Vísir - 16.10.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 16.10.1971, Blaðsíða 1
61. áre. — Laugardaeur 16. október 1971. — 236. tbl LÁTIÐ FÓLK Á LAUNASKRÁNNI Oft er þa6 þegar menn deyja, að þeir hafi áhyggjur út af af- komu sinna nánustu og eru sann færðir um að ættingjamir lifi sultarlífi eftir að þeir eru aliir. Hins vegar hugsar enginn um Fá veginn heim i hlaðvarpann.. króna Heimta tugmilljónir af Vegagerðinni! fjárhagsafkomu hins dauða, eins og eðlilegt er — og þó. Það kemur sem sé í ijós að ríkið gleymir ekki sínum mönn um þótt dauðir séu fyrir nokkr um árum. Samkvæmt skrá yf- ir „skiptingu lögboðinna og ólög boðinna eftirlauna og styrktar- f jár“ eru það nokkrir aðilar sem rikið lætur sig ekki muna um að greiða nokkra tugi þúsunda á ári hverju, og skiptir það engu þótt viðkomandi aðilar hafi legið í gröf sinni í nokkur ár Hiins vegar kemur það ekki fram í fjárlagafrumvarpinu hvernig þessu fé er komið til skiia. IUm 60 landeigendur hafa sett fram kröfur á Vegagerð ríkisins fyrir eignarnám á landi undir Suðurlands- og Vestur- landsveg. Fjalla undir- matsnefndir nú um mat Iá þessum landsvæðum. Fjölmargir lögfræðingar fjalla nú um málin, en landeigendur hafa yfirleitt ekki sett fram beinar fjárkröfur í krónutölu, heldur vitna í lóðaverð þar sem matsgerðir hafa farið fram. Eft ir því sem Vísir hefur fregnað mun vera um næsta ævintýra legar upphæðir að ræða í sum um tilfellum. Það er landið næst Reykjavík sem mun vera dýr- ast, en einnig mun það vera dýrt f nágrannasyeitarfélögum sums staðar, og hefur verið tal að um 100—200 kr. á fermetr ann. Sigfús Öm Sigfússon hjá Vegamálaskrifstofunni sagði i viðtali við Vísi, aö Vegagerðin hefði bongað frá einni til tveim krónum fyrir fermetrann úti i sveitum og allt upp I 55 krónur fermetrann, en það verð var sett á landsvæði við Grafarholt af gerðardómi. Hektarinn var því samkvæmt gerðardómi 550 þús. kr. Það eru yfir 30 landeigendur, sem eiga hlut að máli vegna lagningar Suðurlandsvegar frá Rauðhólum upp aö Lögbergi en aðeins færri, sem eiga hlut að máli vegna lagningar Vesturlands vegar frá Úlfarsá upp í Kolla fjörð. í matsnefndunum sitja Bjami K. Bjarnason borgardómari og Ögmundur Jónsson verkfræðing ur vegna mats á landi undir Suð urlandsveg en Guðmundur Jóns son borgardómari og Einar Páls son verkfræðingur sitja í mats- nefnd vegna landsvæða undir Vesturlandsveg. Væntanlega verður skorið úr málinu í vet- ur. —SB Samkvæmt upplýsingum Gfsia Blöndai hagsýslustjóra er farið yfir þessa eftirlaunaskrá á hverju ári og þeir sem safnazt ! hafa til feðra sinna strikaðir út. Einhver misbrestur virðist þó hafa oröið á þessum útstrikun- um því enn er á fjárlögum fólk sem látiö er fyrir allmörgum ár um. Sennilega er lítii hætta á aö þessu fé sé ráðstafað í ein- hvern óþarfa og því ástæðulaust að fárast yfir þessari greiðvikni ríkisvaldsins við hina dauðu. —SG ékk harðan skell Harður árekstur varö við- gatna mót Skúlagötu og Klapparstígs i gær um kl. 14.30, þegar fólksbif reið, sem ekið var niður Klappar stíg, ientí beint fyrir umferðinni