Alþýðublaðið - 13.03.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 13.03.1973, Blaðsíða 1
OPNA Vantar meira vatn í Vestmannaeyjum „Ef vi6 fengjum meiri út- búnað i vatnsverkið hérna, þá er ég sannfæröur um aö okkur tækist aö verja innsiglinguna og bæinn”, sagöi Sveinn Eriksson, framkvæmdastjóri björgunar- starfsins i Vestmannaeyjum, þegar Alþ.bl. ræddi viö hann 1 gær. „>að hefur sýnt sig, aö hvar sem viö beitum vatninu á hrauniö, hefur þaö þau áhrif aö hrauniö skrlöur ekki lengra”, sagöi Sveinn. „En viö þurfum miklu meira vatnsmagn, en viö ráöum nú yfir, til aö vera öruggir á öllum vigstöövum”. Brýnasta verkefniö nú er aö stoppa Flakkarann af, áöur en hann kemst i höfnina, en frá fjallinu skapast mikill þrýstingur, sem getur sett hraun af staö i átt til bæjarins. Til aö stööva Flakkarann og beina honum i hættulausa átt eru nú uppi ráðageröir um aö leggja sver vatnsrör inn á hrauniö til austurs og suöurs, þannig aö lagnirnir myndi bók- stafinn v og dæla siðan um þær vatni til aö kæla hrauniö og beina skriöinu frá höfninni og bænum. Frá Vestmannaeyjum munu hafa borizt óskir um nokkrar kraftmiklar dælur til aö auka magniö 1 þvi vatnskerfi, sem þegar er fyrir hendi, en eins og fram kemur f oröum Sveins hér aö framan telur hann nauösyn á verulegri viöbót viö þaö kerfi, sem nú er. Viðtal við Olof Palme Indíánar í stríð Indiánahreyfingin AIM hefur lýst striöi á hendur Bandaríkjunum, og lýst þorpiö Wounded Knee i Suöur-Dakota sjálfstætt ríki, er sæki um aöild aö Sam- einuöu þjóöunum. Þessi tiöindi bárust I gær, þegar Iausn á deilu indián- anna og yfirvalda virtist i nánd, en indiánar úr fyrr- greindum samtökum hafa haft þorpiö á sfnu valdi i tæpar tvær vikur. Yfirvöld höföu lát- iö fjariægja vegatáimanir um- hvcrfis Wounded Knee og kall- aö burt alla vopnaöa alrikis- lögregiumenn, sem staösettir höföu veriö i nánd viö þorpiö. albýðu 60. tbl. 54. árg^ Þriðjudagur 13. marz 1973 í mesta lagi náð broti úr klippum Á miðvikudag I siðustu viku kom varöskipiö Óöinn inn til Raufarhafnar. Var erindi Óöins aö sækja nýjar „klippur”, sem sendar höföu veriö samdægurs meö flugvél frá Reykjavik. Daginn áöur haföi brezka eftir- litsskipiö Statesman tilkynnt aö þvi heföi tekist aö „halastýfa” Óöinn I þann mund er varöskipiö var aö „halastýfa” brezka togarann St. Chad. Kvaöst áhöfn eftirlitsskipsins hafa klippurnar um borö. „Viö könnumst ekki viö aö hafa misst neinar klippur, og Bretarnir hafa i mesta lagi náö I brot úr klippum, þvi þær geta brotnaö I átökunum” sagöi NY STJORN Georges Pompidou, Frakk- landsforseti, hóf I gær myndun nýrrar og vinsælli rikisstjórn- ar.Taliö er aö forsetinn muni velja annan forsætisráöherra i staö Pierre Messmer, og hefur fjármálaráöherrann, Valery Giscard d’Estaing veriö nefndur sem hugsanlegur eftirmaöur hans. Hafsteinn Hafsteinsson tals- maöur Landhelgisgæzlunnar, er Alþ.bl. ræddi viö hann um hugsanleg tengsl frásagnar skip- verja á Statesman og feröar land- helgisflug vélarinnar meö klippurnar til Raufarhafnar daginn eftir atburöinn. „Ég fer ekkert I launkofa meö þaö, aö viö höfum minnst tvær klippur um borö I hverju skipi. Þær geta eyöilagzt af ýmsum ástæöum, meðal annars vegna þess hvaö þær fara oft nálægt botni. Þá getur farið úr þeim og ýmislegt fleira gerzt”. Hafsteinn sagöist ekki vita til þess aö þeir á Statesman heföu