Alþýðublaðið - 14.03.1973, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.03.1973, Blaðsíða 3
ÞETTA GERÐIST LÍKA „EÓÍz faolta- togarar” Brezkir togaramenn tilkynntu i gær, að tveir togarar hefðu lent i árekstri vegna áreitni is- lenzkra varðskipa, Fylgdi fregninni, að skemmdir hefðu ekki orðið miklar. Landhelgis- gæzlan kannaðist ekki við þessa fregn, er blaðið hafði samband við hana i gær. Togararnir tveir, sem áttu að hafa lent i árekstrinum heita Arsenal og Aldershot. Eru þetta tveir af „fótboltatogurunum” fjölmörgu, en það eru togarar, sem hlotiðhafa nöfn eftir knatt- spyrnuliðum. Sætta sig ekki við háan toll Félagar i Ljósmyndafélagi ts- lands vilja ekki sætta sig viö að hér á landi þarf aö greiða 50-90% toll af tækjum til ljósmyndunar, á ineðan aðrar iðngreinar greiða mun lægri toll af sinum tækjum. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins, sem var haldinn fyrir skömmu, og var þar deilt hart á seinagang hins opinbera við endurskoöun tollskrár. Meðal annarra máia, sem rædd voru á fundinum, var náinsfyrirkomuiag i Ijós- myndun, skóiamál og verðskrá. Stjórn félagsins skipa nú: Þórir Ii. óskarsson, formaður, Mats Wibe Lund, jr. varafor- niaður, Guðmundur Erlendsson gjaldkeri, Ileimir Stigsson ritari og Guðmundur llannesson meðstjórnandi. Hátíðar- kantötur Annað kvöld verða haldnir hljómleikar i Bústaðakirkju. Eru þetta afmælishljómleikar Kirkjukórasambands Reykja- vikurprófastsdæmis. Fly tjendur verða Sinfóniu- hljómsveit Islands, samkór félaga úr kirkjukórunum og ein- söngvarar. Hljómleikarnir hefjast klukkan 21. A efnisskránni verða tvær há- tiðarkantötur, og stjórnar dr. Róbert A. Ottósson flutningi þeirra. Einsöngvarar verða Elisabet Erlingsdóttir, Halldór Vilhelmsson, Jón Hj. Jónsson, Magnús Jónsson, Olöf Harðar- dóttir og Sólveig M. Björling. Kirkjukórasamband Reykja- vikurprófastsdæmis var stofnað fyrir 25 árum siðan. Starfsemi þess var litil framan af, en frá árinu 1962 hefur sambandið starfað af miklum þrótti. Lézt af voðaskoti Á sunnudaginn gerðist sá atburður á Raufarhöfn, að ungur piltur varð fyrir voða- skoti, og lézt hann sam- stundis. Hét hann Einar Hálfdán Pálsson, og var 17 ára gamall. Einar var að sögn kunnugra þaulvanur að umgangast skot- vopn. 20% HÆKKIIN Hitaveitu Reykjavikur var i gær heimilað að hækka verð heita vatnsins um 20%. Hita- veitan hafði farið fram á að fá enn meiri hækkun. Enqinn vill eiqq peninga Flóðbylgja lánsviðskipta í kjölfar kaupæðisins Alls staðar i verzlunarlifinu, bankastarfsemi, ibúðasölu o.þ.h. má nú sjá ummerkin um verð- bólguótta almennings. Allir kaupa og kaupa. Það eina, sem enginn vill eiga, eru peningar. Þeir streyma út úr bönkunum. Sparisjóðsbækur eru tæmdar. Avisanareikningar eru tæmdir. Langar biðraðir fólks eru á bið- stofum bankastjóranna til þess að biðja um lán. Þeir, sem áður báðu um 50 þús. kr. vixla biðja nú um 100 þús. kr. vixla. Þeir, sem áður báðu um 100 þús kr. vixla biðja nú um 200 þús. kr. vixla. Bara fátæk- asta fólkið á nú peninga. Þeir rik- ustu eiga skuldir, meiri skuldir og enn nú meir skuldir. Kaupæðið hefur nú staðið yfir um margra mánaða skeið. Ýmis- legt virðist benda til þess, að þvi kunni að vera að ljúka. Ekki vegna þess, að almenningur sé búinn að missa áhugann á að kaupa. Heldur vegna þess, að peningarnir eru þrotnir og láns- möguleikarnir eru á þrotum lika. Þegar bylgja kaupæðisins hófst, eitthvað um miðbik s.l. sumars, var það mjög áberandi, hve peningaráð fólks voru þá mikil. Þá buðust menn til að borga út i hönd ef með þvi móti væri hægt að fá afslátt. Rándýr heimilistæki voru borguð út i hönd. Bilar voru borgaðir út i hönd. Fleiri milljónir voru lagðar á borðið i útborganir á ibúðum. Nú hafa verzlunarmenn, sem Alþýðublaðið hefur átt tal við, sagt, að þetta timabil sé fyrir nokkru á enda. Nú sé ekki lengur boðin staðgreiðsla. Nú vilji allir verzla uppá afborgunarviðskipti: litið út og svo jafnar mánaðarleg- ar afborganir. Ýmsir kaupmenn t.d. i húsgagnaverslunum, sem áður seldu mikiðgegn staðgreiðslu, fá nú varla tilboð um annað en af- borgunarviöskipti. Svo mikið er orðið um slik viðskiptalán, að verzlanir með húsgögn, sjónvörp, hljómtæki o.