuspilara, ásamt lausum hátölurum, og er verðmæti þeirr- ar samstæðu 77,400 krónur. Einn- ig var stolið fjórum öðrum lítvarpstækjum og einu kasettu- segulbandstæki. Virðist ljóst að þjófurinn hafi annað hvort þurft að fara margar ferðir eftir þýfinu, eða fleiri en einn hafi verið á ferð. Enginn hefur enn náðst vegna þessa máls. Þjófurinn hreinsaði einnig skiptimynt úr peningakössum. Einnig var brotizt inn I kjötbúð við Búðagerði, og stolið þaðan skiptimynt, og þjófar brutu sýn- ingarglugga skartgripaverzlunar að Hverfisgötu 16. Þaðan hvarf silfur bréfahnifur og stórt silfur- armband. - Allir þeir þjófar, sem voru á ferð I nótt, ganga enn lausir. HRAUNBRUNIN NALGAST HAFN- ARGARÐINN ÚVISSA UM HINA FIMM TOGARANA Hraunrennslið úr eldstöðvun- um á Heimaey virtist taka að renna til suðurs eða suðausturs siðdegis i gær, en ekkert rennsli var i gær til vesturs, eða I átt að syðri hafnargarðinum, eins og verið hefur undanfarna daga. Að sögn Leós Kristjánssonar, jarð- fræðings, sem staddur er i Eyj- um, var hraunbrúnin um 120 metra frá hafnargarðinum, þegar rennslið stöðvaðist i gær. Ekkert ÍBK vann landsliðið i knatt- spyrnu i æfingaieik á sunnudag- inn 3:2. Breiðablik og unglinga- landsliðið gerðu jafntefli sama dag 1:1, en daginn áður hafði Akranes unnið Breiðablik 6:0 upp á Skaga. OKKAR MADUR LANG-EFSTUR Ein umferð er ótefld á Skák þingi Reykjavikur. Efstur ei Jón Pálsson, skákskýrandi Al- þýðublaðsins, með 7 vinninga eftir 8 umferðir. Er Jón örugg- ur með komast i sex manna úrslit, en þar verður ráðið hver hlýtur nafnbótina Skák- meistari Reykjavikur 1973, Óljóst er enn hverjir fleiri komast I úrslitakeppnina, en líklegir eru skákmennirnir Jón Kristinsson, Benóný Benediktsson, Július Friö- jónsson, Jón Þorsteinsson, Björn Halldórsson og Jón Þ. Þór. vildi hann segja um þýðingu þess, að hraunið er tekið að renna i átt- ina frá hafnargarðinum, þegar Alþýðublaðið ræddi við hann I gærkvöldi, en behti á þann mæli- kvarða á ástandið,.að i gær þótti ekki færtað láía Hekluna fara inn i höfnina. Eins og komið hefur fram rofn- aði nýrri vatnsleiðslan til Vest- mannaeyja I fyrrinótt, og há- spennulinan fór einnig i sundur. Minni vatnsleiðslan er þó enn heil, og að sögn Páls Zóphonias- sonar bæjarverkfræðings full- nægir hiin vatnsþörf þeirra, sem eru I Eyjum, en þeir eru um 400 talsins. Einnig sagði hann, að raf- magn sé nóg, en varastöðvar sjá nú um rafmagnsframleiðsluna. t fréttaskeyti frá norsku frétta- stofunniNTB, sem Alþýðublaðinu barst i gærkvöldi segir, að i gær hafi verið i undirbuningi brott- flutningur á öllum þeim, sem i Vestmannaeyjum eru. Þegar frétt þessi var borin undir Pál kannaðist hann ekki við, að slikt væri I undirbúningi. Eins og Alþýöublaöiö skýrði frá í gær, eru skuttogarakaup okkar á Spáni nú í mikiili óvissu vegna yfirvofandi gjald- þrots spænsku skipa- smíðastöðvarinnar sem tók að sér að byggja samtals sex togara af stærri gerðinni fyrir Is- lendinga. Aðeins einn togaranna hefur verið afhentur, og eins og málin standa í dag, er óljóst hvað verður með hina fimm sem ókomnir eru. Islenzk sendinefnd