Alþýðublaðið - 16.05.1976, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.05.1976, Blaðsíða 1
alþyúu- blaðíö Sunnudagur 16. mai — 95. tbl. — 1976 57. árg. SUNNUDAGSLEIDARI 7 T ónlistarskólarnir og unga fólkið Um þessar mundir er það áreiðanlega ef st í hugum allra góðra íslendinga hverju brýna nauðsyn ber til að upplýsa að fullu þau óhugnanlegu glæpamál, sem rannsókn fer nú fram á. Islendingar hafa undanfarið kynnst hræðilegum skuggahliðum á þjóðfelagi sínu. (slenzkt samfélag verður ekki hið sama og það var, ef Ijósi er ekki varpað á ýmislegt, sem gerst hefur, en ennþá myrkri hulið, ekki aðeins að því er snertir manndráp eða mannshvarf, heldur einnig f jármálaafbrot, svo sem smygl og skattsvik. Þess er rétt að geta að Morgunblaðið þetta víð- lesnasta blað landsins birti nú í vikunni tvær merkar forystugreinar um þessi mál, þar sem með skýrum og sterkum rökum er sýnt f ram á nauðsyn þess fyrir island sem réttarriki og sjálfsvirðingu þjóðarinnar, að ekkert verði látið ógert til þess að upplýsa þessi mál að fullu og öllu leyti. En þótt þessi sakamál varpi dimmum skugga á þjóðfélagið er sem betur fer einnig ýmislegt að gerast þar, sem bregður á það birtu og er ánægju- ef ni. Um tvennar síðustu helgar hefur ungt fólk haldið tónleika í Reykjavík, þrír ungir nemendur tónlistar- Reykjavík og Kópavogi ásamt hljómsveit tónlistar- skólans í Reykjavík héldu tónleika í Háskólabíói fyrir hálfum mánuði, en um síðustu helgi hélt Tón- listarskólinn í Reykjavík tónleika sína í Austur- bæjarbíói. Þessir tónleikar báru hinu unga tón- listarfólki, sem og kennurum þeirra og stjórnendum hljómsveitarinnar svo ágætt vitni, að það á ekki að liggja í þagnargildi. Almenningur á Islandi gerir sér áreiðanlega ekki Ijóst, hvert starf er unnið í tónlistarskólunum og hversu snar þáttur þeir eru orðnir í heilbrigðu upp- eldisstarfi og hversu sterk stoð þeir eru tónlist á ís- landi og þar með íslenzkri menningu. Hversu miklu betur hef ur ekki þeim stundum verið varið, sem not- aðar hafa verið til tónlistarnáms, en hefði þeim verið varið á skemmtistöðum eða til þess að láta sér leið- ast? Og hversu marga listamenn hafa þeir ekki gef ið þjóðinni? Fyrsti tónlistarskólinn á (slandi var stofnaður í Reykjavík á árum heimskreppunnar miklu, fyrir meir en f jörtíu árum. Það gerði fámennur hópur manna, Tónlistar- félagið, undir stjórn Ragnars Jónssonar í Smára. Margt hef ur sá merki maður gert um ævina, en ef til vill fátt betra en að beita sér fyrir stofnun fyrsta tónlistarskólans og fá Pál ísólfsson til að veita honum forystu. Með því var tryggt að um vandaðan og góðan skóla yrði að ræða. Og því merki hafa þeir haldið hátt á lofti sem siðan hafa stjórnað skólanum, þeir Árni Kristjáns- son og Jón Nordal. Þegar Ragnar Jónsson átti eitt sinn tal við þann er þetta ritar, meðan hann veitti Menntamálaráðu- neytinu forstöðu, um f járhagsvandamál Tónlistar- skólans, og undirritaður varpaði fram þeirri hug- mynd að tóníistarskólar yrðu opinberar stofnanir, sem kostaðar yrðu af ríki og sveitarfélögum, eins og f lestir aðrir skólar, kvaðst Ragnar Jónsson ekki óska slíks. Tónlistarskólarnir ættu ekki að vera ríkisskólar, heldur styrktir ríflega af hinu opinbera, samkvæmt föstum reglum, þannig að þeir vissu, hver verk þeir mættu ætla sér. Varð þetta kveikja þess að sett voru almenn lög um tónlistarskóla og opinberan stuðning við þá og helst sú skipan enn. Stuðningur við skólana hefur sem betur fer farið sívaxandi. Fáir skólar munu nota betur það fé, sem þeir fá frá opinberum aðilum, en tónlistarskólarnir. Það sýnir sá árangur sem þeir hafa náð í störf um sínum. Þótt skólastörf eigi að vinna í kyrrþey og ekki eigi aðauglýsa árangur, jafnvel ekki af rek, í f jölmiðlum, er hitt ástæðulaust, að almenningi sé ekki gert Ijóst, ef vel er unnið, þegar ástæða er til að halda að honum sé það ókunnugt. I tónlistarskólunum er unnið svo merkilegt og gott starf, að allir þeir sem kunna að meta menningar- gildi tónlistar, eiga ekki aðeins að vita um það, heldur einnig að þakka það. — GÞG

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.