T*í'S 111 . Föstudagur 6. febrúar 1970. 73 ÞJONUSTA GLUGGA OG DYRAÞÉTTINGAR Tökum að okkur að þétta opnanlega glugga, útihurðir og svalahurðir með Slottslisten" innfræstum varanlegum þéttilistum. nær 100% þetting gegn vatni, ryki og drag- súg. Ólafur Kr. Sigurðsson og Co. Sími 83215 frá kl. 912 f.h. og eftir kl. 19 e.h. ER STÍFLAÐ? Fjarlægi stlflur ur vöskum, baðkerum, WC rörum og niðurföllum. Nota til þess loftþrýstitæki. rafmagnssnigla og fleiri áhöld. Þétti krana set niður brunna, geri við biiuö rör og m. fL Vanir menn. Valur Helgason. Simi 13647 og 33075. Geymið auglýsinguna.________________________ HANDRIÐASMÍÐI Smfðum allar gerðir járnhandriða, hring- og pallastiga. Húsgagnagrindur og innréttingar úr prófílrörum. Leitið verðtilboða. Fagmenn og löng reynsla tryggir gæöin. Vélsmiðja H. Siguriónssonar, Skipasundi2L^imi 32032. ER LAUST EÐA STÍLFAÐ? Festi laus hreinlætistæki. Þétti krana og WC-kassa: Hreinsa stífluö frárennslisrör meö lofti og hverfibörkum. Geri við og legg ný frárennsli. Set niður brunna. Alls konar viögerðir og breytingar. Þjónusta allan sólarhring- inn. Simi 25692. Hreiðar Asmundsson._________ Glertækni hf. Ingólfsstræti 4, sími 26395. Ný þjónusta. Framleiðum, tvöfalt einangrunargler og sjá- atn um fsetningar og einnig breytingar á gluggum og við- hald á húsum, skiptum um járn og þök o.m.fl. Afborgunarr skilmálar. Vanir menn. Glertækni h.f. Ingólf sstræti 4, slmi 26395 Heimasfmar 38569 og 81571.___________________ Húsbyggjendur tréverk tilboð Framleiðum eldhúsinnréttingar, svefnherbergisskápa o.fl. Höfum allar tegundir harðplasts. Harðvið: álm, eik, tekk, palisander. Teiknum og Ieiðbeinum um tilhögun. Gerum fast verðtilboð. Greiöslufrestur. Uppl. á verkstæðinu. Hringbraut 121 III hæð og 1 sima 22594 eftir k). 7. HÚSGAGNAVIÐGERÐIR Viðgerðir á gömlum húsgögnum. Bæsuð og póleruð. Vönd- uð vinna. Húsgagnaviðgerðir Knud Salling, Höfðavfk v/Sætún. Sfmi 23912._______________________________ BÓKBAND Tek bækur blöð og tímarit í band. Gylli einnig bækur, möppur og veski. Víðimel 51. Sfmi 14043 kl. 819 dagl. og 23022. VERKFÆRALEIGAN HITI SF. Kársnesbraut 139, slmi 41839. Leigir hitablásara, máln- ingarsprautur og kíttissprautur. HEIMILISTÆKJAVIÐGERÐIR Westinghouse, Kitchen-aid, Frigidaire, Wascomat og Was- cator þvottavélar. Cordes-strauvélar o. fl. teg. Raf- vélaverkstæði Axels Sölvasonar, Ármúla 4, Reykjavfk, sími 83865. Húsaviðgerðaþjónustaft í Kópavogi auglýsir Steypum þakrennur og berum I þéttiefni. Þéttum sprung- ur í veggjum, svalir, steypt þök og kringum skorsteina með beztu fáanlegum efnum. Einnig múrviðgerðir, leggj- um járn á þök, bætum og málum. Innanhússviðgerðir, breytingar, þakmálun. Gerum tilboð, ef óskaö er. Sími 42449 milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvöldin. Menn með margra ára reynslu. GLERÞJÓNUSTAN HÁTÚNI 4A Sími 12880. Einfalt og tvöfalt gler. Setjum I gler. Fagmenn Góð þjónusta.__________________ GAMLAR SPRINGDÝNUR gerðar sem nýjar samdægurs Klæöum og gerum við bólstr- uð húsgögn. Úrval áklæða. Bólstrun Dalshrauni 6 Sími 50397. ________ ' Bólstrunin Strandgötu 50 Hafnarfirði Klæðum og gerum við bólstruð húsgögn. Sími 50020. Kvöldsími 52872. TRÉSMról Tökum að okkur hvers konar trésmlði innanhúss sem utan, hurðalsetningar og skápasmíði. Verkstæöiö Hring- braut 121. Sfmi 25421. SILFURHÚDUN Tökum að okkur að silfurhúða gamla muni. Sækjum sendum. Símar 15072 og 82542._____________________ HATTAR hattar Breyti hðttum, hreinsa hatta, sauma eftir pöntunum. Slmi 11904 Laugavegi 86 (gengið inn á gaflinum). Geymið auglýsinguna. TRJÁKLIPPINGAR Trjáklippingar Útvega húsdýraáburð, ef ðskað er. Þór Snorrason, garðyrkjumeistari, sími 18897. ~~~ -------------- stf------- Ný þjónusta: INNRÉTTINGAR SMfÐI Tökum að okkur smíði á eldhúsinnréttingum, svefnher- bergisskápum, þiljuveggjum, baðskápum o.fl. tréverki. Vðnduð vinna mælum upp og teiknum, föst tilboð eða tímavinna. Greiðsluskilmálar. S.