Vísir - 24.08.1970, Blaðsíða 6
6
V1 SIR . Mánudagur 24. ágúst 1970.
i
i
f
f
f
i
y
LJÓSRITUN
MEÐ REMINGTON R-2 LJÓSRITUNAR-
VÉLINNI LJÓSRITUM VIÐ SKJÖL, TEIKN
INGAR O. FI. MEÐAN ÞÉR BÍÐIÐ.
BREIDD: ALLT AÐ 29,7 cm (A-3 DIN)
LENGD: EINS OG ÓSKAÐ ER.
Orka h.f.
Laugavegi 178. — Sími 38000.
MGMég fivili
með gleraugumfm
Austurstræti 20. Stmi 14566.
(SLENZKANIÐNAÐ
VELJUM fSLENZKT
wXvX'X'lvIv
JBP-GATAVINKLAR
' •»»
, í::?
'
m
m
«•:•:
•:•:•:•:
:•:•:•:
m
•V.V
JBP-HíIIup
SS»
Þegar Hermaim slapp frá
Ólafí var allt í hættu
Hermann skoraði 2 mörk fyrir Akureyri i Eyjum
• Það má með sanni segja,
að leikurinn á laugardaginn
í Vestmannaeyjum hafi verið
leikur markvarðanna. Þeir
sýndu báðir afbragðsieik, eink-
um þó Páll Pálmason í marki
Vestmannaeyja, hann forðaði
sínu Iiði frá enn stærra tapi en
3:0 með frábærri markvörzlu
hvað eftir annað.
Þrjú skot Hermanns Gunnars-
sonar, þess hættulega leikmanns,
sem að þessu sinni sýndi á sér
allt aðra og hættulegri hlið en
nokkru sinni fyrr hér Eyjum,
varði Páll, enda þótt þau væru af
örstuttu færi, — en tvívegis skor-
aöi Hermann samt aö þessu sinni.
I fyrri hálfleik áttu bæði liðin
fjölmörg tækifæri, en markverðim-
ir sáu um að markatalan hélzt ó-
breytt.
Greinilegt var að heimamenn
óttuðust Hermann Gunnarsson
mjög, enda ærin ástæða til. Ölaf-
ur Sigurvinsson var látinn fylgja
Hermanni eins og skugginn, en
að þessu sinni var Hermann honum
oft yfirsterkari, og í hvert skipti,
sem Hermanni tókst að rífa sig
lausan, skapaöist stórkostleg
hætta af.
Bezta tækifæri Vestmannaeyinga
í fyrri hálfleik var vítaspyrna, sem
Haraldur Júlíusson framkvæmdi,
— hún lenti í stöng utanverðri.
Á 9. mínútu seinni hálfleiks
kom fyrsta mark norðanmanna.
Þaö var gefið vel fyrir markiö,
vamarmaöur hugðist skalla frá, en
tókst ekki betur en svo, að knöttur
inn fór beint fyrir tæmar á Her-
manni, sem var ekki í minnsta
vafa um hvað gera bæri við knött
inn. Skot hans úr miðjum vítateig
fór rakleiöis I netið.
Tíu mínútum síðar skallaöi Val-
steinn Jónsson í netið ágæta fyrir-
sendingu frá Magnúsi Jónatans-
sjmi, 2:0.
Og þegar tæp mínúta var eftir
af leiknum, varði Páll gott skot, —
en knötturinn hrökk frá honum
til Hermanns, sem notaöi sér tæki-
færið og skoraði 3:0.
Páll hafði varið stórkostlega í
seinni hálfleik, m. a. skot frá
Magnúsi Jónatanssyni efst uppi í
markvinklinum.
Það var ekki beint falleg knatt-
spyrna, sem liðin sýndu 1 þessum
leik, en marktækifærin og góö
markvarzla gerðu leikinn skemmti-.
legan á að horfa á köflum. Þaö ■
verður ekki heldur sagt að 3:0
endurspegli þennan leik, tölur eins '
og 4:2 eða 5:3 voru mun nær
sanni. Akureyringar voru sterkari
og áttu að sigra, en Vestmanna-
eyingar áttu hiklaust að skora
a. m. k. 2 mörk.
Hermann Gunnarsson var góður,
og á ég erfitt að ímynda mér
hvemig lið Akureyringa hefði litiö .
út án hans. Ólafur Sigurvinsson,
sem hafði það erfiöa verkefni aö
gæta Hermanns, stóð sig vel, en
segja má að markverðimir hafi ,
verið afgerandi í þessum leik fyrir
bæði liðin. ,
Óli Ólsen dæmdi leikinn og gerði ;
það mjög vei. — alexander. —
Hittnin var ekki sú
sama og skotgleðin
og jbví tókst Vikingum ekki oð hindra enn
einn 1:0 heimasigur Keflvikinga
• Keflvíkingar sigruðu Vík-
inga á laugardaginn, á sín-
um raunverulega heimavelli,
grasvellinum i Keflavík, sem er
aftur kominn í gagnið, með einu
marki gegn engu, juku að mun
líkurnar á því að þeim takist að
verja meistaratitilinn í ár, þótt
hin þunglamalega leikaðferð
þeirra gefi raunar ekki slík fyr-
irheit.
