Vísir - 08.02.1969, Blaðsíða 11
V1SIR . LaugArdagur 8. febrúar 1969.
11
m EH □ BORGIN i ctOLÆJ
ijTfmnTp]
STEINKISTA PALS
BISKOPS
Tvær myndir eftir Ósvald Knud
sen verða sýndar í dagskrá
sjonvarpsins í kvöld kl. 20.25.
Fyrri myndin er Skálholts-
kvikmynd og sýnir m.a., þegar
steinkista Páls biskups var grafin
upp. Þá er einnig sýnt hátíðar-
haldið í Skálholti í tilefni 900
ára afmælis Skálholtskirkju, og
þegar hornsteinn var lagöur að
nýju kirkj'unni.
Síðari kvikmyndin fjallar um
séra Friðrik Friðriksson og starf
hans í K.F.U.M. Ósvaldur tók þá
kvikmvnd á árunum 1954 — 1955
nokkru áður en séra Friðrik varð
blindur. Myndatakan er víða að,
m.a. frá sumarbústöðum K.F.U.M.
£ Kambárseli og í Svínadal. Þulur
er dr. Kristján Eldjárn.
Ósvaldur Knudsen hefur gert
upp undir 30 kvikmyndir. Síðasta
verkefni hans var að ganga frá
kvikmynd um Pál ísólfsson, tón-
skáld en þá mynd hefur hann
verið að taka annað slagiö á und
anförnum tíu árum.
MARIA I BALLETT-
SKÚLANÖM
Sjónvarp sunnudag.
Á morgun kl. 18.15 verður sýnd
kvikmynd í „Stundinni okkar“,
sem sjónvarpið lét gera, um nám
ungrar stúlku Maríu Gísladóttur,
við Listdansskóla Þjóðleikhússins.
María er 15 ára gömul og auk
ballettsins er hún í Gagnfræða-
skóla Garðahrepps. Hún hefur ver
ið í ballett í fjögur ár, og ef ekk-
ert bregzt, eins og hún segir,
heldur hún til Englands eftir gagn
fræðapróf til framhaldsnáms í
ballett.
— Kvikmyndin gengur út á
þaö, segir María, aö þaö er lítil
stelpa, sem fer í fyrsta sinn í
ballettskólann. Síðan er sýnt þeg
ar hún er í fyrsta, öðrum, þriöja
og fjórða bekk. Hvernig sporin
breytast og hvernig þetta þróast.
Litlu stelpuna leikur Helga Bem-
höft, en eftir að hún hefur verið
sýnd á fyrsta ári tek ég við.
Það er strangur vinnudagur hjá
þeim, sem leggja fyrir sig ballett
nám auk annars náms því mæta
þarf £ skólanum tvisvar á dag
alla daga nema um helgar en
þá notar Mar£a tímann til að
slappa af.
PIERRE OG JEAN
Utvarpsleikritið kl. 20.20 £
kvöld heitir Pierre og Jean, og
það eru engir smákarlar, sem að
þvi standa, sagði Þorsteinn Ö.
Stephensen leiklistarstjóri út-
varpsins i viðtali um laugardags-
leikritið.
Það er unnið upp úr sögu eftir
Maupassant af öðrum merkum
manni, sem heitir Arthur Adam
ov, franskt leikritaskáld. Eins og
kunnugt er samdi Maupassant ó-
sköpin öll af smásögum, einnig
lengri sögur og þetta leikrit er
unnið upp úr einni þeirra, en hún
er talin vera hans bezta og merk
asta skáldsaga. Að sumu leyti
vegna þess, að hann skrifaði
merkilegan formála að þessari
sögu, £ honum talar hann um af
stöðu sfna til smásögunnar og
skáldsögunnar og bókmenntanna
yfirleitt og það sem hann hefur
lært af samtiðarmanni sinum
Flaubert.
Sagan fjallar um vissar kring-
umstæðu-, sem hljótast af ást-
inni, í þessu tilfelli £ fjölskyldu
tveggja bræðra, Pierre og Jean.
í hlutverkum þeirra eru Þor-
steinn Gunnarsson og Borgar
Garðarsson en -foreldra þeirra
leika Guðbjörg Þorbjarnardóttir
og Þorsteinn Ö. Stephensen Leik-
stjóri er Gísli Halldórsson.
FORELDRAR MINIR
Annað kvöld kl. 20.10 flytur
Þórunn Elfa Magnúsdóttir fyrsta
minningarþátt sinn f útvarpið,
og nefnist hann Foreldrar minir.
— Þetta er frásögn af foreldr-
um minum, kynningu þeirra, og
búskaparbyrjun í Revkjavfk, við
fábreytt og erfið lifskjör, á þeim
árum, þegar Reykjavik var að
taka fyrstu skrefin i áttina til
þess að veröa höfuðborg. Jafn-
framt er þetta tímabilslýsing, og
drepið á hvaða stærri mannvirkj-
um var komið upp á þessum tfm-
um og faöir minn vann aö eip-
hverju leyti við.
