Vísir - 02.10.1970, Blaðsíða 3
V1SIR . Föstudagur 2. október 1970.
3
I MORGUN UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Tveir egypzkir íeiðtogar
fengu slag við útförina
Umsjón; Haukur Helgason.
Sadat forseti og Sabry fyrrum forsætisráðherra
buguðust, er Nasser var til moldar borinn —
Margir munu hafa beðið bana, er fjórar milljónir
fylgdu Nasser til grafar
% Tveir æðstu menn Eg-
yptalands fengu hjarta-
áfall við útför Nassers for-
seta í gær. Anwar E1 Sadat
núverandi forseti til bráða-
birgða og Aly Sabry fyrr-
um forsætisráðherra hnigu
niður við jarðarför leið-
toga síns. Egypzka stjórn-
arblaðið A1 Ahram segir
frá þessu í morgun.
Læknar annast nú þá Sadat og
Sabry, og er líðan þeirra góð eftir
atvikum samkvæmt síðustu frétt-
um. Segir, að orsök veikindanna
sé Iíkamsþreyta og taugastreita
vegna hins sviplega fráfalis Nass-
ers. Þessir leiðtogar hafi orðið mik-
ið á sig að leggja þá daga, sem liðn-
ir eru frá Iáti hans.
Sadat er 52ja ára, og tók hann
við forsetaembætti, þegar Nasser
lézt. Hann var náinn vinur Nassers
og samstarfsmaður alla tíð si'ðan
byltingin var gerð sumarið 1952,
en Sadat var einn af leiðtogum
hennar.
Sabry var einnig náinn samstarfs
maður forsetans. Hann á sæti í
framkvæmdanefnd arabíska sósíal-
istaflokksins, sem er eini leyfði
stjórnmálaflokkurinn í Egyptalandi.
Hvorki Sadat né Sabry gátu ver-
ið viðstaddir, þegar lfk Nassers
var lagt til hvflu í Nasser-mosk-
unni utan Kaíróborgar í gær. Fjór-
ar milljónir fylgdu Nasser til graf-
ar. Oft misstu menn í þrönginni
stjóm á sér og brjáluðust af sorg.
Segja menn, að ekki séu dæmi þess
fyrr við útför þjóðhöfðingja, að
sorg a'lmennings hafi verið jafn
áberandi og við útför Nassers.
Átök urðu milli lögreglu og fólks,
sem reyndi aö ryðjast fram og
snerta líkbörurnar. Talið er, að
margir hafi látið lífið og særzt,
en ekki er enn vitað um tölu þeirra.
Anwar E1 Sadat.
Aly Sabry.
NIXON KOMINN
TIL SPÁNAR
Abdel Nasser.
• .Nixon Bandaríkjaforseti kom í
morgun til Madríd að lokinni
hinni opinberri heimsókn til Júgó-
slavíu. — Deilurnar I Mið-Austur-
löndum og hemaöarstaðan á Mið-
jarðarhafi munu verða efst á baugi,
er Nixon ræðir í dag við ráðherra
á Spáni. Spánn hefur ástundað
gott samstarf við Arabarikin, og
mun Nixon hafa hug á að hafa not
af þvi.
Væntanlega mun Nixon leggja á-
herzlu á mikilvægi herstöövasamn-
ings Spánar og Bandaríkjanna, sem
hefur verið framlengdur. — Þessi
heimsókn Nixons er vatn á mvllu
Francostjómarinnar. Nixon mun
verða að hrósa Franco engu minna
en hann hrósaði öðrum görnlum
stjórnruálaforingja Tító Júgóslavíu-
forseta, í gær. Bandarfskir útvarps-
fréttamenn bentu á það í morgun,
aö Nixon ka'Maði Franco „einn
merkasta stjórnmálamann verald-
ar“, sem „ynni þjóð sinni gott starf
af aihug", þegar Nixon var vara-
forseti Bandarikjanna árið 1959.
Alþjóða flugmálastofnunin vill bann
— ekki flogið til rikja, sem vernda flugvélaræningja
STJÓRN alþjóða flugmála- í gær tillögu um aö flug-llanda, sem eiga hlut að
stofnunarinnar samþykkti félögin hætti að fljúga til flugvélaránum.
SAS-flug Höfn-
Tókíó um Moskvu
Skýrt verður frá nýrri flugleið
flugfélagsins SAS í dag, en
samningar hafa tekizt við Rússa
um SAS-flug frá Kaupmanna-
höfn til Tókíó um Moskvu.
Samningamir tókust miffli rfk-
isstjóm Danmerkur, Noregs og
Svfþjóðar, fuMtrúa SAS og rfk-
isflugfélags Sovétríkjanna Aero-
flot. Þetta verður önnur „hrað-
flugleið" SAS til Austur-Asíu.
Hin fyrri er um Tasjkent og
Pangkok til Singapore. Mun
flugið til Tókíó byrja 1. aprfl
næsta ár.
Sovézka flugfélagið fær í stað
inn leyfi til að fljúga frá Kaup-
mannahöfn til einhvers staðar i
Norður-Ameríku ef um það verð
ur sairuð, væntanlega til New
York og Montreal.
Miðað við að fljúga yfir Norð-
urheimskautið til Austur-Asfu
sparar SAS sér með hinni nýju
flugleið fjögurra eða fimm
klukkustunda flug.
Ti-llagan fer nú til laganefndar,
sem er á fundi í London. Banda-
ríkin bám þessa tillögu fram, og
fékk hún nauman meirihluta at-
kvæða. 14 af 27 greiddu atkvæði
með henni, 3 á móti og 10 sátu
hjá.
Þetta er ta'linn nokkur sigur fyr-
ir bandarísku fulitrúana, sem héldu
því fram, að málið væri tæknilegs
eðlis en ekki stjórnmálalegs, og því
heyri það undir stofnunina.
Laganefndin verður nú að úr-
skurða, hvort ákvæði um þetta
skuli verða viðauki við fyrri sam-
þykktir um fflug, eða hvort vera
skuli sérstök samþykkt um flug-
vélarán.
Ríkin, sem greiddu atkvæði á
i móti, voru Egyptaland, Túnis og
; Líbánon. Þau segja, að þetta sé
1 pólitískt mál, og eigi Sameinuðu
^ þjóðimar að fjalla um það en ekki
f 1 ugmálastof nun in.
Auglýsing
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og
sjávarútvegsráðuneytið vilja ráða nú þegar
pilt eða stúlku til sendistarfa hálfan eða all-
an daginn.
Upplýsingar veittar í ráðuneytunum.
Sjávarútvegsráðuneytið
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
*r
z
vjPAs^
y um q.
Tilboð óskast í raflögn í Lagadeild Háskóla
íslands.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, gegn 3.000,— króna skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð 19. okt. n.k. kl. 2 e.h.