Ó Innréttingar að Súðarvogi 20. gengið inn frá Kænuvogi. Uppl. I heimasím um 14807, 84293 og 10014. ________________________ LOFTPRESSUR LOFTPRESSUR Tökum að okkur allt múrbrot, sprengingar f húsgrunnum og holræsum. öll vinna i ttma eöa ákvæöisvinnu. Véla- leiga Símonar Simonarsonar, sfmi 33544. NÝSMÍÐI OG BREYTINGAR Smíða eldhúsinnréttingar og skápa, bæði í gömul og ný hús. Verkið er tekiö hvort heldur er I tímavinnu eða fyrir ákveðið verð. Einnig breyti ég gömlum innréttingum eftir samkomulagi. Verkið er framkvæmt af húsameistara. Góðir greiðsluskilmálar. Fljót afgreiðsla. Símar 24613 og 38734. Vélritun fjölritun. Þóruim H. Felixdóttir Tökum að okkur alls konar vélritun og fjölritun. Kennum einnig á rafmagnsritvélar. Aherzla lögð á vandaða vinnu og fljóta afgreiðslu. Vélritun Fjölritun sf., Granda- garðj 7, simi 21719._____________________________ PIPULAGNIR Skipti hitakerfum. Nýlagnir, viðgerðir, breytingar á vatns leiðslum og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti heita og kalda krana. Geri við w.c. kassa. Sfmi 17041 Hilmar J H. Lúthersson, plpulagningameistari. BIFREIÐAVIÐGERÐIR Rétting, bíleigendur rétting. Látíö okkur gera við bílinn yðar. Réttingar, ryðbætingar, grindarviögeröir yfirbyggingar og almennar bílaviðgerðir. Þéttum ruöur. Höfum sílsa I flestar teg. bifreiða. Fljót og góð afgreiðsla. Vönduö vinna. Bíla- og vélaverkstæð ið Kyndill, Súðarvogi 34, slmi 32778. BÍLASPRAUTUN Alsprautum og blettum allar gerðir bíla, einnig vörubíla. Gerum fast tilboö. Stirnir sf. bílasprautun, Dugguvogi 11. inng. frá Kænuvogi. Sími 33895. KAUP SALA HAFNFIRÐINGAR Kaupi notuð reiðhjól og hjólastell. Reiðhjólaverkstæöið, Hverfisgötu 25, Hafnarfirði. Sími 52887. Kápusalan Skúlagótu 51, auglýsir Kvenkápur ör camelull, þrlr litir, terylenesvampkápur loöfóöraðar, terylenejakkar, terylenekápur og herra- frakkar. Teryleneefni I metratali og bútum, einnig margs konar efnavara á mjðg hagstæðu verði KJÖRGRIPIR GAMLA TÍMANS Klukkur, 6 gerðir. Ruggustólar, 5 gerðir. Borðstofusett, 4 gerðir. Svefnherbergissett, 2 gerðir. Urval sérstæöra hluta af ýmsu tagi. Opið frá kl. 1418 og laugardaga kl. 14-17. ANTIK-HÚSGÖGN, Slðumúla 14. Rvfk. Simi 83160. Indversk undraveröld" Nýjar vörur komnar Langar yður til að eignast fáséöan hlut? I Jasmin er alltaf eitthvað fágætt að finna Mikið úrval fallegra og sér- kennilegra muna til tækifærisgjafa. Austurlenzkir skrautmunir handunnir úr margvfslegum efniviði. m.a. útskorin borð, hillur, vasar, skálar, bjöllur, stjakar, alsilki, kjóiefni, slæöur, herðasjöl o. fl. Margar tegundir af reykelsi. Gjöfina, sem veitir varanlega ánægju fáið þér I JASMIN, Snorrabraut 22.__________ Utsala Austurborg Útsala: Stórfelldur afsláttur á mörgum vörum svo sem kvenkáp- um, kjólum, kven- og barnapeysum, undirfatnaði, sokk- um, leistum, alls konar nærfatnaði, kvenveskjum, barna og unglinga gallabuxum og mörgum öörum vöirum. AUSTURBORG, Búðargerði 10. 