Vísir - 25.03.1971, Blaðsíða 4

Vísir - 25.03.1971, Blaðsíða 4
VISIR . Fimmtudagur 25. marz 1971. sinni! fjarðarliðsins — æsispennandi úrslita- | leikur i handknattleik i gærkvöldi — Val mistókst að hnekkja veldi Hafnar- Það fór ekkí á milli mála stórir hlutir voru að ger ast í Laugardalshöllinni í gærkvöldi, — FH og Valur voru að leika úr- slitaleikinn í íslandsmót inu í handknattleik. — Strax klukkan 5 í gær- dag voru hundruð manna samankomin við íþróttahöllina til að verða sér úti um að- göngumiða. Þeir lán- sömu, sem fylltu höllina, voru áreiðanlega litnir öfundaraugum af hundr- uðum manna, sem ekki fengu miða að þessum eftirsótta leik. Stemningin lá í loftinu, löngu áður en liðin hlupu inn á leik vanginn, ,pg greinilegt var aö Hafnfirðingar höfðu engu síður en Reykvíkingar náð sér f að- göngumiða að leiknum. Of mikil spenna hlýtur alltaf að vera fylgifiskur leikja sem þessa, og hér varð engin und antekning á. Von bráðar mátti sjá örugga leikmenn eins og Ólaf Jónsson missa boltann frá ;ér af klaufaskap að því er virtist, taugar leikmanna voru þandar til hins ýtrasta. Eftir 4 mín skoraði Geir Hallsteinsson fyrir FH. Birgir ver svo vel ’i FH-markinu og Ólafur Einarsson skorar enn á ný. FTJ byriaði eins og ævin- iega með miklum krafti, sem ætlaður var til að kýla niður andstæðinginn í upphafi vega. En eftir þessj tvö mörk var endapunktur settur i bili. Vals- menn skora næstu 4 mörk. en FH hepDnaðist ekkert að eagni. Á 5 mínútum breyttist staðan úr 0:2 í 4:2 fyrir Val. Meðal þess sem misheppnaðist fyrir FH var að Öm Hallsteinsson hleypur upp skýtur af línu. en Ölafur Benediktsson ver giæsi- lega, og ekki í síðasta sinn. Sannleikurinn er nefnilega sá að Ólafur varði stórglæsiiega í leiknum og sannaði að hann er okkar bezti markvörður i dag. Án slíkrar markvörzlu e>‘ hætt við að Valur hefði tapað stærra en varð. Ég undraðist það ekki eftir leikinn að sjá að Ólafur gekk vonsvikinn af velli og gat naumast dulið von- brigðj sín. Næst skorar Geir á 13. mín með ur-.ís'ðkki, en Birgir ver vel ’f FH-markinu, en einnig hann átti ágætan leik í mark- inu, og varðj allan leikinn. Næst líða 10 mínútur áður en skorað er, Jónas skorar af lin- unni gevsifallega, — smaug á ót.rúlegan hátt gegnum stálvörn Vals. Og sfðan nær Valur aft- ur forystu, þegar skot frá Erni er varið í teiginn. Síðustu mfnúturnar notaði Valur hins vegar vel og skoruðu tvö mörk og höfðu 6:5 yfir í hálfleik, og skildu eftir sig þá tilfinningu hjá áhorfendum almennt aðþeir væru sterkari aðilinn f þessari viðureign. En þar var um mesta misskiln ing að ræða. Að vfsu Bergur 7:5 úr vítakasti, s’iðan kemur í ljós að fiest mis heppnast Valsmönnum annað en markvarzla Ólafs Benediktsson- ar og reyndar vamarmálin. Sóknin, sem á að vera vömin, reyndist Valsmönnum illa að þessu sinni. Óheppnin elti þá, og Birgir varði vel í mariknu, aukþesssem vöm FH var betri en oftast áður f vet- ur. Glannaleg sending Geirs hafn aði í höndum Valsmanna, sem þustu upp, en létu verja hjá sér af línu. Þessi sending var aðallega fyrir fólkið á pöllun- um, ekkj liðið. Kristján Stefáns son jafnaði f 7:7 á 7. mínútu. Þá heppnir á línu með mfnútu milli bili, fyrst stígur Hermann á línu og síðan Gunnsteinn, en báðir skoruðu þó mark. Eftir talsverð mistök 'i leik sínum, sýndi Þorvaldur að í honum býr ýmislegt. sem hann á áreiðanlega eftir að sýna enn betur síðar. Hann lék laglega gegnum vörnina og skorar og mínútu síðar skýtur Kristján Stefánsson af alkunnu afli, og ekkert fékk staðizt slíkt skot. Eftir 17 mínútna leik fá Vals menn annað vítakast sitt, — og Bergur skorar. Heldur slakt, hjá Val að skora aðeins 2 mörk, bæði úr vitum á rúmum 17 mín útum. Rétt á eftir varði Birgir vfti frá Bergi, en Hermann skor aði aftur á mótj úr öðru víti rétt á eftir. 