Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 24.11.1977, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 24. nóvember 1977 í Hreinn Halldórsson heidradur A fundi i stjórn Starfs- mannafélags Reykja- víkurborgar þann 18. nóv- ember var ákveöið aö heiðra einn félagsmann- inn, Hrein Halldórsson, Evrópumeistara í kúlu- varpi með peningagjöf að upphæð krónur 250.000. Stjórn félagsins vildi með þessu veita Hreini viðurkenningu fyrir einstakt afrek og frábæra þraut- seigju. Á árshátið Starfsmannafélágs Reykjavikurborgar þann 18-fflóv- ember var Hreini HalldóMK'ni svo veitt þessi viðurkenninjW Á myndinni sézt, er ÞórWlur H-álldórsson, formaður SflE-fs- mannafélagsins óskar HreaH til hamingju. fí Flóamarkadur í Galleri Sólon Islandus Næstkomandi fimmtu- dag og föstudag verður haldinn í Galleri Sólon íslandus flóamarkaður á vegum nema i Myndlistar- og handíðaskólanum. Eru þar á ferðinni þriðjja árs nemar sem eru að safna fyrir námsferð sem farin verður um páskana. Verður margt um góða muni á boðstólum, svo sem fatn- að, plötur, bækur og mikið úrval af skófatnaði. Þess skal getið að hér er ekki um að ræða hinn ár- lega basar skólans, hann verður haldinn eftir áramót. —KIE Delta Kappa Gamma á íslandi Á síðustu árum hafa alþjóðleg félagssamtök kvenna í fræðslustörfum, Delta Kappa Gamma, ver- ið að breiðast út um heim- inn. Hér á landi hafa nú þegar verið stofnaðar þrjár deildir, tvær á Reykjavíkursvæðinu og ein við Eyjafjörð. Markmið samtakanna eru m.a.: — Að efla starfsáhuga og stöðu kvenna á sviði menntamála. — Að stuöla að æskilegri laga- setningu um menntamál. — Að fræða félaga um það sem er efst á baugi i þjóðfélaginu og stuðla með þvi að virkari þátttöku þeirra i málum samfélagsins. Nýlega var haldið fyrsta lands- þing samtakanna. 1 stjórn eru Þuriður J. Kristjánsdóttir, prófessor, Ingibjörg Auðuns- dóttir, kennari, Pálina Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri, Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri, Elin ólafsdóttir, lifefnafræðingur og Anna Kristjánsdóttir, námsstjóri. Siðastliðinn vetur var Frum- varp til laga um fullorðinsfræðslu rættgaumgæfilega i samtökunum og tillögur til breytinga lagöar fyrir viðkomandi menntamála- nefnd á Alþingi. Ætlunin er að gera öðrum frumvörpum er snerta menntamál sömu skil. Samtökin hafa sent eftirfarandi áskorun til forystumanna stjórn- málaflokkanna og til kjördæma- ráða: ,,Eins og yður er kunnugt er hlutdeild islenzkra kvenna i þjóð- málum og sveitarstjórnarmálum mun minni en i þeim löndum hins vestræna heims sem við teljum okkur helzt eiga samstöðu með. Má i þvi sambandi benda á að einungis 5% islenzkra alþingis- manna eru konur, i Danmörku eru rúm 16% þingmanna konur og á hinum Norðurlöndunum er hlut- fallið hærra. Þvi beina Islenzkar konur i Delta Kappa Gamma samtökun- um, alþjóðlegu félagi kvenna i fræðslustörfum, þeim tilmælum til stjórnmálaflokkannan að þeir hvetji og styðji konur til framboðs við komandi kosningar til Alþingis svo og til bæjar- og sveitarstjórna.” Pólska grafíksýningin á Kjarvalsstödum vekur athygli Nú hefur sýning sú á nýrri pólskri grafik sem Listráð að Kjarvalsstöðum stendur fyrir, staöið yfir i rúma viku. A henni eru alls 142 verk eftir 34 lista- menn o'g hefur aðsókn veriö góð og undirtektir gagnrýnenda hin- ar beztu. Selst hafa alls 85 verk og mun það vera einhvers konar met þegar um grafik er að ræða. I sambandi við þessa sýningu hafa þegar veriö haldnir fyrir- lestrar og sunnudaginn 20. þ.m. var leikin pólsk nútimatónlist I Austursal Kjarvalsstaða og heldur sú dagskrá áfram þessa viku, en sýningin verður væntanlega framlengd fram I desember. Dagskráin er sem hér segir: Miðvikudaginn 23. nóv. kl. 20.30 — Kvikmyndir um pólska myndlist, þ. á.m. Symbólistann Malczewski, tréristuhefðina i Póllandi og Framhald á bls. 10 Getraunaspá Alþýdubladsins: Stígum á stokk og strengjum heit i Íb riöum ekki feitum frá spánni i siðustu , fengum aðeins n rétta. Margir