Vísir - 21.08.1969, Blaðsíða 2
r 2
V í SIR • Fimmtudagur 21. ágúst 1969.
.
| Nýtt íslandsmet í
; spiótkasti kvenna
! Amdís Björnsdóttir úr KOpavogi
setti í gærdag nýtt íslandsmet í
spjótkasti, kastaði spjótinu lengst
38.53 metra, en átti tvö önnur köst
betri en fyrra íslandsmet, sem
var aðeins nokkurra vikna gamalt
og átti Alda Helgadóttir úr Garða-
hreppi það, 36.76.
Arndts byrjaði með 38.01 m, síð-
an 38.53 og loks kast, sem mældist
37.44 m.
Alda Helgadóttir keppti á móti
henni í gær, en náði „aðeins“ 35.75
metra kasti. Eflaust hyggur Alda
þó á „hefndir" og er ekki ólíklegt
að þessar tvær stúlkur muni eiga
eftir að heyja harðvítuga keppni f
framtíðinni í þessari fallegu grein.
Erlenáur setfi nýtt
met í kringlukasti
Erlendur Valdimarsson bætti f
gærdag Islandsmetið í kringlukasti,
sem sett var í október 1964 í Vest-
mannaeyjum af Hallgrími Jóns-
syni. Var metið 56.06 en það nýja
er 56.25. Erlendur átti tvö önnur
köst, svipuð, fyrsta kastiö var
'■ 55.62 og þá 55.59.
■ Afrek þetta mun vera 6. eða 7.
bezta afrekið á Norðurlöndum, en
samkvæmt nýjasta Leichtatletik
munu 10—15 kringukastarar f
heiminum hafa kastað yfir 60
metra markið, — en ekki er ósenni-
legt að Erlendur bætist þeim hópi
áður, en mjög langt um líður.
Eitt er Víst, og þáð er að Er-
lendur sómir sér orðið vel á hvaða
móti sem er í kringlukastinu. Norð-
urlandamet Ricky Bruch er 64.68
en næsti maður á Norðurlöndum er
Pentii Khama frá Finnlandi með
tæpa 60 metra, eða 59.80 metra.
Veðrið f gær var ekki það sem
kringlukastarar hér hafa kallað
„hagstætt", — veðrið var eðlilegt,
vindur aðeins um 3 vindstig, sól-
skin og hlýtt, en ofsarokið hefur
undanfarin ár verið þaö „hag-
stæða“ fyrir kringlukast hér. Þess
skal getið að Erlendur er ekki lag-
inn „rokkastari", en hins vegar má
búast við að hann muni geta keppt
á innanfélagsmótum eitthvað fram
eftir haustinu og þá jafnvel bætt
árangur sinn. Evrópumeistaramótið
upp úr miðjum september er hins
vegar það sem Erlendur keppir að
um þessar mundir.
Sigurvegarar Víkings í II. deild ásamt formanni félagsins og þjálfara.
Víkingur aftur í 7. deild
eftir fjértán ára fjarveru
Urslifin / 2. deild vici Breiðablik buðu upp á stór-
kostleg atvik, spenning, og furðulega atburðarás
LÍKLEGA á vítaspyrnan,
sem færir Víking upp í 1.
deild, eftir að verða þrætu-
epli lengi. Vítaspyrna á síð
ustu mínútu færði Víking-
um sigurinn. Ekki aðeins
að deilt sé um hvort hér
hafi nokkuð gerzt, heldur
einnig hvort boltinn hafi
verið inni, þegar spyrnan
var framkvæmd. Hvort
tveggja var augljóst að
mati dómará og línuvarða,
Logi markvörður Kópa-
vogs greip í sóknarmann
Víkings innan teigs, og
boltinn sem skall í þver-
slá og innan á stöng VAR
INNI, sögðu laganna verð-
ir, sem voru í góðri að-
stöðu.
„Ég gerði ekki neitt af mér",
sagði Logi Kristjánsson, markvörð-
ur Breiðabliks viss í sinni sök og
í svipaðan streng tóku félagar hans
í þessum vftaspyrnuleik.