Birzt hefur 21 bók eftir Þór-
unni Elfu Magnúsdóttur, sú síð-
asta var Kóngur vill sigla, sem
kom út í vetur. Auk þess hefur
Þórunn Elfa flutt mikið magn af
efni í útvarp og \ýmislegt efni
hefur birzt eftir hana í ýmsum
blöðum og tímaritum,
— Á döfinni eru ýmiss konar
verkefni, segir Þórunn Elfa, en
á seinni mánuðum hef ég unnið
að minningaþáttunum.
OTVARP
SJÚNVARP
Laugardagur 8. febrúar.
16.30 Endurtekið 'efni. Réttur
settur. Þátturinn er saminn og
fluttur af laganemum við Háskóla
íslands. Húsbyggjandi fer fram á
að iðnaðarmaður vlnni tiitekið
verk innan ákveðins tíma, en síð
ar ris ágreiningur með þeim um
greiðslu fyrir verkið. Réttað er
og dæmt f málinu. Áður sýnt 20.
aprfi 1968. 17.55 Skyndihjálp. —
18.05 íþróttir. Hlé. 20.00 Fréttir.
20.25 íslenzkar kvikmyndir (6s-
valdur Knudsen): Ská'holt: Upp-
gröftur og rannsókn hins gamla
kirkjugrunns i Skalholtl. Einnig
eru svipmyndir frá 900 ára hátíð
Skálholts 1956. Þulur: Dr. Kristj-
án Eidjám. - Séra Friðrik Frið-
riksson og starf hans f K.F.U.M.
Þulur: Dr. Kristján Eldjám. —
20.55 Grín úr gömlum myndum.
Bob Monkhouse kynnir. Þýðandi
Ingibjörg Jónsdóttir. 21.20 Smith
fer til Washington. Bandarísk
kvikmynd. Höfundur og leikstjóri:
Frank Capra. Aðalhiutverk: Jam-
es Stewart, Jean Arthur, Claude
Raines, Edward Amold og Thom-
as Mitchell. Þýðandi: Júlíus Magn
ús^on. 23.25 Dagskrárlok.
MESSUR
Laugardagur 8. febrúar.
12.00 Hádegisútvarp. 13.00 Oska-
lög sjúklinga. Kristín Sveinbjöms
dóttir kynnir. 14.30 Ung kynslóð
Gunnar Svavarsson og Ingimund-
ur Sigurpálsson sjá um þáttinn.
15.00 Fréttir. — Tónleikar. —
15.20 Um litla stund. Jónas Jón-
asson ræðir í sjötta sinn við Áma
Óla ritstjóra, sem heldur áfram
að segja sögu Laugarness. 15.50
Harnjonikuspil. 16.15 Yeðurfregn-
ir. Á nótum aeskunnar. Dóra
Ingvadóttir og Pétur Steingríms-'1i
son kynna nýjustu dægurlögin.
17.00 Fréttir. Tómstundaþáttur
barna og unglinga í umsjá Jóns
Pálssonar. Alda Friöriksdóttir
handavinnukennari flytur þennan
þátt. 17.30 Þættir úr sögu fom-
aldar. Heimir Þorleifsson mennta
skólakennari flvtur fyrri þátt
sinn um Grikki: Eftir fall Mykenu
Sveitamenn gerast sæfarendur.
17.50 Söngvar i léttum tón. —
18.20 Tilkynningar. 18.45 Veður-
fregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00
Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Dag-
legt lif. Ámi Gunnarsson frétta-
maður sér um þáttinn. 20.00
Rómönsk lög af léttara tagi. y
ítalskir listam. flytja. 20.20 Leik-
rit: „Pierre og Jean“ eftir Arthur
Adamov. Samið upp úr skáldsögu
eftir Guy de Maupassant. Þýð-
andi: Torfey Steinsdóttir. Leik-
stjóri: Gísli Halldórsson. 21.30
Lúðrasveitin Svanur leikur í út-
varpssal. Stjómandi Jón Sigurðs-
son. Einleikari á klarínettu: Ein-
ar Jóhannesson. 22.00 Fréttir. —
22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiu
sálma (6). 22.25 Danslög. 23.55
Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.
------
Dómkirkjan.
Prestvígsla kl. 11. Biskup íslands
herra Sigurbjörn Einarsson vígir
Guðmund Ó. Ólafsson. Séra Ing-
þór Indriðason lýsir vígsluXVígslu
vottar auk hans séra Garöar Þor-
steinsson prófastur, séra Bragi
Friðriksson og séra Lárus Hall-
dórsson. Hinn nývígði prestur
prédikar. Bamasamkoma kl. 11
í sámkomusal Miðbæjarbamaskól
ans. Séra Jón Auðuns.
