Alþýðublaðið - 15.03.1975, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.03.1975, Blaðsíða 7
Kl. 20.00 hefst þátturinn „Hljómplöturabb,” en i þessum HB dagskrárinnar bregður Þorsteinn Hannesson plötum á fóninn. t þessum þætti geta tón- listarunnendur ætið gengið að mjög góðum söng. Það fer ekki fram hjá neinum, að eftir tfmasetningu þáttarins, er honum ætlað að keppa við fréttatlma sjónvarpsins, en hitt mun þó sönnu nær, að litill tiltrú á vinsældir hans hafi ráðið, að minnsta kosti einhverju, um það, hvenær hann er fluttur. Reynslan hefur sannað, svo að ekki verður um villst, að þátturinn á sér tryggan hlustendahóp, sem fer vaxandi. Aðdráttarafl hans liggur eflaust að einhverju leyti i þvi, að hann er ekki kynntur fyrirfram nema afar lauslega, og enda þótt áheyrendur kaupi alltaf köttinn I sekknum og viti ekki hvaða söngvarar eru kynntir hverju sinni, dregur það siöur en svo úr vinsældum hans. Þorsteinn Hannesson veit þetta, en gerði þá undan- tekningu fyrir þrábeiðni okkar, að segja okkur, hvaða söngvara hann ætlar að kynna á laugar- dagskvöldið kemur. Það tilheyra yngri kynslóð toppsöngvara, og má þar nefna mexikanska tenórinn Placido Domingo, itölsku sópransöng- konuna Kati Ricciarelli, og siðast en ekki sist itölsku söngkonuna Maria Chiara, sem óhætt er að segja, aö hafi nú lagt allan heiminn að fótum sér fyrir unaðslega rödd og frá- bæra túlkun. Hún er eitt af þess- um undrabörnum sönglistarinn- ar, sem „enginn” vissi af, en allt I einu er hún alls staðar eftirsótt og vekur slika hrifn- ingu,sem aðeins snillingar með náðargáfuna gera. Hljómplötu- rabb Þorsteins Hannessonar verður kl. 20.00 i kvöld. Kl. 16.30 hefst sjónvarpsdag- skráin með iþróttaþætti, sem Ómar Ragnarsson hefur umsjón með. Fyrst i þessum þætti er knattspyrnukennsla svo sem verið hefur að undanförnu. Er þetta aðeins 10 minútna þáttur, vel til þess fallinn að menn hiti sig aðeins upp fyrir ensku knattspyrnuna, sem byrjar kl. 16.40. Bjarni Felixson kynnir að vanda og lýsir leikjum þeim, sem sýndir verða, en þeir eru að þessu sinni kappleikir i 6. um- ferð bikarkeppninnar ensku, og eru þvi linur talsvert farnar að skýrast um hugsanleg úrslit. Mjög almennt er „tippað” á Ipswitch Town eða Leeds United, sem bæði eru 1. deildar lið og verður á laugardaginn sýndur leikur á milli þessara liða, sem fram fór i Ipswitch siðastliðinn laugardag. Yfir ensku bikarkeppninni er meiri stemning en deildarkeppnum, og er þessi leikur afar skemmtilegur, en hann er leikinn á heimavelli Ips witch, eins og áður segir. Að- sókn að leiknum á sér engin for- dæmi og voru áhorfendur um 40 þúsund manns og áhorfenda- svæðin bókstaflega sprungin,enda leikurinn með af- brigðum spennandi. Þá verður sýndur leikur á milli l.deildar-liðsins Carlisle og 2. deildar liðsins Fulham, sem einnig eru leikir i 6. umferð bikarkeppninnar. Sá leikur var einnig geysilega spennandi og úrslit allan timann tvisýn. Þá verður i þessum iþrótta- þætti kynning á badminton i sjónvarpssal, og siðast en ekki sist verða sýndir kaflar úr úr- slitaleikjum Islandsmótsins i handknattleik, þar sem eigast við ÍR og Haukar og loks Val- ur og Vikingur, sem léku hinn raunverulega úrslitaleik Is- landsmeistaramótsins. STJÖRNUSPÁIN Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar. Hagstæður dagur til ferðalaga og heimsókna. Athafnir ættingja þinna hjálpa þér i ástarmálun- um og þér gætu borist góðar fréttir. Sinntu bréfaskiptum þinum. Fiskarnir 19. febrúar — 20. mars. Fjármálin eru jákvæð i dag. Dómgreind þin er i góðu lagi og þú ættir að taka þér tima til upplýs- ingaöflunar. Ef þig langar að kaupa föt eða fallega hluti, þá geröu það. Hrúturinn 21. mars — 20. april. Ahrifafólk er þér liklega ekki hagstætt i dag. Vandamál ættingja valda þér áhyggjum. Ferða- lög baka þér llklega vonbrigöin ein, en sambönd- in við vini, maka og félaga ættu aö vera I lagi. Nautið 21. aprll — 20. mal. Fjármál gætu valdið þér nokkrum áhyggjum I dag. Vinir verða liklega ekki hjálplegir og þú skalt forðast að láta flækja þig I áætlanir þeirra. Nýjar aðferðir gætu aukið afköst þin. Tvlburarnir 21. mal — 20. júnl Taktu þátt i athöfnum vina þinna I dag. Dagur- inn