Alþýðublaðið - 17.05.1973, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 17.05.1973, Blaðsíða 2
ER BARNID ÞITT UPPRENNANDI Það gæti verið upprennandi snillingur i fjölskyldu þinni, — óliklegasti fjölskyldumeðlimurinn: barnið þitt. Það hefur e.t.v. upplag til þess að verða dáður tónsnillingur, visindamaður eða tæknimaður. En hvernig getur þú vitað það? Hægt er að fylgjast með barni að leik án þess að veita nokkru óvenjulegu eftirtekt — þótt snilligáfa blundi engu að siður með þvi. Nú hefur hópur bandarískra sálfræöinga fundið ýmis hegðun- arauðkenni, sem eiga að geta hjálpaö til að greina upprennandi sniliinga á bernskualdri. Eftir að hafa athugað 2000 börn frá meðal-tekjuháum heimilum veittu sérfræðingarnir þvi at- hygli, að hæfileiki barns til þess að skilja og nota tungumálið á unga aldri stóð yfirleitt I beinu sambandi við sálræna hæfileika þeirra, eins og þeir siðar komu i ljós. Merkin Að þvi er dr. Edwin Starbuck, yfirmaður skapgerðarrannsókn- arstöðvar Kaliforniuháskóla seg- ir, þá er hægt að komast að þvi, hvortsnilligáfa býr meö barni, án þess að þurfi að setja það i flókin hæfileikapróf. Hér eru nokkur SNILLINGUR? Ef svo er, þá hefur það sýnt mörg merki þess. Hér er sagt frá nokkrum, sem gætu opnað augu þín þau ummerki, sem foreldrar ættu að hafa augu opin fyrir. Kimnigáfa, styrk stjórn á til- finningum, afburðaminnisgáfa. Ef barn þitt sýnir merki um eitt- hvað af þessu á unga aldri gæti undrabarn verið þar á ferðum. klukkan Ef barnið er gætt snilligáfu, þá mun það hafa mjög ákveðið áhugamál — til dæmis tónlist. Barnið mun auk þess vera fullt sjálfstrausts, forvitið og mjög spurult. Dr. Starbuck komst einnig að skemmtilegu leyndarmáli um gáfuðu börnin, sem sýnr vel hæfi- leika þeirra til þess að lita réttum augum á lifið. Það kom m.a. i ljós við athugun, sem fól i sér að i her- bergi barnanna var komið fyrir leikföngum, sælgætisöskju og tæki, sem var til þess ætlað að ganga úr skugga um einbeiting- arhæfileika barnanna. Þetta tæki var i stuttu máli búið þannig til, að bréfborði rann út úr vél. Á þeim stað þar sem borðinn rann út úr vélinni voru tveir pennaodd- ar. Annar pennaoddurinn dró reglubundna sikk-sakk linu eftir pappirsstrimlinum. Hreyfingum hins pennans var hægt að stjórna með hnapp á vélinni. Má ekki Af hverjum þeim lOOObörnum, sem valin voru til athugunar af sálfræðingunum með tilviljunar- úrtaki,voru 10 afburðagáfuð börn og 10 fávitar eða þvi sem næst. Að athugunum sinum loknum lögðu sálfræðingarnir eftirfar- andi má-ekki-lifsreglur fyrir for- eldrana. Komið ekki i veg fyrir það, að barn — hversu gáfað sem það er — fái að vera ósköp venjulegur fjölskyldumeðlimur. Þvert á móti eigið þið að ætlast til þess af barninu, að það vinni ýmis hvers- dagsverk eins og aðrir i fjölskyld- unni. Láttu þér ekki bregða, þótt barn þitt byrji að stauta án þess að hafa fengið lestrarkennslu. Mörg afburðagáfuð börn læra oft að lesa ,,af sjálfu sér”. Neyddu ekki barn þitt til þess að læra að lesa og skrifa. Biddu Allt það nýjasta til heimilisins á einum stað. Hvað er nú til af þvi sem þig vantar? Hvað kostar það? Auðveldasta og skemmtilegasta leiðin til að athuga málið er sýn- ingin Heimilið ’73 i Laugardalshöll. Gestahappdrætti. Vinningur dreginn út daglega, og einnig aðalvinningur i lok sýningar, ævintýraferö fyrir tvö til Chicago með Loftleiðum. Skemmtiatriði og tizkusýningar daglega. Sýningin stendur til 3. júni og verður opin daglega kl. 3-10, svæðinu lokað kl. 11. Verð miða: börn 50. kr., fullorðnir 150 kr. SHEIMIUÐ73 Penninn, sem hreyfðist sjálf- virkt, breytti um sikk-sakk stefnu á 10 sekúndna fresti. Með ’þvi að ýta á hnapp var hægt að láta hinn pennann breyta sinni stefnu eins og þannig, að sá pennaoddur fylgdi hinum alltaf nákvæmlega eftir. Þetta átti svo að leiða i ljós einbeitingarhæfni barnanna. Barnið með meðalgáfurnar var ákaflega upptekið af þessu og batzt vélinni þrátt fyrir það, að bæði sælgæti og önnur og venju- legri leikföng væru á boðstólum i herberginu. Börnin, sem voru meira en meðalgreind, prófuðu hins vegar vélina litiö eitt í fyrst- unni, skoðuðu svo leikföngin, fengu sér a.m.k. tvo sælgætis- mola og sneru sér svo aftur að vélinni — og þá fyrir alvöru. En tveir þriðju meðalgreindu barn- anna luku hins vegar tilrauninni án þess að bragða nokkru sinni á sælgætinu. heldur unz það öðlast áhugann sjálft. Haltu ekki sýningu á afrekum barnsins þins og þvi sjálfu þótt það sé gáfað. Það hefur slæm áhrif á eðlilegan þroska þess. Ennfremur hefur það félagslega slæmar afleiðingar þar sem barn, sem haft er til sýnis, væntir hróss. Viðkvæm börn þekkja ekkert verra, en að á þeim sé haldin sýn- ing, eða á þeirra verkum. Getur slikt með öllu eyðilagt sjálfs- traust þeirra. ÖNNUR SÍÐAN 0 Fimmtudagur 17. maí 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.