Alþýðublaðið - 14.03.1973, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 14.03.1973, Blaðsíða 9
Iþróttir 2 KR-ÞÓR 105:50 (46:25) Það voru Þórsarar sem gerðu fyrstu körfu leiks- ins, en KR jafnar, og var leikurinn aðeins jafn þessar fyrstu minútur leiksins, staðan var jöfn 4:4, en þá kom góður kafli hjá KR og þeir komast i 15:8 og seinna 25:12. Það leit lengi vel út fyrir að hin þunga pressa KR-inga ætlaði ekki að heppnast vel, en siðan rættist úr vandanum og allt gekk KR i haginn. Það að Þórsarar gerðu aðeins 25 stig i hvorum hálfleik sýnir glöggt hve sterkur varnarleikur KR var. Guttormur Ólafsson sá leik- maður i liði KR sem bezt þekkir Akureyringana, var ekki með KR aö þessu sinni og mætti ætla að það væri KR-ingum nokkur skaði, en svo varð ekki, þvi KR-iiðið er skipað mörgum frábærum einstaklingum. Gunnar, Hjörtur, Kristinn og Kolbeinn voru beztu menn KR i leiknum, en þeir eru allir þrautreyndir landsliðsmenn. Eftir nokkurn leik i siðari hálf- leik var staðan orðin 60:33 fyrir KR og varð þá ljóst að hverju stefndi, ennþá jókst munurinn, 70:39 og 86:45 sást t.d. á töflunni. Leikmenn Þórs verða heldur betur að herða sig ef þeir ætla að forða sér frá falli niður i aðra deild, og er frekar hæpið að þeim takist það, þótt heimaleikirnir gegn 1S og Val gætu gefið stig. Leikmenn KR hafa verið eitt- hvað miður sin eftir tapið gegn 1R, en nú virðast þeir aldeilis vera að hressast, aö minnsta kosti léku þeir vel i þessum leik, þótt mótstaðan væri frekar litil. Segja verður að lið 1R og KR séu hnifjöfn að styrkleika i dag, og þvi ógjörningur að segja til um hvort liðið sigrar i mótinu. Stigahæstir: KR: Kolbeinn Pálsson 23, Hjörtur Hansson 20, Kristinn Stefánsson 19, Gunnar Gunnarsson 17 og Bjarni 14. ÞÓR: Þröstur Guðjónsson 15, Eyþór Kristjánsson 12 og Rafn Haraldsson 10. Vitaskot: KR: 21:17. ÞÓR: 15:9. ► ► ► ► ► Kristinn Jörundsson tR átti góöan leik gegn Ármanni. Ilér skorar Kristinn glæsilega i leik gegn KR. Myndina tók nafni hans Benediktsson. IR með fullt hús 1R KR Armann 1S UMFN HSK Valur Þór 10 10 0 915:644 20 10 9 1 845:675 18 9 54 638:646 10 10 5 5 755:754 10 11 4 7 797:932 8 826 538:615 4 927 659:683 4 9 1 8 484:682 2 Stigahæstu leikmenn: David Dewany UMFN Agnar Friðrikss. 1R .. Bjarni Gunnár IS...... Kristinn Jörunds. 1R . Kolbeinn Pálsson KR . .207 . 193 . 178 . 174 . 167 IR-Ármann 74:59 (32:28) Þetta var mikill baráttu- leikur, og sýndu bæöi liöin frekar lélegan körfuknattleik, en samt sem áöur var hér um nokkuö jafnan leik aö ræöa. íslandsmeistararnir byrja leikinn vel og komast i 8:2, og siðan í yfirburðastöðu 14:6, en þá taka Armenningar við sér, þeim tekst að minnka muninn i aðeins 4 stig, 18:14 fyrri 1R. Fjarvera Einars Sigfússonar, hins sterka miðherja IR-liðsins kom sér mjög illa fyrir liöið, annars voru allir leikmenn tR með allra daufasta móti, og voru IR-ingar heppnir að mót- herjarnir áttu mjög slæman leik, annars heföi getað farið ilia. I hálfleik skilur aðeins 4 stig liðin, og eftir örstuttan leik i