Alþýðublaðið - 14.09.1974, Blaðsíða 2
Stjórn-
mál
Kapphlaup upp á
líf og dauða
Málgögn rikisstjórnarinnar
heyja þessa dagana kaup-
hlaup upp á lif og dauöa um
titilinn: „harðskeyttasti mál-
svari ólafs og Geirs”. Ekki
má á milli sjá hvert málgagn-
iö fer meö sigur af hólmi i
þessu broslega kapphlaupi. En
baráttan viröist standa milli
annars aöalmálgagns ihalds-
ins, dagblaösins Visis, og
aöalmálgagns framsóknar og
Sambandsins, dagblaösins
Timans.
Timinn og Visir beita mjög
áþekkri tækni i keppninni: si-
felldum endurtekningum á ó-
sannindum um afstööu
stjórnarandstööuflokkanna i
vinstri viöræöunum, og sifellt
endurteknum hótunum um at-
vinnuleysi, ef launþegasam-
tökin makka ekki „rétt” i viö-
ræöunum viö rikisstjórnina.
Samþykki launþegasamtökin
ekki i einu og öllu lögþvinganir
og kauprán rikisstjórnarinn-
ar, biöi þeirra hin voöalega
hefnd.
Þaö óhugnaniega i þessu
efni er, aö rikisstjórnin getur
komiö viö hefndum, fylgi hót-
unum einhver alvara. Spurn-
ingin er þvi: Vill núverandi
hægri stjórn raunverulega
berjast gegn atvinnuleysisvof-
unni?
Þó aö málflutningur
stjórnarblaöanna allra sé i aö-
alatriöum áþekkur, er hann
ekki alveg eins. Vesalings
Timinn neyöist til aö verja
óstjórn og getuleysi fyrrver-
andi rikisstjórnar jafnframt
þvi, sem hann réttlætir i smáu
sem stóru þær gifurlegu álög-
ur, sem rikisstjórnin hefur
lagt á þjóöina á stuttum ævi-
ferli sinum. En þess veröur
ekki vart, aö ritstjórar Tim-
ans geri sér grein fyrir þvi, aö
Framsóknarflokkurinn ber
raunverulega mesta ábyrgð á
úrræöaleysi fyrrverandi
stjórnar og þvi einnig þeim
efnahagslega vanda, sem
stjórnleysi hennar fæddi af
sér.
Hinn furöul. málflutningur
stjórnarblaöanna aö undan-
förnu er almenningi i landinu
visbending um, aö óábyrgir
menn sitja nú viö stjörnvölinn
á tsiandi. Allir sanngjarnir
menn vona af heiium hug, aö
viöræöur rikisstjórnarinnar
og launþegasamtakanna beri
jákvæöan árangur, þó aö seint
sé af staö fariö. En hitt hlýtur
öllum aö vera Ijóst, aö jákvæö
ur árangur næst ekki, nema
leikaraskapnum veröi hætt og
rikisstjórnin geti gert aöilum
vinnumarkaösins grein fyrir
einhverri heiidarstefnu I efna-
hagsmálum. Þaö gefur auga
leiö, aö ekki er hægt aö makka
„rétt” viö spilamann, sem
liklegur er til aö svikja iit,
hvenær sem tækifæri gefst.
H.E.H. —
Ný traktorsgrafa
TIL LEIGU: Uppl. i sima 85327 0&
36983. . ... '
myndlistar-
Kjarvalsstöðum
íslenskir
menn að
Haustsýning Félags islenskra
myndlistarmanna stendur nú
yfir i báöum sýningarsölum
Kjarvalsstaða viö Miklatún.
Þar eru sýnd samtals 197 verk
eftir 60 höfunda, þar af eftir 39
félagsmenn og 21 utanfélags-
mann.
Nú er aftur tekinn upp sá hátt-
ur aö bjóöa sérstökum gesti til
þátttöku i haustsýhingunni og er
gesturinn aö þessu sinni Louisa
Matthiasdóttir, sem lengi hefur
veriö búsett i Bandarikjunum,
en verkum hennar hafa hingað
til verið gerð litil skil hér á
landi, en þau eru mjög mótuð af
islenskum uppruna listakon-
unnar.
Louisa Matthiasdóttir er fædd
i Reykjavik 1917. Hún stundaði
nám i Kaupmannahöfn og siðan
i Paris hjá Cromaire. Hún flutt-
ist til Bandarlkjanna 1942 og
stundaði nám hjá Hans Hoff-
mann við The Art Students
League i New York. Hún hefur
tekið þátt i f jölda sýninga vestra
auk einkasýninga og sýnir
reglulega i Robert Schoelkopf
Gallery á Madison Avenue.
Lousia á verk á eftirtöldum
söfnum: Trenton, New Jersey,
Albert Museum, Missouri og
Listasafni Islands. Hún er gift
listmálaranum Leland Bell.
A haustsýningunni á
Kjarvalsstöðum eru i fyrsta
sinn sýnd verk eftir islenska
leikmyndateiknara. Aðdrag-
andi þess, að þeim var boðin
þátttaka i sýningunni, er sá, að
samtök norrænna leikmynda-
teiknara efndu til sýningar á
leikmyndateikningum á leik-
listarþinginu i Álaborg á siðast-
liðnu vori. Islenskum leik-
myndateiknurum var boðin
þátttaka i sýningunni og eru
sömu verkin nú sýnd á haust-
sýningunni. Hér á landi eru
starfandi samtals tiu leik-
myndateiknarar og eru þeir all-
ir meðlimir i Félagi islenskra
leikara.
Ellefu islenskir myndlistar-
menn taka nú i fyrsta sinn þátt i
haustsýningu Félags islenskra
myndlistarmanna.
Alls bárust sýningarnefndinni
366 myndverk, en eins og áður
er fram komið, fengu aðeins
tæplega helmingur þeirra náö
fyrir nefndinni og eru sýnd á
sýningunni. — Sýningin hófst 7.
september og lýkur sunnudag-
inn 22. september. —
Nýlega hefur Verslunin Fjarðarkaup H/F (matvörumarkaöur) i
Hafnarfiröi aukiö verulega viö verslunarhúsnæöi sitt. Verslunin
bindur ekki afslátt viö vissa fj árhæö eöa afsláttarkort, heldur eru
allar vörur verðmerktar meö afsláttarveröi. Meö tilkomu hins nýja
húsnæöis hefur veriö bætt viö landbúnaðarvörum. Sótt hefur veriö
um leyfi til m jólkursölu en enn sem komiö er hefur ekki fengist svar
við umsókn þeirri.
Gera má ráö fyrir, aö Hafnfiröingar og aörir nærsveitungar kunni
vel aö meta þessa vöruvalsaukningu Fjarðarkaups H/F.
Verslunin er opin alla virka daga frá 9—12 og 1—6, föstudaga til kl.
22 og laugardaga frá 9—12.
Aöaleigendur fyrirtækisins eru Sigurbergur Sveinsson og Bjarni
Blomsterberg.
„Ef þú vinnur, tekur þú pilluna, en ef ég vinn, tek ég
svefnpiliuna.”
„Æ, góöi Gissur vertu
leika neinn Jónas.”
Sendisveinar
óskast fyrir og eftir hádegi.
að hafa hjól.
— Þurfa helst
alþýdu
llhTl [II simi 14900
Hafnartjaröar Apótek
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
0
Laugardagur 14. september 1974.