Ekki treystir undirritaður sér til
að dæma um réttmæti þessarar
vitaspymu, en alls urðu þær þrjár
í þessum leik, en hins vegar var
dómur Hannesar Þ. Sigurðssonar,
þegar Víkingar fengu vítaspym-
una á 26. mín. í seinni hálfleik,
fjarstæðukenndur, þar áttust tveir
menn við um boltann yzt í víta-
teignum, Breiöabliksmaðurinn sótti
að Vfkingnum, sem þegar í stað lét
sig detta faglega og fékk víta-
spyrnu. Hafliði Pétursson skoraði
þar örugglega 2:2 i stöng og inn.
Breiðabliksmenn skomðu annars
fyrst sín mörk og höfðu yfir i
hálfleik 2:0, tala 'sem ekki gaf
rétta mynd af leiknum, þvi Vík-
ingar höfðu verið betri aðilinn.
Fyrra markið skoraði Helgi Snorra-
son úr vítaspyrnu, sem var dæmd
réttilega eftir að einn yamarmanna
Vfkings kom í loftköstum á Guð-
mund Þórðarson, sem átti gott
tækifæri fyrir framan markið.
I
Dömur!
v ? "w, « Mest selda
sólgleraugnalag
Evrópu í dag
■l ^ eru kringlóttu
tizkugleraugun
Eru alltaf fáanleg
i verzlunum
P Umboðsm.: H. A. Tulinius
Þetta gerðist á 27. mín. og á 40.
mfn. slapp hinn fljóti miðherji Jón
Ingi Ragnarsson, alltof lítið notað-
ur f leiknum, inn fyrir og var ekki
að sökum að spyrja, að hann skor-
aði 2:0.
Á 12. mín. leiksins skoraði lang-
bezti maður vallarins, Jóhannes
Tryggvason, glæsilega með skalla
upp úr homspymu. Var þetta vel
gert og nú fyrst fóm Víkingar að
láta að sér kveða. Hins vegar
duttu Breiðabliksmenn niður og
vom einna líkastir því að vera
frosnir. Varnarmenn gátu jafnvel
ekki hreinsað frá markinu nema
5 — 10 metra, en framlínan stóð
stjörf, ef boltinn barst til hennar.
Markið lá í loftinu og á 26. mín.
kom það sem sé, — en var nokkuð
hæpið. Hins vegar hefðu Víkingar
getað skorað með smáheppni f
öðrum tilvikum, enda þótt fram-
lfnuspilið væri ekki beitt.
Framlengt var um 2x 15 mfnútur
og þá var eins og Kópavogsmenn
vöknuðu til lífsins og áttu tvö eða
þrjú dágóð tækifæri. Úrslitin komu
þvf eins og reiðarslag á síðustu
mínútunni, þegar Hannes benti f
þriðja sinn á vítapunktinn í þess-
um leik.
Víkingar eru sem sé f 1. deild
og leika þar með 7 liðum öðrum
næsta ár. En Breiðablik fær annað
tækifæri og auðvitað verður það
ekki gefið, þegar þeir mæta botn-
liði 1. deildar í úrslitum um 8.
sætið í 1. deild að ári. Breiðabliks-
menn eru til alls líklegri, ungir og
lifandi leikmenn með nokkra eldri
menn sér til trausts og halds. Vík-
1 ingar hafa nú verið f 2. deild f 14
leikár, voru f 1. deild 1955, þegar
deildaskiptingin hófst, en féllu það
ár.
Hefur saga Víkings verið rósum
og þymum stráð á vfxl, yngri
flokkar „lofað góðu“ ár eftir ár,
en síðan hefur ekki tekizt að byggja
neitt úr efniviðnum f eldri flokk-
unum fyrr en nú að ungir og efni-
'egir leikmenn skipa liöið. Er ó-
hætt að óska Víkingi til hamingju
með 1. deildina, og jafnfram að
hvetja þá til dáða á komandi •sumr-
um, því vonandi verða þau ileiri
árin en eitt í 1. deildinni að þessu
sinni. — jbp —