24 SJÖUNM KAFLI Morguninn eftir héldu þeir á- fram för sinni yfir Qattara-lág- ina, sólin skein á þá miskunnar- laust, málmhlutar farartækjanna hitnuðu svo, að ekki varö við þá komið. Saltflákarnir, sem þeir óku um, voru eins og gegnbök- uð og sprungin skorpa eftir langt sumar, sem nú leið að lokum, en þó ekki á enda enn. Douglas sat þögull við hlið Kafkaridesar, sem stýrði jeppanum eftir glóðheitum sandinum, hann hafði augun ým- ist á landabréfinu, öldóttu og fá- breytilegu landslaginu eða hann leit á áttavitann. Það var vin einhvers staðar fram undan, og Douglas reikn- aðist svo til, að þeir ættu ófarn- ar þangað um fjórar til fimm mílur, svo hann var því öldungis óviðbúinn, þegar Leech stóð upp fyrir aftan hann og gaf merki um, aö leiðangurinn skyldi nema staðar. Þegar jeppinn staðnæmd ist, leit Douglas þvl upp og spurði hvatskeytislega: Hvað er nú?" Vatnsbðl, sem við þurfum að athuga", svaraði Leech um leið og hann stökk niður úr jeppan- um og gaf Sanussi-leiðsögumömi unum tveim merki um að fylgja sér upp eftir lágri sandöldu, sem lá beint fram undan. Douglas slóst I för með þeim, og þegar þeir skriðu upp sandfláann, spurði hann sjálfan sig, hvernig I fjandanum Leech hefði getað farið að þvl að þekkja einmitt þessa sandöldu frá þúsundum annarra, sem allar virtust ná- kvæmlega eins. Þeir skriðu hæg- ar og af meiri varúð eftir þvi sem þeir nálguðust brún öldunn- ar, unz þeir að lokum sau ofan i lægðina fyrir handan, þar sem nokkur pálmatré stóðu á vlð og dreif kringum lítinn grasblett. Arabar nokkrir voru með úlf- alda slna hjá vatnsbólinu I miöri vininni, Leech virti þá fyrir sér gegnum sjónauka sinn, sem hann rétti svo Hassan, án þess að mæla orð af vörum. Sanussi-Ar- abinn beindi sjónaukanum að þeim andartak og mælti einung- is eitt orð. Barussar . . ." Leech hugsaði sig um andartak, en tók slðan aftur viö sjónauk- anum og beindi honum að þeim. Hvað merkir það?" spurði Douglas. Barussarnir geta verið viðsjál ir", svaraði Leech. Það fer eft- ir því, hver greiðir þeim mál- ann". Hann rétti Douglas sjónauk- ann. Douglas beindi honum nokk- urt andartak að Aröbunum. Sex menn, sex úlfaldar", sagöi hann. Enginn úlfaldi undir klyfj- um?" spurði Leech. Douglas hristi ;s höfuðið, og Leech sneri sér þegar að Sanuss- unum. Hvernig stehdur á því, að þeir eru ekki meö neinn úlfalda und- ir klyfjum?" spurði hann. Douglas átti í nokkrum erfið- leikum meö að skilja hina ara- bísku mállýzku þeirra. Fleiri menn, fleiri úlfaldar á eftir. Kannski skammt á eftir, kannski nokkurn spöl.'' Leech hugsaði svarið andar- tak. Þú ferð upp sandölduna fyrir handan og athugar, hvort þú sérð til ferða þeirra", sagði hanri við Hassan. EFTIR ZENO Hassan snart hönd Assine, og I næstu andrá var hann horf- inn. Leech sneri sér að Douglas, og þar sem hann hafði hugann allan við það, sem var að gerast, var röddin ekki eins ögrandi og venjulega. Þetta er eins konar könnunar- sveit. Aðalflokkurinn getur kom- ið þá og þegar. Þeir reyna að koma auga á hann". En vatn verðum við að fá", varð Douglas að orði. Einmitt". Douglas hugsaöi sig um and- artak, áður en hann mælti: En við erum ítalir, eða hvað? Hvers vegna gefum við okkur ekki á tal við þá?" Er þetta spurning... eSa skipun?" Það var hrjúf glettni I rðdd Leechs, þegar hann spurði. Það er spurning." Lecch hló,- og I þetta skipti var hlátur hans ósvikrrm og bakþanka laus. Þeir héldu niður sandbrekk una, ofan í lágiiia aftur til sinna manna, Leech fyrstur og þeir Douglas^e Assine é. hæla honum.