Alþýðublaðið - 28.03.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 28.03.1973, Blaðsíða 1
alþýðu Eitt af öóru hverfa heimili Vestmanna- eyinga undir eldtíramm hraunsins. Um stund má oft lita persónulegt smádót, $em íbúar Heimaeyjar hafa oröiö aö ganga frá, fljóta fram úr húsabrotunum. Svo hverfur þaö lika. Við birtum fleiri myndir frá Vestmannaeyjum á sióu 4. Átta á borðið í Sögu- aldar- bæinn Árnessýsla og Lands- virkjun hafa boðizt til að leggja fram 8 millj. kr. til byggingar sögualdarbæjar, en reiknað er með, að kostnaðurinn við hann nemi um tólf milljónum króna. Þjóðhátiðarnefnd Arnessýslu, leggur áherzlu á, að sögualdarbærinn verði reistur i Þjórsárdal. Indriði G. Þorsteinsson, frkv. stj. Þjóðhátiðar- nefndar 1974, kvaðst i viðtali við Alþ. bl. i gær vilja staðfesta það eitt, að ef sögualdarbærinn verður að veruleika, ,,þarf rikið aðeins að leggja fram 1/3 - 1/4 af kostnaðinum við hann.” Hvar fást 1500 manns? Eyddi 400 hundruð þúsund krónum áður en hann náðist ÞAÐ VANTAR FÓLK í FISKINN Minnst 1500 manns vantar til starfa við sjávar- útveginn i landinu. „Það hefur oft vantað vinnuafl við sjávarsiðuna, en ástandið hefur aldrei verið eins slæmt og það er nú”, sagði Guðmundur Ingi- marsson hjá Fiskifélagi tslands i viðtali við Alþ.bl. i gær. Athugun Fiskifélags tslands leiddi i ljós, að 1050 manns vantar i sjávarút- veginn á svæðinu frá Stokkseyri og vestur um til Snæfellsness, en viðar vantar fólk, að sögn Guðmundar, til dæmis á Vestfjörðum. Samtök útvegsmanna fóru fram á það við sjávar- útvegsráðuneytið að gerð yrði athugun á vinnuafls- þörf sjávarútvegsins á vetrarvertiðarsvæðinu á Suðvesturlandi. Athugunin leiddi i ljós, að á þessu svæði vantar 472 sjómenn á bátaflotann og 578 manns vantar til fiskvinnslustarfa i landi. Sjávarútvegsráðuneytið skorar nú á alla þá, sem nokkur tök hafa á þvi að leggja fram hjálparhönd við vertiðarstörf, að gefa sig fram og aðstoða við að bjarga verðmætum á mesta annatimanum. □ STAL HEFTI OG LIFÐIHÁTT Ávisanafalsari var handsamaður i fyrra- kvöld eftir að hann hafði látið leigubil aka sér á milli söluturna, hvar hann keypti eina vindlingalengju á hverjum stað, en skrifaði alltaf riflega upphæð. Leigubilstjóranum þótti þetta heldur undarlegt athæfi og til- kynnti lögreglunni, sem náði manninum. Var hann þá með stolið ávisanahefti, og hafði svikið nokkra upphæð úr þvi. Hann hefur einnig setið i fangelsi. □ 400 ÞÚSUND TONN í DAG? Ef allt fer að óskum hjá loðnuflotanum, næst 400 þúsund lesta markið i dag. Um kvöldmat i gær var loðnuaflinn orðinn 396 þúsund lestir, og nokkur skip höfðu meldað sig með afla. Langflest loðnuskipin eru nú hætt veiðum, og hafa þau snúið sér að bolfiskveiðum, en 25-30 skip halda áfram eltingarleiknum við loðnuna. I gær var mest loðnuveiði út af Borgarnesi. StaJ bankabók frá öldruðum sjúkjingj Maður var handtekinn i banka i Reykjavik i gær- morgun er hann ætlaði að taka 50 þúsund krónur út úr stolinni bankabók, en á undanförnum fimm dögum er hann búinn að taka nálægt 400 þúsund krónur úr bókinni. Bókinni stal hann úr ibúð gamals manns, sem var á spitala og var ibúðin þvi mannlaus. Fyrir helgina tók þjófurinn svo 82 þúsund krónur út úr bókinni og liklega hefur hann eytt þvi fé um helgina, þvi á mánudagsmorguninn tók hann 310 þúsund út. Hvort sem hann hefur Fær gamli sparifé sitt eytt þvi öllu i fyrradag eða ekki, þá ætlaði hann að taka út 50 þúsund i gærmorgun. Það er aö frétta af gamla mannin- um, sem á bókina, að hann kom heim af spitalanum á mánu- daginn, og ætlaði hann i gærmorgun að leysa peninga út úr bókinni en þá var hún horfin. Tilkynnti hann þjófnaðinn þegar, og ekki var liðin nema stutt stund frá tilkynningunni, þegar bankinn hringdi, og sagði þjófinn vera að taka út. Lögreglan brá skjótt við og náði manninum i bankanum. Var hann þá drukkinn maðurinn og úr sér genginn eftir munaðarlifnað, og ekki fundust nema smá- peningar á honum. Ekki var farið að yfirheyra hann siðdegis i gær, þar Isem lögreglan var að láta hann sofa af sér ölvimuna. Þess má geta, að manni þessum var sleppt úr fangelsi fyrir um tveim mánuðum. nokkurn tíma bætt? „Þú hefur ekki bara misst vörp- una á islandsmiðum, góurinn. Þú hefur misst bónusinn lika!". og Rétt marði heimsmetið — steinsofnaði þá með opin „Hann datt bara út af með opin augun” var nokkuö sem heyrðist I samtölum manna i mill- um i gærdag. Þetta þurfti ekki að skýra nánar, allir vissu hvað um var rætt. Craig Johnson, þulur út- varpsins á Keflavikur- flugvelli, vakti I 93 klukkustundir og 45 minútur samfleytt, við stjórn útvarpsþáttar og setti þar með nýtt met, — i þúgu velgerðarstarf- semi. Allan timann, sem Craig var við hljóðnem- ann, var fólk minnt á, að það gæti keypt sér lag eða jafnvel heila plötu til flutnings I útvarpið og Craig söng jafnvel meö, fyrir 10 dollara. Söfnunin gekk mjög vel, ef miðaö er við þá, er fram fór með sama sniði, á eyjunni Guam fyrir þremur vik- um siöan. Þar vakti þulurinn, i 92 kiukku- stundir og 30 minútur og alls söfnuðust 400 dollar- ar. Klukkan 15.45 i gærdag datt Craig út af, þegar hann var að tala i hljóð- nemann. Hann sofnaði meö opin augun og varð ekki vakinn, þrátt fyrir itrekaðar tilraunir. Þegar augun blaðið fór I prentun var hann i sjúkrahúsinu á Kefla vikurflugvelli, i fasta svefni. Sá, er vakti á Guam, er enn i sjúkra- húsi. t gærkvöldi höfðu safn- azt alls 5.643 dollarar á Keflavikurflugvelli og streymdu peningarnir ennþá inn. Allt það fjár- magn, sem safnast, renn- ur til velgerðarstarfsemi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.