Staða Víkinganna fer að verða í-
skyggileg, þeim hefur aðeins tek-
izt að næla sér í 4 stig, og fallið
blasir við, ef þeim tekst ekki aö
finna sér leikmenn, sem geta skor
að möric. Það sýndi sig glöggiega á
laugardaginn. Allan fyrri hálfleik
inn léku þeir skinandi vel og sóttu
nær stanzlaust að marki heima-
manna, en hittnin var eikki að sama
skapi og skotgleðin því knötturinn
fór í flestum tilvikum víðsfjarri
markinu.
Að venju færðu KePlvíkingarnir
sig upp á skaftið í seinni hálfleik.
Strax á 4. mínútu munaði
minnstu að hinum sannkallaða gim
steini ÍBK, Friðriki Rag>' 'vrssyni
tækist að vippa knettinum yfir Diö
rik markvörð, sem hætti sér held
úr langt, en Jósteini Kristjánssyni
tókst að bjarga á línu. En Friðrik
átti, eins og í flestum leikjum sin
um eftir að koma meira við sögu.
Eftir að Hafsteinn Tómasson, sem
gætti.hans mjög vel, hafði yfirgef
ið vöilinn, fékk Friðrik meira svig
rúm og þá var ekki að sökum að
spyrja. Rétt eftir miðjan hálfleik
missa Víkingar, i einu af sinum
hröðu upphlaupum knöttinn til
Guðna Kjartanssonar, sem sendir
mjög nákvæma sendingu fram með
vinstri hliðarlinu, tiil Friöriks, sem
skoraði meö eldsnöggu skáskoti.
Litlu seinna var það snilld Diðriks
Ólafssonar markvarðar að þakka
að Guðna tókst ekki að skora, úr
hörkuskoti af stutitu færi.
Þrátt fyrir nokkum sóknarþunga
ÍBK, er líða tók á leiMnn, fengu
Víkingur tivö tækifæri til að jafna.
Eirífcur Þorsteinsson féfck knöttinn
óvænt inn fyrir vítateig, en gat
ekki lagt hann nógu vel fyrir sig,
svo að mátitlaust skot hans hafnaði
f höndum hins furðurólega en ör-
ugga markvarðar ÍBK, Þorsteins
Ólafsonar. Keflvfkingar sluppu með
skrekkinn, þegar aukaskyma Gunn
ars Gunnaresonar, smaB 1 þver-
slánni, rétt fyrir leifcslok.
Eftir tækifærum að dæma var
þetta réttlátur sigur, en ef litið er.
á gang leiksins f heild, hefði jafnr
teflld verið sanngjamt, en það er
gamla sagan, mörkin ráða úrsiitum.
Leifcur KeflvíMnga minnti mest á!
vél, sem pínd er í of háum gír, en
kemst þótt hægt fari, en hjá Vfk-
ingum var vinnsla og hraði mifciffl, *
en ,,feilpústin'‘ slegin. þegar mest,
reið á.
Veður var hið hlýjasta og logn,
en sólarlaust. Dómaratrióið Guð-
mundur Haraldsson, Einar Hjartar-
son og Rafn Hjaltalín. stóð sig með
afbrigðum vel og gerir vonandi sHfct
hið sama d Evrópukeppninni, hinn
16. sept. f Manchester. —emm .
Staðan í ■
1. deild
•k Vestmannaeyjar—Akureyri
3:0 (0:0)
★ Keflavík—Víkingur
1:0 (0:0)
k KR —Akranes
1Æ (1:1)
Kópavogur vann
nágrannana 11:0
• Breiðablik vann sigur um helg
ina i bikarkeppninni í knattspymu,
liðið sigraði 3. deildalið Stjöm-
unnar i Garðahreppi með 11 mörk-
um gegn engu.
Eins og sjá má af lokatölunni,
voru yfirburöir Kópavogsmanna yf
ir nágrannaliðinu algjörir á öllum
sviðum leiksins. Leik þessum hafði
veriö frestað frá síðasta má.iudegi,
en það var gert þar eð Kópavogs-
liöið var að leika 1 undankeppni
Landsmóts UMFl, og vann Breiða-
blik Húnvetninga 5:0 og Stranda-
menn með 7:2 í þeirri keppni.
Akranes 10 6 3 1 18:9 15
Keflavík 10 7 1 2 15:8 15 1
Fram 10 6 0 4 19:1412
KR 10 3 4 3 13:1210
Akureyri 9 3 3 3 17:12 9
Vestrn. 10 3 1 6 9:19 7
Valur 9 2 2 5 9:13 6
Víkingur 9 2 0 7 9:21 4
Markahæstu leikmenn:
Hermann Gunnarsson, Akure., 8
Friðrik Ra‘>n.rrs«r>n Keflav 7
Kristinn Jörundsson, Fram, t>
Guðjón Guðmundsson. Akran 5
Ásgeir Eliasson, Fram, 4
Vlatthfas Hallgrimss., Akran.. 4
Teitur Þórðarson Akranesi 4