Alþýðublaðið - 03.05.1962, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.05.1962, Blaðsíða 1
 43. árg. — Fimmtudagur 3. maí 1962 — 99. tbl. SJA BAKSlÐU /WWWWWWWWWWWWWWWWVWWWMWWWWWWmWWWWWWWWWWWWHWWWWWWWMiWWW SÁTTASEMJARI RÍKISINS Torfl Iijartarson lagði í gær fram miðl- unartillögu í togaradeilunni. Ger- ir tillagan ráð fyrir 13% hækkoa á fastakaupi undirmanna á togurum, lægri lilut skipverja af heildaraöia verði fisks og hrogna, þegar afli er seldur erlendis en hærri hlut e£ selt-er innan lands. Samkvæmt miðlunartillögunni skal mánaðarkaup vera sem hér segir: a) Hásetar, kyndarar, aðstoðar- menn við dieselvél, 2. mat- sveinar kr. 3.800 b) Netanienn kr. 4.300. c) Bátsmenn og 1. matsveinn kr. 4.900. Þetta er um það bil 13% hækk- un frá því sem kaupið áður var, t. d. var kaup háseta kr. 3400 á mán. samkvæmt gömlu samning- unum. Um aflahlut á ísfiskveiðum til sölu erlendis segir svo í miðlun- ar tillögunni: „Þegar veitt er í s til sölu á er lendum markaði skal greiða greiða skipverjum 17 % af heildarsölu- verði fisks og hrogna að frádregn um 27% af söluverðinu. Aflaverð-, laun þessi skiptasí jafnt mllli allra . skipverja þó aldrei í fleiri en 33 staði”. í gömlu sanmingunum var út- gerðarmönnum aðeins lieimilað- ur 17% frádráttur þannig, að hér er um atriði að ræða, er skerðir kjör togarasjómanna. Um aflaverðlaun, þegar landaS er innan lands segir svo m. a. i miðlunartillögunni: „Þegar veitt er í ís til sölu á er- seldur innan lands skal greiða skip verjum 17% af heildarsöluveröl fisks og hrogna eins og það er á- kveðið af Verðlagsráði sjávarút- vegsins að frádregnum kostnaði við uppskipun kr. 0.15 á kg”. Hér er sem sagt gert ráð fyrir að sjómenn fái sinn hlut af sama verði og útgerðarmenn fá fyrir fiskinn en áður var sjómönnum reiknað lægra verð fyrir fiskinn. Unðanfarið hefur hlútur sjó- manna t. d. verið reiknaður af . l.GS pr. kg. af þorski en nú get- verðið á þorski farið upp I 3.18 í fyrsta flokki. Gert er ráð fyrir 4% kauphækk un 1. júní n. k. Samningurinn skal gilda til 1. júní 1963. Miðlunartillagan gerir ráð fyr- ir ýmsum fleiri breytingum á samn. ingunum. Félög sjómanna, sem að- ild eiga að deilunni við togaraeig- endur eru þessi: Sjómannafélag Rvíkur, Sjómannafélag Hafnar- Framliald á 14. «i5u. Ríkissfjórnin stöövar verkfræðinga með bráðabirgðalögum: RÍKISSTJÓRNIN gaf í gær út bráðabirgðalög, sem bannar hina nýju gjaldskrá Verkfræðingafélags íslands, er gilda átti frá 1. maí. Segir í bráðabirgðalögunum, að hin nýja gjaldskrá mundi liafa hækkað tímakaup verkfræðinga um allt að 320%. Fréttatilkynning atvinnumála- ráðuneytisins um bráðabirgðalögin . fer hér á eftir: „Forseti íslands hefur í dag, samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinn ar, sett bráðabirgðalög um há- marksþóknun fyrir verkfræðistörf, á þessa leiö: Fórseti íslands gjörir kunnugt: Ríkisstjórnin hefur tjáð mér, að greiðslur fyrir flest störf verk- fræðinga £ T 'g'- ":'’.:isins hafi und- anfarið verið ákveðnar með hlið- sjón af tímakaupi samkvæmt gjald- skrá Verkfræðingafélags íslands, frá 19. apríl 1955, með síðari verð- lagsuppbótum samkvæmt lögum. Verkfæðingafélag íslands hafi nú gefið út nýja gjaldskrá, sem gildi frá 1. þ.m., þar sem tímakaupi er ætlað að hækka allt að 320%, auk þess sem þóknun fyrir ákvæðis- vinnu er ætlað að hækka verulega. Slík hækkun á kaupi verkfræð- inga myndi óhjákvæmilega valda stórkostlegri röskun á launamál- um bæði hjá ríki og öðrum aðilum og auk þess óeðlilegum kostnaðar- auka við margvísleg rannsóknar- störf og framkvæmdir. Því telur ríkisstjórnin, að brýna nauSayii beri til í.Z Luiuií . . veg fyrir að nefnd gjaldskrá komi til framkvæmda. Fyrir því eru hér með sett bráða- birgðalög, samkvæmt 28. gr. stjórn arskrárinnar, á þessa leið: 1. gr. Þóknun verkfræðinga:fyrir verk fræðistörf, unnin í ákvæðisvinnu eða tímavinnu, skal eigi vera hærri en ákveðið er í gjaldskrá Verkfræð ingafélags íslands, frá 19. apríl 1955, að viðbættum lögleyfðum uppbótum. Leggi verkkaupandi til vinnuað- stöðu verkfræðings, skal sú vinnu- Frambald á 14. síðu. ★ HÚSAVÍK, 2. níaf. ER ÞORGRIMUR Maríusson, sjóniaður var í nótt að draga fyr ir loðnu fyrir botni Skjálfanda- flóa, þar sem heitir Sandur, fékk hann óvænta veiöi í nótina. Það var minkur, sem flæktist í nótinni og drukknaði á leið til lands. Hefur þess aldrei áður heyrzt getið, að minkur feng- ist í dragnet, og fram að þessu hefur Þorgrímur ekki fengið neinar heimsóknir annarra ó- væntra dýra en minksins. E.J. o <e> a/ o u o u> w * tar * v w v w +> w o>- w í

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.