Vísir - 20.10.1971, Blaðsíða 1
RÆKJUVEIDAR BANNAD■
AR VEGNA SEIDADRÁPS
— „Of mikil eyðileggingarstarfsemi á ýsuseibum", segir Ingvar Hallgrimsson
Fólk kaupir nú orðið hvers konar hluti með afborgunarkjörum
ekki sízt heimilistæki, til dæmis ísskápa og hrærivélar, og
jafnvel stundum barnavagna. ^
Dýrt csð knupa með ufborgunum
Þótt það sé oft hagstætt að
geta keypt með afborgunar-
kjörum, þá kostar það oft
meira en fólk gerir sér grein
fyrir, þegar öll kurl koma til
grafar. Neytendasamtökin
hafa athugað þetta og segja,
að raunverulegir vextir, þeg-
ar til dæmis húsmunir séu
keyptir með afborgunum, séu
yfirleitt ekki undir 20% og
fari upp í 80%. — Það fer
mjög vaxandi, að fólk fái
„Iánað“ í verzlunum, og það
hefur mörg vandamál í för
með sér.
Siá bls. 9
vism
61. árg. — Miðvikudagur 20. október 1971. — 239. tbi.
LÍTILL
HOUDINI
Sjá bls. 2
Rækjuveiði hefur verið
bönnuð frá og með deginum
í dag á Eldeyjarbanka. Þeir
þrjátíu bátar, sem stunda
þessar veiðar munu flestir
landa afla í Sandgerði í kvöld
og síðan ekki halda til veiða
aftur að sinni, nema ný svæði
finnist fyrir bátana.
— Það er ekk; forsenda fyrir
veiðunum með þeirri eyðilegg
ingu, sem þær hafa í för með
sér, sagði Ingvar Hallgrímsson,
forstöðumaður Hafrannsóknar-
stofnunarinnar í viðtali við Vísi
Engin læknisvottorð
— „veiku" sjónvarpsmennirnir fengu simskeyti út-
varpsstjóra of seint til oð fá votforðin — starfs-
menn kvarta sáran um illa meðferð i launamálum
Engin tök voru á því fyrir
starfsfólk sjónvarpsins að afla
læknisvottorða um heilsufar sitt
þar eð skeyti frá útvarpsstjóra
barst því ekki í hendur fyrr en
fyrst um kl. 10 í gærkvöldi og
alveg þar til í morgun en þar fór
útvarpsstjóri fram á að læknis-
vottorði yrði framvísað til stað
festingar veikindafjarvist, sagði
Sverrir Ólafsson formaður starfs
mannafélags sjónvarpsfólks í
viðtali við Vísi í morgun. —
Sverrir eins og hinir rúmlega
hundrað föstu starfsmenn sjón
varpsins náðu heilsu aftur í dag.
Starfsfólk sjónvarpsins hefur
aldrei þurft að framvísa læknis-
vottorði, þó að það hafi veriö frá
vinnu vegna veikinda í einn dag,
sagði Sverrir. — Þess vegna gerði
starfsfólkið ekki ráðstafanir til að
afla sér læknisvottorða hjá heimilis
læknum um daginn, þegar unnt var
að ná til þeirra.
í fréttatilkynningu frá starfs-
mannafélagi sjónvarpsins í morgun
er gerð grein fyrir kjaramálum hjá
stofnuninni. — Þar kemur fram, að
starfsmannafélagið hafi tekið loforð
af BSRB fyrir sitt leyti og fram-
kvæmdastjóri sjónvarps samsvar-
andi loforð af fjármálaráðuneyt-
inu, að ekki yrði raöað niður í launa
flokka í fyrra án þess, að ofan-
greindir aðilar fengju að fylgjast
þar með. Var talið, að BSRB og
fjármálaráðuneytið hefðu ekki
nægjanlegan skilning á starfsemi
sjónvarps og niðurröðun starfa
yrði handahófskennd. — Hvorki
fjármálaráðuneytið né BSRB stóðu
þó við loforð sín og í ljós kom, að
kjarasamningarnir urðu óviðunandi
fyrir stóran hóp starfsmanna og
var þeim mótmælt strax. S.tarfs-
mannafélagið skipaði þá sérstaka
launamálanefnd, sem vann með
yfirmönnum stofnunarinnar að nið-
urröðun í launaflokka eftir opin-
berum reglum um starfsmat.
