Vísir - 18.03.1971, Blaðsíða 1
Heldur oð glæðast í netin
61. árg. — Fimmtudagur 18. marz 1971. — 64. tbl.
Aðeins hefur lifnað yfir neta
veiðunum upp á síðkastið. —
í nótt mátti merkja það að aifli
veeri að gilaeðast í verstöðvum
sunnanlands. Reykjavíkurbátar,
sem lönduðu i Þorláksihöfn
höfðu til dæmis flestir um og
yfir tiu tonn, sem er að vísu
enginn hrotuafli. Hins vegar
fréttist af Jóni Finnssyni með
20 tonn af þorski og Helga
Guömundsdóttir landaði 45
tonnum í Keflavfk í gær, en það
var allt ufsi. Grindavíkurbátar
voru með lítinn afla í gær, þar
lönduðu 50 skip 350 tonnum.
- JH
Gefa sér rangar forsendur"
//
— segir Knútur Otterstedt, framkv.stj. Laxár-
virkjunar um útreikninga landeigenda
# Vi5 höfum ákveðnar athuga-
semdir við útreikninga stjórn
ar Landeigendafélags Laxár og
Mývatns á orkukostnaði og telj-
um að þeir hafi gefið sér rangar
forsendur til að fá „staðreynd-
imar“ á sitt band, sagði Knútur
Otterstedt, framkvæmdastjóri
Laxárvirkjunar vegna yfirlýs-
inga landeigenda að „Laxá sé
dýrari lausnin“.
Knútur Otterstedt vil'I að sinni
gera fimm athugasemdir við út-
reikninga landeigenda, sem fengu
Guðmund Þórarinsson verkfræðing
til að reikna út fyrir sig orkukostn-
að Norðurlands, ef lögð er lfna frá
Búrfel'li til samanburðar við gerð
áfanga í Laxá, sem nú er unnið að.
Atbugasemdir Knúts eru eftirfar-
andi:
# Landeigendur styðjast við of
lága orkuspá fyrir svæði Laxár-
virkjunar. Frestur á framkvæmd
um er því óraunhæfur.
# Reiknað er með verðlagshækk-
unum við áætlun um byggingu
vatnsaflsstöðvarinnar. Kostnað-
urinn við lagningu línu frá Búr-
felli, 204 milljónir, er hins veg-
ar miðaður við verðlag í ársbyrj
un 1970.
# Eingöngu er stuðzt við áfangann
i Laxá, sem unnið er að núna.
Stjóm Laxárvirkjunar miðar
//
Skila þýfinu ef
Var si-hringjandi á innbrotsstað i gærdag
— tekinn sibdegis
„Ég skal skila ' 'finu, ef þið
fallið frá kæru,“ sagði þjófurinn,
sem var sfhringjandi í gærdag í
yfirvöld Myndlistarskólans. en þar
brauzt hann inn í fyrri nótt og stal
bankabók með kr. 271.000,00 inni-
stæðu og ávísanahefti.
En þjófnum varð ekki kápan úr
bví klæðinu og í gærkvöldi var
hann handtekinn. Fyrr í gær hand-
tók lögreglan stúlku, sem var í
vitorði með honum, og ætlaði að
ieysa út úr banka ávísanir sem
falsaðar höfðu verið úr stolna tékk-
heftinu.
Ætlaði hún að leysa út 40 þús.
króna ávísun úr Landsbankanum
og sagðist vera fyrirsæta úr Mynd-
listarskólanum. En trúnaður var
ekki lagður á sögu þessarar 17 ára
stúlku og var hún framseld lög-
reglunni. Meðferðis hafði hún aðra
50 þús. króna ávísun,
Þýfið komst allt til skila og hafði
ekki verið hreyft við innistæðunni
í bankabókinni. — GP
hins vegar að gerð vatnsai'lsvirkj
unar í samræmi við sáttatillög-
una. — Laxá III getur þá fram
leitt 19 mw ( stað 6,5
mw, sem bændur reikna
með, en kostnaðurinn er áætlað
ur 540 milli. Miðað við 6.000
klukkustunda nýtingartíma ár-
lega yrði því framleiðslan 115
millj. kw-stunda, þ. e. veröiö á
kflówattstund um 42 aurar. —
Stöðin gæti hins vegar framleitt
155 millj. kwst með rekstri topp
stöðva og 8000 klst. nýtingar-
tíma, sem þýðir að verðið færi
niður í 31 eyri.
# Reiknað er með, að dieselstöð
yrði keyrð á toppinum, ef keypt
yrði orka frá Búrfellslínu. Þar
er aöeins gert ráð fyrir einum
toppi á ári. Hins vegar má bú-
ast við, að toppunum verði fjölg
að í fjóra. Ef það yrði gert þyrfti
að framleiða svo mikla orku
með dieselstöövum, að dæmið
yrði óraunhæft. Þetta er veiga-
mikið atriði í útreikningnum,
j>ó að j>að sé kannski óskiljan-
legt fiestum. Auk þess er í
þessu atriði ekki gert ráð fyrir
neinni hækkun á olíum, sem er
fyrirsjáanlegt aö verði veruleg
í nánustu framtíö.
