Vísir - 28.02.1970, Blaðsíða 3

Vísir - 28.02.1970, Blaðsíða 3
 (Jmsjón: Benedikt Viggósson: ,Fordómar og vill andi blaðaskrif 44 segja Oðmenn um þá fullyrðingu að þeir geti ekki spilað dansmúsik Hljómsveitin Óðmenn. Björgvin verðlaunaður fyrir metsöluplötu ársins 1969 1 sl. viku var Björgvin Hall- dórssyni afhentur silfurbikar, hinn mesti kjörgripur og að sjálfsögðu greyptur nafni Björg- vins. Það voru forráðamenn Tóna- útgáfunnar sf., Pálmi Stefáns- son og Jón Ármannsson, sem veittu Björgvin bikarinn í heið- ursskyni fyrir mest seldu hljóm- plötuna af þeim, sem útgáfan sendi frá sér á sl. ári, og eins og lesendur renna e.t.v. grun í, er hér um að ræða plötuna með íögunum vinsælu: „1 drauma- landi“ og „Þó líði ár og öld ..“ Þessi margumtalað plata seldist í 3500 eintökum og var söluhæst allra íslenzkra hljómplatna 1969. — Ég er ákaflega þakklátur Tónaútgáfunni_ sagði Björgvin, og um leið vil ég nota tækifær- ið og þakka öllum þeim, sem stuðluðu aö þessu með því að kaupa plötuna, þeim á ég mest að þakka. Pálmi og Jón sögðu, að svona verölaunaveiting væri nýbreytni hjá útgáfunni, en ætlunin væri að heiðra framvegis á hverju ári þá aðila, sem ættu allan veg og vanda af mest seldu hljómplöt- unni hjá Tónaútgáfunni. Eins og kunnugt er var um- rædd plata með Björgvin út- nefnd sem vandaöasta 45 snún- inga hljómplatan 1969 af hljóm- plötugagnrýnendum dagblað- anna. Svo hér virðast fara saman vinsældir og gæöi. Á blues kvöldinu sl. þriðjudag komu Óðmenn fram í fyrsta sinn f Reykjavík eftir þær breyting- ar, sem orðiö hafa á hljómsveit- inni, en sem kunnugt er hefur Reynir Harðarson tekið sæti Ólafs Garðarssonar við tromm- umar. Er Óðmenn höfðu lokið ieik sínum, sem var ágætlega tekið af viðstöddum, rabbaði ég stutt- lega við þá. — Koma trommuleikara- skiptin til með að hafa einhver áhrif á stefnu hljómsveitarinnar? — Ekki stefnuna, svarar Finn- ur, við munum eftir sem áður túlka þá músík, sem okkur finnst hafa mest sköpunargildi. Við munum taka meira tillit hvor til annars og stefnum að því aö mynda eina samtaka heild, áður hugsaðj hver og einn meira um sjálfan sig. — Þið tókuö Cream mjög til fyrirmyndar. .— Þaö má eiginlega segja það. aö við höfum æft okkur á Cream, segir Jóhann, Óli féll mjög vel inn í það, sem við vor- um að gera þá, en Reynir feliur enn betur inn í það, sem við glímum við núna. Það er ekki ætlunin að taka neina hljóm- sveit til algerrar fyrirmyndar, heidur reyna aö skapa okkar eigin persónulega stfl. Við höf- um iíka fullan hug á því að hafa verulegan hluta af því, sem við flytjum, frumsamið. — Því hefur verið haldið fram, að Óðmenn geti ekki spilað dansmúsík? — Þetta er fyrst og fremst sprottið af fordómum. segir Finnur, og blaðaskrif hafa mörg hver ýtt undir þennan hugsunar- hátt. Við teljum okkur spila mjög aðgengilega dansmúsík, og þeir, sem eru í vafa um það, eru beðnir aö hringja í umboðs- manninn okkar. sfminn hjá hon- um er 2-58-55. Starfsfólkið var nú farið að tvístíga í kringum okkur, enda klukkan orðin vel yfir eitt, ég sló þvf botninn í þetta og óskaði piltunum góðs gengis. ;,Okkar einasta Ijóð" r/ Það virðist ekki á færi allra pophljómlistarmanna að semja lög, og það heyrir til algerrar undantekningar, ef textahöfund- ur er innan híjómsveitarinnar. Yfirleitt er leitað á náðir góð- kunnra hagyrðinga, þegar hljóm- plata er fyrirhuguð. og jafnvel á þeim vígstöövum viröast menn komnir í efnisþrot. „Ástin ein, ástin hrein, Jiún feeknar öll mein, er okkar ein- asta ijóð ..“ syngja Roof Tops í titillaginu á nýútkominni hljómplötu, og það er orð að sönnu, því þetta ljóö Ómars Ragnarssonar er þaö eina á plötúnni, sem ort er á fslenzku. Við síðara lagið er notazt við frumtextann, sem er á ensku eftir Donovan og nefnist „La- lena“, lagið er einnig eftir hann. Það er ákaflega hvimleitt og vart til eftirbreytni að syngja á erlendu máli inn á hljómplötu, sem er ætluð fyrir íslenzkan markað. Hins vegar er því ekki að neita, að þetta er áheyrilegri hlið plötunnar, þrátt fyrir þenn- an sjæma galla. Söngurinn er virkilega góður, og allur annar flutningur er hinn þokkalegasti, en platan í heild er ekki sú, sem ég taldi mig eiga von á, eftir að hafa hlustað á fyrstu plötu Roof tops. Jón Ármannsson afhendir Björgvin Halldórssyni silfurbikartnn fvrir söluhæstu plötuna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.