Vísir - 02.10.1970, Blaðsíða 2

Vísir - 02.10.1970, Blaðsíða 2
„Stille dage i Clichy“ Norska kvikmyndaeftirlitið hef ur bannað að myndin „Stille dage i Clichy", sem gerð er eftir sögu bandaríska rifihöfundarins, Henirys Millers, verði sýmd í Nor- egi. „Klámið í myndinni er svo gróft, að það er enginn vafi á því. að mynd þessa ber að banna“, sagði frú Böe Skaug, formaður norska kvikmyndaeftirlitsins. Téð kvikmynd var einnig bönn uö I Finnlandi og Frakklandi en hún er sýnd óstytt og hverjum sem er í Danmörku og Svíþjóö. Karen Böe Skaug skýrði frá þvi lika um daginn, að norska kvikmyndaeftirlitið heföi einnig bannað tvær aðrar danskar mynd ir, þ.e. „Uden en trævl“ — sem sýnd var í Bæjanbíói 1 Hafnar- firöi undir því ágæta nafni „Nak ið líf“ og einnig var „Det kære legetöj" bönnuö I Noregi. Sfðast nefnda myndin var sýnd í Kópa vogsblói I fyrra og hét á voru rná'li „Lefkfangið ljúfa“. Má ekki bjóða yður einn Nasser? — Nasser var dáður mjög í Egyptalandi og hann vissi sjálfur mæta vel hvers virði dýrkun persónu hans var honum. Þarna er fjöldi brjóstmynda af leiðtog anum tilbúinn til afhendingar. •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••!•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Ný aðferð til að verða ölvaður: Drekkið □□□□□□ Nafnið fundið. Rafael Lupo Umberto Vittore Cesar Giovanni Maria Alberto Reyno de Savoy prins hefur ekki enn þá verið sklrður. Enda er maðurinn nýfæddur. Hann er sonur hinar fögru og 25 ára gömlu prinsessu Maria Beatrice frá Savoy og faðir hans er fyrr- verandi argentlnskur diplómat, Luis Reyna að nafni. — Sonur þeirra Reyna og Beatrice fæddist þann 21. sept. sl. og verður ska'rð ur framangreindum nö'fnum í aktóberlok. □□□□□□ Pablo Picasso Picasso er orðinn S8 ára. Fyrir 32 árum yfirgaf hann ættland sitt, Spán og settist að I París. Spænsk yfirvöld hefur hann æ síðan fyrirlitið, en þó virðist svo sem einnig Picasso gerist íhalds samur með aldrinum og glati hugsjónum, því hann hefur boð izt til að mála heljarmikið skilirí fyrir Spánarstjóm og á að koma því verki fyrir á torgj einu I Madrid. Vinir Picasso segja aö hann viilji nú gjarnan setjast aftur að á Spáni, en þaðan fór hann land- flótta eftir borgarastyrjöldina. — Sagt er að einræðisherrann, Franciscó Francó suði mjög í listamanninum aö hvrerfa aftur til hins sólríka fööurlands síns. Læknir f Ameríku segist hafa fundið nýja aðferð til aö veröa „hátt uppi“ — og sú aðferð virð ist nokkuð góð, a.m.k. ef miöa á við verðlag, þvi hvorki þarf til áfengi né eiturlyf — það nægir alveg að drekka óblandað vatn. Dr. Daniel Cappon við York háskólann í Toronto I Kanada seg ist hafa stjómað tilraunum á rannsóknarstofu háskólans og leiddu þær í ljós segir hann, að maður getur orðið fyrir áhrifum, svipuðum og af nevzlu eiturlyfja með því einu að drekka sjö og há'lfan lltra af vatn; í einum teyg. „Þannig verður strax mikið vatnsmagn í blóðinu og með því að þynna þessa 5 Mtra af blóði sem hver maður hefur I líkaman- um verður rauðu blóökomunum gert erfiðara fyrir að flytja súr efni til heillians — þannig verður viökomandi vatnsdrykkjumaður einkar léttur í höfðinu. Hann verður kátur og kærulaus, rétt eins og kenndur maður“, segir dr. Cappon. „Margir stúdenta minna hafa hætt eiturlyfjanevzlu eftir að hafa reynt vatnsfytliri. Þeir fá nefnilega það sama út úr vatn inu og eitrinu — auk þess sem va»tnið er ekki eins hættulegt. — Reyndar vitum við um 30 aðferð ir til að „komast hátt upp“, en áhrifin af þeim öllum eru ná- kvæmlega eins.“ * „Sumir verða drukknir af á- • fengi eða eitri. Aðrir með því að • breyta innöndun sinni. Sumum 2 nægir að vera einir við sjávarsíð- • una eða upp; á fjallstoppi en öll • þessi revnsla er mjög svo á sama J veg. Og a'llir vita hvemig er að • vera „hátt uppi“ — það er sko * engin útvíkkun á heilastarfsem- • inni, heldur breyting á skynjun- um. Mönnum finnast þeir verða styttri, lengri, feitari eða grennri. Ýmist finnst manni að heimurinn sé óraunverulegur eða maður sjálfur. Maður sér sjáilfan siig sem óviðkomandi veru. Og dr. Cappon segist hafa at- hugað fleiri aðferðir en vatns- drykkju sem geta dugað mönnum sem vi-lja verða „hátt uppi“: Aö snúa sér marga hringi I rakarastól eða sofa ekki I 48 ti'l 72‘ klst. — Hella köldu vatni inn í eyrun í 8 sekúndur eða loka sjálfan sig innj f bljóðeinangruðu herbergiog leyfa engu ijósi aö komast þar að. „Þar sem svo marga iangar til vatn að reyna eitthvað tii að „verða hátt uppi“, þá eigum við læknar aö sýna fölki fram á aðferðir sem öruggar verða að teljast — aðferð ir sem enginn verður háður og getur hætt hvenær sem er — en það er ekki hægt þegar eiturlyf eru annars vegar“, segir dr. Cappon. Kennsla í fæðingar- hjálp kom að gagni Heather Campbell er ekki nema 11 ára gömul, Hún var ein meö móður sinni þegar móöir hennar fæddi myndarlega dóttur 1 marz mánuði síðastliðnum. Heather á heima I London og gengur á góðan skóla, hvar hún haföi áður fengið kennslu I hjálp I viðlögum og einhver kennarinn hafði haft dug í sér til að kenna bömunum sitthvað um fæðingar- hjálp. Og Heather tók á móti Vanessu systur sinni með sóma. Hún var hin rólegasta meðan móðir henn- ar fæddi og segir frú Campbell að Heatber hafi áreiðaniega bjargi: að lífi Vanessu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.