Vísir - 11.12.1970, Blaðsíða 5
~3U»
tomstundaholl /n
B'iÐVR. upp a fjöl da
skemmtilegra SP/Lfí
ÞAR A MEÐAL H/Ð
V/NSÆLA
VARAIIB LIGIA VARAl■
VCS IW HÆfí KR-INCA
— eftir 53 stiga mun/> fyrri hálfleik, hélt
KR strikinu gegn varaliðinu í þeim sibari
Varalið pólska körfu-
knattleiksliðsins Legia
reyndist vera við hæfi
KR-inganna í seinni leik
liðanna í Evrópubikarn-
um. Eftir hreinan sýn-
ingarleik pólsku snilling
anna í fyrri hálf leik voru
allir varamennirnir send
ir inn, og seinni hálfleik
lauk með jafntefli 42:42.
Sýnileifcurinn hins vegar,
færöi Legia ákaflega trausta for-
ystu meö 69:16, en það er eitt-
hvaö það allra hrikalegasta, sem
islenzk liö hafa þurft að hortfa
upp á eftir 20 mínútna körfu-
knatltleik til þessa.
Það er sfcemmst frá að segja
að pólsku körfuknattleiksmenn-
irnir voru hinir hreinustu snill-
ingar. Leikurinn var prúömann-
lega leikinn og fáar villur á leik-
menn béggja, næstum engar á
Pólverjana. Það var sannarlega
leitt að horfa upp í áhorfenda-
bekkina, þar sem mun fleiri
hefðu rúmazt til að horfa á stór-
snjallan leik Legia.
Rétt fyrir leikinn ákvað Kol-
beinn Pálsson aö tafca ráðum
læknanna og vera efeki með:
Aðeins smáskakfcafall hefði get-
að valdið alvarlegri blæðingu inn
á liðinn eftir meiðslin daginn
áður. Þetta var áfall fyrir KR,
— en fyrri hálffleifcurinn sjálfur
varð meira áfall.
Strax í upphafi fóru Pólverj-
arnir að ,,salla“ stigunum á KR.
4:0, 6:2, 20:4, 28:8, 36:10. Sann-
kölluð martröð fyrir hina ungu
KR-inga. Þeir eru satt að segja
langflestir mun yngri en þessir
l>ólsku ,,kollegar“ þeirra, sem
fá mun betri tækifæri tffl að æfa
iþrótt sína, þvi þeir eru í pólska
hernum og fó, að æfa að vild,
eins og tíökast nú orðið f flest-
um löndum.
í hálffleik var staðan orðin
' 69:16 og menn töluðu um „14—2
leikinn í knattspyrnunni“. Ekki
fór það svo ilila, þökk sé
iþróttamennsku Pólverjanna,
sem drógu alla sína beztu menn
ti.l bafca í síóari hálffleiknum.
Seinni há'lffleikurinn var jafn, og
sé aðeins litið á hann, þá varð
þar jafnteffli, eins og fyrr greinir.
Heildarstlgatala leiksins var
111:58, — það er alls ekki sem
verst gegn liði, sem áreiðanlega
á eftir að standa sig vel í þessari
keppni.
Eftir sitja KR-ingar með sárt
ennið. Lekjumöguleikar körfu-
knattleiksmanna okkar eru sorg-
lega lltlar, og greinilega hafa
körfuknattleiksmenn KR tapað
fé á þátttökunni að þessu sinni,
þátttökunni. sem er þó hrein-
lega lífsspursmál fyrir félögin,
sem íþróttir stunda. Hvað. vaeru
íþróttirnar hérlendis án sam-
starfs við útlönd?
Stjörnur leiksins voru þeir.
Dolczewski, Trams, fyrirliði,
sem skoraði 24 stig (Dolcze-
wsky 20 og lék bara fyrri hálf-
leikinn, hinn nokkrar mínútur
í þeim síðari) og Piltz.
Af KR-ingum kom Bjarni Jó-
hannesson iang bezt út úr þess-
um leikjum, sannarlega efnileg-
ur maður, aðeins 17 ára að aldri.
Einar Bollason er allt of þungur
gegn svona stríöþjálfuðum leifc-
mönnum, en hann skoraði mifcið
í gærkvöldi, 22 stig, Bjarni 24
stig og voru þeir hæst-ir KR-
inganna. David Janis er skemmti
legur leikmaður og ætti e.t.v.
aö vera meira með í leiknum. Þá
eru fram.farir Magnúsar Þóðar-
sonar greinilegar og verður
gaman að fylgjast með honurn
í framtíðinni.
Dómararnir fundust mér dæma
vel í meðallagi, enda var' verk-
efni þeirra langt frá því að vera
erfitt. — JBP
KR-ingur
frá Indó-
nesíu!
„Víða eiga KR-ingar ítök“, varð
einhverjum að orði í Laugardals-
höllinni í fyrrakvöld þegar þeir
sáu ungan Indónesíumann í KR-
liðinu í körfuknatöleik.
Hann heitir David Janis og er
23 ára skrifstofumaður og býr hér
í Reykjavík. David er lægstur
þeirra KR-inga, aðeins 1.75 metrar
á hæð, sem þykir ekki mifcið í þess-
ari fþrótt risanna. Hins vegar er
hann í þeim hópi leikmanna, sem
er hvað skemmtilegastur með
knöttinn og vaki leikur hans fyrir
þær sakir athygli áhorfenda.
Á myndinni er David Janis að
fylgjast með leik félaga sinna úti
á vellinum, greinilega spenn-tur á
svip.
MilSTARINN
MATAÐUR
Eftir að Mohammed Ali hafði
með naumindum sigrað Argentínu-
manninn Bonavena, þá var slegið
upp veizlu eins og sjá má, og það
var gert á stórfenglegan hátt eins
gefur að skilja. Japönsk geisha
mataði meistarann Nú hefur ver-
ið ákveðið að Bonavena mæti næst
Floyd Patterson í keppni í Banda-
ríkjunum á næsta ári.
V