9:9. Fyrsti leikmaðurinn, sem á- gætir dómarar þessa leiks, Björn Kristjánsson og Karl Jóhanns son, sáu ástæðu til að vísa af velli í 2 mín., var Jón Karls- son i Val. Þetta var fyrir all- gróft brot á Kristjáni Stefáns- syni, sem brunaðj upp og var í dauðafæri, þegar brotið var á honum. t’Jr vítakastinu skoraði Birgir Raunar voru FH-ingar heppn- ir á ný á 25. mínútu. Þá skora þeir enn á þann hátt að ólaf- ur ver skot af línu, sem hrekk ur beinf upp í hendur Kristiáns Stefánssonar sem skorar. Hins vegar voru FH-ingar ekki eins heppnir skömmu síðar þegar Örn átti geysimikið skot af línu. sem Ólafur varði glæsilega og sneri strax upp í sókn. sem færði Val mark í staðinn. 11:10. Nú voru aðeins eftir 4 m’in- úrur. Djarft skot Geirs var var- ið. Bergur Guðnason var sömu leiðis diarfur með skottilraun skaut yfir og nú er komið að FH að reyna fyrir sér og stað- an 11:10 fyrir FH. Það var Jón- as Magnússon, hinn ungi og efnilegi leikmaður sem fékk Gleðin var mikil að leik loknum, — Birgi Björnssyni fagnað innilega af dr. Ingimar Jóns- syni, þjálfara liðsins og Einari Mathiesen, formanni. Hafnfirðinga til að anda ögn létt í gegn eins og minkur út úr magnsklukkan sítifandi . sýndi ara, hann var sióttugur og bor minkabúi, — og skoraði með áhorfendum að 2:08 voru eftir. aði gat á vörn Vals, smaug þar miklum tilþrifum, 12:10 og raf FH-liðið fjölhæfast í mótinu44 sagði dr. Ingimar Jónsson, þjólfari FH eftir sigurinn i gærkv'óldi Ingimar Jónsson, þjálfari FH, var að vonum ánægður með sig- urinn, þegar við hittum hann eft ir Ieikinn, en taldi sig ekki eiga ■iema lítinn hluta af sigrinum, hann væri fyrst og fremst leik- mannana sem hefðu staðið sig með mikilli prýði, enda ætlaði Ingimar varla að fást til að fara með liðinu fram á gólfið til að taka við íslandsbikarnum, en margar fúsar hendur stjökuðu honum áfram, þar til hann var kominn á þann stað sem hann verðskuldaði að standa við hliö þess Iiðs sem hann hafði miðlað af þekkingu sinni, á liðnu leik tímabili, með glæsilegum ár- angri. { stuttu spjalli sagði Ingimar. að orsökin fvrir þeirri breytingu FH- liðsins’ frá seinni Ieiknum við Val í mótinu, sem tapaðist með mikl- um mun, væri sú, að leikmenn- irnir hefðu verið mun betur bún- ir undir þennan leik, sálarlega, en þeir hafa verið áður, og því ekki farið úr jafnvægi þótt á móti blési. Hann kvað FH-liðið, fjöl- hæfast liðanna í mótinu, þótt sigr ar þess hafi oft hangið á bláþræði. Þar værj þó ekkj um að kenna, óheppni heldur klaufaskap. Gagnvart þjálfun liðsins, sagðist Ingimar hafa lagt mesta áherzlu á líkamsþjálfun. framan af æfinga- tímbilinu. Síðan hafi hann lagt mesta rækf við leikkerfin, — og kannski fullseint, enda hefði liðið ekki náð æskilegu valdi yfir þeim. og það værj sennilega orsökin fyr- ir hinum misjöfnu leikjum þess. Aðspurður sagðist Ingimar ekki bafa st.undað handknnttleiksþjálfun fyrr en hann hóf afskipti sín aí PH-ingum. Þetta væri sem séfrum raun sín, á þeim vettvangi. Hins vegar hefi hann kynnzt iþróttinni á menntunarbraut sinni, en Ingi- mar er doktor í fþróttafræðum, sem kunnugt er. Spurningunni um það hvort hann yrði áfram með FH á kom- andi ári, vildi hann ekkert segja að svo stöddu. Ef menn legðu nauðsynlega rækt við handknatt- leiksþjálfun. þá væri hún mjög erfitt starf og lýjandi. Hann væri þv’i ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann héldi áfram. sem þjálfari í þessari skemmtilegu íþrótt. Eítir hinn glæsilega árangur sem Ingimar hefur náð með FH- inga. hljóta handknattleiksunnena ur að óska þess, að hann hverfi ekki úr röðum hins fámenna þjáli arahóps okkar, heldur fái íþróttin að njóta hæfileika og kunnáttu hans á næstu árum. —EMM FH-si^ur rétt einu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.