Alþýðublaðið - 28.01.1977, Blaðsíða 14
14 LISTIR/MENNING
Föstudagur 28. janúar 1977 SKÍ.“'.
Kjarvalsstaðir:
Lofsvert framtak veflistarmanna
á Norðurlöndum
Þann 29. janúar
verður opnuð að Kjar-
-valsstöðum vefnaðar-
sýning, og verða þar
sýnd verk frá Norður-
löndum.
A sýning þessi sér nokkra
forsögu, þar sem tvö ár eru liðin
siöan vinnuhópur ’veflistar-
manna i Danmörku kom saman
til aö leggja drög aö stórri sýn-
ingu sem gæti gefið hugmynd
um það sem væri að gerast i
veflist á Noröurlöndum.
Hlaut þessi hugmynd lista-
mannanna góöar undirtektir og
annaðist félag Textilhönnuöa
undirbúning sýningarinnar
fyrir fsland hönd. Skyldi sýn-
inginfara fram á 3ja ára fresti,
og feröast um öll Noröurlöndin.
Meö styrk frá Norræna
menningarmálasjóönum og
annarri fyrirgreiðslu var siðan
lagður grundvöllur fyrir þessari
sýningu, sem nú er aö hefjast á
Kjarvalsstöðum.
Auglýst var eftir verkum og
skipuö nefnd kunnáttumanna
frá öllum Norðuröndum. Sat As-
gerður Búadóttir i henni fyrir
Islands hönd. Alls bárust nefnd-
inni 665 verk hvaðanæva að, og
sýnir það eitt grósku veflistar-
innar á Norðurlöndunum. Úr
þessum fjölda voru valin 116
verk til sýningar, þar af 9 eftir
islenzka listamenn, en alls 16 ís-
lendingar sendu verk sin inn.
Hófst sýningin sfðan i Lista-
safninu i Afaborg þann 26. júni
sl. sumar. Þaðan var fariö með
hana til Hövi ködden Lista-
miðstöðvarinnar i Osló, siðan tii
listasafnsins i Abo og loks að
Kjarvalsstöðum. Héðan fer hún
svo til Listaskálans i Færeyjum
og er ferðinni þar með lokið.
Listamenn þeir sem að
sýningunni standa eru 95 talsins
og spanna verk þeirra yfir
myndvefnað, teppi, ásaum tau-
þrykk, Patchwork teppi,
macramé, rýjateppi, batik,
prjóngóbrlin, ofinn skúlptúr og
alls konar blandaða veftækni.
Þetta ætti þvi að vera hin fróð-
legasta sýning fyrir þá sem hafa
áhuga á hvers konar handa-
vinnu, og reyndar alla sem hafa
yndi af að skoða fagra hluti.
Gagnrýnendur allir hafa lokiö
miklu lofsorði á sýninguna og á
Kjarvalsstöðum gefur að llta
úrklippur úr erlendum blöðum
þar sem sýningarinnar er
minnzt. Eru þau skrif mjög á
eina lund og farið viðurkenning-
arorðum um veflistarsýning-
una. Islenzku verkanna er oft
getið sérstaklega og farið um
þau lofsamlegum orðum.
Styrkir til sýningarinnar bár-
ust frá Menntamálaráöuneyti
og Menntamálaráði. Listráð að
Kjarvalsstöðum hýsir hana og
hefur séð um ýmsa fyrir-
greiðslu, en undirbúning og
uppsetningu hafa þær Asgerður
Búadóttir, Þorbjörg Þórðar-
dóttir, Sigrún Sverrisdóttir og
Ragna Róbertsdóttir.
Þess má geta, að Flugleiðir
munu veita fólki utan af landi
sérstakan helgarafslátt meðan
á sýningunni stendur, en henni
lýkur þann 20. febrúar n.k.
—JSS
A NORRÆNNI VEFLIST
Þær Asgerður Búadóttir, Þorbjörg Þórðardóttir, Sigrúii Sverris-
dóttir og Ragna Róbertsdóttir virða fyrir sér eitt verkanna á
sýningunni.
A sýningunni er f jöldinn ailur af fallegum teppum og dúkum, En þar
eru einnig margir skemmtilegir hlutir, svo sem ofnar brúður, jurtir
og svo þessi bráðsniðuga hæna sem sat á stalli i miðjum salnum.
Hana gerði úlla Aström.
Séö yfir hluta af sýningarsalnum. Fremst á myndinni er nokkuð óvenjulegt, en fallegt verk eftir
sænsku listakonuna Kazuko Tamaru.
FALLEG 0G YFIRGRIPSMIKIL SYNING
Hringið til okkar
og pantið föst'
hverfi til að
selja blaðið í.
Alþýðublaðið -
afgreiðsla
sími 14900
Tækni/Vísindi
I þessari viku: Skýringar á isöldum 3.
Þvi miður hefur ekki veriö unnt
að aldursgreina leifar frá jökul-
skeiðunum lengra aftur en
50.000 ár, — sem er of lltið til
þess að hægt sé aö telja fullgild-
ar sannanir fengnar.
Milankovitch-kenningin um or-
sakir Isalda hefur heiliað marga
visindamenn, en hingað tíl hefur
skort sannanir til þess að sann-
færa menn endanlega.
Það sem vantaði var aðferð til
þess að tengja nákvæmlega
tfmabil ísaldanna við þær
breytingar sem orðið hafa á
braut jarðar um sólu og stjörnu-
fræðingar geta rciknað ná-
Lkvæmlega út.
Nylega kom i Ijós að upp
lýsinga var viðar að leita
þ.e.a.s. i borkjörnum af sjávar
botni og kóralklettum i fjöru
borði.