leikir m seðli komu á óvart stað þess að afsaka ir stigum við á stokk rengjum þess heit að a á brattann, stefna aftur hátt, þ.e. verðlaun innan fjögurra vikna. hjá okkur að eru 9 réttir. Þetta er að vísu óheppi- leg vika til að gefa út slik- ar yfirlýsingar, því seðill vikunnar er mjög erfiður bæði í fyrstu og annarri og leika saman efstu liðin deild. Arsenal-Derby Apsenal hefur gengið vel i leikjum sinum undanfarið. Þeir ættu tæp^st að vera i vandræðum með óöruggt lið Derby á heimavelli sinum i Lundúnum. Heimasigur. Aston Villa-Newcastle. Sömu sögu er að segja hér. Villa verður vart i vandræðum með slakt Newcastle-liðið, en það situr nú eitt og yfirgefið á botninum með aðeins 6 stig eftir 16 leiki og er þremur stigum á eftir næst neðsta liðinu. 1 Bristol City-Middlesbro. ' Þessi leikur er næsta jafnteflislegur enda eru liðin mikil jafn- teflislið. Middlesbro er heldur sterkara lið, en jafntefli við Liver- pool á laugardaginn jók mjög sjálfstraust leikmanna Bristol City. Við spáum jafntefli. Everton-Coventry. Hérna eigast við lið númer 2.-3. i fyrstu deildinni. Coventry hefur komið ótrúlega mikið á óvart i vetur og er nú aðeins tveim- ur stigum á eftir Forest, sem trónar i efsta sætinu. Hins vegar er Everton ekki mikið fyrir að gefa eftir. Liðin hafa jafnmörg stig en við spáum þvi, að heimavöllur Everton verði þeim það mikil hvatning, að sigur náist. Jafntefli til vara. (Fyrsti tvöfaldi leik- urinn.) Takmarkið þessu sinni © The Football League Leiklr 26. nóvember 1977 Arsenal - Derby ....... Aston Villa - Newcastle . Bristol City - Middlesbro Everton - Coventry .... Leicester - Liverpool . . Man. City - Chelsea ... Norwich - Birmingham .. Nott’m Forest - W.B.A. . . Q.P.R. - Manchester Utd. West Ham - Leeds .... Wolves - Ipswich ...... Bolton - Tottenham .... IK ZK^ Leicester-Liverpool. Liverpool er komið niður i 6. sæti fyrstu deildarinnar og virðist vera að missa af lestinni. Leicester hefur aðeins tekið á i siðustu leikjum, náði nú siðast jafntefli á móti Birmingham i Birming- ham. Það er þó trú vor, að Liverpool takist að ná báðum stigun- um þó á útivelli sé. Manchester City-Chelsea. City er illvigt lið á heimavelli, áhorfendurnir sjá um það. Þó svo Chelsea færisthægt og hægt upp af botninum og eigi reyndar ekki skilið að vera i fallhættu, missa þeir bæði stigin i Manchester. Norwich-Birmingham. Það er leiðinlegt að spá fyrir um þennan leik, liðin eru hvorki litrik né afgerandi. Norwich verður þó heldur nærri sigrinum og spáin er heimasigur. Notthingham Forest-WBA. Þetta verður toppleikur þvi þarna mætast topplið. Forest tap- aði sinum leik á laugardaginn var og WBA missti stig. Það er þó engin ástæða til að ætla að liðin séu i öldudal, andstæðingarnir voru verðugir. Liklegast er, að liðin skipti með sér stigum að þessu sinni, en til vara spáum við jafntefli. (Annar tvöfaldi leik- urinn.) QPR-Manchester United. Bæði eru liðin i neðri helmingi deildarinnar, QPR I beinni fallhættu. United vann góðan sigur á Norwich á laugardaginn var og er það aðdáendum liðsins von um bjartari daga. Við spá- um útisigri en jafntefli til vara. (Þriöji tvöfaldileikurinn.) West Ham-Leeds. Leeds afrekaði það um siðustu helgi að sigra Forest. Það af- rek hafði talsverð áhrif á spá vora, en við spáðum Leeds sigri að þessu sinni. Leikurinn gæti allt eins orðið jafntefli. Wolves-Ipswich. Ipswich var af sérfræöingum spáð mikilli velgengni á þessu leiktimabili en liðið hefur brugðizt vonunum og hangir um miðja deildina. Við spáum jafntefli, en ef nokkuð er verða Úlfarnir skæðari i leiknum. Bolton-Tottenham. Þetta verður tvimælalaust leikur vikunnar. Hér eigast við tvö langbeztu liðin i annarri deildinni og er óhætt áð spá þvi, að þau flytjast bæði upp i fyrstu deild eftir þetta keppnistimabil. Bolton er sterkt lið á heimavelli og vinnur leikinn sennilega, en til vara spáum við jafntefli. (Fjórði og siðasti tvöfaldi leikurinn.) L —ATA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.