Alþýðublaðið - 16.03.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.03.1973, Blaðsíða 1
ÓFARIR OG.... Ekki verður ofsögum sagt af óförum k v ik m y n da t ök u- manna i viðureign þeirra við veðurguðina á tslandi. Siðast- iiðið haust var unnið að töku á leikritinu Táp og fjör eftir Jónas Arnason, undir leik- stjórn Magnúsar Jónssonar, og var talið tekið upp jafnhliða kvikmyndatökunni. Þegar til átti að taka kom i ljós, að veðurguðirnir höfðu eyðilagt allt tal myndarinnar, og varð að taka það upp aftur. Þvi verki er nýlokið, og að þvi er Jón Þórarinsson sagði Al- þýðublaðinu i gær, verður sjónvarpsleikrit þetta á dag- slrrá annan páskadag, ....KLAMSAGA En það er viö ýms vandamál að eiga jafnvel þótt leikrit séu kvikmynduð innan húss. Þannig olli nafngift verð- launaeinþáttungs Hrafns Gunnlaugssonar frá i sumar sjónvarpsmönnum höfuðverk, þegar ákveðið var, að það skyldi tekið upp i sjónvarps- sal. Leikritið bar nefnilega nafið ..Klámsaga af sjónum”, en slfk nafpgift er vist ekki sæmandi, þegar opinber stofn- un á i hlut. Akveðið var, þvi að nafnið skyldi einfaldlega vera „Saga af sjónum”, þegar þaö verður á dagskrá sjónvarps- ins, 2G. marz nk. STJORNIN RIÐAR TIL FALLS ÖLAFUR STÖDVADUR Fullyrt er af ábyrgum aðil- um, að i gær hafi staðið til að leggja fram á Alþingi frum- varp um gerðardóm á yfir- menn togaraflotans i vinnu- deilu þeirra. Mun ólafur Jó- hannesson, forsætisráðherra, hafa tekið að sér að flytja frumvarpið, en verið stöðvað- ur á siðustu stundu þar eð ákveðnir stjórnarliðar hefðu með öllu neitað að styðja rikisstjórnina til þess að leysa með þeim hætti úr vinnudeilu. Mun rikisstjórnin þvi hafa af- ráðið að fresta framlagningu frumvarpsins um nokkra daga, eða fram til n.k. mánu- dags. Þá eigi að láta slag standa og setja gerðardóm með lögum á yfirmenn hafi málið ekki leystst með samn- ingum fyrir þann tima. En þótt stjórnin fari laga- leiðina og þótt hún fái til þess tilskilinn meirihluta á Aiþingi, þá er ekki þar með sagt, að togaraflotinn láti úr höfn. Alþýðublaðið hefur eftur áreiðanlegum heimildum, að samtök séu meðal vélstjóra að segja upp störfum sinum og stiga ekki fæti um borð i tog- arana verði vinnudeilan leyst með lagasetningu. Munu þeir nú þegar hafa uppsagnarbréf- in rituð og frágengin. Gerðadómur samt ó döfinni — en senda þó vélstjórar uppsagnarbréf? Rópsherferð gegn Birni og Karvel Alþýðubandalagið hefur sent til félagsmanna sinna dreifi- bréf, með niði um verkalýðsfor- ystuna, og þá einkum og sér i lagi þá Björn Jónsson og Karvel Pálmason, þingmenn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Alþýðublaðið hefur komizt á snoðir um efni bréfsins, sem er frá framkvæmdastjórn Alþýðu- bandalagsins til flokksfólks og væntanlega skrifað af þeim nöfnum Ólafi Jónssyni og Ólafi R. Einarssyni, formanni fram- kvæmdastjórnar Alþýðubanda- lagsins. I bréfi þessu er m.a. sagt frá samstarfinu i rikisstjórninni og sérstaklega tekið fram, að sam- vinnan i rikisstjórninni sé mjög að skapi Alþýðubandalagsins og eins sé sérlega gott samkomu- lag milli Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins, Þvi er hins vegar ekki að leyna, segir i bréfinu, að örlitil klika manna — og eru þá nöfn Björns Jóns- sonar, forseta ASl, og Karvels Pálmasonar, alþm. nefnd i sviga — vinnur markvisst að þvi að grafa undan rikisstjórninni og