er hagstæður til náms, en llklega hefur þú meiri áhuga á að skemmta þér og þú skalt láta það eftir þér. Fylgstu með fjarlægum atburðum. Krabbinn 21. júni — 20. júll. Verulega hagstæður dagur til allra athafna og þú ættir aö ná þvi besta úr samstarfi við hvern sem er. Haltu samt aftur af eyðsluhvöt þinni og æstu þig ekki um of. Ljónið 21. júll — 21. ágúst. Mjög hagstæður dagur til náms og fram- kvæmda. Fjarlægir atburðir gætu haft hagstæð áhrif á ástamálin og ef þú hyggur á ferðalög, þá legðu af staö I dag. Sinntu bréfaskiptum þlnum. Meyjan 22. ágúst — 22. september. Gróðabrall þitt vekur áhuga félaga þins og þú skalt þiggja þátttöku hans. Dagurinn er góöur til allra samningsgerða og alls þess sem krefst samvinnu félaga og vina. Vogin 23. september — 22. október. Góöur dagur I ástarmálum — ástvinir sýna betri svörun en undanfarið. Samvinna við þlna nán- ustu gæti fært góðan hagnaö. Mundu að gjalda skal llku llkt. Sporðdrekinn 23. október — 22. nóvember. Þetta er dagurinn til að taka verulega á og not- færa sér samvinnu vina og kunningja. Þér gefst tækifæri til að vekja áhuga áhrifamanna. Astar- málin gætu orðiö skemmtileg, en ekki mikilvæg. Bogmaðurinn 23. nóvember — 20. desember. Góður dagur til aö sinna málefnum hjartans og ef þú feröast eitthvað, gætir þú hitt manneskju sem á eftir aö hafa mikil áhrif á llf þitt. Sinntu félagslifi um helgina. Steingeitin 21. desember — 19. janúar. Andrúmsloftiö á heimilinu verður gott i dag og meölimir fjölskyldunnar betri viöskiptis en oft áöur. Dagurinn er góður til samræöna um fjár- mál, en haltu samt rólyndi þlnu. Sinntu þvl sem þú hefur trassað undanfarið. RAGGI RÓLEGI FJALLA-FUSI Ég var að heyra að kallinn þinn væri að búa til púns fyrir skirnar. veisluna hjá Hauki Það er ekki beint' PUNS 1 dag verður opnuð, að Kjar- valsstöðum, minningarsýning um Guðmund Einarsson frá Miðdal. Sýningin er haldin til minningar um það, að Guð- mundur hefði orðið áttræður á sumri komanda. Á sýningunni eru 133 myndir Guðmundar; 48 oliumyndir, 43 vatnslita- myndir, 25 eirstungur, 8 túss- og blýantsteikningar og krit- armyndir og 9 höggmyndir. Sýningunni er ætlað að vera yfirlitssýning um stilþróun, verkefnaval og viðfang lista- mannsins. Guðmundur Einarsson frá Miðdal sótti myndlistarnám til þriggja ólikra skóla. Fyrst til Stefáns Eiriksson- ar i Reykjavik 1911-’ 13, þá til Konunglega fagurlistaskólans I Kaupmannahöfn og loks til Listaakademiunnar i Mun- chen á árunum 1921-1925. Hann lagði jafna stund á málaralist, höggmyndagerð og eirstungugerð. Eftir hann liggja að auki teikningar, húsaskreytingar, leirmunir, bækur og steindir gluggar. Guðmundur tók fyrsta sinn þátt I myndlistarsýningu með Listvinafélaginu árið 1921. Aö loknu námi hélt hann sýningar eöa tók þátt i samsýningum með fárra ára millibili i Reykjavik, á landsbyggðinni og erlendis, m.a i Finnlandi, Bretlandi, Noregi og Þýska- landi. Ýmis verk Guðmundar eru á opinberum stöðum, gjarnan minnismerki svo sem um Jón Arason biskup, Skúla land- fógeta, sjómenn i Vestmanna- eyjum og Ólafsvik, margar lágmyndir og brjóstmyndir. Einnig mætti telja húsa- skreytingar, til dæmis lág- myndir i Pósthússtræti og á Landspitalanum, glugga i Bessastaða- og Akureyrar- kirkju og hvelfingar i Þjóð- leikhúsi og Háskóla Islands. WÖÐMINJASÝNING t dag verður opnuð, i Boga- sal Þjóðmin jasafnsins, sýning, sem haldin er til að minnast þess að siðastliðið haust, voru liðin 100 ár frá andláti Sigurðar Guðmunds- sonar, málara. A sýningunni verður úrval af þeim munum sem safninu bárust fyrstu tiu árin sem það starfaði, en þann tima var það að miklu leyti i vörslu Sigurðar. Einnig gerir sýningin minningu Sigurðar nokkur skil og eru á henni nokkrar teikningar hans og mannamyndir. Sigurður Guðmundsson, listmálari, var frumkvöðull og helsti hvatamaður þess að sett yrði á stofn Þjóðminjasafn Is- lands. Hafði hann, að mestu leyti, veg og vanda af uppsetn- ingu þess og vörslu, fyrstu tiu árin. Sýningin verður opin á safn- timum, næstu tvær vikur, nema á laugardögum og sunnudögum, en þá verður hún opin til klukkan 18.00. € Laugardagur 15. marz 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.