Hallgrímskirkja.
Bamaguðsþjónusta kl. 10. Systir
Unnur Halldórsdóttir. Messa kl.
11. Dr. Jakob JónSsori. Messa kl.
5. Ólafur Ólafsson kristniboði
predikar, 'Kirkjúkör Neskirkju
syngur Jón ísleifsson stjómar. —
Að lokinni messu verður haldinn
aðalfundur „Hins íslenzka Biblíu-
félags". Séra Ragnar Fjalar Lár-
usson.
Elliheimilið Grund.
Guðsþjónusta kl. 10 fyrir hádegi.
Séra Magnús Guðmundsson fyrr-
verandi prófastur messar.
Ásprestakall.
Messa i Laugarásbíói kl. 1.30.
Bamasamkoma kl. 11. Séra Grim-
ur Grimsson.
MýrarhúsaskólL
Bamasamkoma kl. 10.30. Séra
Frank M. Halldórsson.
Neskirkja.
Guðsþjónusta kl. 11. Bamasam-
koma fellur niður. Séra Páll Þor-
leifsson.
LangholtsprestakalL
Bamasamkoma kl. 10.30. Guðs-
þjónusta kl. 2. Biblíudagurinn.
Tekið á móti gjöfum til Bibliufé-
lagsins. Séra Árelius Níelsson.
Langholtsprestakall.
Aðalfundur Bræðrafélagsins verð-
ur i safnaðarheimilinu þriðjudag-
inn 11. febrúar kl. 8.30. Óska-
stundin verður á sunnudag kl. 4.
BústaðaprestakalL
Baraasamkoma i Réttarholtsskóla
kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2.
Séra Ólafur Skúlason.
Háteigsklrkja.
Barnasamkoma kl. 10. Séra Jón
Þorvarðsson. Messa kl. 2. Séra
Arngrímur Jónsson.
Laugameskirkja.
Messa kl. 2. Séra Gísli Brynjólfs-
son. Bamaguðsþjónusta kl. 10.
Séra Garöar Svavarsson.
Fríkirkjan.
Barnasamkoma kl. 10.30. —
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2.
Séra Þorsteinn Björnsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
Barnasamkoma með upplestri og
kvikmyndasýningu kl. 11. Vænt-
anleg fermingarbörn á næsta
ári komi til viðtals í kirkjunni
sunnudag kl. 10.30. Séra Bragi
Benediktsson.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messa kl. 2 Séra Helgi Tryggva-
son yfirkennari messar. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kennarar og
nemendur úr Öldutúnsskóla hafa
barnaguðsbjónustuna á hendi. —
Séra Gárðar borsteinsson.
Kvenfélag Noskirkju heldur
fund þriðjudaginn 11. febrúar kl.
8.30 i félagsheimilinu. Skemmti-
atriði — Kaffi. — Stjómin.
SLYS:
Slysavarðstofan i Borgarspital-
anum. Opin allan sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Simi
81212.
S JÚKRABIFREIÐ:
Simi 11100 I Reýkjavík og Kópa-
vogi. Simi 51336 f Hafnarfirði.
LÆKNIR:
Ef ekki næst ! heimilislækni er
tekið á móti vitjanabeiðnum i
síma 11510 á skrifstofutima. —
Læknavaktin er öll kvöld og næt
ur virka daga og allan sólarhring
inn um helgar * slma 21230. -
Helgarvarzla íHafnarfirði
til mánudagsmorguns 10. feb.:
Grímur Jónsson Ölduslóð 13, sími
52315.
LYFJABÚÐIR:
Kvöld- og helgidagavarzla er í
Borgarapóteki og Reykjavíkur-
apóteki til kl. 21 virka daga 10-21
helga daga.
Kópavogs- og Keflavíkurapótek
eru opin virka daga kl. 9-19,
laugardaga 9—14, helga daga
13—15. — Næturvarzla lyfjabúða
á Reykjavikursvæðinu er í Stór-
holti 1, simi 23245.
TILKYNNINGAR
Aðalfundur Hins Islenzka Biblíu
félags verður á Bibliudaginn, n.k.
sunnudag 9. þ.m., I Hallgríms
kirkju á Skólavörðuhæö að Iok-
inni síðdegismessu, er hefst kl. 5.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf. önnur mál. — Stjórain.
Kvenfélag Grensássóknar. —
Fundur í Breið gerðisskóla þriðju
daginn 11. febrúar kl. 8.30. Árið-
andi mál rætt Spurningakeppni.
Kvikmyndasýning.
Kvenfélag Ásprestakalls, opiö
hús fyrir eldra fólk í sókninni alla
þriðjudaga kl. 2—5 í Ásheimilinu
að Hólsvegi 17.
KALLI FRÆNDI