Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Vķsir

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Vķsir

						VÍSIR . Fimmtudagur 21. ágúst 1969.

Nýtt Íslandsmet í

spjótkasti kvenna

Arndís Björnsdóttir úr Kðpavogi

setti í gærdag nýtt íslandsmet í

spjótkasti, kastaöi spjótinu lengst

38.53 metra, en átti tvö önnur köst

betri en fyrra Islandsmet, sem

var aðeins nokkurra vikna gamalt

og átti Alda Helgadóttir úr Garöa-

hreppi það, 36.76.

Arndls byrjaði með 38.01 m, síð-

an 38.53 og loks kast, sem mældist

37.44 m.

Alda Helgadóttir keppti á móti

henni í gær, en náði „aðeins" 35.75

metra kasti. Eflaust hyggur Alda

þó á „hefndir" og er ekki ólíklegt

að þessar tvær stúlkur muni eiga

eftir aö heyja harðvítuga keppni 1

framtíðinni í þessari fallegu grein.

Erlenáur setti nýtt

met í kringlukasti

Erlendur Valdimarsson bætti í

gærdag Islandsmetið í kringlukasti,

sem sett var í október 1964 í Vest-

mannaeyjum af Hallgrími Jóns-

syni. Var metið 56.06 en þaö nýja

er 56.25. Erlendur átti tvö önnur

i köst,   svipuö,   fyrsta   kastið   var

I 55.62 og þá 55.59.

1    Afrek þetta mun vera 6. eða 7.

' bezta afrekið á Norðurlöndum, en

samkvæmt nýjasta Leichtatletik

munu .10—15 kringukastarar 1

heiminum hafa kastað yfir 60

metra markið, — en ekki er ósenni-

i legt að Erlendur bætist þeim hópi

áður, en mjög langt um líður.

Eitt "er víst, og ;þáð er að Er-

lendur sómir sér orðið vel á hvaöa

móti sem er í kringlukastinu. Norð-

urlandamet Ricky Bruch er 64.68

en næsti maður á Norðurlöndum er

Pentii Khama frá Finnlandi með

tæpa 60 metra, eða 59.80 metra.

Veðrið í gær var ekki það sem

kringlukastarar hér hafa kallað

„hagstætt", — veðrið var eðlilegt,

vindur aðeins um 3 vindstig, sól-

skin og hlýtt, en ofsarokið hefur

undanfarin ár verið það „hag-

stæða" fyrir kringlukast hér. Þess

skal getið að Erlendur er ekki lag-

inn „rokkastari", en hins vegar má

búast við að hann muni geta keppt

á innanfélagsmótum eitthvað fram

eftir haustinu og þá jafnvel bætt

árangur sinn. Evrópumeistaramótiö

upp úr miðjum september er hins

vegar það sem Erlendur keppir aö

um þessar mundir.

Sigurvegarar Víkings í II. deild ásamt formanni félagsins og þjálfara.

Víkingur aftur í /. deild

eftir fiórtán ára fjarveru

Úrslitin í 2. dcild v/ð Breiðablik buðu upp á stór-

kostleg atvik, spenning, og furbulega atbur&arás

LÍKLEGA á vítaspyrnan,  Logi   markvörður   Kópa-

sem færir Víking upp í 1.  vogs greip í sóknarmann

deild, eftir að veröa þrætu-  Víkings   innan  teigs,  og

epli lengi. Vítaspyrna á síð  boltinn sem skall í þver-

ustu mínútu f ærði Víking-

um sigurinn. Ekki aðeins

að deilt sé um hvort hér

hafi nokkuð gerzt, heldur

einnig hvort boltinn hafi

verið inni, þegar spyrnan

var framkvæmd. Hvort

tveggja var augljóst að

mati dómará og línuvarða,

slá og innan á stöng VAR

INNI, sögðu laganna verð-

ir, sem voru í gððri að-

stöðu.

„Ég gerði ekki neitt af mér",

sagði Logi Kristjánsson, markvörö-

ur Breiðabliks viss í sinni sök og

í svipaðan streng tóku félagar hans

í þessum vítaspyrnuleik.

