Vísir - 09.10.1970, Blaðsíða 1

Vísir - 09.10.1970, Blaðsíða 1
— en þulurinn haföi þá gert mist'ók • Það urðu mikil fagnaðarlæti meðal áhorfenda að keppn- inni um titiiinn Ungfrú Skand- inavía 1970, þegar nafn annarr- ar íslenzku stúlkunnar var lesið upp f þriðja sæti, þegar úrslit- in voru tilkynnt. Var greinilegt, að áhorfendur kunnu vel að una þeim úrslitum. Öánægjuraddimar urðu lika ákaflega háværar, þegar kvnn- irinn dró þau úrslit til baka og tilkynnti, að sér hefðu orðið á mistök við talningu atkvæða. Það ætti að vera ungfrú Noreg- Ur, sem skipa skyldi þriðjh sæt- ið. Blaðið sneri sér til Jónasar Jónssonar í morgun, en hann er nýkominn heim frá Helsingfors í Finnlandi, þar sem keppnin fór fram s.l. laugardag. Kom Jóas þar fram í sjónvarpsþættinum, sem sendur var út til allra Norð urlandanna beint frá úrslita- keppninni. Söng Jónas þar vin- sælt dægurlag með íslenzkum texta, sem bar nafnið „Sólskin". „Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því, hve víðáttumikill sjónvarpssalurinn var, sem keppnin fór fram í. Þegar ég kom t. d. fram á senuna til að syngja, veit ég að þeir, sem sátu á öftustu bekkjunum hafa varla greint mig. Sviðið var líka risastórt, svo að maöur var bara eins og smá peð á því. Mér gekk samt alveg skínandi vel, vil ég segja. Og það sama er að segja um íslenzku stelpumar, þær Guðmundu og Kristínu. Þær komu ákaflega vel fyrir og maður heyrði talað um það, bæði fyrir og eftir keppni, að þær hefðu svo sannarlega átt skilið að komast ofarlega í úr- slitin. Það varö líka ógurlegur „skandair þegar Guðmunda var tilkynnt í þriðja sæti, en þeirri tilkynningu síðan fijótlega kippt til baka — áður en nokkur verð- latm höfðu verið afhent." —ÞJM Heildarkröfur farmanna 70-80% SEX ÁRA \ SKÓLANN 9 IJðlega 1250 6 ára börn eru að hefja skólagöngu þessa dagana. Eins og kunnugt er, þá er kennsla 6 ára bama í barna- skólum nýlunda hér á landi og því þurfti að senda nokkra barnakennara á námskeið í kennslu svo ungra barna. Nám- skeiði þessu lauk ekki fyrr en í september og því hefja bömin námiö nú eftir mánaöamót. Sennilegt verður að telja að skólagangan verði börnunum mest megnis leikur. Þau verða ekki nema 13—15 stundir í skól anum í hverri viku. Myndin hér að ofan var tekin í Áusturbæjarskólanum f morgún og sýnir nokkur 6 ára börn kom in á skólabekk. Áhuginn á skóla starfinu leynir sér ekki í svip bamanna. — GG Ekkert þokast í samkomulagsátt / farmarmadeilunni 9 Ekkert virðist ganga saman með útgerðarfélögunum og yfirmönn um á kaupskipaflotanum, sem hafa allir sagt upp miðað við miðnætti aðra nótb Báðir deiluaöilar verjast allra frétta um launakröfur yfir- manna, en samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur aflað sér munu heildarkröfur yfirmannanna vera nálægt 70—80%, ef allt er talið með, aukin friðindi, aukin fri o. s. frv. Núgildandi kjarasamningar við yfirmenn eru mjög flóknir og erfitt, að gera grein fyrir þeim í stuttu má'li. Starfsmaður eins útgerðarfé- lagsins sagði í viðtali við Vísi í morgun, að hann væri fyrst að kom ast inn í samningana nú eftir 8 ára starf hjá fyrirtækinu. Samkvæmt upplýsingum hans mun láta nærri, að yfirmennirnir, þ. e. stýrimenn, vélstjórar, loftskeytamenn og bryt- ar, hafi um 40 þús, krónur á mán- uði, auk ýmissa fríðinda, svö' sem frftt fæði, gjaldeyrisfríðindi, skatta- frádrátt, tryggingar, greiðslu sjúkra samlagsiðgjaida o. fl. — Að vísu munu launin nokkuð misjöfn og eru yfirmenn á minni kfeupskipun- um að öllu jöfnu launahærri vegna meiri vinnu. Vegna vinnu um helg- ar og á öðrum almennum frídögum hafa yfirmennirnir 117 daga frí á ári. Næsti samningafundur yfirmanna og ful'ltrúa útgerðarfélaganna verð- ur í dag, en fyrstu skipin munu stöðvast um helgina, ef ekki semst í dág 'eða á morgun. —VJ Guðmunda tilkynnt í þriðja sæti Barnið enn á Seyðisfirði — Barnaverndarráð athugar mál þess • Eins og Vísir hefur skýrt frá, stendur nú deila um veru barns frá Vopnafiröi á Seyðisfirði. Bam þetta var í fóstri hjá ömmu sinni á Vopnafirði, löglegum