mun væntanlega fara til Spánar bráðlega vegna þessa máls, enda mikið I húfi, þvi um er að ræða viðskipti upp á hundruð milljóna. Samkvæmt þeim upplýsing- um sem blaðið aflaði sér i gær, er það óstöðugleiki banda- rikjadalsins sem komið hefur spænsku skipasmiðastöðinni i þessa klipu. Þegar Islendingar sömdu við Spánverja um smiði togar- anna, var samningurinn gerð- ur i dollurum. I fyrrasumar féll dollarinn mjög I verði, en gengi spænska pesetans hélzt óbreytt. Þar með lækkaði kaupverð togaranna töluvert miðað við pesetann, og fór undir þau neðri mörk sem skipasmiðastöðin hafði sett sér, og tap varð af smiðinni. Þetta ásamt fleiri atriðum hefur gert það að verkum að utan til ráðagerða. Sagði Jón að alger nauðsyn væri að taka þetta mál föstum tökum, þar sem úm væri að ræða viðskipti sem skiptu hundruöum milljóna króna. Aðeins einn hinna sex tog- ara er kominn til landsins, Bjarni Benediktsson. Hann er að fullu greiddur, utan þau NEFND SEND TIL SPANAR AÐ KYNNA SER GJALDÞROTSMÁLIÐ umrædd skipasmlðastöð, Luzuriaga i Pasaje i San Juan, rambar nú á barmi gjald- þrots. Forráðamenn skipasmiða- stöðvarinnar hafa ritað is- lenzkum yfirvöldum bréf vegna þessa máls, eins og kom fram i frétt blaðsins i gær. Bera þeirsigaumlega, og fara jafnframt fram á auknar greiðslur Islendinga. Að þvl er Jón Sigurðsson ráðuneytisstjóri í fjármála- ráðuneytinu tjáöi blaðinu i gær, er þetta mál til athugun- ar þessa dagana, og kvaö Jón liklegt að fulltrúar yrðu sendir 80% kaupverösins sem Spán- verjar lánuðu til átta ára. Oðr- um togara hefur verið hleypt af stokkunum, Snorra Sturlu- syni. Er búiö að greiða 15% andvirðis hans og tveggja sið- ustu togaranna, sem reyndar er ekki byrjað að byggja enn- þá. Alls nema greiðslur til skipasmiðastöðvarinnar 82 milljónum króna fyrir togar- ana fimm sem enn eru ókomn- ir til landsins. Er þá ótalið kaupverð Bjarna Bendiktssonar, sem er að fullu greiddur sem fyrr segir. ALLAR ÞRÆR FULLAR FYRIR AUSTAN - BÁTARNIR LAGÐIR AF STAD HINGAÐ I gær héldu fyrstu loðnubátarn- iraf stað með afla til hafna á Suð- Vesturlandi, enda er allt þróar- rými nú fullt á Austfjörðum. Hefðu bátarnir farið með aflann til Vestmannaeyja, ef allt hefði verið með felldu. Hefðu þeir komið þangað i nótt. I gær var vitað um lObáta með afla um 2600 lestir, og Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur var bjartsýnn á góða veiði.I nótt sem leið. Alþýðublaðið hafði samband við Hjálmar um kvöldmatar- leytið I gærkvöldi. Var Arni Frið- riksson þá að leita loðnu upp með landi á svæðinu frá Vestra-Horni vestur að Ingólfshöfða, en fann litið. Var ætlunin að leita áfram á þessum slóðum. Bræla var á loðnumiðunum I fyrrinótt, en á niunda timanum f gærmorgun lægði og fengu nokkr- ir bátar þá ágæt köst á sömu slóð- um og áður, 2225 milur suðaust- ur af Eystra-Horni. Fengu flestir fullfermi, en einhverjir rifu næturnar. Þar sem allt þróarrými á Aust- fjörðum var fullnýtt i gær, og ekki hafði enn borizt svar frá Raufarhafnarverksmiðjunni, héldu bátarnir með aflann vestur á bóginn. Skipta þeir sér væntan- lega á Þorlákshöfn og Grindavík.