Alþýðublaðið - 15.12.1976, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 15.12.1976, Blaðsíða 14
14 USTIR/MENNING Miðvikudagur 15. desember 1976 alþýðu- blaðið Nýjar plötur VANDAÐIR GÖTUSKÓR Skógerð Spilverks þjóðanna hefur heppnazt með ágætum tJt er kominn á veg- um Steinars h.f. ný hljómplata, með Spil- verki þjóðanna hin þriðja i röðinni, en Spil- verkið skipa þau, Val- geir Guðjónsson, Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla og Sigrún Hjálm- týsdóttir. Platan sem ber heitið Götu- skór hefur aö geyma 15 lög öll samin og útsett af Spilverkinu. Textar við lögin eru allir á is- lenzku og eru þeir samdir af þeim Spilverksmönnum, utan einn sem Spilverkið hélt vera eftir Þorstein Valdimarsson, en reyndist þegar til kom hafa skolast allverulega til i höndum þeirra. Engu að" siður veitti skáldið góðfúslega leyfi sitt til að hinn breytti texti birtist, en fyrirmyndin er þó birt til hlið- sjónar. Upptakan fór fram i Hafnar- firði i september og október sið- astliðnum og voru notaðir til hennar rúmlega 200 upptöku- timar sem mun vera allmikið á islenzkan mælikvarða. Auk Spilverkanna koma fram á plötunni ýmsir valinkunnir hljóöfæra leikarar sem aðstoða við flutning, má þar nefna Guðnýju Guðmundsdóttur fiðlu- leikara og konsertmeistara, NinuFlyer, selló, GunnarEgils- son, klarinett, Gunnar Ormslev, saxófón, Guömundur Stein- grímsson, trommur, Sigurður Karlsson, trommur, Lárus Grimsson, orgel, Þóröur Ama- son, gitar og Helgi Guömunds- son, munnharpa. Greinilegt er aö Spilverkið hefur lagt mikla vinnu og alúð i gerö þessarar plötu. Ber þá fyrst að nefna tónlistina sem er kunnáttusamlega samin auk þess að vera vel flutt. Eins og tyrr sagði eru allir textar á islenzku og er það á- nægjuleg breyting frá fyrri plöt- um, mun Sigurður Bjóla eiga mestan — ef ekki allan heiður af þeim. í heildina eru textarnir góðir og sumir hverjir mjög góðir. En það ber að hafa I huga þegar verið er að fjalla um texta sem þessa, að þeir eru fyrst og fremst samdir við ákveðnar laglinur og stef og ber þess vegna að lita á lag og texta sem eina heild. Engu að siður er freistandi að taka nokkra valda texta út úr og stilla þeim upp sem fullgildum ljóðum, en það er önnur saga. Ekkiersvohægtaðskrifa svo um plötu þessa, að ekki sé minnst á plötuumslagið sem Þorbjörg Höskuldsdóttir hefur unnið og minnist blaöamaður þess ekki að hafa séð annað eins, utan um islenzka plötu. Sem sagt, GOTT!! — GEK SPEGLUN þrumuplata frá Eik Hljómsveitin Eik sendi frá sér fyrstu hljómplötu sina fyrir siðustu helgi. Hér er um að ræða þrumugóða rokkplötu með sjö lög- um, sem utan eitt eru eftir félaga i hljóm- sveitinni. Eitt lagið, Stormy Monday, er hinsvegarerlent, gamalþekkt, I prýðisgóðri útsetningu Eikarfé- laga en eftir Aaron Walker. Hljómsveitina Eik skipa þeir: Lárus H. Grimsson, hljómborð og flauta, Þorsteinn Magnús- son, gitar, Sigurður K. Sigurðs- son, söngur, Haraldur Þor- steinsson, bassi og Ólafur J. Kolbeins, trommur. Það sem vekur mesta athygli við þessa frumraun Eikar i plötuútgáfu eru „instrúment- al”-lögin á henni. Siðari hliðin er eingöngu spiluð og er óhætt að segja, að betri tónlist af þvi tagi hafi ekki komið á hljóm- plötu islenzkrar hljómsveitar. Sama má segja um spiluðu kafl- ana i siöasta lagi fyrri hliðar, Keep on gion’. Skemmtilegur flautuleikur setur svip sinn á þess lög likt og hjá hljómsveit- inni Jethro Tull, þótt að öðru leyti sé engan veginn hægt að likja þessum tveim hljómsveit- um saman. Lögin á plötunni heita: Stormy Monday, Memories, Funky Beat, Lullaby og Keep on Goin’ á fyrri hliö, en á seinni hlið eru aðeins tvö lög, „instru- mental”, eins og fyrr er sagt, Hugsýn og Speglun, en platan ber einmitt nafn þessa siðasta lags. Sem rokkplata er þessi Eikar- frumraun skinandi góö. Byggist að sönnu upp á rokkfrösum að miklu leyti, en þeir félagarnir fara mjög vel með þá. öll spila- mennska er mjög góð og þótt flautuleikurinn hafi verið tekinn