Alþýðublaðið - 02.10.1973, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 02.10.1973, Blaðsíða 11
Iþróttir 12 valdir til USA farar Landsliðsnefnd Körfuknatt- leikssamband tslands hefur valið eftirtalda leikmenn til Banda- rikjaferðar sem standa ’mun dag- ana 15. nóv. til 20. des.Leiknir verða 15 leikir. Bakverðir: Jón Sigurðsson Armanni. Kári Marisson Val. Brynjar Sigmundsson UMFN. Hilmar Viktorsson KR. Kristinn Jörundsson IR, fyrirliði. Framherjar: Jóhannes Magnússon Val. Stefán Bjarkason Val. Gunnar Þorvarðarson UMFN. Bragi Jónsson UMFS. Þórir Magnússon Val. Miðherjar: Birgir Guðbjörnsson KR. Stefan Hallgrimsson KR. Hugsanlegt er, að einum leik- manni til viðbótar verði bætt i þennan hóp. Landsliðsþjálfari verður Ólafur Thorlacius, en Landsliðsnefnd skipa Einar Bollason og Gylfi Kristjánsson. ísfirðingar í 2. deild Meistaraheppnin virðist Leeds S Leeds heldur óbreyttu striki i 1. deildinni ensku, hefur ekki tapað leik i haust, eitt bresku iðanna. Hefur Leeds nú góða forystu i 1. deild. tnnars voru mörg úrslit ansi óvænt á laugar- faginn, og veðrið hefur væntanlega spilað þar mi, það var nefnilega grenjandi rigning og rok Bretlandi á laugardaginn. Birmingham-Ipswich 0:3.Það igur nú heldur betur á ógæfu- liðina hjá Birmingham. Ips- ich hafði algera yfirburði, inkum undan rokinu i seinni lálfleik og skoraði þá þrjú nörk, fyrst Mick Lambert, þá Irian Hamilton og loks bak- örðurinn Harper. Birmingham rnn i neðsta sæti. I Burnley-Man. City 3:0. Nýlið- far Burnley voru langtum betri. ^aul Fletcher, einn fárra Burn- ey leikmanna sem ekki eru ald- r upp hjá félaginu, heldur kom lann frá Bolton, var áberandi á rellinum, skoraði fyrsta mark- ð, Iagði grunninn að öðru mark- nu sem Martin Dobson skoraði og gerði sjálfur þriðja og siðasta markið á 88. minútu X Chelsea-Wolves 2:2. Úlfarnir hrelldu heldur betur heima- menn á „Brúnni”, þvi þeir náðu 2:0 forystu með tveimur mörk- um Jim McCalliog á 50. og 58. minútu. En heimamenn gáfu sig ekki, heldur tókst að jafna með mörkum Garner og Osgood. 1 Everton-Arsenal 1:0. Þarna voru Arsenalmenn heldur slak- ir, og lágu i vörninni allan tim- ann. Eina mark leiksins skoraði sá sköllótti i liði Everton, John McLaughlin, bakvörður sem þarna gerði sitt fyrsta mark i rúmlega 40 leikjum fyrir félag- ið. Sannarlega dýrmætt mark. 2 Leichester-Coventry 0:2. Nokkuð óvæntur sigur mesta uppgangsliðsins um þessar mundir, Coventry. Brian Alder- son og ungur nýliði, Cartwright skoruðu mörkin. X Man. Utd-Liverpool 0:0. Meistarar Liverpool stóðu i ströngu á Old Trafford, og máttu þakka fyrir annað stigið. t leik tveggja sterkra varna kom besta tækifærið undir lokin, þegar Lou Macari miðherji Man. Utd mistókst að skora fyr- ir opnu marki. 2 Newcastle-QPR 2:3. Sannar- lega óvæntur útisigur nýliða QPR yfir afar sterku heimaliði Newcastle. Þetta er dæmigert fyrir Newcastle, fyrir stórliðin er St. James Park óvinnandi virki, en smáliðin geta átt til að hirða þaðan bæði stigin. QPR gerði eiginlega út um leikinn strax i byrjun með tveimur mörkum á þremur fyrstu min- útunum, og voru þar að verki Thomas og Francis. Leach breytti stöðunni i 3:0, stuttu fyr- ir leikslok, en þá byrjaði New- castle að skora. John Tudor tvö mörk, en það dugði þó ekki til. 2 Norwich-Leeds 0:1. Meistara- heppnin virðist óneitanlega fylgja Leeds þessa stundina, og þarna voru þeir sannarlega heppnir, þvi sigur Norwich hefði jafnvel verið réttlátari. Sigur- markið gerði Johnny Giles á 16. minútu, með heppnismarki af löngu færi. 1 Southampton-Sheff. Utd. 3:0. öruggur sigur Dýrlinganna. Mörkin gerðu Stokes, Gilchrist (arftaki Ron Davies) og Mick Channon, nýjasta stórstjarna ensku knattspyrnunnar, hans 100. mark fyrir félag sitt i 240 leikjum. 