siöari hálfleik haföi Ar- menningum tekizt að jafna 34:34, og siðan komast Ar- menningar tvö stig yfir 36:34, tR jafnar, en Armann kemst aftur yfir 38:36. Þegar staðan er jöfn 40:40, kemur ágætur kafli hjá 1R- ingum og þeir komast yfir 50:44 og siðan 52:45 og eftir það var sigur IR tryggður. Jón Sigurösson bezti maöur Armanns gat ekki beitt sér sem skyldi i siðari hálfleik þvi aö hann var kominn með 4 villur, einnig var Agnar of harður i vörninni, og fékk hann fimmtu villuna á 10. minútu siðari hálf- leiks, en Jón Sigurðsson á 18. min. Kristinn Jörundsson var bezti maöur leiksins, en Kolbeinn hjá tR og Björn Christensen hjá Ar- manni áttu einnig ágætan leik. Armanns-liöiö verður að teljast mun lakara en i fyrra, og hafa menn orðiö fyrir vonbrigð- um með liöiö svo og Vals-liðiö, en UMFN og HSK hafa aftur á móti komið sekmmtilega á óvart. Þessi leikur er fyrsti leikurinn i mótinu sem 1R tekst ekki aö skora yfir 80 stig, liðið hefur náð 100 stiga markinu þrivegis i mótinu, og skorað yfir 90 stig i þremur öðrum leikjum. Af þessu sést að liðið hefur yfir mörgum góðum leikmönnum að ráöa, og leikmenn liðsins eru ávallt fastir fyrir i vörninni. tR er meö 20 stig eftir 10 leiki, fullt hús stiga. Stigahæstir: 1R: Kristinn 24, Kolbeinn 17 og Birgir 13. Armann: Björn 17 og Jón Sigurðsson 16. Vitaskot: IR: 14:10. Ármann: 16:9. PK. DAWANY NAÐI AÐ JAFNA STIGAMET ÞORIS UMFN-ÞÓR (46:29) 107:77 UMFN-liðiö, sem komiö hefur á óvart i mótinu fyrir ágæta frammistöðu, forðaði sér frá falli með þvi að sigra Þórsara i annað sinn. Liðið hefur nú 8 stig. Strax i upphafi varð ljóst að hverju stefndi, þá sást m.a. á töflunni: 6:0, 14:2, 22:8 og 30:15, fyrir UMFN. Þórsarar voru lengi aö venj- ast aðstæðum vallarins, og fyrstu minútur leiksins gátu leikmenn UMFN hreyft sig og skorað að vild, þvi vörn Þórs var mjög léleg i leiknum. t slðari hálfleik kom fyrir staðan 50:30 og seint I leiknum þrjátiu stiga munur 91:61 UMFN i vil. David Dewany átti enn einn stórleikinn fyrir UMFN, og þessi bandarísk-islenzki piltur er nú stigahæsti leikmaöur ts- landsmótsins, og hefur hann samt ekki leikiö alla leiki liðs sins. Hinn kunni knattspyrnumað- ur frá Akureyri, Magnús Jóna- tansson lék meö ÞOR I leiknum, en virðist I litilli æfingu sem stendur, Eyþór Kristjánsson er bezti maður Þórs-liösins, en Jón Pálsson og Þröstur Guðjónsson eru efnilegir. Leikmenn UMFN féllu alveg i skuggann hjá David, sem gerði 49 stig i leiknum, en þaö er jafn- framt jöfnun á stigameti einstaklings, sem Þórir Magnússon átti. ÞOR veröur að teljast lak- asta lið i 1. d. nú. Samt er það eiginlega of gott lið til þess a- vera i annarri deild, liðið varð að sjá á eftir mörgum góöum leikmönnum nú i upphafi keppnistimabilsins, meöal þeirra sem léku með ÞÓR i fyrra voru Guttormur Ólafsson og Jón Héðinsson. Stigahæstir: UMFN: David Dewany 49, Jón Pálsson 20 og Magnús og Þröstur 12 hvor. Vitaskot: Þór: 23:10. UMFN: 18:13. pk. s. Miövikudagur 14. marz 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.