eftir Skúlagötu. Ökumaðurinn ætlaði sé að beygja vestur Skúlagötu, og hélt sig hafa nægilegt ráðrúm til athafna, en fór þá beint fyrir „Pick-Up“-bif reiö, sem ekið var á vinstri akgrein vestur Skúlagötu. Við áreksturinn snerist fólksbíllinn við og rann aft ur til baká beint á húsvegg Lands smiðjunnar. Miklar skemmdir urðu á bílun- um, en éngin meiðsli urðu á mönn um. —GP I'annig var bíllinn á Landssmiðjuveggnum eftir áreksturinn á Skúlagötunni í gærdag. (Ljósm. Vísis BG) Vísismenn spurðu nokkra veg farendur um þéringar I gær. Þessi unga dama varö á vegi okkar og svaraði spurningunni. Sjá bls. 9 ••••••••••••••••••••••• Þú eðo jbér? Kirkjan ætlar að banka upp á — skipulögð söfnun til flóttafólks i Austur-Pakistan á næstunni Lifum við í stórfjöl- skyldum árið 2000? Guðrún Jónsdóttir arkitekt telur, áð íslenzka fjölskyldan eigi eftir aö stækka töluvert á næstu árum og árið 2000 sé líklegt að við lifum saman f stórum fjölskyldum eða aö minnsta kosti fjölskyldum, þar sem fleiri ættingjar búi saman en nú er. Guðrún var eina konan í átta manna umræðuhópi, sem ræddi um skipulág á fslandi ár ið 2000. Eftir ummæli hennar beindu ýmsir fulltrúar karlkyns ins spjótum að henni og báðu fyrir sér, að ekk; yrðu komnar „barnavélar“ og konur hættar að fæða' böm, og væri það eft ir öðru. Guðrún kvaðst ekki vilja neinar „útungunarvélar" fyrir mannskepnuna, og hún sagðist helzt vilja einkvæni. þeg ar einn ráðstefnumanna spurði, hvort árið 2000 yrði f tVzku einkvæni, fjölkvæni eða „ó- kvæni“. Hún sagðist álíta, að stækkun fjölskyldunnar gæti orðið æski leg. Lfklega yrði um einkvæni að ræða, en afstaða manna hvers tij annars myndi breytast. Samband íslenzkra sveitarfé laga gekkst fyrir ráðstefnunni, sem stóð þrjá daga. — HH Hjálparstofnun kirkjunnar er nú aö undirbúa skipulega söfn un vegna flóttamanna frá A- Pakistan, en ekki hefur verlð á- kveðíð ennþá, hvernig hún verð ur framkvæmd. — Ljóst er að við getum ekki hafið þessa skipu lögðu söfnun fyrr en undir mán- aðamót, sagði Valdimar Sæm undsson hjá Hjálparstofnuninni í viðtali við Vísi. — Við verðum bara að vona, aö áhugi almenniings á þessu Mknar- máli hafd ekki dvínað fyrir þann tVma, sagði hann. Valdimar kvað ekki ætlunina að ganga í hús, en almenningi yrði auðveldað að koma peningunum frá sér, ef hann hefur áhuga á að rétta A-Pakistönum hjálparhönd. Framlög, sem borizt hafa Hjálp arstofnun kirkjunnar vegna Pakist an nálgast nú eina milljón. Stórar upphæðir berast daglega utan af landi og einnig úr Reykjvík og ná- grenni. Má nefna að Siglfirðingar lö.gðu leið sína í kirkjuna síðastlið inn sunnudag í hríðarveðri og af- hentu sóknarpresbinum samtals nær 100 þús. krónur til söfnunarinnar. Fiá Akureyri hafa einnig boizt nær 100 þúsund, frá Vestmannaeyjum 50 þúsund og meira væntanlegt það an og frá mörgum öðrum stöðum. Haldið er að sjálfsögðu áfram að veita gjofum viötöku og verður Biskupsstofa opin í dag laugardag kl. 9—17 til að taka við framlögum sem berast kunna. Einnig taka prestar við framlögum. —VJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.