Nú hefur hins vegar fengizt end-
anlegt svar fjármálaráðuneytysins,
aö litlar eða engar leiðréttingar séu
fáanlegar.
í tilkynningunni eru tekin nokk-
ur dæmi um misræmi í launamál-
um. Ljósameistari sjónvarps er sett
ur í 17. launaflokk meðan ljósa-
meistari Þjóðleikhúss er í 20. launa-
flokki. Símvirki hjá Landssíma
kemst í 16. launaflokk, en hjá sjón-
varpi fengi sami maður 13. flokk.
Ríkið býður ófaglærðum mönnum
14.—15. launaflokk, en hjá sjón-
varpi eru iðnmenntaðir menn, sem
vinna flókin og listræn störf í 13.
launaflokki.
í fréttatilkynningunni er ekki
minnzt á tengslin milli „veikinda"
sjónvarpsmanna og launa þeirra.
. - - VJ
í morgun. Það er ekki af neinni
mannvozku, sem við bönnum
veiði þarna. Það er gert í fullu
^amráði við þá, sem veiðina
stunda. Menn sjá að það er
ekki hægt að stunda þessa veiði
áfram svona.
Rækjubátarnir hafa fengiö
frá 3 þúsund og allt upp í 14
þúsund ýsuseiöi í veiðiferð. Sjó
mennirnir hafa orðiö að fleygja
seiðum fyrir borð jafnóðum,
en þá er meira og minna af
þeim dautt.
— Þetta hefur verið athugað
mjög náið, sagði Ingvar og seiða
fjöldinn hefur reynzt það mikill
í aflanum að óhjákvæmilegt er
annað en banna þetta. Jafn-
framt er verið aö gera athugan-
ir á veiöarfærum. Meðal annars
er bátur frá okkur úti núna,
Glaður heitir hann og stjórnar
Guðni Þorsteinsson þar um borð
athugunum á nýrri vörpu. Það
er hins vegar mikið vandamál
að skilja rækjuna frá seiðunum,
vegna þess hve þau eru lík
rækjunnj að stærð.
Bannið nær yfir allt svæðið,
sem ýsuseiðin eru á, en það
er núverandi ræðjusvæði viö
Eldey. Sagði Ingva'r aö reynt
yrði að finna ný svæði fyrir
bátana, þar sem þessi veiði hef
ur veriö mikil búbót fyrir fólk
og yrði mikið áfali fyrir marga,
ef hún legðist alveg niður. Til
dæmis hafa margir aðilar i
Sandgerðj lagt í stórkostlega
fjárfestingu vegna rækjuvinnsl
unnar og eru þar milljónir í
veði.
Ingvar sagði að margt væri at-
hugunarvert í þessum efnum. Til
dæmis kæmi það í ljós að stóru
bátarnir fengju yfirleitt meira af
seiðum heldur en þeir smærri.
Ástæðan er sú að þeir geta
togað, mun hraða'r og þá slæð
ast seiðin frekar í vörpuna,
Hins vegar væri út í bláinn
að setja mönnum reglur um það
hversu hratt megi toga.
Rækjuafli hefur verið mjög
góður að undanförnu og raékj
an er stór og falleg. Hefur rækju
vinnslan verið mikil atvinnu-
bót á Suðumesjum að undan-
förnu og bregður því fólki mjög
við. þegár veiðin hættir. —
Margir bátar munu hins vegar
fara í rækjuleit næstu daga til
þess að kanna hvort ný mið
eru ekki nýtanleg þar sem eng
in eru ýsuseiðin. —JH
Ekki bar á öðru í morgun, en að sjónvarpsmena hefðu náð heHsu sinni að fullu.