um- ráðanda sínum, en fékk síðan að fara í heimsókn til Seyðisfjarðar að hitta föður sinn og hans fólk. Síðan þetta gerðist eru rúmlega 2 mánuðir liðnir og er bamið enn á Seyðisfirði, þótt upph'aflega hafi stutt heimsókn verið fyrirhuguð. Amma barnsins á Vopnafirði sneri sér til yfirvalda til að fá aðstoð til að ná b'arninu aftur. Hafði bamaverndamefndin í Kópa- vogi málið fyrst á sinni könnu, þar eð hún ráðstafaði barninu upphaf- ■ •••••••••••••••••••••• legla til Vopnafjarðar. Nefndin í Kópavogi hafði um hríð I athugun að senda sálfræðing til Seyðis- fjarðar til að hafa tal af barninu og ættingjum þess þfer. Síðar ’var hætt við þá ráðstöfun og ákveðið að fá Barnavemdarráði Islands málið til athugunar. Átti ráðið að skera úr um hvort nefndin í Kópa- vogi ætti að hafa málið áfram á, sinni könnu, eða hvort Barnavernd arráð sjálft ætti að taka málið að sér að öllu leyti. Ólafur Guðmundsson, fulltrúi Warnavemdamefndar Kópavogs tjáði blaðinu í morgun, að vænta mætti einhverrar niðurstöðu af athugunum Barnavemdarráðs á næstunni. — GG !••••••••••••••••••••••••• Andóf við tregðuna Galletií SÚM á húsvegg, sem snýr að porti við Vatnsstíginn. Næsta dag hivít skella. Gatllerí SÚM, með svörtum stöfum. — Næsta dag hvít skella. Húsvegg urinn á að málast hvítur. And stöðu Súmmara við eigendur veggjarins er lokið. Hins veg- ar munu Súmmarar halda áfram andöfi sínu við tregðuna. Þeirri, sem snýr að viðleitni þeirra til að halda iifi og hreyfingu f kringum listina. Á bls. 9 í blaðinu í dag er rætt við nýkjöma stjóm félags ins og forvitnazt um starfsemi —ÞJM ••••••••••••••••••-••• Dauðsföllum vegna sjálfs- morða fækkar hlutfallslega I und íbúa. Hæsta dánartalan er | árið 1966 en þá eru skráð 18.9 j dauðsföll af þessum völdum á hverja 100 þúsund íbúa. Arið 1967 er talan 15.1, árið 1968 7.5 og árið 1969 9.9. Á árabiiinu 1951—1955 er tailan 11.8, 1956—’60 8,1 og 1961—’65 9.8. Ef talan frá árinu 1966 er borin saman við tölur frá öörum þjóð- iöndum, sem Alþjóðlega beilbrigð ismálastöfnunin gefur upp, lendir ís'land ofarlega í flofcki landa með hátt hlutfall siálfsmorða — eöa í áttunda sæti, eða fast á ðftir Dan mörku og Finnlandi. Einhverju kann þó að skeika um samanburð- inn, þar sem tölurnar, sem miöað er við eru frá árunum 1965—’66. I þessari töflu er Vestur-Berlín með hæsta tölu sjálfsmorða eða 41,3, þá kemur Ungverjaland með töluna 29,6, Austurríki 23,1, Tékkóslóvak ía 21,5, Vestur-Þýzk'aland 20,0, Finnland 19,8, Danmörk 19,3 og ef ísland er tekið inn með töluna frá 1966, þar á eftir. —SB Hlutfallslega hefur dauosföllum vegna sjálfsmorðs eða sjálfsá- verka fækkað á síðustu árum hér á landi. í nýútkomnu sept- emberhefti Hagtíðinda eru tol- ur yfir dauðsföll af þessum völd um frá árinu 1951—1969. Töl- urnar eru miðaðar við 100 þús- Þorskblokkin hækkar enn — vandamálib er oð afla nægs hráefnis á markaðinn — skrif Consumer Reports virðast ekki hafa áhrif á sóluna 0 Verðið á þorskblokk- inni hefur haldið á- fram að stíga á Banda- ríkjamarkaði og hefur nú verið í 31 senti pund- ið í 1—2 vikur. Allt bend ir til þess, að verðið muni halda áfram að stíga næstu mánuði, en óvarlegt er að spá um, hvar það kann að stöðv- ast. Þonskblofckin befur aðeins einu sinni áður komizt í þetta verð eða 1966, þegar verðið rétt snerti 31 sent, en hrapaði svo skömmu seinna alveg niður í 19 sent. Ekkert bendir til þess, að slíkt verðfall geti endurtekið sig. Mikill skortur er á flestum tegundum freðfisks á Banda- rfkjamarkaði,, en talið er ólík- legt, að framboðið aukist aö marki fyrr en eftir áramót. Neikvæð ummæli bandaríska neytendablaðisins Consumer Re- port virðast ætla að hafa mjög hverfandi áhrif á sölu íslenzkra aðila á Banda'ríkjamarkaði. Tals mönnum sjávarafurðadeildar SÍS og Sölumiðstöðvar hrað- fylstihúsanna ber saman um, að áhrif greinarinnar hafi verið hverfandi. Vandamál þeirra eru annars eðlis, þ.e. anna eftir- spurninni, en skortur er hér á nokkrum tegundum freðfisks. —VJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.