spilla samvinnu stjórnar- flokkanna. Eru þau dæmi sér- staklega tilfærð, hversu ótal- hlýðinn Björn Jónsson hafi reynzt rikisstjórninni i sam- bandi við lausn Vestmanna- eyjavandans og er hann neitaði að greiða atkvæði með hinu fræga visitöluránsfrumvarpi, sem rikisstjórnin lagði fram á Alþingi i lok febrúarmánaðar og dagaði þar uppi. Þá er einnig rætt i bréfinu um gengisfelling- arnar og Vestmannaeyjamálin sérstaklega og veitzt þar mjög hart að SFV — sérstaklega þá Birni Jónssyni. Hins vegar á framkvæmdastjórn Alþýðu- bandalagsins ekkert til nema góð orð um Framsóknarflokk- inn og ráðherra hans. Ekki hafa atvinnupólitikus- arnir i Alþýðubandalaginu held- ur látið sina eigin verkalýðsfor- ystu ólastaða. Á fundi i Alþýðu- bandalaginu i Reykjavik fyrir skömmu flutti Þröstur Ólafsson, stofusósialisti og steinbarn Magnúsar Kjartanssonar, heiftarlega árásarræðu á verkalýðsforystu Alþýðubanda- lagsins og verkalýðshreyfing- una i heild, sem sagt er, að stór- lega hafi hrifið hugi annarra stofukommúnista i Alþýðu- bandalaginu, svo sem eins og Þjóðviljaklikunnar, en verið fá- legar tekið af öðrum. 1 allri þessari dæmalausu ræðu mun Þröstur ólafsson þannig aldrei utan einu sinni hafa nefnt verkalýðssamtökin þvi nafni, heldur ætið „Kröfusamtökin”. LaS hann verkalýðsforystunni mikinn reiðilestur fyrir úrelt viðhorf i launa- og þjóðfélags- málum, sem m.a. gerðu með öllu ókleift að halda uppi vinstri stefnu i efnahagsmálum. Eðvarð Sigurðsson, formaður verkamannafélagsins Dags- brúnar, mun hafa verið á fundi þessum og höfðu fundargestir það við orð eftir á, að þeir hefðu rxommar dreifa níði um verka- lýðs- forystuna aldrei séð Eðvarð jafn reiðan og undir tölu þessa stofukommún- ista. Tók Eðvarð til máls og hellti sér yfir Þröst Ólafsson fyrir furðulegan hugsunarhátt hans i verkalýðsmálum. Er þetta aðeins enn ein sönnunin fyrir þvi, hve farið er nú að þrengja að verkalýðsforingjum Alþýðubandalagsins af stofu- kommúnistum og hvitflibba- sósialistum, sem alizt hafa upp i handarjaðri Magnúsar Kjartanssonar. KARVEL: STJÓRN í ALGERRI AND- STÖDU VIÐ VERKALÝÐ SHREYFINGUNA þeirra nú. Segir hann það furðu gegna hvilikri hugar- farsbreytingu þessir menn hafi tekið. Færi betur, segir hann, að þessir menn gerðu sér ljóst i eitt skipti fyrir öll, að verkalýðshreyfingin ætlast til annars og meira af núver- andi valdhöfum en þvi, AÐ STJÓRNAÐ SÉ I ALGERRI ANDSTOÐU VIÐ VERKA- LÝÐSHREYFINGUNA. Grein Karvels Pálmasonar er birt á bls. 5 „Kaldhæðni örlaganna er það, að sá stjórnmálaflokkur, sem hvað hæst hefur hrópað um sig sem hinn eina og sanna verkalýðsflokk skuli nú vera orðinn málsvari og predikari mestu kaupránsstefnu, sem um getur”, segir Karvel Pálmason, alþingismaður, um Alþýðubandalagið i grein, sem hann skrifar i Alþýðublaðið i dag. 1 grein sinni vitir Karvel Pálmason harkalega það framferði liðsbrodda Fram- sóknarflokksins og Alþýðu- bandalagsins að ofsækja Björn Jónsson, forseta ASÍ, með árásarskrifum fyrir það eitt, að Björn hafi neitað að taka þátt i tilræði rikis- stjórnarinnar gegn verkalýðs- hreyfingunni i landinu og tvi- vegis tekizt að stöðva slikar ráðagerðir i burðarliðnum. Karvel rekur i grein sinni ýmis ummæli núverandi stjórnarsinna frá þeim árum, sem þeir sátu i stjórnarand- stöðu og ber saman við gjörðir

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.