út úr hér að framan, ber ekki að lita svo á að hann sé að neinu Fyrst áröngunni heit- ir ný hljómplata sem gefin er út af GB-útgáf- unni, en að baki þeirri skammstöfun felast þeir Gunnlaugur Mel- steð og Birgir Viðar Halldórsson. Gunnalugur er söngvari og bassaleikari i hljómsveitinni Haukum en það er einmitt hún sem flytur tónlistina á þessari plötu. Aðrir i hljómsveitinni eru Rafn Jónsson, trommari, Rúnar Þórisson gitaristi og Magnús Kjartansson hljómborösleikari. Góða aðstoð viö upptökuna veittu siðan þeir Rafn Haralds- son trommuleikari og Sven Arve gitarleikari og blásari, en þeir voru báðir félagar f Hauk- um hér á árum fyrr, auk reynd- ar Sveins Guðjónssonar sem raddar nokkur lög leyti alráður á þessari plötu, vakti aðeins athygli blaða- mannsins. En textarnir eru skelfilegt þrugl, sérstaklega textinn Funky Beat, sem auk þess að vera fáránlegur i sjálfu sér, á engan veginn við lagið sjálft. — Auk þess fara enskir textar i finu taugarnar á undir- rituðum, þegar islenzkar hljóm- sveitir eiga i hlut. En i stuttu máli: Þetta er góð plata og þeir sem hafa gaman að góðu rokki ættu að fá sér hana. —hm Þessi nýja plata þeirra félag- anna er ekki á neinn hátt tónlist- arlegt afrek, enda er það ekki tilgangurinn að sögn þeirra. Þetta er dæmigerð Haukaplata, létt og skemmtileg lög, þokka- lega spiluð og umfram allt fjör- ug. Sem sagt plata sem maöur hlustar á sér til skemmtunar en ekki til að „pæla i”. Mætti jafn- vel með sanngirni segja að þarna sé á ferðinni kjörin partý- tónlist, enda á hún áreiðanlega eftir að seljast sem slik. Höfundar laga eru nokkrir valinkunnir, Schubert, ómar Óskarsson, Otis Blackwell, Jó- hann G. , Magnús Kjartansson, Jóhann Helgason og Lilli Popp, sem mun vera 17 ára náttúru- barn i tónlist vestur á Patreks- firði, að sögn Hauka. Hins vegar vissu þeir ekki hvaö hann heitir réttu nafni, þótt ærin ástæða væri til, þar sem lagið hans, Kvartmiluklúbburinn, er prýði- legt. Um kveðskapinn sjá Krist- inn Kristinsson, Jóhann Helga- son, Jóhann G., Magnús Kjart- ansson og Þorsteinn Eggerts- son. Hreint ekki dýr kveðskap- ur, en glettin og ætlað það hlut- verk að bæta geð manna sem hann gerir yfirleitt. Eins og fyrr ségir er hér um hreina Haukaplötu að ræöa og það raunar svo mjög að ekki hefur þótt ástæða til aö fegra rödd Gunnlaugs Melsteð á nokkurn hátt. Enda væri það ekki i HáukastiFaö gerá rödd hans tæra og það er hún sannar- lega ekki. —HM Fyrst á röngunni: EKTA HAUKAPLATA Gagnrýnendur velja myndir: RJÓMINN AF ÍS- LENZKRI MYNDLIST? A laugardag var opnuð nýstár- leg listsýning á Kjarvalsstöðum. Listgagnrýnepdur völdu 75 lista- verk af sýningum liðins árs og settu upp sýningu, þannig að lita má á þessa sýningu sem rjómann af islenzkri myndlist siðasta árs af einka- og samsýningum. Listamennirnir sem þarna sýna eru 16 og eru 3-7 verk eftir hvern TRULOF- HRINGAR Fljót afgreiösla jSendum gegn póstkröfu Guðmundur Þorsteinsson gullsmiöur ^Bankastræti 12, Reykjavik. j þeirra. Þeir eru :Gunnar örn, Kristján Daviðsson, Ragnheiður Ream, Haukur Dór, Hjörleifur Sigurösson, Asgeröur Búadóttir, Sigurjón Ólafsson, Torfi Jónsson, Richard Valtingojer, Þórður Hall, Kristján Kristjánsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Magnús Kjartansson, Karl Kvaran, Jó- hannes Geir og Magnús Péturs- son. —hm Tækni/Vísindi > 1. Rannsóknir þær sem nú eru gerðar á Veddelselnum snúast aöallega um hæfni hans til þess að vera lengi i kafi súrefnislaus og köfunargetu hans. Leyndardómur Veddel selsins 2. 2. Visindamenn frá Skripps hafrannsóknarstofnuninni i San Diego rei stu rannsóknarstöö á heimskautaiSnum. 79S-2. 4. Niöurstööur þessara rann- sókna sýndu aö dýr þessi eru fær um aö gera hluti, sem visindin geta ekki enn skýrt svo ' viðunandi sé. _. 3. Visindamennirnir veiddu seli lifandi, settu á þá sendi og mælitæki og gátu þvi fylgst meö sundhraöa og dýpinu sem selirnir voru á.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.