þ.h. hafa nú stórfé bundið i slikum lánum til við- skiptavinanna. Hafa margir eigendur slikra verzlana sagt Alþýðublaðinu, að á siöustu vik- um hafi þeir neyðzt til þess að breyta reglum sinum um af- borgunarviðskipti og hækka út- borgunar upphæðina til þess aö verja sig gegn flóðbylgju lánsvið- skiptanna. Eina verzlunarstarfsemin, sem enn hefur ekki fundið fyrir þess- um áhrifum af þverrandi aura- ráðum fólks virðist vera fast- eignasalan. Enn eru geysiháar útborganir boðnar fyrir ibúðir. Astæðurnar virðast einkum vera tvær. 1 fyrsta lagi er framboð á ibúðum mjög litið. Flestar þær nýjar ibúðir, sem teknar voru til byggingar fyrir einu-tveimur ár- um eru nú seldar og nýjar ibúðir — sá flokkur, sem byrjað verður að byggja i vor — kemur yfirleitt ekki á söluskrá fyrr en i sumar. Þá hafa menn kippt að sér hönd- unum með sölu á eldri ibúðum, þvi flestir vilja biða og sjá hvar endar áður en þeir selja. önnur ástæðan fyrir háum útborgunum virðist svo vera sú, að margir Vestmannaeyingar séu nú á hött- unum eftir húsnæði i borginni. Að sögn njóta þeir góðra lánakjara i bönkum og geta þvi boöið tölu- verðar útborgarnir, sem hafa áhrif á aðra. Hækkununum, sem orðið hafa á íasteignaverði á undanförnum mánuðum, má einna helzt likja við sprengingu. Dæmi eru um, að meðal-ibúðir hafi hækkað um allt að 600-800 þús. kr. á siðustu fjór- um til fimm mánuðum. Það ibúðaverð, sem var s.l vor, þyk- ir nú hlægilegt og fólki, sem þá keypti, hefur verið boðinn allt að 1 m.kr. verðbólgugróöi á ibúðum sinum ef það aðeins vilji selja strax. Þannig breiðist óttinn við óða- verðbólguna út um allt tsland eins og eldur i sinu. Fái fólk pen- inga i hendurnar er þaö þotið upp á stundinni til þess að kaupa og kaupa meira, unz allt er þrotið — l'é, lánstraust og skuldasöfnunar- geta. A tslandi i dag vill enginn eiga peninga — bara frystikistur, bila, þvottavélar, sjónvörp, hljómllutningstæki, húsgögn, ibúðir — og skuldir. Lengsta íbúðarhús landsins brátt full- gert — Seljahverfi næst á dagskrá Borgarráð heimilaöi i gær byggingu 308 ibúða hverfis i Seljahverfi i Reykjavik. Þá hefst á næstunni bygging 314 ibúða i Breiðholti III, og bráðlega lýkur byggingu 200 ibúða i sama hverfi. Þannig munu rúmlega 800 ibúðir koma i gagnið á árunum 1973-’75. Eyjólfur Sigurjónsson formað- ur Framkvæmdanefndar bygg- ingaáætlunar tjáði blaðinu i gær, að á þessu ári lyki byggingu 200 ibúða blokkar i Breiðholti III, en þetta er lengsta ibúðarblokk landsins, 320 metra löng. Á næst- unni hefst bygging 314 ibúða, en það er sjötti og siðasti áfangi áætlunarinnar. Byggingu ibúð- anna á að ljúka fyrir árslok 1975. Þá var Bygginganefnd verka- mannabústaða i gær veitt leyfi af borgarráði til byggingar 308 ibúða efst i Seljahverfi i Breið- holti. Eyjólfur Sigurjónsson, sem einnig er formaður Bygginga- nefndar verkamannabústaða sagði að upphaflega hafi verið gert ráð fyrir byggingu 320 ibúða, en talan var lækkuð i borgarráði niður i 308 ibúðir. Af þessum 308 ibúðum verða 106 fjögurra herbergja, 104 fermetr- ar, 138 ibúðir verða þriggja her- bergja, 90 fermetrar, 32 ibúðir verða tveggja herbergja, 64 fer- metrar og 32 ibúðir verða eitt og hálft herbergi, 35 fermetra. Siðastnefndu einstaklingsibúðirn- ar eru nýjung. ,,Ég er mjög bjartsýnn á að all- ar okkar áætlanir standist, og þessar rúmlega 800 ibúðir verði komnar i gagnið fyrir árslok 1975”, sagði Eyjólfur i lok sam- talsins. Herdis Þorvaldsdóttir fer með 100. hlutverk sitt á leiksviði á fyrstu frumsýningu Þjóðleikhússins utan Rcykjavíkur. „Furðuverkið” verður frumsýnt i Grindavik á laugardaginn kemur. Fjallar leikurinn unr þróunarsögu lifs á jörðinni og taka áhorfcndur virkan þátt i sýningunni. Auk Herdisar koma fram leikararnir Kristin Magnús, Sig- mundur Arngrímsson og Halla Guðmundsdóttir. Músik og texta hafa þeir Arni Elfar og Ilrafn Hálsson samið. Leikmyndir eru gerðar og unnar af Birgi Engilberts og hörnum úr Myndlistar- skólanum. Hundraðasta hlutverk Herdísar Miövikudagur 14. marz 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.