Ekki treystir undirritaður sér til

vitaspyrnu, en alls urðu þær þrjár

í þessum leik, en hins vegar var

dómur Hannesar Þ. Sigurðssonar,

þegar Víkingar fengu vítaspyrn-

una á 26. mín. 1 seinni hálfleik,

fjarstæðukenndur, þar áttust tveir

menn við um boltann yzt i víta-

teignum, Breiðabliksmaðurinn sótti

að Vlkingnum, sem þegar I stað lét

sig detta faglega og fékk víta-

spyrnu. Hafliði Pétursson skoraði

þar örugglega 2:2 í stöng og inn.

Breiðabliksmenn skoruðu annars

fyrst sín mörk og höföu yfir í

hálfleik 2:0, tala -sem ekki gaf

rétta mynd af leiknum, þvl Vík-

ingar höfðu verið betri aðilinn.

Fyrra markið skoraöi Helgi Snorra-

son úr vítaspyrnu, sem var dæmd

réttilega eftir að einn yarnarmanna

Víkings kom í loftköstum á Guð-

mund   Þórðarson,   sem   átti   gott

að   dæma   um  réttmæti  þessarar 1 tækifæri    fyrir    framan    markið.

Li

:tr::í::;W^

I

Dömur!

Mest selda

sólgleraugnalag

Evrópu i dag

eru kringlóttu

tizkugleraugun

Eru allfaf fáanleg

i verzlunum

Umboðsm.: H. A. Tulinius

Þetta gerðist á 27. mín. og á 40.

mín. slapp hinn fljóti miðherji Jón

Ingi Ragnarsson, alltof lítiö notað-

ur í leiknum, inn fyrir og var ekki

að sökum að spyrja, að hann skor-

aöi 2:0.

Á 12. mín. leiksins skoraði lang-

bezti maður vallarins, Jóhannes

Tryggvason, glæsilega með skalla

upp úr hornspyrnu. Var þetta vel

gert og nú fyrst fóru Vikingar að

láta að sér kveða. Hins vegar

duttu Breiðabliksmenn niður og

voru einna líkastir þvl að vera

frosnir. Varnarmenn gátu jafnvel

ekki hreinsaö frá markinu nema

5—10 metra, en framlínan stóð

stjörf, ef boltinn barst til hennar.

Markið lá í loftinu og á 26. mín.

kom það sem sé, — en var nokkuð

hæpið. Hins vegar hefðu Vfkingar

getaö skorað með smáheppni í

öðrum tilvikum, enda þótt fram-

línuspiliö væri ekki beitt.

Framlengt var um 2x 15 mínútur

og þá var eins og Kópavogsmenn

vöknuðu til Hfsins og áttu tvö eða

þrjú dágóð tækifæri. Úrslitin komu

þvf eins og reiðarslag á síðustu

mínútunni, þegar Hannes benti í

þriðja sinn á vltapunktinn f þess-

um leik.

Víkingar eru sem sé f 1. deild

og leika þar meö 7 liðum öðrum

næsta ár. En Breiðablik fær annað

tækifæri og auðvitað verður það

ekki gefið, þegar þeir mæta botn-

liði 1, deildar i úrslitum um 8.

sætið í 1. deild að ári. Breiðabliks-

menn eru til alls líklegri, ungir og

Iifandi leikmenn með nokkra eldri

menn sér til trausts og halds. Vík-

1 ingar hafa nú verið í 2. deild 1 14

leikár, voru I 1. deild 1955, þegar

deildaskiptingin hófst, en féllu það

ár.

Hefur saga Víkings verið rósum

og þyrnum stráð á víxl, yngri

flokkar „lofað góðu" ár eftir ár,

en síðan hefur ekki tekizt að byggja

neitt úr efniviðnum í eldri flokk-

unum fyrr en nú að ungir og efni-

'egir leikmenn skipa liðið. Er i>~

hætt að óska Víkingi til hamingju

með 1. deildina, og jafnfram að

hvetja þá til dáða á komandi sumr-

um, því vonandi verða þau ilein

árin en eitt í 1. deildinni að þessu

sinni. — jbp —

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16