# í útreikningunum er reiknað
með fjórum möguleikum á
verði inn á línu við Búrfell,
eða 30—60 aura. I fyrra var
verðið á kílówattsstund komið
til Reykjavíkur 82 aurar. Verð
ið inn á línu við Búrfell gæti
Þungt haldinn og
meðvitundarlnus
Karl Kristófersson. maðurinn,
sem slasaðist í Keflavík í fyrrinótt,
liggur þungt haldinn af meiðslum
sínum á Landakotsspítala. Hann
hefur ekki vaknað enn til meðvit-
undar aftur síðan slysið varð. - GP
Þurftum ekki að flytja
annað en sjálf okkur
— segir húsfreyjan i Krossnesi i Trékyllisvik
eftir brunann — Fólk kom á skiðum og á hestum
til slökkvistarfs — Bærinn brann til grunna
Það var nú Iítið að flytja ann-
að en sjálfan sig, sagði Sigur-
björg Alexandersdóttir, hús-
freyja í Krossnesi við Tré-
kyllisvík á Ströndum, sem
varð að flytja slypp og snauð
ásamt manni sfnum og tveim-
ur börnum frá brunnum bæj-
arrústunum í kafaldshríð og
ófærð.
Bærinn í Krossnesi, sem er
gamalt timburhús brann til
kaldra kola, enda var björgunar-
starfið miklum erifiðleikum
bundið vegna veðurs og ófærðar.
— Ég var stödd uppi í svefn-
herbergi, sagði Sigurbjörg þeg-
ar ég fann reykjarlyktina. Eld-
urinn var þá kominn f eldiviðar-
geymsluna, sem er í öðrum enda
hússins. Við reyndum að
slökkva þetta og fólk dreif
fljótlega að á hestum eða skíð-
um fyrst héðan frá Norðurfirði
og síðan víðar að en ferðalög
voru erfiðleikum ; 1 din vegna
snjóa. Sjáifsagt hefði verið hægt
að bjarga meiru, ef ekki hefði
verið lögð áherzla á að slökkva,
en það bjargaðist ekkert út úr
húsinu, nema sængurfötin og
smávegis úr eldhúsi.
Bóndinn ( Krossnesi Eyjólfur
Valgeirsson brenndist á höndum
við slökkvistarfið og var allur
hlaupinn upp í brunablöðrum.
— Fjósiö var byrjað að
brenna, sagði Sigurbjörg, og
olíutank sem var við hliðina á
þvf, varð að sprengja í burtu.
— En eldurinn náði ekkj tökum
á fjósinu.
Hjónin gistu í nótt með börn
sín í Norðurfirði, en bóndinn
var f rnorgun þegar Visir hringdi
kominn norður í Krossnes til
að sinna skepnum sinum. — JH
hugsanlega orðið 20% ódýrara.
Ekki er raunhæft að reikna með
lægra verði en því, þ.e. eitthvaö
rúml, það, sem landeigendur
gefa sér hæst eða 60—70 aur
ar.
Nánari greinargerð frá stjón
LaKárvirkjunar mun birtast hér
í blaðinu fljótlega. — VJ
Gantcher ambassador,
Búlgarar bjóða
öllum toppunum
heim
Forseta Islands, forsætisráðherra,
borgarstjóranum í Reykjavik og
ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneyt
inu hefur öllum verið boöið að
heimsækja Búlgaríu á þessu ári og
því næsta.
Hér á landi er nú staddur sendi-
herra Búlgariu fyrir öll Norður-
löndin, Lalion Gantoher, en hann
hefur verið sendiherra íslands,
með aðsetur í Stokkhólmi s.l. 6 ár.
Gantcher er nú á förum frá Norð-
urlöndum. en áður en hann lýkur
sinni þjónustu, kom hann hingað
til íslands, og átt; viöræður við
yfirvöld um verzlunarmál og ferða-
mál.
I bígerð eru aukin yiðskipti milli
landanna, og segjast Búlgarir vilja
kaupa fiskafurðir og ullarvörur af
íslendingum, en selja okkur land-
búnaðarvörur í staðinn og kannski
eitthvað af vélum. í apríllok kemur
hingað búlgarskur verzlunarfulltrúi
og er ætlunin að hafa hér verzlun-
arfulltrúa í framtíðinni, ef viðskipti
aukast að marki. — GG
Meistari
hrylEingsias
,-Iryllingsmyndir eru aliltáf vin
sælar öðru hverju, vampýrur og
drakúlar eru „heimilisvinir“ víða
um lönd, koma inn á hvert
heimili 1 sjónvarpinu og þykja
auðfúsugestir að sögn. í blað-
inu í dag er fjallað um meistara
hryllingsins, Sir James Carreras,
sem i nær aldarfjórðung hefur
helgað sig hryllingnum. — Sjá
bls. 2.
Víkingor
sigla á ný
Á vélaöld hafa margir gaman
að spreyta sig á þeim sikipa
kosti sem sæfarar notuöu á öld
um áður, Leifur heppni hafði
ekki margbrotin siglingatæki —
e.t.v. var það hans heppni, því
ella hefði hann vart fundið Vín-
iand hið góða. Nú hafa Kanada
menn ákveðið að sigla sömu
leið og talið er að Leifur hafi
siglt, og þá við svipuð skilyrði
— sjá bls, 9.
Kínverjar
skantma Kússa |
í drep •
•
Enn á ný eru Kínverjar farnirj
að senda Rússum tóninn, —•
skamma þá fyrir stöðnun og •
andvaraleysi. Frá þessu segirj
í erlendum fréttum dagsins i •
dag. Þær eru á bls. 3. J
•
Dýrmætt mark! :
•
Birgir Björnsson, elztur og*
reyndastur allra leikmanna í l.»
deildinni f handibolta var einsj
og hann héldi á eldsprengju í«
gærkvöldi, þegar hann fram-í
kvæmdi víta'kast á móti Hauk*
um, staðan var 18:17 fyrirj
Hauka, leiktíminn búinn, aöeins»
vítakastið eftir. Ef hann skoraði:
ekki, þá voru Vaismenn orðnirj
meistarar, en ef hann skoraði, •
þá áttu FH-ingar enn mögu- ^
leika á sigri. — Sjá íþröttir á»
bis. 5. :
i