1 Stoke-Wcst Ham. 2:0. Grunn- inn að sigri Stoke lagði Geoff Hurst, fyrrum leikmaður West Ham, með tveimur góðum mörkum. 1 Tottenham-Ilerby l:0.Loksins heimasigur hjá Spurs, og þetta mikilvæga mark skoraði Ralph Coates. Hann skorar sjáldan, en mörk hans eru þeim mun dýr- mætari þegar þau koma. I 2. deild fór Middlesbrough (lið Jackie Charlton) á toppinn með sigri yfir Bristol City, 2:0. Á getraunaseðlinum var leikur Notts County og Aston Villa, og vann County 2:0. 1 Skotlandi töpuðu bæði Rangers og Celtic, en mótherji IBK I UEFA, Hiber- nian, vann stórt, 4:1. Nú er bara að sjá hversu gott veganesti þetta reynist liðinu . —SS Jón gengur úr Ármanni Jón Hermannsson, sem á lundanförnum árum hefur verið ’máttarstólpi 2. deildariiðs Ár- Imanns i knattspyrnu, hyggur á t félagaskipti á næstunni. Hann ? hefur ekki enn gert upp við sig ihvaða félag hann ætlar að ganga ii,en það verður annaðhvort Valur ieða Vikingur. * Fullvist má telja, að Jón geti (unnið sér fast sæti i hvoru liðinu ksem er, þvi hann er einn okkar 'allra bestu miðvarða, og var sem jslikur valinn i pressulið á siðasta Isumri. Þó verður að álita mögu- : leika hans mun meiri hjá Vikingi, • þvi vörnin hefur verið höfuð- Iverkur liðsins. Landsleikur í kvöld i kvöld mætum við Norð- mönnum i landsleik i handknatt- leik úti I Bergen i Noregi. Þetta er annar tveggja landsleikja sem við heyjum við Norðmenn nú i Vikunni, sá siðari verður annað kvöld i Osló. Jón Asgeirsson lýsir leikjunum i útvarpi, og a.m.k. annar þeirra verður sýndur i sjónvarpi ytra, og þá væntanlega hér einnig. ísfirðingar hafa endur- heimt sæti sitt i 2. deild, sem þeir misstu i fyrra. í úrslitaleik 3. deildar, sem Fram fór á Mela- vellinum á laugardag- inn, sigruðu ísfirðingar lið Reynis úr Sandgerði 1:0. Sigurmarkið skoraði Gunnar Pétursson miðframherji tsfirð- inga i leikslok, og var það algjör- lega ólöglegt, þvi Gunnar sló knöttinn inn með hendinni. Þetta sáu allir nema linuvörður og dómari. Að visu hafði linuvörður uppi einhverja tilburði eftir að leikur var hafinn að nýju, en þá var það of seint. Mikil reiði varð meðal áhorfenda, og þeir þustu inn á völlinn. Knattspyrnulega var leikurinn ekki upp á marga fiska, og það sem sást, kom frá hinum siunga fyrirliða tsfirðinga, Birni Helga- syni, sem orðinn er 38 ára gamall. Reynismenn voru sprækari i sið- ari hálfleik. Þessa mynd tók Friðþjófur af sigurliði Isfirðinga að leik lokn- um: Aftari röð frá vinstri: Kristján Jóhannsson, liðsstjóri, Tryggvi Sigtryggsson, Albert Guðmundsson, Jón Jóhannesson, Rúnar Guðmundsson, Halldór Antonsson, Helgi Kjartansson, Bjarni Albertsson, Páll Ólafsson og Gisli Magnússon, þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Guð- mundur Ólafsson, Ornólfur Odds- son, Hreiðar Sigtryggsson, Björn Helgason, fyrirlið’i, Jón B. Sig- *■ tryggsson, Pétur Guðmundsson og Gunnar Pétursson. KARFAN Hólmsteinn hættir Akveðið hefur verið, að Arsþing Körfuknattleikssambands ts- lands verði haldið i lok okt. Nú- verandi form. K.K.I., Hólmsteinn Sigurðsson, hefur lýst þvi yfir að hann verði ekki i framboði til end- urkjörs. Nánari timaákvörðun og þingstaður verða auglýst mjög bráðlega. Þriðjudagur 2. október 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.