Alþýðublaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 4
4 Laugardagur 24. apríl 1976 sisr1 íð Tilboð óskast 1 nokkrar fólksbifreiðar, 8 manna station bifreið og jeppabifreið, er verða sýndar að Grensásvegi9, þriðjudaginn27. april kl. 12 til 3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sala varnarliðseigna. SKEMMTANIR — SKEMMTANIR HÓTEL LOFTLEIÐIR Cafeteria, veitingasalur meft sjálfsafgreiftslu opin alla daga. HÓTEL LOFTLEIÐIR Blómasalur, opinn alla daga vikunnar. HÓTEL BORG vift Austurvöll. Restiiration, bar og dans I Gyllta salnum. Simi 11440. HÓTEL SAGA Grillift opift alla daga. Mimisbar og Astrabar, opift alla daga nema miftvikudaga. Simi 20890. INGÓLFS CAFÉ vift Hverfisgötu.,— Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826. ÞÓRSCAFÉ Opift á hverju kvöldi. Sími 23333. SKEMMTANIR — SKEMMTANIR Ingólfs-Café Gömludansarnir í kvöld kl. 9 Hljómsveit Garðars Jóhannessonar. Söngvari Björn Þorgeirsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826. Finnsk listakona opnar sýningu að Kjarvalsstöðum Finnska listakonan Terttu Jurvakainen opnar málverkasýn- ingu að Kjarvalsstöðum kl. 14 i dag. A sýningunni eru 79 myndir, abstrakt, landslagsmyndir og portrett. Flestar myndanna eru til sölu. Það er næsta fátitt að finnskir listamenn haldi hér einkasýning- ar og hefur slikt ekki átt sér stað áður að Kjarvalsstöðum. Terttu Jurvakainen ber allan kostnað af sýningunni, bæði flutning mynd- anna og leigu salarins og saman- lagt nemur sá kostnaður hundr- uðum þúsunda. Langflestar myndanna eru málaðar á siðasta ári og það sem af er þessu. t samtali við Alþýðu- blaðið sagði Jurvakainen, að hún ynni mikið i skorpum og stundum tæki það ekki nema tvo daga að gera eina mynd. En þess á milli færi að sjálfsögðu mun meiri timi i listaverkin. Listamaðurinn vinnur að einu verka sinna (Ljósm. Björn Pálsson). Listakonan er búsett i fæð- ingarbæ sinum, Muhos i Finn- landi. Hún byrjaði að mála af al- vöru fyrir 10 árum og siðan hefur hún haldið margar sýningar bæði i Finnlandi og erlendis, auk þess sem hún hefur tekið þátt i sam- sýningum. Terttu Jurvakainen kennir við háskólann i Muhos nokkra tima i viku og sagði að finnskir myndlistarmenn þyrftu yfirleitt að vinna með list sinni til að geta lifað. Hún hefur lengi haft áhuga fyr- ir Islandi og þegar Islendingur sem búsettur er i Finnlandi, Karl Tryggvason, hvatti hana til að sýna hérlendis ákvað hún að láta verða af þvi. Sýning Terttu Jurvakainen verður opin daglega nema mánu- daga frá kl. 14 til 22 fram til 9. mai. Jafnframt er leikin finnsk tónlist af segulbandi og er ekki amalegt að hlusta á verk eftir t.d. Sibelius meðan málverkin eru skoðuð. Rétt er að geta þess, að áður en Jurvakainen fór frá Finnlandi póstaði hún boðskort til fólks hér i Reykjavik um að vera við opnun sýningarinnar. Kortin eru enn ekki komin fram en berast við- takendum væntanlega innan tið- ar. —SG - Sýna nýjustu gerð- irnar frá Leyland Nú um helgina sýnir fyrir- tækið P. Stefánsson nýjustu geröiraf bifreiðum frá Leyland- verksmiöjunum Þær verða sýndar aö Hverfisgötu 103, þar sem fyrirtækiö er til húsa. Þarná mun gefa að lita nýjustu gerðir af Land Rover og Range Rover, Morris Marina, Austin Mini og Austin Allegro, sem er nýr bill á markaöi hér. — Þá verður sýndur fyrsti Land Rover jeppinn, sem var fluttur hingað til lands, árgerö 1948. P. Stefánsson er elzta bif- reiöaumboð hér á landi og mun á næsta ári minnast 70 ára starfsafmælis sins. Sýningin verður opin i dag og á morgun (laugardag og sunnu- dag) klukkan 14 til 18t n Kvartmíluakstur í einni röð Kélagar Kvartmiluklúbbsins munu aka fylktu liði um götur borgarinnar i dag kl. 15. Þetta er i annað sinn sem Kvartmílukiúbburinn efnir til sliks samaksturs og er tilgangur- inn nú, sá sami og i fyrri feröinni, aft leggja áherzlu á aft klúbbnum vcrfti úthlutaö svæfti undir starf- semi sina. Klúbburinn hefur farift fram á aft fá svæfti undir kvartmilubraut vift Geitháls, en ekki hefur verift nein hreyfing á þvi aft málaieit- aninni væri sinnt. Stjórn klúbbsins vekur athygli á eftirfarandi: Meft hækkandi sól og þurru veftri þykir ástæöa til þess að minna kiúbbfélaga og aftra öku- menn, sem finna til vorsins, aft fara varlega í umferftinni og geyma allan hraftakstur til þess tima aft komift hefur verift upp braut tii sliks aksturs. Stjórn klúbbsins minnir á kjör- orft klúbbsins: „Stefnum aft þvi aö beina hraft- akstri af götum borgarinnar inn á lokaft iöglegt svæfti.” Hópakstur kiúbbfélaganna hefst eins og áftur sagfti kl. 15 i dag og verftur farift frá Hótel Loftleiftum. Félagar eru beftnir aft mæta vift hóteiiö kl. 13. EB.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.