lagt fram klippur til sönnunar frásögn sinni. Þeir heföu I mesta lagi yfir aö ráöa broti úr klippum, sem heföi getaö oröiö eftir, þegar annar togvlr togarans var klipptur. Á Raufarhöfn fékk blaðið einnig þær upplýsingar I gær, aö Land- helgisgæzlan heföi fengiö léöar tvær gamlar bllfjaörir til not- kunar viö gerö nýrra klippna, en ekki vildi Hafsteinn kannast viö aö bllfjaörir væru notaðar viö gerö þessa margumtalaöa leyni- vopns Gæzlunnar. • • LOGSKRA EKKI NE TRYGGJA Samkvæmt upplýsingum, sem Alþýöublaöiö hefur aflaö sér eru allnokkur brögð aö þvl, aö eig- endur minni fiskiskipa sinni ekki þeirri undantekningalausu laga- skyldu aö lögskrá áhafnir sínar og ganga frá slysatryggingum mannanna um borö. Aöalástæöan fyrir þvl, aö eig- endur fiskiskipa draga aö ganga frá þessum atriöum, mun vera sú, aö hér er oft um talsvert mikinn kostnaö aö ræöa fyrir út- geröina, en auk ákveöinna skrán- ingargjalda kostar slysatrygging fyrir hverm mann á fiskiskipi um 17.000.00 krónur á ári. öll skip sem erul2 smálestir aö stærö eöa stærri, ber lögum sam- kvæmt aö lögskrá. Sé þessari lagaskyldu ekki sinnt og kaupi út- geröarmenn ekki tryggingu, sem miöast viö greiöslu dánarbóta, slysadagpeninga og örorkubóta, bera þeir sjálfir ótakmarkaöa ábyrgö á öllum kröfum um greiöslu þessara bóta, ef slys veröur, þar meö taldar þær bætur, sem annars yröu greiddar samkvæmt almannatrygginga- lögum, aö undanteknum almennum bótum svo sem ekkju- bótum og barnalifeyri. Kaupi útgeröarmaöur hins vegar tryggingu fyrir áhöfn slna, takmarkast ábyrgö hans viö eftirfarandi: Einnar milljónar króna dánarbætur til nánustu vandamanna, mánaðarlegar bætur til eftirlifandi maka J 8 ár sbr. almannatryggingalög og mánaöarlegar bætur til barna aö 17 ára aldri. Sé um varanlega örorku að ræöa takmarkast hæstu örorkubætur við 3 milljónir króna. — GEVMIRINN ÞOLDIEKKI TONLISTIHA DÝRT AÐ REKA , JRYLLITÆKI" Þaö er ekki alltaf tekiö út meö sældinni aö reka tryllitæki, hvaö þá ef segulbandiö stöövast ofan á allt annaö, eins og kom fyrir þrjá pilta i siöustu viku. Þeir eiga tryllitæki, sem þeir gera út meö ærnum kostnaöi, en t I staö þess aö endurnýja lélegan ' rafgeyminn, keyptu þeir segul- band i bilinn, til aö gleöja hjörtu ungmeyja. Þaö gekk þó ekki betur en svo, aö geymisskömmin þoldi ekki þetta aukna álag, svo segul- bandiö gekk á hálfum hraöa og lék þvi rammfalska bassatón- list. Nú voru góö ráö dýr, þar sem helgi fór I hönd. Datt þeim þá i hug aö redda málinu i snarheit- um, og stálu tveim stórum og nýjum rafgeymum úr bil frá Pósti og Slma. Segulbandsskömmin vildi þó ekki ganga á rafmagninu úr þeim, og stálu þeir þvi tveim geymum i viöbót úr vörubil suöur 1 Hafnarfiröi. Fór þá bandiö aö spila, og svo hátt aö rannsóknarlögregluna I Hafnarfiröi fór aö gruna aö ekki væri allt meö felldu og tók pilt- ana tali. Afhentu þeir þá geymana fjóra, og viöurkenndu aö hafa stoliö þeim fimmta, en hent honum i sjóinn, eftir aö hafa spilaö út af honum. Fleiri skrautmunir af annarra manna bilum fundust einnig I fórum þeirra, sem þeir viöur- kenndu aö hafa stoliö og skiluöu aftur. Yfirheyrslum var ekki lokiö fyrr en seint á laugardagskvöld- iö, og fór þvl stóra helgin fyrir litiö, segulbandiö hljóönaö, hjól- kopparnir horfnir og laugar- dagskvöldiö eyöilagt. —

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.